Morgunblaðið - 20.03.2014, Page 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2014
Kuala Lumpur. AFP. | Reiðir ættingj-
ar farþega í flugi MH370 gerðu í
gær tilraun til að brjótast inn á
blaðamannafund malasískra yfir-
valda, þar sem þau upplýstu að þau
væru engu nær um afdrif vélarinn-
ar. Fólkið grét og öskraði og sakaði
yfirvöld um að liggja á upplýsingum
og gera of lítið til að finna vélina.
„Þeir gefa ólík skilaboð á hverjum
degi. Hvar er vélin núna? Við þolum
þetta ekki lengur!“ veinaði einn ætt-
ingjanna.
Á blaðamannafundinum kom fram
að rannsóknin beindist nú einna
helst að flugstjóra vélarinnar en í
ljós hefur komið að ákveðnum gögn-
um var eytt úr flugherminum sem
fannst á heimili Zahaire Ahmad
Shah. Yfirvöld vöruðu fólk við því að
draga ályktanir af þessari uppgötv-
un en sögðu að unnið væri að því að
endurheimta gögnin. Zaharie, 33
ára, var í miklum metum hjá sam-
starfsfólki sínu en hefur legið undir
grun síðan rannsakendur komust að
þeirri niðurstöðu að slökkt hefði
verið á samskiptabúnaði vélarinnar
handvirkt og Boeing-vélinni vísvit-
andi stýrt af leið.
Viðkvæmar upplýsingar
Hishammuddin Hussein, sam-
göngumálaráðherra Malasíu, sagði
að engar grunsemdir hefðu vaknað
við athugun á farþegum vélarinnar.
Hann sagðist hafa fullan skilning á
tilfinningum ættingja farþeganna en
sagðist ekki hafa neinar nýjar upp-
lýsingar varðandi leitina að flugvél-
inni. Yfirvöld á Indónesíu viður-
kenndu í gær að þau hefðu aðeins
nýlega heimilað eftirlitsvélum frá
Ástralíu, Japan, Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum og Malasíu að
fljúga á yfirráðasvæði sínu og sögðu
að þeirra eigin floti biði eftir fyr-
irmælum frá stjórnvöldum í Kuala
Lumpur. Leitaraðgerðir Indlands
hafa einnig verið á ís síðustu daga
vegna skorts á leiðbeiningum frá
malasískum stjórnvöldum. Hisham-
muddin staðfesti í gær að ákveðin
leitarúrræði biðu samþykkis hlutað-
eigandi ríkja. Alls 26 ríki koma að
leitinni að flugvélinni en mörg
þeirra eru óvön samvinnu af þessu
tagi, sérstaklega þegar kemur að því
að deila mögulega viðkvæmum upp-
lýsingum. Paul Yap, sérfræðingur
við Temasek Polytechnic í Singa-
pore, sagði í samtali við AFP að
skipulagning leitarinnar væri gríð-
arleg áskorun fyrir malasísk stjórn-
völd, ekki síst að fá ríkin til að deila
gögnum sem gætu afhjúpað tækni-
lega getu landanna. „Ég myndi ekki
vilja vera í sporum Malasíu,“ sagði
hann.
Stjórnvöld í Taílandi sögðu frá því
í gær að flug MH370 hefði birst á
hernaðarratsjám landsins aðeins
mínútum eftir að vélinni var stýrt af
leið. Þau sögðu að sama vél hefði
sést aftur skömmu seinna á leið
norður en hún hefði horfið yfir An-
damanhafi. Tilvikið var ekki tilkynnt
af hernum og kom ekki í ljós fyrr en
ratsjárgögn voru yfirfarin á mánu-
dag.
AFP
Átakanleg bið Örvænting ættingja kínversku farþeganna braust út fyrir blaðamannafund í gær.
Örvænting
ástvina eykst
Gögnum eytt úr flugherminum
Mennta- og heilbrigðismálaráðu-
neyti Kína hafa skipað staðaryfir-
völdum í héruðum landsins að
kanna hvort lyfseðilsskyldum lyfj-
um sé dreift í leik- og grunn-
skólum. Nærri 2.000 börn eru und-
ir lækniseftirlit eftir að upp komst
að börnum í nokkrum leikskólum
hefðu verið gefin veirudrepandi lyf
til að bæta mætingu þeirra. Skól-
arnir fá greitt eftir mætingu.
Að minnsta kosti tveir leikskólar
í Xi’an í Shaanxi-héraði hafa orðið
uppvísir að því að hafa gefið börn-
um lyf án samþykkis foreldra
þeirra. Eitt foreldri sagði í samtali
við Global Times að nokkur
barnanna hefðu kvartað undan
magaverkjum og svitaköstum en
þegar farið var
með þau til lækn-
is bentu þvag- og
blóðprufur til
þess að nýru
þeirra eða lifur
væri skemmd. Í
ljós kom að börn-
unum hafði verið
gefið flensulyfið
moroxydine ABOB en samkvæmt
prófessor við Kínverska háskólann
í Hong Kong er lítið vitað um lyfið.
Ríkisfréttastofan Xinhua segir
kínverska foreldra orðna lang-
þreytta á einkareknum leikskólum,
sem séu illa fjármagnaðir, illa
reknir og oftar en ekki í niður-
níðslu.
Gáfu börnunum lyf til að bæta mætingu
KÍNA
Lögreglu-
yfirvöld, sem
rannsaka hvarf
Madeleine
McCann árið
2007, leita nú að
manni sem mis-
notaði fimm
barnungar bresk-
ar stúlkur í
Portúgal á ár-
unum 2004-2010.
Níðingurinn, sem vitni hafa lýst
sem sólbrúnum með stutt, dökkt og
ógreitt hár, er grunaður um að hafa
brotist inn í tólf sumarleyfisíbúðir
þar sem breskar fjölskyldur dvöldu
á Algarve. Í fjórum tilvikum voru
stúlkur á aldrinum 7-10 misnotaðar
kynferðislega í rúmum sínum og í
einu tilfellinu tvær stúlkur í sama
húsinu. Lögregla segir að í öllum til-
vikum hefðu engin verksummerki
fundist um að brotist hefði verið inn
né var nokkuð tekið. Þá voru glæp-
irnir allir framdir milli klukkan tvö
og fimm að nóttu.
Foreldrar Madeleine McCann
hafa aldrei gefið upp vonina að finna
dóttur sína en hvarf hennar er nú til
rannsóknar hjá lögregluyfirvöldum
bæði á Bretlandi og í Portúgal.
Misnotaði breskar stúlkur á Algarve
Madeleine
McCann
LEITIN AÐ MADELEINE MCCANN
SEPP
St. 42cm
ED
St. 38cm SAGGO
St. 37cm
OM
St. 35cm
Við borðum
áhyggjurnar þínar!
ÁHYGGJUÆTUR
NÝTT
POLLI
St. 42cm
FLINT
St. 33cm
Fæst í Hagkaup og Elko Lindum www.nordicgames.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA Fífa salernispappírinn er einstaklegamjúkur þriggja laga pappír, náttúrulega
hvíttur, án klórbleikiefna og viðbættra ilmefna. Þú færð Fífa í næstu verslun.
WWW.PAPCO.IS
FIÐURMJÚK FÍFA