Morgunblaðið - 20.03.2014, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2014
Glæsilegur
aðhaldsfatnaður
undir brúðarkjólinn
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum um allt land
Laugavegi 63 • S: 551 4422
FISLÉTTAR
DÚNÚLPUR
Skoðið yfirhafnir/laxdal.is
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Landsnet kynnir í dag tvær nýjar gerðir há-
spennumastra og tengivirka. Tilgangurinn er að
auka rekstraröryggi mannvirkjanna og tryggja að
þau falli betur að umhverfinu.
„Það er krafa um allan heim að fá háspennu-
möstur sem falla betur að umhverfinu. Við erum að
reyna að mæta henni með því að hanna einfaldari
möstur sem ekki eru eins áferðarmikil í umhverf-
inu,“ segir Þórður Guðmundsson, forstjóri Lands-
nets.
Tvær gerðir eru kynntar í dag, möstur sem
geta hentað við mismunandi aðstæður, einpól-
ungur og tvípólungur. Nýju möstrin eru efn-
isminni, gerð úr rörum í stað prófíla. Þvermál
þeirra minnkar og þau mjókka upp og ber því
minna við himin. Þá eru brýrnar í tvípólungnum
mun efnisminni en í núverandi möstrum.
Arkitektar og verkfræðingar hafa unnið að
verkefninu og segir Þórður ekkert því til fyrirstöðu
að byrja að nota nýju möstrin. Skoðaðar hafa verið
ýmsar útfærslur, meðal annars frá öðrum löndum,
en þessi tvö möstur voru talin henta best.
Reiknar Þórður með að þau verði notuð í
Sprengisandslínu, ef hún verði samþykkt, eða
næstu línu sem hönnuð verði. Byggðalínan fyrir
norðan hefur farið í gegnum umhverfismat og erf-
itt að breyta hönnun eftir á. Þá verða möstrin í
nýrri Suðurnesjalínu af sömu gerð og þau sem fyr-
ir eru, að ósk sveitarstjórnanna. Nýju möstrin eru
tugum prósenta dýrari en þau eldri, að sögn Þórð-
ar.
Einpólungar í landslagi Íslands
Landsnet kynnir á fundi í dag tvær nýjar gerðir af háspennumöstrum og tengivirkjum
Markmiðið að auka rekstraröryggi og tryggja að háspennulínur falli betur að umhverfinu
Einpólungur Nýju möstrin verða í nýrri háspennulínu á milli Norður- og Suðurlands.
Kynningarfundur
» Landsnet efnir til kynn-
ingarfundar í tengslum við að-
alfund fyrirtækisins. Fundurinn
verður í dag á Hilton Reykjavík
Nordica, kl. 9 til 11.30.
» Fjallað verður um stöðu
og framtíðaruppbyggingu
flutningskerfis raforku á Ís-
landi, þar á meðal útfærslur
sem geta komið til greina í
jarðstrengjamálum. Þá segja
danskir og sænskir sérfræð-
ingar frá stefnunni í sínum
heimalöndum.
» Forstjóri Landsnet mun
kynna nútýmalega hönnun á
háspennumöstrum og tengi-
virkja sem Landsnet hyggst
taka í notkun.