Morgunblaðið - 05.04.2014, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 05.04.2014, Qupperneq 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2014 Nú sér fyrir endann á kjaradeilu fram- haldsskólakennara. Með hverjum degi verkfalls hafa erf- iðleikar við að ljúka skólaárinu aukist. Fyr- ir rúmlega 40 árum hóf ég kennslu við Mennta- skólann í Reykjavík, ung, feimin, hrædd en stolt. Stolt yfir því að mér skyldi trúað fyrir kennslu við þessa virðulegu stofnun. Á þessum 40 árum hefur margt breyst. Kröfur til menntunar kenn- ara hafa breyst með tilkomu kröfu um kennsluréttindi á framhalds- skólastigi. Kennsluárið hefur lengst. Breyttum áherslum í kennslu og námsefni hefur fylgt aukið eftirlit með framgangi nemenda og verk- efnaskil þeirra hafa aukist og þar með heimavinna kennara. Allt hefur vaxið og vonandi batnað nema kjör kennara. Þetta er sannarlega ekki fyrsta verkfallið sem ég lendi í og mér virðast umræður fyrstu vikna verkfalls kennara alltaf fara í um- ræður um vinnutíma en ekki um laun. Það er rétt eins og samn- inganefnd ríkisins trúi því ekki að við vinnum fyrir þeim launum sem við höfum og enn síður fyrir þeirri hækkun sem farið er fram á. Fólk á förnum vegi hefur nefnt mér kenn- ara sem „vinna hálfan daginn“ en at- hugar ekki að mikill hluti vinnu okk- ar er ekki sýnilegur vegfarendum. Það er nú svo með ýmsar stéttir að þar finnast einstaklingar sem stunda illa sitt starf. Sem betur fer er það þó undantekning og allt það unga fólk sem ég hef starfað með stundar kennsluna af miklum metnaði og samviskusemi. Ástæðan fyrir þess- um skrifum er einmitt þetta unga fólk sem hefur menntað sig vel í sínu fagi og síðan bætt við sig námi til kennsluréttinda. Ég hef horft á eftir nokkrum frábærum kennurum, sem hafa horfið til þægilegri og betur launaðra starfa, jafnvel hjá hinu op- inbera, við annað en kennslu. Ég álít að þar fari reynsla og menntun í súg- inn. Vonandi verður ár- angur þessarar kjara- deilu til að stöðva þann atgervisflótta. Umræðan um stytt- ingu náms til stúdents- prófs á ekki erindi inn í launadeilu. Í þeirri um- ræðu þarf að líta á menntakerfið í heild og móta stefnu sem okkar samfélagi hentar. Þeg- ar nefnt er að víða geti nemendur hafið há- skólanám 18 eða 19 ára verður mér hugsað til 14 ára dótt- urdóttur minnar, sem nú stendur á tímamótum í bresku menntakerfi. Hún er góður og duglegur nemandi og hefur því val. En það er erfitt að þurfa að velja 14 ára hvort þú vilt læra eitthvert erlent tungumál, sögu eða landafræði eða hvort þessum greinum verður bara sleppt og þá auðvitað líka til þess ígildis stúdents- prófs (A-level) sem tekið er í þremur greinum við 18 ára aldur. Vonandi býðst yngri systur hennar líka að velja. Eða verður kerfið búið að velja fyrir hana? Ef hér á að stytta með hreinum niðurskurði þarf að ákveða hvort það er gert á breiddina eða dýptina. Ef við fækkum námsgreinum, sem nemendur stunda, þarf aukna náms- ráðgjöf en ef skorið er á dýptina þarf háskólastigið að bregðast við því í einstökum greinum. Í grunnskóla án aðgreiningar má ef til vill nýta tíma einstakra nem- enda betur en gert er í dag en ég held að margir kennarar þar vinni kraftaverk. Í stórum hópum nem- enda eru einstaklingar með svo mis- munandi þarfir að það er varla ein- um kennara ætlandi að sinna þeim öllum. En þá er ég komin að einu sem einnig hefur breyst á mínum kennsluferli og það er framkoma nemenda. Í Morgunblaðinu 2. apríl skrifar Linda Baldvinsdóttir grein um skólamál og hvetur þar til ferskr- ar hugsunar í skólakerfinu og ekki skal ég hafa á móti að kennurum sé gefinn kostur á að sinna ein- staklingum betur en nú er gert. Hins vegar finnst mér of langt gengið þegar talin eru upp almenn uppeldis- atriði eins og kurteisi, mannasiðir, virðing fyrir sjálfum sér (og vonandi öðrum) og hvernig maður verður góður maki eða foreldri. Hvert er orðið hlutverk foreldra eða afa og ömmu ef þessar kröfur eru gerðar til skólans eingöngu? Samfélagið allt þarf að taka höndum saman um að kenna ungu fólki mannasiði með for- eldrana í broddi fylkingar. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Hvar læra þau þá best að verða góðir for- eldrar og makar? Svo geta kenn- ararnir glímt við lestrarkennsluna ef börnunum hefur verið kennt í heima- húsi að það eigi að mæta tímanlega og einbeita sér að náminu ef einhver árangur á að nást. Mér finnst virð- ingarleysi nemenda fyrir skóla og námi hugsanlega hluti af skýringu á lélegri útkomu í erlendum könn- unum. Einnig mætti í ríkara mæli benda nemendum á framhalds- skólastigi á að öllum réttindum fylgja skyldur. Þegar nemandinn þiggur sæti í einhverjum skóla ber honum skylda til að sinna náminu eftir bestu getu. Það skuldar hann því samfélagi sem býður honum þessi forréttindi. Það er gott til þess að vita að virðulegur menntamálaráðherra, Ill- ugi Gunnarsson, hugsar, að eigin sögn, hlýtt til síns gamla skóla. Von- andi stafar það af reynslu hans af góðum undirbúningi til háskóla- náms. Með kjarasamninga í höfn er kominn tími til að menntamálaráð- herra dýpki umræðu sina um stytt- ingu náms til stúdentsprófs og lýsi sýn sinni á menntakerfið í heild. Hugleiðingar kennara í verkfalli Eftir Sigríði Hlíðar » Það er rétt eins og samninganefnd ríkisins trúi því ekki að við vinnum fyrir þeim launum sem við höfum og enn síður fyrir þeirri hækkun sem farið er fram á. Sigríður Hlíðar Höfundur er stærðfræðikennari. » Þurfti ekki annað en að segja við Brussel: „Gjörið svo vel og opnið pakkann!“ Ég les jafnaðarlega pistla Kolbrúnar Bergþórsdóttur og hef gaman af at- hugasemdum hennar, þótt ég sé þeim ekki alltaf sammála. Svo fór fyrir mér á fimmtudaginn. Þar kallar hún tillögu rík- isstjórnarinnar um að slíta aðildarviðræð- unum við Evrópusambandið „ótrú- legan ruddaskap“. Þó liggur fyrir að það er í samræmi við ályktanir beggja stjórnarflokkanna fyrir kosningar, en að vísu ekki í sam- ræmi við skoðanir Kolbrúnar. Nú liggur fyrir í dagbókar- færslum Össurar Skarphéðinssonar fyrir árið 2012 að hann vildi ekki opna kaflann um sjávarútvegsmálin vegna þeirra skilyrða, sem Evrópu- sambandið setti, og hann taldi með öllu óaðgengileg, aðild- arviðræðunum yrði sjálfhætt! Þetta er rauði þráðurinn í dagbók- arfærslum hans. Þetta þýðir á mæltu máli, að það var á valdi Öss- urar og aðalsamninganefndar hans að leyfa íslensku þjóðinni að sjá hvaða kostir voru í boði, þurfti ekki annað en segja við Brussel: „Gjörið svo vel og opnið pakkann!“ Eftir Halldór Blöndal Halldór Blöndal Höfundur er fyrrverandi ráðherra. Stutt athugasemd við pistil Kolbrúnar Bergþórsdóttur Fimmtudaginn 27. mars síðastliðinn var í morgunþætti Ríkisútvarpsins viðtal við lærimeistara frá Háskólan- um á Akureyri. Þar var meðal annars rætt um hversu miklum fjármun- um væri réttlæt- anlegt að eyða í læknisþjónustu við fólk sem orðið væri sjötugt og einnig hversu mik- ið ætti að bæta við skerðingu þjónust- unnar þegar menn væru komnir yfir áttrætt. Lærimeist- arinn taldi að um þetta þyrfti að fara fram umræða svo það lægi ljóst fyrir, hvaða þjónustu ætti að veita. Nokkuð ljóst er að þarna var verið að tala um þjónustu við lægri stéttir þjóðfélagsins, því embættismenn og aðrir í efri stéttum hafa greiðan og óskertan aðgang að heilbrigðisþjón- ustu, óháð því hvað hún kostar. Það er aftur á móti milljarða virði ef hægt væri að losna við gamlingjana sem fyrst eftir að þeir hafa lokið greiðslu í lífeyrissjóði, fyrir áhyggjulaust ævi- kvöld, því hálaunahítin hefur pláss fyrir þessa peninga og þar eru menn með hæfileika til að eyða þeim. Það er spurning hvernig þeim eldri borgurum sem hlustuðu á þetta, og glíma við þunglyndi og kvíða, líði að eiga von á því að einhverjir embætt- ismenn taki ákvörðun um það hversu lengi þeir fái að lifa? Bóndinn tekur jú ákvörðun um það hvenær gamla roll- an og hrúturinn verði slegin af og Hit- ler hafði þá stefnu að útrýma öldr- uðum, gyðingum og þroskaheftum, eða gelda, þá þroskaheftu væru þeir nothæfir til vinnu. Hitler átti marga stuðningsmenn hér fyrir stríð og á auðsjáanlega enn. Geldingarstefnan var hér lengi í gildi og læknar fram- kvæmdu hana án vitundar þess sem geltur var. Slíkir læknar voru vel virt- ir í þjóðfélaginu. Það er afar dapurt að aukið mennt- astig skuli auka á ómennskuna og keyri þjóðfélagið áfram á einhliða auðhyggju sem eys þjóðartekjunum í um 20% þjóðarinnar. Alþingismenn eiga að sjá um að réttlætinu sé fram- fylgt, en er þeim kannski stjórnað af 20% hópnum? Þeir sem komnir eru yfir áttrætt tóku við þjóðfélaginu í styrjaldar- ástandi og fjárnauð eftir hrunið 1929 en skiluðu því til þeirra er tóku við af þeim, sem einni af ríkustu þjóðum heims. Þeir tæmdu svo bankana og skuldsettu þjóðina upp á þúsundir milljarða. Það er engin furða þó slíkir snillingar vilji ekki hafa kostnað af því að þjónusta gamlingja. Snillingarnir fleyta nú rjómann af hagnaði fyr- irtækja, sem hafa ekki peninga til að borga afkomulaun til starfsmanna. Eiga ekki allir jafnan rétt til lífsins? GUÐVARÐUR JÓNSSON, Valshólum 2. Hvenær á að slökkva á gamlingjum? Frá Guðvarði Jónssyni Guðvarður Jónsson Bréf til blaðsins LÁTTU EKKI HÓSTA SPILLA SVEFNINUM Hóstastillandi og mýkjandi hóstasaft frá Ölpunum Sími 555 2992 og 698 7999 NÁTTÚRU- AFURÐ úrselgraslaufum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.