Morgunblaðið - 03.02.2014, Side 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2014
VIÐTAL
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Menningar- og ferðamálaráð
Reykjavíkurborgar útnefndi nýlega
Nordic Affect Tónlistarhóp
Reykjavíkur 2014 og hópurinn er
tilnefndur til Íslensku tónlist-
arverðlaunanna sem tónlistarflytj-
andi ársins í flokknum sígild og
samtímatónlist. Halla Steinunn
Stefánsdóttir barokkfiðluleikari
hefur verið listrænn stjórnandi
Nordic Affect frá upphafi en hóp-
inn stofnaði hún þegar hún kom
heim úr námi árið 2005. Meðlimir
Nordic Affect eru ásamt Höllu
Steinunni þær Guðrún Hrund
Harðardóttir víóluleikari, Georgia
Browne þverflautuleikari, Hanna
Loftsdóttir sellóleikari og Guðrún
Óskarsdóttir semballeikari. Hóp-
urinn hefur komið fram víða um
lönd og gefið út geisladiska, hlotið
margs konar viðurkenningu og
fengið frábærar viðtökur í erlend-
um tónlistarblöðum.
„Markmið okkar er að miðla tón-
list 17. og 18. aldar auk þess að
flytja samtímatónlist og við spilum
á svokölluð upprunaleg hljóðfæri,
eða barokkhljóðfæri. Allir meðlimir
eru með háskólagráðu í því fagi en
þar sem við hófum starf okkar
völdum við að leggja einnig ríka
áherslu á að nýjar tónbókmenntir
yrðu skapaðar fyrir hljóðfæri okkar
þannig að í dag spilum við allt frá
danstónlist 17. aldar til hinnar
spennandi raftónlistar okkar tíma“
segir Halla Steinunn. „Starfið er
mjög fjölþætt og meðal þess sem
við gerum er að velta fyrir okkur
tónleikaforminu. Við brjótum tón-
leika okkar upp með fræðslu. Við
gerum okkur fulla grein fyrir því
að sum verk sem við spilum frá 17.
og 18. öld eru lítt kunn og það gerir
tónleikaupplifunina skemmtilegri
ef greint er frá bakgrunni verk-
anna, sagt er frá því í hvaða sam-
hengi þau eru samin og hvaðan þau
spretta. Það er í raun ótrúlega
gaman að kynna sér stefnur og
strauma á til dæmis barokktím-
anum, upplifa hvernig dyntir valda-
manna gátu haft áhrif á tónsköpun
eða hvernig hinir mismunandi tón-
listarstílar bárust á milli landa við
mismikla hrifningu fólks, stundum
fór allt í bál og brand yfir nýrri
tónlist, menn rifust og ritdeilur
fóru fram á síðum blaðanna.“
Nordic Affect hefur spilað inn á
nokkra geisladiska sem hafa vakið
mikla athygli. „Fyrsti diskurinn
sem kom út var Apocrypha með
samnefndu verki Huga Guðmunds-
sonar. Diskurinn var tilnefndur til
Íslensku tónlistarverðlaunanna og
hlaut Kraumsverðlaunin á sínum
tíma,“ segir Halla Steinunn. „Við
spilum á Hymnodia Sacra, geisla-
disk Kammerskórsins Carmina
með lögum úr gömlu íslensku hand-
riti. Við hljóðrituðum síðan, þökk
sé styrk frá Kraumi tónlistarsjóði,
verk eftir átjándu aldar tónskáldið
Carl Friedrich Abel en diskurinn
kom út á vegum hollenska útgáfu-
fyrirtækisins Brilliant Classics og
hefur fengið afskaplega góða dóma
í erlendum tónlistartímaritum á
borð við BBC Music Magazine og
Classical Music.
Fyrir síðustu jól kom út diskur
með verkum Huga Guðmunds-
sonar, sem við höfum átt í mjög
góðu samstarfi við í gegnum árin,
sem heitir Djúpsins ró og þar er að
finna bæði kammerverk og kórverk
eftir Huga og diskurinn er til-
nefndur til Íslensku tónlistarverð-
launanna. Nú erum við að leggja
lokahönd á disk með verkum eftir
íslensk kventónskáld. Georg Magn-
ússon tekur hann upp en hann
hljóðritaði einnig Abel-diskinn. Við
vorum svo heppin að fá styrk frá
Menningarsjóði Hlaðvarpans til að
panta verk hjá Þuríði Jónsdóttur
og ganga í upptökur. Í byrjun átti
þetta að vera smáskífa en svo
ákváðum við að bæta við verkum og
hafa hann í fullri lengd og mun
hann innihalda tónsmíðar eftir
Hildi Guðnadóttur, Maríu Huld
Markan Sigfúsdóttur, Þuríði Jóns-
dóttur, Hafdísi Bjarnadóttur og
Önnu Þorvaldsdóttur. Diskurinn
kemur út síðar á árinu.“
Stefnumót við Hallgrím
Halla Steinunn segir margt
spennandi framundan hjá Nordic
Affect. „Við vorum að spila á Myrk-
um músíkdögum og frumfluttum
þar verk eftir Hildi Guðnadóttur og
nú kemur fljótlega að vetr-
artónleikaröðinni okkar í Reykja-
vík sem við höfum haldið úti frá
árinu 2007 en yfirskrift hennar í ár
er Nordic Affect +1. Á öllum þeim
tónleikum sem við höldum innan
tónleikaraðarinnar 2014 erum við í
samstarfi við utanaðkomandi aðila.
Á fyrstu tónleikunum spilar Ella
Vala Ármannsdóttir náttúruhorn-
leikari með okkur nokkur af fyrstu
kammerverkunum sem skrifuð
voru fyrir horn. Hróðmar Ingi Sig-
urbjörnsson verður líka með okkur
á tónleikum. Við ætlum að snúa við
vinnslu barrokktónskáldanna sem
umrituðu oft hljóðfæraverk fyrir
hljómborð þannig að Hróðmar Ingi
mun umrita orgelverk eftir Bach
og Buxtehude fyrir hópinn. Einnig
erum við svo heppin að hann ætlar
að semja fyrir okkur verk sem
verður frumflutt á sömu tónleikum.
Meðal þess sem er framundan í
haust er að við ætlum að eiga
stefnumót við Hallgrím Pétursson
á tónleikum og munum spila bæði
íslensk verk og verk frá meginland-
inu því Hallgrímur kom víða við.
Við tvinnum sem sagt líf hans sam-
an við tónlist frá hans tíma og erum
að leggjast í mikið grúsk í sam-
bandi við það.
Annað á döfinni er að við munum
spila á hinum ýmsu hátíðum, mun-
um til dæmis koma fram á Listahá-
tíð í Reykjavík og síðan á Sum-
artónleikum í Skálholti.“
Stórskemmtilegt ferðalag
Nordic Affect hefur vakið mikla
athygli erlendis og boðum rignir yf-
ir hópinn. „Líkt og ég nefndi höfum
við lagt ríka áherslu á að skrifuð
séu fyrir okkur verk. Þetta vekur
eftirtekt, ekki bara hér á landi
heldur einnig erlendis,“ segir Halla
Steinunn. „Okkur virðist vera að
takast að skapa okkur nafn á er-
lendri grundu sem er gleðilegt því
við viljum að þessi tónlist fari sem
víðast. Við förum til Álandseyja í
Langhlaup,
ekki sprett-
hlaup
Nordic Attic tónlistarhópurinn
hefur vakið mikla athygli erlendis
Halla Steinunn. „Okkur virðist vera að takast að
skapa okkur nafn á erlendri grundu sem er gleðilegt
því við viljum að þessi tónlist fari sem víðast.“
HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ
Í GÓÐUMHÖNDUM
Snjallt að
kíkja á okkur
á adal.is
Við erummeð fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í
Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á
þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
4
6
7
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is og www.adal.is
Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn
á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með
bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt.
Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900