Morgunblaðið - 03.02.2014, Blaðsíða 4
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Unnið er að sölu Aðalbjargar II
RE-236 og fiskverkunar Aðalbjarg-
ar s.f. í Reykjavík til Þórsbergs ehf.
á Tálknafirði. Aðalbjörg RE 5, sem
er í eigu Aðalbjargar RE-5 ehf. hef-
ur ekki verið seld.
„Ytri aðstæður koma í veg fyrir að
hægt sé að reka þetta áfram,“ sagði
Stefán Einarsson, skipstjóri og einn
eigenda Aðalbjargar s.f., um söluna.
„Þetta er eitt af elstu útgerðarfélög-
um í Reykjavík, það var stofnað
1932. Nú er öll útgerð að fara á
nokkrar hendur. Þetta gerist þegar
svona lítil fyrirtæki fá rothögg í
veiðigjöldum. Að þetta litla fyrirtæki
skuli hafa þurft að borga tæpar 17
milljónir í veiðigjöld af þessum bát-
um í fyrra! Þetta var slátrun á fyrir-
tækinu og það er verið að stúta ein-
staklingum í útgerð.“
Bolfiskur af bátunum hefur verið
unninn í saltfiskverkun Aðalbjargar
s.f. í Reykjavík. Eins hefur verkunin
keypt á markaði. Þar hafa unnið tólf
manns sem nú missa vinnuna. Á Að-
albjörgu II var fimm manna áhöfn.
Báðir bátarnir hafa landað flat-
fiski í Sandgerði og hann verið unn-
inn í Keflavík. Þeir hafa þeir einnig
landað afla til sölu á markaði.
Afi og faðir Stefáns, þeir Sigurður
Morgunblaðið/Kristinn
Aðalbjörg II Báturinn og kvótinn fara til Tálknafjarðar og fiskverkunarhúsið við Fiskiskóð verður selt. Hraðbjörg-
unarbáturinn Þórður S. Kristjánsson siglir framhjá til leitar á Faxaflóa um miðjan dag í gær.
Aðalbjörg II RE 236
og fiskverkunin seld
Veiðigjöldin voru rothöggið, segir einn eigendanna
Þorsteinsson og Einar Sigurðsson,
lögðu grunninn að fyrirtækinu árið
1932 þegar þeir keyptu 12 tonna bát,
Víking RE-4. Þremur árum síðar
eignuðust þeir 22 tonna bát, Aðal-
björgu RE-5 og hefur félagið síðan
gert út báta með því nafni.
Óveðursnótt þann 24. október
1944 strandaði kanadíski tundur-
spillirinn Skeena við Viðey. Einar á
Aðalbjörgu stjórnaði björgunarleið-
angrinum og tókst að bjarga 197 sjó-
liðum úr flakinu. Aldrei hefur fleiri
einstaklingum verið bjargað í einni
björgunaraðgerð hér við land. Einar
var heiðraður af Georgi 6. Bretakon-
ungi fyrir þetta afrek og hlaut MBE-
orðuna.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2014
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Sumarið
2014erkomið
Kynntu þér ferðamöguleika sumarsins!
Allt að
15.000
kr.
bókunar
afsláttur
til 10. fe
b. 2014
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
60
82
1
BÆKLINGURINN
er kominn út
Bændasamtökin vilja að Landbún-
aðarháskólinn á Hvanneyri verði
gerður að sjálfseignarstofnun, en
þannig telja samtökin að sjálfstæði
skólans verði best
tryggt. „Við vilj-
um kanna hvort
að það sé fýsilegt
að gera það og
koma þessari
hugmynd inn í
umræðuna,“ seg-
ir Sindri Sigur-
geirsson, formað-
ur Bændasam-
takanna.
Hann bætir við
að samtökin vilji koma að rekstri
skólans en að ekkert hafi þó verið
ákveðið í þeim efnum, enda sé málið
á forræði menntamálaráðherra, en
samtökin leggja til að jarðir og aðrar
eignir skólans sem ekki eru nú nýtt-
ar verði seldar. „Þannig er hægt að
greiða niður þennan uppsafnaða
halla og efla reksturinn, enda hefur
skólinn stækkað alveg gríðarlega
undanfarin ár. Við höfum ítrekað
rætt við menntamálaráðuneytið um
að fara í ýmsar aðgerðir til þess að
bæta reksturinn en það hefur ekki
náð í gegn og þess vegna viljum við
að þetta verði skoðað,“ segir Sindri.
Hann segir að það sé skýr stefna
Bændasamtakanna, sem hafi verið
mörkuð á búnaðarþingi í fyrra, að
sjálfstæði skólans skuli tryggt og því
verði að skoða þennan möguleika.
Andvíg sameiningu við HÍ
„Okkur finnst sameining við Há-
skóla Íslands ekki vera fýsileg vegna
þess að við teljum mikilvægt að
vernda sjálfstæði skólans þar sem
hann er staðsettur í dag. Það er
þekkt við svona sameiningar, þegar
frá líður og menn þurfa að taka
ákvarðanir í rekstri, að líklegra
verður að starfsemin á Hvanneyri
muni fjara mikið út,“ segir Sindri.
Sjálfseignarstofnanir eru stofn-
aðar til þess að vinna að framgangi
sérgreinds markmiðs. Stofnunin á
sig þá sjálf en sérstök stjórn er feng-
in til að gæta hagsmuna hennar.
Taka þarf á rekstrinum
Morgunblaðið/Þorkell
Skóli Sindri segir að nemendum
hafi fjölgað mjög í skólanum.
Bændasamtökin vilja gera Landbúnaðarháskólann að
sjálfseignarstofnun Boltinn hjá menntamálaráðherra
Sindri
Sigurgeirsson
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
„Okkar bíður stórt verkefni sem ég
hlakka virkilega til að takast á við
með þessum samstillta hóp,“ segir
Rósa Guðbjartsdóttir, nýkjörinn
oddviti sjálfstæðismanna í Hafnar-
firði, sem hlaut fyrsta sætið í próf-
kjöri þar á laugardaginn. „Ég finn
skýrt fyrir því meðal bæjarbúa að
það sé kominn tími til breytinga við
stjórnun bæjarins.“
Hvaða verkefni mynduð þið ráð-
ast fyrst í ef þið yrðuð í meirihluta í
bæjarstjórn? „Brýnasta verkefnið er
að koma fjármálum bæjarins í betra
horf. Undanfarna mánuði höfum við
lagt fram ýmsar tillögur að því
hvernig við getum minnkað skuld-
irnar og aukið tekjur bæjarins. Við
viljum nýta betur þau tækifæri sem
eru til staðar í þessum efnum.“
Hver eru þau? „Við lítum fyrst og
fremst til þess að gera átak í því að
fá ný fyrirtæki til bæjarins og efla
þau sem þegar eru til staðar.“
Komumst langt á samstöðunni
Rósa fékk 597 atkvæði í 1. sæti
listans. Í öðru sæti hafnaði Kristinn
Andersen sem einnig sóttist eftir 1.
sæti. Tveir frambjóðendur í viðbót
sóttust eftir 1. sætinu. Rósa segist
þakklát fyrir það traust sem sér hafi
verið sýnt með þessum úrslitum.
„Ég hef starfað fyrir bæinn af al-
úð og áhuga og gefið allt mitt í þetta
verkefni. Mér þykir vænt um að það
hafi skilað sér.“ Spurð hvort bar-
áttan fyrir prófkjörið hafi verið hörð
segir hún svo vissulega hafa verið.
„En þetta var bæði drengileg og
heiðarleg barátta og það er sam-
staða í hópnum. Við komumst langt
á slíkri samstöðu,“ segir Rósa.
Að undanförnu hefur nokkur um-
ræða verið um hlut kvenna á fram-
boðslistum, ekki síst eftir niðurstöðu
prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík þar sem karlar voru í
þremur efstu sætum listans. Úrslit
prófkjörsins í Hafnarfirði voru á
nokkuð annan veg. Þar eru konur í
fjórum af sex efstu sætum listans og
Rósa segist stolt af því. „Ég er
fyrsta konan sem er oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í Hafnarfirði og er
ánægð með gengi kvenna og hvernig
sjálfstæðismenn í Hafnarfirði stilltu
upp listanum í gær.“
Var lögð áhersla á hlut kvenna í
prófkjörsbaráttunni? „Ekki með
beinum hætti, en umræðan í sam-
félaginu hefur hugsanlega haft áhrif.
Sumir flokkar eru með kynjakvóta
eða fléttulista, en sjálfstæðismenn í
Hafnarfirði völdu listann með þess-
um hætti.“
Hlakkar til
verkefnisins
Rósa er fyrsta konan sem leiðir
lista sjálfstæðismanna í Hafnarfirði
Í bæjarstjórn í átta ár
» Rósa var virk í ungliðahreyf-
ingu Sjálfstæðisflokksins,
SUS, á mennta- og háskóla-
árum sínum.
» Hún var fyrst kjörin í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar árið 2006.
» Rósa var varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Suðvest-
urkjördæmi 2007-2013.
» Hún er fyrsta konan sem er í
oddvitasæti á lista sjálfstæðis-
manna í Hafnarfirði.
Niðurstöður prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði
Sa
m
t. í
1.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
2.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
3.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
4.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
5.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
6.
sæ
ti
1. Rósa Guðbjartsdóttir 597 725 804 875 924 971
2. Kristinn Andersen 425 603 726 826 915 1.007
3. Unnur Lára Bryde 15 309 467 612 778 894
4. Ingi Tómasson 21 275 444 566 706 875
5. Helga Ingólfsdóttir 98 218 375 512 648 801
6. Kristín Thoroddsen 14 126 290 448 622 810
„Ég er að vinna í að kaupa þetta,
en kaupin eru ekki frágengin,“
sagði Guðjón Indriðason, fram-
kvæmdastjóri Þórsbergs ehf. um
kaupin á Aðalbjörgu II og fisk-
vinnslu Aðalbjargar s.f.. Hann
kvaðst vona að gengið yrði frá
kaupunum í þessari viku. Guðjón
sagði að pappírsvinnan væri mjög
tímafrek.
Guðjón kvaðst stefna að því að
selja fiskverkunarhús Aðalbjargar
s.f. við Fiskislóð í Reykjavík. Ætl-
unin er að nýta einhver tæki og
búnað úr húsinu hjá Þórsbergi á
Tálknafirði. Hann sagði allt óráðið
með áframhaldandi útgerð bátsins
Aðalbjargar II RE-236.
„Ég er aðallega að hugsa um
kvótann af bátnum. Það er hann
sem ég þarf,“ sagði Guðjón. Aðal-
björg II fékk úthlutað aflamark fyr-
ir yfirstandandi fiskveiðiár 2013/
2014 sem nam 337 þorskígildis-
tonnum. Þar af er rúmlega 175
tonna þorskkvóti, 41 tonns ýsu-
kvóti, 80 tonna skarkolakvóti, 14
tonn af sandkola, 13 tonn af þykk-
valúru auk minni kvóta í fleiri teg-
undum.
Þórsberg ehf. gerir út fiskiskip-
in Kóp BA og Storm BA frá Tálkna-
firði og er auk þess með fisk-
vinnslu. Það er eina fiskvinnslan
sem eftir er á Tálknafirði og er
mikilvæg í atvinnulífi staðarins.
Þarf að fá kvótann af bátnum
ÞÓRSBERG EHF. REKUR EINU FISKVINNSLUNA Á TÁLKNAFIRÐI