Morgunblaðið - 20.03.2014, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2014
VERTU
VAKANDI!
blattafram.is
Í 77% tilvika eru börn sem
beitt eru kynferðisofbeldi
í fyrsta sinn ekki
orðin 13 ára.
Tvær háplöntutegundir hafa bæst
við flóru íslenskra vatnaplantna og
að auki bíða þrjár eftir að tegunda-
greining verði staðfest. Allar fund-
ust tegundirnar við rannsóknir
Náttúrufræðistofu Kópavogs í
stöðuvötnum víða um land, en þær
hafa staðið yfir undanfarin tvö
sumur í samvinnu við Náttúru-
fræðistofnun Íslands og eru styrkt-
ar af Evrópusambandinu.
Fram kemur á vef náttúrustof-
unnar, að nýju tegundirnar tvær
séu kransþörungar sem bera fræði-
heitið Tolypella canadensis og
Chara aspera, en þær hafa ekki
hlotið íslensk heiti enn sem komið
er.
Tegundin Tolypella canadensis
hefur norðlæga útbreiðslu og lifir í
köldum og næringarsnauðum vötn-
um. Hér á landi virðist tegundin
bundin við hálendisvötn, en hún
fannst í sjö vötnum á heiðum norð-
an-, vestan- og sunnanlands.
Tegundin Chara aspera er út-
breidd um allt norðurhvelið, bæði í
ferskvatni og ísöltu vatni. Til þessa
hefur tegundin aðeins fundist í
Skúmsstaðavatni í Vestur-
Landeyjum sem er ekki fjarri sjó.
Alls eru nú þekktar sex tegundir
kransþörunga hér á landi. Til sam-
anburðar eru þekktar níu tegundir
á Grænlandi og 30–40 tegundir í
Noregi og Svíþjóð.
Kransþörungar eru í hópi græn-
þörunga og ljóstillífa líkt og há-
plöntur. Þeir eru stórvaxnastir
allra þörunga í ferskvatni og gera
sumar tegundir orðið allt að metri
að lengd en aðrar eru mun smá-
vaxnari.
Nýjar teg-
undir vatna-
plantna
Ein tegund aðeins
í einu vatni
Kransþörungur Chara aspera
finnst aðeins í Skúmsstaðavatni.
Saksóknari í máli ákæruvaldsins
gegn Annþóri Kristjáni Karlssyni og
Berki Birgissyni lagðist við fyrir-
töku í Héraðsdómi Suðurlands í
gærmorgun gegn tillögu verjanda
Annþórs um að dómkvaddir verði
tveir Þjóðverjar til að fara yfir mat
réttarmeinafræðings á krufningar-
skýrslu. Dómari mun úrskurða um
ágreininginn.
Málið var höfðað á hendur þeim
Annþóri og Berki fyrir að valda
dauða samfanga á Litla-Hrauni 17.
maí 2012. Báðir neita þeir alfarið
sök.
Við fyrirtökuna í gærmorgun stóð
til að reyna að ná niðurstöðu um
dómkvaðningu yfirmatsmanna til að
fara annars vegar yfir mat réttar-
meinafræðingsins og hins vegar yfir
skýrslu tveggja prófessora í sálfræði
sem dómkvaddir voru til að greina
atferli fanga á upptökum úr örygg-
ismyndavélum.
Ekki kom til þess að skorið yrði úr
með matsmennina vegna atferlis-
rannsókna, þar sem saksóknara
höfðu ekki borist nöfn þeirra sem
verjendur gera tillögu um. Hvað
Þjóðverjana varðar nefndi saksókn-
ari að eðlilegra væri að leita innan-
lands að yfirmatsmönnum enda
fylgdi því gríðarlegur kostnaður að
„flytja til landsins erlenda sérfræð-
inga“. Þessu voru verjendur vitan-
lega ósammála. andri@mbl.is
Deilt um val á sérfræðingum
Ákærður Börkur Birgisson þegar mál hans var tekið fyrir í Hæstarétti.
Verjendur Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birg-
issonar vilja að dómkvaddir verði yfirmatsmenn frá útlöndum