Morgunblaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2014
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Umferð um Hvalfjarðargöng jókst að
nýju í fyrra eftir nokkur ár sam-
dráttar. Í fyrra var lokið við síðasta
verkáfangann til að uppfylla ákvæði
reglugerðar um
öryggi í jarð-
göngum og hefur
til þeirra aðgerða
verið varið yfir
400 milljónum
króna. Upp-
greiðslu lána
vegna ganga-
gerðarinnar lýkur
í september 2018,
en fljótlega eftir
það verða Spölur
ehf. og Hvalfjarðargöng afhent rík-
issjóði til eignar og rekstrar, líklega á
miðju ári 2019.
Þetta var meðal þess sem fram
kom í skýrslu Gísla Gíslasonar, for-
manns stjórnar Spalar, á aðalfundi
sem haldinn var á þriðjudaginn. Sam-
tök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa
farið þess á leit við stjórn Spalar að
göngin verði rekin af fyrirtækinu í
eitt ár eftir að gjaldskyldu lýkur. Sú
aðferðafræði gengur hins vegar ekki
upp, að sögn Gísla.
Á árinu 2013 var lokið við lagningu
brunaþolnari rafstrengja en voru
upphaflega settir í göngin, en reglu-
gerð um öryggi í jarðgöngum kveður
á um slíkt. Þá voru sett upp ný neyð-
arljós í útskotum og nýtt tetra-fjar-
skiptakerfi. „Með þessum aðgerðum
hefur Spölur uppfyllt öll skilyrði
reglugerðarinnar miðað við þá um-
ferð sem fer um göngin,“ sagði Gísli á
aðalfundinum. Endurbæturnar hafa
verið teknar út af Vegagerðinni og
hafa þær umbætur sem gerðar hafa
verið minnkað áhættu ganganna.
Alls fóru 1.887.343 ökutæki um
Hvalfjarðargöng í fyrra og nemur
fjölgunin á milli ára um 46 þús-
undum. Meðalumferð 2013 var 5.171
ökutæki á dag, en mest var umferðin
sem fyrr í júlímánuði, alls 237.598 eða
7.664 að meðaltali á dag. Mesta um-
ferð í mánuði er hins vegar júlí 2007
þegar 251.400 ökutæki fóru um Hval-
fjarðargöng eða 8.110 að meðaltali á
dag.
Lækkun miðað við verðbólgu
Veggjald hefur verið óbreytt frá 1.
júlí 2011. Frá þeim tíma til janúar
2014 hefur verðbólga verið 9,5%.
Meðaltekjur Spalar án virðisauka-
skatts á bíl voru í upphafi rekstrar
tæpar tvö þúsund krónur á verðlagi í
dag, en eru nú liðlega 580 krónur.
Lægsta gjald fyrir 100 ferðir er 283
krónur, að því er fram kom í máli
Gísla.
Engin áform eru nú uppi um
breytingar á gjaldskrá Spalar ehf. og
veldur því m.a. von um aukna umferð,
lægri verðbólgu og minni þörf félags-
ins á fjárfestingum næstu ár. Á kom-
andi hausti verður þó farið í fyrstu
aðgerðir við endurnýjun malbiks að
norðanverðu, en það getur haft í för
með sér röskun á umferð meðan á
framkvæmdum stendur.
Óbreytt gjald í Hvalfjarðargöng
Aukning en metið frá 2007 óhaggað
Hafa uppfyllt allar kröfur
Hvalfjarðargöng
Meðaltekjur á ferð á verðlagi ársins Meðaltekjur á ferð á verðlagi des. 2013
Meðaltekjur á ferð bundið vísitölu neysluverðs Umferð á ári
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
2.500.000
2.000.000
1.500.000
1.000.000
500.000
0
Te
kj
ur
U
m
fe
rð
1998 2013‘99 ‘03 ‘07‘01 ‘05 ‘09 ‘11‘00 ‘04 ‘08‘02 ‘06 ‘10 ‘12 Heimild: Spölur
Morgunblaðið/Ernir
Hvalfjarðargöng Uppgreiðslu lána á að ljúka í september 2018.
Gísli
Gíslason
Félagar í Sam-
tökum starfs-
manna fjármála-
fyrirtækja (SSF)
samþykktu kjara-
samninga sem
samtökin gerðu
við Samtök at-
vinnulífsins í alls-
herjaratkvæða-
greiðslu.
Þátttaka í at-
kvæðagreiðslunni var 66,5%, Af
þeim 2.840 sem greiddu atkvæði
samþykktu 65,7% samninginn en
30,81% vildu fella hann. Samningur-
inn byggðist á sáttatillögu ríkissátta-
semjara sem var lögð fyrir stéttar-
félög á almennum vinnumarkaði og
undirrituð 21. febrúar sl.
Kjarasamningurinn felur í sér
2,8% hækkun á kauptaxta fé-
lagsmanna en þó að lágmarki 8.000
krónur fyrir dagvinnu. Aðrir kjara-
tengdir liðir hækka einnig um 2,8%.
Allir liðirnir taka gildi frá og með 1.
febrúar.
Auk þess er gert ráð fyrir sér-
stakri hækkun kauptaxta þeirra sem
eru með 230.000 krónur á mánuði
eða lægra. Taxtar þeirra hækka sér-
staklega um 1.750 krónur. Desem-
ber- og orlofsbætur hækka samtals
um 32.300 krónur frá síðasta samn-
ingi. Í stað launabreytinga frá 1. jan-
úar er greidd sérstök 14.600 kr. ein-
greiðsla miðað við fullt starf.
Sam-
þykktu
samning
Meirihluti félaga
SSF samþykkti.
Bankamenn
greiddu atkvæði