Morgunblaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 40
FIMMTUDAGUR 20. MARS 79. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Þótti startið dýrt
2. Brutust inn og náðust á mynd
3. Vél á leið frá Keflavík hvarf 1970
4. Spá stormi og stórhríð
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Söngvarinn Friðrik Ómar sendi í
fyrra frá sér plötuna Kveðja en á
henni flytur hann ýmsa sálma og
saknaðarsöngva. Platan seldist vel
og til að fylgja þeirri velgengni eftir
mun Friðrik halda tónleika í kirkjum
víða um land á næstu vikum. Grafíski
hönnuðurinn Ólöf Erla Einarsdóttir
hefur hannað hreyfimyndir sem
sýndar verða á tónleikunum. Tónleik-
arnir hefjast allir kl. 20.30 og verða
þeir fyrstu haldnir í kvöld í Grafar-
vogskirkju. 26. mars verða haldnir
tónleikar í Keflavíkurkirkju og degi
síðar í Hafnarfjarðarkirkju. Aðrar
kirkjur á dagskránni eru Laugarnes-
kirkja, Lágafellskirkja, Blönduós-
kirkja, Siglufjarðarkirkja, Dalvíkur-
kirkja, Húsavíkurkirkja, Vopnafjarðar-
kirkja, Þórshafnarkirkja, Norðfjarðar-
kirkja, Seyðisfjarðarkirkja og síðustu
tónleikarnir, 16. apríl, verða haldnir í
Hafnarkirkju.
Friðrik syngur í
kirkjum víða um land
Hross í oss, fyrsta kvikmynd
Benedikts Erlingssonar í fullri lengd,
hlýtur mikið lof gagnrýnanda kvik-
myndavefjarins Twitch. Í gagnrýni
segir m.a. að Benedikt flétti saman
lífi hrossa og manna áreynslulaust
og að með löngum kvikmyndatökum
og stílhreinni myndbyggingu nái
hann fram mildri ljóðrænu. Þá þykir
rýni myndin full
af dásamlega fá-
ránlegum gam-
ansög-
um af
mönnum
og dýr-
um.
Hrossin lofsungin
á vefsíðunni Twitch
Á föstudag Norðan 18-23 m/s og snjókoma á norðanverðu land-
inu, en úrkomulítið syðra. Kólnandi veður og frost 2 til 7 stig.
Á laugardag Norðvestan 18-23 m/s og snjókoma austanlands.
Annars 10-15 og él norðvestantil, en léttskýjað suðvestanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 18-25 og snjókoma N-til,
hvassast á Vestfjörðum, en mun hægari og skúrir eða él syðra.
VEÐUR
Haukar gerðu sér lítið fyrir
og sópuðu Íslandsmeistur-
um Keflavíkur út úr undan-
úrslitum Íslandsmóts
kvenna í körfuknattleik í
gærkvöldi með sigri í þriðja
og síðasta leik liðanna,
88:58. Keflavíkurliðið er þar
með komið í sumarleyfi án
þess að vinna leik í undan-
úrslitum. Snæfell vann Val
á heimavelli og því mætast
liðin á nýjan leik á morgun
á heimavelli Vals. »2
Íslandsmeistur-
unum sópað út
Ingvar Þór Jónsson, fyrirliði SA Vík-
inga, varð Íslandsmeistari karla í ís-
hokkíi á þriðjudagskvöld. Hann
kennir stærðfræði við
Menntaskólann á
Akureyri og er
þessa dagana í
kennaraverkfalli.
Hann eyðir dög-
unum með
dóttur sinni
sem fæddist í
nóvember.
Hann vonar þó
að kjaradeilan
leysist sem fyrst.
»4
Nýkrýndur Íslands-
meistari í verkfalli
Englandsmeistarar Manchester Unit-
ed og Dortmund voru tvö síðustu lið-
in til að tryggja sér sæti í átta liða úr-
slitum Meistaradeildarinnar í
knattspyrnu í gær . United fagnaði
3:0 sigri gegn Olympicaos og vann
einvígið samanlagt, 3:2. Robin van
Persie skoraði öll mörk ensku meist-
aranna. Zenit vann Dortmund, 2:1, en
Dortmund vann samanlagt, 5:4. »1
Persie með þrennu og
United komst áfram
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þetta er tæki sem auðveldar líf
fólks sem á undir högg að sækja,“
segir Arnar Þór Viðarsson, nemi í
frumkvöðlafræðum við Viðskiptahá-
skólann í Kaupmannahöfn. Þau
Fríða Haraldsdóttir, sem stundar
nám í vöruhönnun í KEA í Dan-
mörku, unnu í sl. viku til fyrstu
verðlauna í nýsköpunarkeppni sem
Kaupmannahafnarháskóli stóð fyrir.
Hvar hjálpar er að vænta
Verkefnið sem Arnar og Fríða
lögðu inn var hugmynd að armbandi
fyrir heimilislausa. Með því gæti
fólk sem er á götunni fengið í mót-
tökubúnað eða apptæki, upplýs-
ingar um hvar það megi vænta
hjálpar, fæðis, klæða, lyfja, nætur-
skjóls og fleira. Einnig upplýsingar
um hvar lögreglan sé nærri. Oft
þurfa heimilslausir að leita ásjár
hennar því ofbeldi er daglegur veru-
leiki götufólks.
„Við höfum hannað forrit fyrir
snjallsíma með fókus á ungt heim-
ilislaust fólk undir 25 ára í Dan-
mörku. Það er hugsað til að prufu-
keyra virkni forritsins. Þegar við
höfum sannreynt það verður farið í
framleiðslu tækis sem virkar eins
og snjallúr með snertiskjá. Þar
horfum við til fólks sem hefur ekki
aðgang að snjallsímum en gæti
fengið úr með sömu þjónustu,“ út-
skýrir Arnar Þór.
Vöruhönnuðir paraðir saman
Fjöldi hugmynda barst í sam-
keppni Hafnarháskóla og niður-
staðan varð sem fyrr segir að Arnar
Þór og Fríða sigruðu.
Meira hangir þó á spýtunni, því
sigrinum fylgir að þau sigurveg-
ararnir fá endurgjaldslausa starfs-
aðstöðu í frumkvöðlasetri á Norður-
brú í Kaupmannahöfn. Þar verða
þau sem vöruhönnuðir pöruð saman
við tæknimenn sem þekkja og
kunna að þróa símatæknina, til
dæmis Nano og App, svo hún geti
nýst í framangreindu skyni. Er
hugsunin þá sú að bæði sé hægt að
senda upplýsingarnar í armtæki og
síma.
Þróun er eins árs ferli
„Þróun hugmyndar að fram-
leiðsluvöru er minnst eins árs ferli.
Við erum þó komin með öll verkfæri
í hendur og fjárfestar sýna áhuga,“
segir Arnar Þór sem í sumar starfar
í Bandaríkjunum. Hann segist eygja
þar tækifæri, því í mörgum ríkjum
vestra sé í deiglu að bæta þjónustu
við heimilislausa, sjúka og aðra þá
sem þurfa aðstoðar samfélagsins
með.
Hönnuðu armband til aðstoðar
Unnu frum-
kvöðlaverðlaun í
Kaupmannahöfn
Hugvit Arnar Þór Viðarsson og Fríða Haraldsdóttir sigursæl með verðlaunin góðu. Þau hafa nú hannað nýjan
tæknibúnað sem ætla má að geti orðið mörgum þeim sem eru í erfiðum félagslegum aðstæðum mikið þarfaþing.
Talið er að heimilislausir í Danmörku séu um
6.000 og eru um 60% þeirra á Kaupmannahafnar-
svæðinu. Af hálfu borgaryfirvalda hefur verið lögð
áhersla á að koma til móts við þetta fólk og nýlega
var samþykkt að verja um 280 milljónum danskra
króna til þess, um sex milljörðum íslenskra króna.
„Umfang þessa vandamáls verður æ meira. Árið
2009 voru 4.900 manns á götunni en í fyrra í tæplega 6.000 manns. Einna
mest hefur aukning verið á meðal ungra heimilislausra, undir 25 ára aldri,
eða um 80%. En þrátt fyrir aðstæður sínar nær þetta fólk að tileinka sér
nýja símatækni. Fyrir vikið ætti þessi búnaður sem við erum að hanna að
nýtast því vel,“ segir Arnar Þór Viðarsson að síðustu.
Þúsundir án heimilis
MIKLU VARIÐ TIL AÐSTOÐAR VIÐ ÚTIGANGSFÓLK Í KÖBEN
Höfn Sumardagur í Köben.