Morgunblaðið - 20.03.2014, Page 6
festing í ferðaþjónustu var, sam-
kvæmt tölum WTTC, rúmir 36 millj-
arðar, sem er um 14,7% af heildar-
fjárfestingu og er gert ráð fyrir að
fjárfestingar í ferðaþjónustu dragist
saman um 4% í ár.
Á fyrstu tveimur mánuðum ársins
fóru 99.099 erlendir ferðamenn um
Leifsstöð og er það 35,3% aukning
frá því í fyrra þegar rúmlega 73.000
erlendir ferðamenn komu til lands-
ins um Leifsstöð. Um 40% þeirra
sem sóttu landið heim í janúar og
febrúar komu frá Bretlandi og tæp
14% frá Bandaríkjunum.
Ferðamálastofa veitir leyfi til
ferðaskipuleggjenda og ferðaskrif-
stofa og hefur þeim fjölgað mjög
undanfarin ár. Ferðaskipuleggj-
endur skipuleggja ýmsar dagsferðir,
eins og t.d. hestaferðir, hvalaskoð-
unarferðir, siglingar, flúðasiglingar
o.fl. og selja þær ýmist sjálfir eða í
gegnum ferðaskrifstofur.
89 fleiri ferðaskipuleggjendur
Til að fá leyfi sem ferðaskipleggj-
andi þarf viðkomandi að vera orðinn
20 ára, búa innan EES-svæðisins eða
í Færeyjum, vera með hreint saka-
vottorð, má ekki vera gjaldþrota og
ekki hafa verið sviptur leyfi sem
ferðaskipuleggjandi á síðustu þrem-
ur árum. Ferðamálastofa veitir þessi
leyfi og heldur utan um fjölda þeirra,
en hefur ekki tekið saman hversu
margir erlendir ferðaskipuleggj-
endur skipuleggja ferðir hér á landi.
Í dag hafa 123 leyfi sem ferða-
skipuleggjendur, en árið 2008 höfðu
34 slík leyfi. Þá hefur ferðaskrif-
stofum fjölgað talsvert, árið 2013
voru 195 ferðaskrifstofur með virk
leyfi, en 2008 voru þær 123.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofu Íslands fyrir síðasta ár
gistu útlendingar þá 1.706.525 nætur
á hótelum og gistihúsum landsins. Í
janúar í ár voru gistinætur erlendra
ferðamanna 104.186 sem er aukning
um tæp 39% frá því í janúar í fyrra.
Heildarfjöldi gististaða og gisti-
rúma á landinu öllu fyrir síðasta ár
liggur ekki fyrir, en árið 2012 voru
þau 368 og í þeim voru 22.525 gisti-
rúm.
17.500 gistirúm til viðbótar
Í úttekt sem VSÓ ráðgjöf vann
fyrir Reykjavíkurborg kemur fram
að fjöldi hótelrúma á hverja 1.000
íbúa í Reykjavík er um 25 og að það
sé svipað og í öðrum borgum á Norð-
urlöndunum. Í sömu úttekt er áætl-
aður fjöldi rúma á gististöðum mið-
aður við áætlanir um fjölgun
ferðamanna. Áætlunin nær til ársins
2030 og sé svokölluð miðspá höfð til
hliðsjónar, er miðað við að það árið
komi 1.400.000 erlendir ferðamenn
til landsins og að þörf sé á 17.500
gistirúmum á höfuðborgarsvæðinu
til viðbótar þeim sem þegar eru til
staðar.
Margföldunaráhrif á ýmsan hátt
Margir þættir ferðaþjónustunnar hafa margfaldast á fimm árum 35% fleiri útlendingar um
Leifsstöð í janúar og febrúar en á sama tíma í fyrra Þörf á þúsundum gistirúma á næstu árum
Morgunblaðið/Eggert
Lesið í kortin Samhliða fjölgun erlendra ferðamanna hingað til lands hefur orðið mikil aukning í mörgum þeim at-
vinnugreinum sem tengjast ferðaþjónustunni á einhvern hátt. Um 38.000 Íslendingar starfa við ferðaþjónustu.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2014
Ársfundur 2014
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda 2014 verður haldinn föstudaginn
21. mars 2014 í Kötlu, á 2. hæð í Bændahöllinni við Hagatorg í
Reykjavík, og hefst kl. 16:00.
Dagskrá ársfundarins verður eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Kynning ársreiknings 2013.
3. Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri úttekt.
4. Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins.
5. Breytingar samþykkta sjóðsins.
6. Önnur mál.
Tillögur til ályktunar, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast stjórn
sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu.
Sjóðfélagar eru hvattir til að nýta sér rétt sinn.
Lífeyrissjóður bænda
Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík
Sími 563 0300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is
evrópska kísil-
málmiðnaðinum
keypt verk-
smiðjulóðina og
umhverfismat
sem staðfest var
fyrir tæpu ári.
Það stígur þannig
inn í þróað verk-
efni og getur haf-
ið framkvæmdir
fyrr en ella.
United Silicon mat jafnframt stað-
setningar fyrir uppsetningu og
rekstur kísilmálmverksmiðju í öðr-
um löndum, meðal annars í Miðaust-
urlöndum og Malasíu en Helguvík
varð fyrir valinu.
Landsvirkjun gerði fyrr í þessari
viku samninga um sölu á orku til kís-
ilvers á iðnaðarsvæðinu á Bakka við
Húsavík. Þá hefur Landsvirkjun
samið um skilmála orkusölusamn-
ings við Thorsil sem er að láta hanna
aðra kísilmálmverksmiðju á iðnaðar-
svæðinu í Helguvík. Landsvirkjun
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við erum mjög ánægð með að þess-
um áföngum skuli náð. Samt er
ástæða til að vara við of mikilli bjart-
sýni. Á samningunum eru fyrirvarar
sem á að aflétta í maí og fyrr fögnum
við ekki,“ segir Árni Sigfússon, bæj-
arstjóri Reykjanesbæjar.
United Silicon hf. hefur gert
samning um kaup á raforku frá
Landsvirkjun til kísilvers sem
áformað er að reisa í Helguvík og
samning við Landsnet um að flytja
orkuna til Helguvíkur. Áætlað er að
verksmiðjan þurfi 35 megawatta afl
og að starfsemi hennar hefjist í byrj-
un árs 2016.
Unnið hefur verið að undirbúningi
kísilvers í Helguvík í fimm ár.
Reykjanesbær tók frá lóð við höfn-
ina og undirbjó hana. Erlend sam-
starfsfyrirtæki heltust úr lestinni.
Nú hefur United Silicon hf. sem er
nýtt félag stofnað af hópi fyrirtækja í
fagnar í tilkynningu auknum fjöl-
breytileika í viðskiptamannahópn-
um.
Landsnet hefur undirbúið teng-
ingu iðnaðarsvæðisins í Helguvík við
meginflutningskerfið á Fitjum í
Reykjanesbæ og hefjast fram-
kvæmdir á næsta ári. Afhendingar-
öryggi mun síðan aukast með nýrri
Suðurnesjalínu sem til stendur að
leggja.
Nýta aukaafurðir
Um 65 starfsmenn verða í verk-
smiðju United Silicon en Árni Sig-
fússon bendir á að á annað hundrað
störf verði í byggingariðnaði vegna
byggingar hennar. Þá segir hann að
gufa og aðrar aukaafurðir frá kísil-
verinu séu grundvöllur annarra fyr-
irtækja á svæðinu. Meðal annars bíði
fyrirtæki sem hyggi á framleiðslu á
afísingarvökva fyrir flugvélar eftir
því að verksmiðjan taki til starfa.
„Þess vegna er þessi áfangi mikil-
vægur fyrir okkar samfélag.“
Fagna ekki fyrr en fyrir-
vörum hefur verið aflétt
Kísilver í Helguvík skapar margvísleg atvinnutækifæri
Árni
Sigfússon
Í júlí í fyrra voru skráðar 140
bílaleigur hér á landi, en þá var
mikill vöxtur í þessari starfs-
grein og voru nokkrar nýjar
bílaleigur skráðar í viku hverri.
Nú hafa 139 bílaleigur starfs-
leyfi samkvæmt upplýsingum
frá Samgöngustofu sem veitir
slík leyfi og fylgist með því að
skilyrði starfsleyfa séu upp-
fyllt. Ekki liggur fyrir hvort þær
séu allar starfræktar árið um
kring.
Bílaleigur eru í öllum lands-
hlutum og þær stærstu hafa
starfsstöðvar víða um land.
Þær teljast þó einungis sem
eitt starfsleyfi, burtséð frá því
hversu starfsstöðvar þeirra eru
margar. Fjöldi bílaleigna hefur
næstum því tvöfaldast frá
2008 þegar þær voru 76.
Mikil fjölgun
frá 2008
139 BÍLALEIGUR Á LANDINU
BAKSVIÐ
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Ferðaþjónusta var 21,6% vergrar
þjóðarframleiðslu í fyrra og 21,9%
heildarstarfa í landinu voru innan
ferðageirans. Það er eiginlega sama
hvert litið er innan ferðaþjónust-
unnar hér á landi; víða má sjá mikinn
vöxt á undanförnum árum, sér í lagi
frá hrunárinu 2008.
Þannig hefur heildarvelta þeirra
sem skipuleggja og bóka ferðir hér á
landi nær þrefaldast á fimm árum.
Fjöldi ferðaskipuleggjenda hefur
næstum því fjórfaldast á sama tíma
og fjöldi bílaleiga hefur nær tvöfald-
ast. Á fyrstu tveimur mánuðum árs-
ins fóru rúmlega 35% fleiri erlendir
ferðamenn um Leifsstöð en á sama
tíma í fyrra.
Í fyrra var heildarvelta hjá ferða-
skrifstofum, ferðaskipuleggjendum
og annarri bókunarþjónustu 3,84
milljarðar og hefur krónutala hennar
því nær þrefaldast á fimm árum frá
árinu 2008, þegar hún var 1,3 ma. Á
sama tímabili hefur velta hjá gisti-
stöðum landsins aukist úr 18,7 í tæpa
40 milljarða og hefur því meira en
tvöfaldast og velta í veitingasölu og
-þjónustu aukist úr 38 milljörðum í
56,4. Þetta kemur fram í tölum Hag-
stofu Íslands um veltu í einstökum
atvinnugreinum.
Um 38.000 í ferðaþjónustu
Í nýrri skýrslu samtakanna World
Travel and Tourism Council
(WTTC), sem eru alþjóðleg hags-
munasamtök ferðaþjónustu, segir að
heildarframlag ferðaþjónustunnar
til vergrar landsframleiðslu hér á
landi á síðasta ári hafi verið um 389
milljarðar, eða 21,6% hennar. Þar
kemur einnig fram að fjöldi starfa
hafi verið 37.903 í fyrra, sem eru um
21,9% heildarstarfa. Í skýrslunni er
því spáð að í ár verði heildarfjöldi
starfa 39.000.
Spáð er meiri eyðslu
Ferðamálastofa áætlar að 781.016
ferðamenn hafi sótt landið heim í
fyrra, og WTTC telst svo til að þeir
hafi eytt samtals 163 milljörðum
króna, ferðakostnaður er þar talinn
með. Spáð er að þessi tala muni
hækka um 1,4% á næsta ári. Fjár-
Hvað breyttist á fimm árum?
Heimild: Hagstofa Íslands, Ferðamálastofa og fleiri
2008 2013
Bílaleigur 76 139
Ferðaskipulagningarleyfi 34 123
Ferðaskrifstofuleyfi 123 195
Fjöldi starfsmanna í ferðaþjónustu 9.241 37.903
Erlendir gestir sem fóru um Leifsstöð 472.672 781.016
Heildarvelta ferðaskipuleggjenda og ferðaskrifstofa 1,3 ma.kr. 3,84ma.kr.
Velta á gististöðum 18,65ma.kr. 39,97ma.kr.
Velta í veitingasölu og -þjónustu 38 ma.kr. 56,4ma.kr.