Morgunblaðið - 05.04.2014, Page 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2014
ford.is
Ford Explorer 4WD 7manna 3,5 TiVCT V6 290 hö bensín, 6 þrepa sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 12,4 l/100 km.
Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinnmynd í auglýsingu.
Ford Explorer er 7 manna lúxusjeppi
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16
KOMDUOGPRÓFAÐU
FORD EXPLORER
3,5 V6 290HESTÖFL
9.850.000 KR.FRÁ
6 ÞREPA SJÁLFSKIPTUR
4WD 7MANNA
BAKSVIÐ
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Á síðasta ári leituðu 706 einstakling-
ar til Stígamóta og hafa þeir aldrei
verið fleiri. Ný mál voru 358 talsins
og hafa ekki verið fleiri síðan 1992.
Aldrei hafa fleiri karlar leitað til
samtakanna en í fyrra, en þeir voru
25% þeirra sem leituðu til samtak-
anna vegna sifjaspellamála.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í ársskýrslu Stígamóta sem
kynnt var í gær.
Heildarfjöldi viðtala hjá samtök-
unum var 2.409 og hefur ekki verið
meiri frá árinu 1996. Í þessum 358
áðurnefndu málum voru 323 þolend-
ur sem höfðu verið beittir ofbeldi af
562 ofbeldismönnum, en í 36,3% til-
fella var um fleiri en einn ofbeldis-
mann að ræða. Stundum getur verið
að tveir eða fleiri beiti ofbeldi á sama
tíma, stundum eru tilvikin aðskilin.
Karlar 90,6% ofbeldismanna
Heildarfjöldi ofbeldismanna var
597, sem var 18% aukning frá 2012,
meirihlutinn var karlar, eða 90,6%
og konur voru 3,4%. Upplýsingar
vantar um 6% ofbeldismanna.
Flestir þeirra sem leituðu til
Stígamóta voru á aldrinum 18-39
ára, eða 64,4%, en ofbeldið hófst hins
vegar hjá 69% þegar þeir voru á
aldrinum 5-17 ára. 217 leituðu til
Stígamóta vegna nauðgana, þar af
voru 17 hópnauðganir og jafnmargar
lyfjanauðganir. Afleiðingar kyn-
ferðisofbeldisins voru margvíslegar,
kvíði var þar algengastur og 22%
þeirra sem leituðu til Stígamóta í
fyrra höfðu reynt sjálfsvíg.
Guðrún Jónsdóttir, talskona
Stígamóta, segir að fjölgun tilkynn-
inga megi líklega tengja við umfjöll-
un Kastljóss um svokallað Karls
Vignis-mál í janúar í fyrra. „Okkur
fannst að það mál hefði gefið fólki
von, þarna fékkst játning, en það er
algjör undantekning. Í þessum mál-
um falla sjaldan dómar og það er
þessi þrá í fólki, að fá viðurkenningu
á að það hafi verið brotið á því.“
Mismunandi afleiðingar
Í skýrslunni kemur fram að þegar
brotaþolum er skipt eftir kyni kemur
í ljós að konur voru 82% og karlar
18%. Í 25% sifjaspellamála voru
karlar þolendur og í 9,3% nauðgun-
armála. Aldrei hafa fleiri karlar leit-
að til samtakanna og Guðrún telur að
það megi sömuleiðis rekja til áður-
nefnds Kastljóssþáttar. „Þeir karlar
sem hafa haft í sér styrk og kraft til
að leita til okkar hafa hingað til ekki
kvartað yfir því að hér hafi eingöngu
unnið konur. Aðstoð við karla og
konur er sú sama; fólk stýrir sjálft
aðstoðinni og það sem við gerum er
að veita hjálp til sjálfshjálpar.“
Í skýrslunni kemur fram að afleið-
ingar kynferðisofbeldis séu mismun-
andi eftir því hvort þolandinn er karl
eða kona. „Karlar verða reiðari og
daprari og eiga oftar í hegðunarerf-
iðleikum en konur. Þá er skömm að-
eins algengari meðal þeirra en
kvenna,“ segir Guðrún.
Nýlega var fyrsti karlkyns starfs-
maður Stígamóta ráðinn og Guðrún
segir það lengi hafa staðið til.
„Við höfum í mörg ár auglýst eftir
starfskröftum án þess að nefna kyn,
en fengið fáar umsóknir frá körlum.
Þessi málaflokkur hefur verið meira
á fagsviði kvenna. Það er mikilvægt,
bæði fyrir karla og konur, að hafa
karl í starfshópnum okkar.“
Ekki jafnmörg ný mál síðan 1992
Ársskýrsla Stígamóta kynnt í gær Karlar 25% þeirra sem leituðu til samtakanna vegna sifjaspella
323 nýir þolendur beittir ofbeldi af 562 ofbeldismönnum Umfjöllun Kastljóss gaf mörgum von
Fjöldi ofbeldismanna fyrir hvern brotaþola
í nýjum málum 2013
Kærð mál
Ofbeldismenn kærðir til lögreglu
Skipting brotaþola
eftir kyni
Skipting ofbeldis-
manna eftir kyni
250
200
150
100
50
0
450
400
350
300
250
200
150
100
50
0
1 of
bel
dis
m.
2 o
fbe
ldis
m.
3 o
fbe
ldis
m.
4 o
fbe
ldis
m.
5 o
fbe
ldis
m.
6 o
fbe
ldis
m.
7 eð
a fl
eiri
ofb
eld
ism
.
Upp
l. va
nta
r Nei Já Óví
st
Upp
l. va
nta
r
Alls 323 mál Alls 562 mál202
(62,5%)
62
(19,2%)
28
(8,7%) 9
(2,8%)
7
(2,2%)
6
(1,9%)
4
(1,2%)
4
(1,2%)
444
(79%)
64
(11,4%)
1
(0,2%)
53
(9,4%)
Kona
265
(82%)
Karl
58
(18%)
Kona
19
(3,4%)
Karl
509
(90,6%)
Upplýsingar vantar
34
(6%)
Í fyrra leituðu 17 til Stígamóta
vegna kláms, 16 konur og einn
karl, og er það aukning um þriðj-
ung frá árinu á undan.
Með klámi er ýmist átt við
þegar einstaklingar leita sér
hjálpar vegna klámnotkunar
maka sem ofbýður þeim á ýmsa
vegu og hins vegar hafa aðrir
orðið fyrir því að teknar hafa ver-
ið af þeim myndir í kynlífs-
athöfnum, ýmist með eða án
þeirra vilja, og þeim síðan dreift.
Ofbýður
klámnotkun
17 KOMU VEGNA KLÁMS