Morgunblaðið - 20.03.2014, Page 16
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Nái tillögur ráðgjafarfyrirtækjanna
KPMG og Analytica fram að ganga
yrði Íbúðalánasjóður lagður niður í
núverandi mynd og tekið upp nýtt
húsnæðislánakerfi hér á landi að
danskri fyrirmynd. Í skýrslu sinni
telja fyrirtækin ekki ráðlegt að
Íbúðalánasjóður viðhaldi starfsemi
sinni og lagt til að sjóðurinn hætti al-
farið að veita ný útlán. Er gerð tillaga
um að skipta starfsemi sjóðsins í tvo
hluta. Annars vegar í nýja stofnun,
Húsnæðisstofnun, sem tæki við fé-
lagslegu hlutverki sjóðsins og öðrum
veigamiklum þáttum sem snúa að
framkvæmd húsnæðisstefnu stjórn-
valda. Hins vegar myndi ÍLS annast
umsjón með núverandi safni útlána
og skulda þar til það væri runnið út
eða hugsanlega selt.
ASÍ fagnar því í yfirlýsingu sinni
að tekið sé undir hugmyndir sam-
bandsins um að taka hér upp hús-
næðislánakerfi að danskri fyrirmynd.
Slíkt kerfi tryggi bestu fáanlegu
vaxtakjör á markaði hverju sinni,
auki stöðugleika og sé áhættuminna
en núverandi kerfi.
Lokaskýrsla í lok apríl
Skýrsla KPMG og Analytica er
komin í hendur verkefnisstjórnar um
framtíðarskipan húsnæðismála og er
innlegg í vinnu stjórnarinnar, sem
ráðgerir að skila Eygló Harð-
ardóttur, félags- og húsnæðis-
málaráðherra, endanlegum tillögum
sínum í lok aprílmánaðar. Eygló skip-
aði verkefnisstjórnina í september sl.
í samræmi við þingsályktun um að-
gerðir vegna skuldavanda íslenskra
heimila.
Stefnumótunarvinna verkefn-
isstjórnarinnar felur m.a. í sér að
koma með tillögur að nýju húsnæð-
islánakerfi þar sem einnig er horft til
þess að tryggja virkan leigumarkað
og skilvirk félagsleg úrræði fyrir þá
sem þess þurfa, líkt og segir á vef vel-
ferðarráðuneytisins. Verkefn-
isstjórnin hefur í samræmi við skip-
unarbréf skoðað fyrirmyndir frá
hinum Norðurlandaþjóðunum og nýtt
sér vinnu starfshóps sem skilaði
skýrslu um framtíðarhorfur og hlut-
verk Íbúðalánasjóðs.
Minnst 4-5 húsnæðislánafélög
Í skýrslu KPMG og Analytica
eru lagðar fram nokkrar tillögur um
hvernig nýtt húsnæðislánakerfi ætti
að líta út. Fyrir það fyrsta eiga svo-
kölluð húsnæðislánafélög að veita
húsnæðislán. Verða félögin að vera
starfsleyfisskyld fjármálafyrirtæki,
að settum ákveðnum lögum. Mega fé-
lögin eingöngu lána til húsnæðis-
kaupa og fjármagna útlán með útgáfu
sértryggðra skuldabréfa sem skráð
verða á markaði, en stunda ekki aðra
starfsemi. Gera skýrsluhöfundar ráð
fyrir að eiginfjárkrafa til húsnæð-
islánafélaga verði lægri en gerð er nú
til viðskiptabanka, vegna minni
áhættu.
Talið er líklegt að viðskiptabank-
arnir þrír stofni hver og einn sitt fé-
lag. Einnig megi ætla að minni fjár-
málastofnanir komi sér saman um
stofnun slíks félags og sama gildi um
lífeyrissjóðina. Þannig telja skýrslu-
höfundar líklegt að til verði minnst
fjögur eða fimm húsnæðislánafélög.
„Til að innleiðing kerfisins
heppnist vel er mikilvægt að sem
mest af fjármögnun íbúðarhúsnæðis
fari í gegnum húsnæðislánafélög. Því
er lagt til að stjórnvöld búi til hvata,
til dæmis með því að veita undanþágu
eða afslátt af sérstökum bankaskatti.
Jafnframt er lagt til að lífeyrissjóðum
verði gert að færa ný húsnæðisveðlán
sín í húsnæðislánafélög,“ segir í
skýrslu KPMG og Analytica.
Í nýju húsnæðislánakerfi er gert
ráð fyrir svipaðri þjónustu við lántak-
endur og til þessa, eins og með kröfu
um greiðslumat og fleira. Talið er lík-
legt að hámarkslánveiting verði 80%
af virði eignar. Standist lántaki
greiðslumat geti hann valið um láns-
tegund, t.d. fasta vexti og lengd
vaxtatímabils. Lagt er til að öll lán
verði uppgreiðanleg.
Áhersla er lögð á að húsnæð-
islánafélög bjóði þjónustu sína um allt
land, og að það verði gert að skilyrði í
útgefnu starfsleyfi. Ennfremur er
lagt til að stjórnvöld styðji við svæði á
landsbyggðinni sem njóta ekki lána-
fyrirgreiðslu, eins og stjórnvöld telja
æskilegt, með því að veita ábyrgðir á
hluta lána.
Umsókn með mati umsókna og
úthlutun ábyrgða myndi verða í
höndun nýrrar stofnunar, Húsnæð-
isstofnunar, en ráðgjafarfyrirtækin
leggja til að starfsemi Íbúðalánasjóðs
verði skipt upp í tvennt, annars vegar
þessa nýju stofnun og hins vegar
ÍLS, sem myndi annast núverandi út-
lánasafn þar það rynni út eða yrði
hugsanlega selt.
Morgunblaðið/Golli
Íbúðalánasjóður Skýrsluhöfundar leggja til nýtt húsnæðislánakerfi að danskri fyrirmynd og að Íbúðalánasjóður
leggist niður í núverandi mynd. Verkefnisstjórn um framtíðarskipan húsnæðismála skilar af sér skýrslu í apríl.
Talið óráðlegt að Íbúðalánasjóður
starfi áfram í núverandi mynd
Helstu tillögur
» Útfært verði nýtt hús-
næðislánakerfi að danskri fyr-
irmynd.
» Húsnæðislán verði veitt
af húsnæðislánafélögum.
» Gert ráð fyrir að í nýju
kerfi fái lántakendur sín lán
afgreidd sem peningalán hjá
húsnæðislánafélagi eða banka
sem rekur slíkt félag.
» Lagt er til að í starfsleyfi
húsnæðislánafélaga verði skil-
yrði um að þau bjóði þjónustu
sína á öllu landinu.
» Lagt er til að í stað nið-
urgreiddra vaxta komi til 25%
stofnframlag ríkisins til fé-
lagslegs húsnæðis og að auki
10% stofnframlag sveitarfé-
laga.
» Lagðar eru til ýmsar að-
gerðir til að styðja framboðs-
hlið leigumarkaðar, s.s. með
lækkun tekjuskatts af leigu-
tekjum og fullri endurgreiðslu
vsk. vegna vinnu við íbúðar-
húsnæði,
» Íbúðalánasjóður hætti al-
farið að veita ný útlán og
starfsemi hans skiptist í tvo
hluta; Húsnæðisstofnun og
ÍLS, sem annist umsjón núver-
andi lánasafns. ÍLS myndi
áfram bera útlánaáhættu
standi lántaki ekki í skilum og
vaxtaáhættu vegna upp-
greiðslna og lágrar ávöxtunar
lausafjár.
» Húsnæðisstofnun er ætl-
að að að taka við félagslegu
hlutverki ÍLS og öðrum þátt-
um er snúa að framkvæmd
húsnæðisstefnu stjórnvalda.
Ráðgjafarfyrirtæki leggja til nýtt húsnæðislánakerfi að danskri fyrirmynd ASÍ fagnar
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2014
Eftirminnileg upplifun
– steik eins og steik á að bragðast
Barónsstíg 11
101 Reykjavík
argentina.is
Borðapantanir
551 9555
Alþjóðamálastofnun efnir til opins
fyrirlestrar fimmtudaginn 20. mars
í Odda 101 klukkan 12. Þar mun
Guðrún Helga Jóhannsdóttir, dokt-
orsnemi í þróunarfræðum við Há-
skóla Íslands, flytja fyrirlesturinn
„Þúsaldarmarkmið Sameinuðu
þjóðanna eftir árið 2015.“
Þúsaldarmarkmið SÞ hafa verið í
brennidepli í umræðunni um
stefnumörkun í þróunarmálum í
rúman áratug. Endurskoðun mark-
miðanna og umræða um hvað taka
skuli við af þeim eftir árið 2015
stendur nú sem hæst. Mikil stefnu-
mótunarvinna hefur verið unnin,
bæði meðal almennings og frjálsra
félagasamtaka á vettvangi í þróun-
arlöndum, sem og innan stofnana
Sameinuðu þjóðanna. Í erindinu
verður endurmótunarferlið skoðað.
Ræðir um þúsaldar-
markmið SÞ
Reykjavíkurborg var í öðru sæti á
lista yfir norður-evrópskar borgir
framtíðarinnar í sérriti fDi Intelli-
gence: Ritið er gefið út af Financial
Times og sérhæfir sig í umfjöllun
um beina erlenda fjárfestingu. Ein-
ungis Helsinki var fyrir ofan
Reykjavík en bæði Stokkhólmur og
Kaupmannahöfn lentu í neðri sæt-
um í flokknum „Norður-evrópskar
borgir að Bretlandi og Írlandi und-
anskildum“, segir í frétt frá borg-
inni.
European Cities and Regions of
the Future er gefið út á tveggja ára
fresti og varpar ljósi á borgir og
svæði með mikil tækifæri til fjár-
festinga á komandi árum. Listarnir
eru unnir af sérfræðingum tíma-
ritsins og byggjast á sjálfstæðri
gagnaöflun þar sem meðal annars
eru skoðuð laun, verg landsfram-
leiðsla, innviðir, menntunarstig, at-
vinnusköpun og verðbólga á 468
stöðum, bæði í borgum og hér-
uðum.
Reykjavík í fremstu
röð framtíðarborga
STUTT
Málþingið Hælisleitendur segja frá
verður haldið fimmtudaginn 20.
mars kl.12:00-13:00 í stofu 101,
Lögbergi í Háskóla Íslands. Mál-
þingið mun fara fram á ensku og er
aðgangur er öllum opinn. Á mál-
þinginu segja tveir hælisleitendur
frá reynslu sinni af því að vera hæl-
isleitendur á Íslandi. Málþingið er
hið fyrsta í röð málþinga með hæl-
isleitendum, þar sem leitast verður
við að ljá þeim rödd.
Hælisleitendur
segja sögu sína