Morgunblaðið - 20.03.2014, Síða 31
greinum hafa alltaf verið merk upp-
eldisstofnun. Ég hefði ekki vilja
missa af því æskulýðs- og unglinga-
starfi sem þar fór fram. Fyrir vikið á
maður heilan her af traustum vinum
og félögum fyrir lífstíð, sem allir bera
sömu tilfinningar til félagsins – allir
sem einn!“
Bóbó var sendisveinn hjá heild-
verslun Péturs Péturssonar hf. og
starfaði þar til 1978 við útkeyrslu og
sölumennsku. Hann starfaði hjá
sendiráði Bandaríkjanna, Menning-
arstofnun 1978-88, stundaði bílainn-
flutning 1986-88, var veitingastjóri
við Rósenberg-kjallarann 1987-88,
vann við Útfararþjónustu kirkju-
garða Reykjavíkurprófastsdæma (nú
Útfararstofu kirkjugarðanna, Foss-
vogi) 1988-99 og síðan hjá Útfar-
arstofu Íslands 1999-2004. Bóbó ók
síðan kínverskum verkamönnum við
Kárahnjúkavirkjun á árunum 2004-
2007. Þá hóf hann verktakastörf við
byggingar- og tæknideild Háskóla
Íslands og starfaði þar til 2012 er
hann lenti í umferðarslysi sem hann
er að jafna sig á.
Bóbó hefur auk þess sinnt hótel-
og veitingahúsastörfum, leigu-
bifreiðaakstri og öræfaakstri með
ferðamenn, byggingarvinnu og
stundað sjómennsku.
Bóbó æfði og keppti í knattspyrnu
til 17 ára aldurs og keppti auk þess í
sundi og á skíðum. Hann sat í stjórn
skíðadeildar KR um skeið, sat í fjár-
öflunarnefnd félagsins, var farar-
stjóri fyrir yngri flokka knatt-
spyrnudeildar, sat í afmælis- og
árshátíðarnefnd, hefur sinnt marg-
víslegum öðrum störfum fyrir KR um
langt árabil og var sæmdur gullmerki
félagsins á hundrað ára afmæli þess,
1999.
Fjölskylda
Bóbó kvænist 17.6. 1989 Kolbrúnu
Unu Einarsdóttur, f. 24.1. 1949,
starfsmanni Securitas. Hún er dóttir
Einars Gunnars Einarssonar, lög-
fræðings á Ísafirði, sem er látinn, og
Guðríðar Guðmundsdóttur bankafull-
trúa. Bóbó og Kolbrún slitu sam-
vistir.
Stjúpsonur Bóbós og sonur Kol-
brúnar er Einar Björgvin Davíðsson,
f. 16.2. 1981, starfsmaður hjá síma-
fyrirtækinu Nova, búsettur í Reykja-
vík.
Unnusta Bóbós er Erla Walters-
dóttir, f. 21.7. 1957, fyrrv. banka-
starfsmaður í Reykjavík.
Systkini Bóbós eru Erna Margrét
Frederiksen, f. 11.6. 1942, íþrótta-
kennari, búsett í Reykjavík; Alfreð
Aage Frederiksen, f. 7.9. 1944, bif-
vélavirki, búsettur í Kópavogi; Hanna
Sjöfn Frederiksen, f. 8.4. 1947,
bankastarfsmaður, búsett í Neskaup-
stað; Birgir Adolf Frederiksen, f.
21.1. 1950, offsetprentari og fram-
kvæmdastjóri, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Bóbós voru Adolf Aage
Frederiksen, f. 14.2. 1917, d. 5.9.
1978, verslunarmaður í Reykjavík, og
k.h., Svava Betty Rosenberg Fred-
erikesn, f. 12.10. 1922, d. 9.4. 1994,
húsfreyja.
Bóbó mun blása til afmælisfagn-
aðar sem haldinn verður á Rauða
ljóninu á Eiðistorgi hinn 10.5. nk. frá
kl. 21.00. Þangað býður hann vel-
komna stórfjölskylduna, vini, vanda-
menn og alla aðra KR-inga.
Úr frændgarði Baldurs Ómars Frederiksen
Baldur Ómar
Frederiksen
Helga Jóhannsdóttir
húsfr. á Kúgili
Sigurður Gíslason
b. á Kúgili í Þorvaldsdal
Gíslína Sigrún Sigurðardóttir
húsfr. í Rvík
Alfred Rosenberg
veitingam. og eigandi gamla
Hótel Íslands í Austurstræti
Svava Betty Rosenberg Frederiksen
húsfr. í Rvík
Kjærstine Rosenberg
húsfr. á Jótlandi
Nils Christian Rosenberg
hafnsögum. á Jótlandi
Sigurbjörg Sölvadóttir
bróðurdóttir Margrétar, ömmu
Sigurðar Nordal prófessors
Margrét Halldórsdóttir
húsfr. í Rvík
Adolf Aage Frederiksen
kaupm. í Rvík
Björgvin Frederiksen
vélvirkjam., borgarfulltr.
og framkvæmdastj. í Rvík
Hilmar K.
Björgvinsson
fyrrv. forstj.
Innheimtu-
stofnunar
sveitarfélaga
Aage Martin Christian Frederiksen
vélstj. í Rvík
Ida Sophie Elling Frederiksen
húsfr. í Kaupm.höfn
Martin Christian Frederiksen
vélstj. í Kaupm.höfn
Halldór Guðmundsson
b. á Botnastöðum í Svartárdal
Nikulás Guðmundsson
b. og sjóm. víða í
Húnavatnssýslum
Sigríður María
Nikulásdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurbjörn
Þorbjörnsson
ríkisskattstj.
Markús
Sigurbjörnsson
hæstaréttardómari
KR-ingur Bóbó á Rauða ljóninu.
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2014
Sveinn Kjarval, innanhúss- oghúsgagnaarkitekt, fæddist íDanmörku 20.3. 1919. For-
eldrar hans voru Jóhannes Sveins-
son Kjarval listmálari og k.h., Tove
Kjarval, f. Merrild, þekktur rithöf-
undur, af listamannaættum. For-
eldrar Jóhannesar Kjarvals voru
Sveinn Ingimundarson og k.h., Kar-
itas Þorsteinsdóttir Sverrissen.
Eiginkona Sveins var Guðrún,
elsta barn Helga Hjörvars útvarps-
manns og Rósu Daðadóttur. Börn
þeirra: Hrafnhildur Tove, leirlista-
maður í Danmörku; Jóhannes,
skipulagsfræðingur, nú látinn; Kol-
brún, leirlistamaður á Akranesi;
Ingimundur, leirlistamaður og stór-
bóndi í New York-ríki, og María,
listmálari í Danmörku.
Sveinn var búsettur í Reykjavík
skamma hríð, lítill drengur með for-
eldrum sínum, m.a. í húsinu með
torfþakinu á horni Fjólugötu og
Njarðargötu. Hann flutti síðan með
móður sinni aftur til Danmerkur,
ólst þar upp og lauk prófum í hús-
gagnasmíði 1938.
Sveinn kom til Íslands 1939, vann
við smíðar og var verkstjóri á vegum
ameríska hersins, en fór aftur utan
1946, stundaði nám við Kunsthånd-
værkskolen í Kaupmannahöfn og
brautskráðist sem innanhúss-
arkitekt vorið 1949. Sama ár kom
hann aftur til Íslands og vann hér að
húsgagna- og innanhússhönnun til
1969 en flutti þá enn til Danmerkur
og bjó þar síðan.
Sveinn var frumkvöðull í hús-
gagna- og innanhússhönnun hér á
landi á þeim árum er einhæfni ríkti á
því sviði, hönnun talin óþörf og jafn-
vel óþekkt. Í húsgagnahönnun inn-
leiddi hann hina hreinu og léttu
dönsku línu sem m.a. má sjá í borð-
stofu- og ruggustólum hans frá þeim
tíma. Hann hannaði auk þess inn-
réttingar fyrir Þjóðminjasafnið, bók-
hlöðuna á Bessastöðum, veitinga-
húsið Naustið og kaffistofuna Tröð í
Austurstræti. Þá kenndi hann við
handíðadeild Kennaraskólans 1951-
56 og hélt fjölda fyrirlestra um
hönnun, en oft fyrir daufum eyrum.
Sveinn lést 10.2. 1981.
Merkir Íslendingar
Sveinn
Kjarval
90 ára
Erna Finnsdóttir
85 ára
Guðrún Helga Jónsdóttir
Ingvar Þorsteinsson
Lúðvík Davíðsson
Ragnheiður Sigurðardóttir
80 ára
Birgir Hallvarðsson
Dóra Sif Wium
Viktoría Bryndís
Viktorsdóttir
75 ára
Elísabet Lúðvíksdóttir
Guðrún Ársælsdóttir
Hallbjörn Jóhannsson
Sigurlaug Straumland
Sjöfn Halldóra Jónsdóttir
Vilhjálmur Þór Ólafsson
70 ára
Ásdís Hannibalsdóttir
Eiríka Dagbjört
Haraldsdóttir
Gylfi Haraldsson
Jón Örn Ámundason
Páll H. Egilsson
Pétur Ágústsson
Þráinn Þorvaldsson
60 ára
Aðalheiður S. Jónsdóttir
Einar Guðmundsson
Jerzy Jozef Przybylek
Olga Björg Jónsdóttir
Rósa E. Rósinkranz
Helgadóttir
50 ára
Andrés Sigurbergsson
Brynjar Baldursson
Elsa Kristín Helgadóttir
Eyrún Óskarsdóttir
Gunnar Kristinn Eiríksson
Hafdís Örvar
Jóhanna Elísdóttir
Jón Óli Benediktsson
Kjartan Ó. Kjartansson
Sigurður Þór Þórsson
Sigurlaug Björnsdóttir
Stefán Sigurður
Guðmundsson
Valgerður Auður
Andrésdóttir
Valgerður Guðmundsdóttir
40 ára
Boguslawa Kaminska
Daníel Þór Harðarson
Gunnar Már Petersen
Haraldur Róbert
Magnússon
Jóhann Rúnar
Guðbergsson
Jóna Bjarnadóttir
Kjartan Jónsson
Maureen Achieng Gaya
Ingvarsson
Natalia V. Slobodeniouk
Sigurður Daníel
Halldórsson
30 ára
Adriana Karolina
Wnorowska
Lidiya Teodorova Solkinen
Liene Linina
Marius Petruskevicius
Natalia Iakymova
Óttar Örn Vilhjálmsson
Stefán Þór Sigfússon
Til hamingju með daginn
80 ára Hrefna ólst upp í
Reykjavík og er textíl-
listakona og húsmóðir.
Maki: Arnljótur Guð-
mundsson, f. 1929, d.
2002, húsasmíðam.
Börn: Ásdís Sólrún,
Hulda Anna, Guðmundur
og Arnar Þorri.
Foreldrar: Hrefna Egg-
ertsdóttir Norðdahl, f.
1893, d. 1972, húsfreyja,
og Magnús Jónsson, f.
1888, d. 1945, stein-
smiður og bóndi.
Hrefna
Magnúsdóttir
30 ára Jói ólst upp í
Reykjavík og býr þar, lauk
prófi vélfræði frá Véla-
skóla Íslands og er vél-
stjóri á þjónustuskipi fyrir
norska olíuborpalla.
Maki: Telma Haralds-
dóttir, f. 1985, listfræð-
ingur á Gerðarsafni.
Dóttir: Silvía Rea, f. 2013.
Foreldrar: Kristján Jón
Jónsson, f. 1948, bókari
hjá Fjársýslu ríkisins, og
Steinunn Jóhanna Páls-
dóttir, f. 1950, húsfreyja.
Jóhannes S.
Kristjánsson
30 ára Sólveig er félags-
ráðgjafi hjá Akranes-
kaupstað.
Maki: Njáll Vikar Smára-
son, f. 1983, læknir.
Börn: Rakel Mirra, f.
2005, og Smári, f. 2011.
Foreldrar: Jóhanna Halls-
dóttir, f. 1956, fjármálastj.
hjá Landmælingum, og
Sigurður Sigurðsson, f.
1955, starfsm. Elkem.
Stjúpforeldrar: Sturlaugur
Sturlaugsson, f. 1958, og
Hrefna Guðm., f. 1962.
Sólveig
Sigurðardóttir
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
SPORTÍS
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS
NÝ SENDING
VOR 2014