Morgunblaðið - 15.05.2014, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2014
Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466
Opið 8-22
LEIÐSÖGUNÁM
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og myn-
dum. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal
að leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám.
Helstu námsgreinar:
• Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.
• Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
• Mannleg samskipti.
• Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu
sviðum.
Boðið er uppá dag- og kvöldnám, auk þess sem farið er í vettvangsferðir.
Umsögn:
„Síðasta haust hóf ég leiðsögunám við Ferðamálaskóla Íslands.
Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið
um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á
landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög
skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhald-
snám. Þetta nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem
kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“. Martha Jensdóttir
kennari.
- Nemendur geta að ná i loknu gengið í Leiðsögufélagið -
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyri þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum.
Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að
lei sögn erlendra og innle dra fe ðamanna um Ísland.
-Flest stéttarfélög styrkja neme dur til náms.
-Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu
Helstu námsgreinar:
- Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum.
- Mannleg samkipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga.
- Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
- Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðaverkefni o margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði.
Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða.
Umsögn:
Leiðsögunámið í Ferðamálaskóla Íslands bætti miklu við þekkingu mína á
landinu sem og sögu og menningu þjóðarinnar. Þessir þættir voru ofnir saman
á einkar áhugaverðan og skemmtilegan hátt og kryddað margs konar fróðleik
og frásögnum. Auk þess spannaði námið allt frá leiðsögutækni til laxveiðáa,
frá skyndihjálp til skógræktar og frá hvalafræðum til hverasvæða svo nokkuð sé
nefnt. Skipulag námsins var sveiganlegt en með ákveðnu aðhaldi stjórnenda sem
skapaði gott andrú sloft í þessum alþjóðlega hópi nemanda. Þessum tí a var
mjög vel varið hvort sem maður hyggur á fer aleiðsögn e a ekki.
LEIÐSÖGUNÁM
VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU
Opið 8- 2
Magnús Jónsson
fv. veðurstofustjóri
„Ef menn vita að þessi mél skaða en
nota þau áfram, erum við komin að
mörkum dýraníðs,“ segir Hallgerður
Hauksdóttir, formaður Dýravernd-
arsambands Íslands. Sambandið hef-
ur sent frá sér ályktun þar sem notk-
un hestamanna á tungubogamélum
er sögð ill meðferð á hestum.
Dýraverndarsambandið telur
notkun mélanna ólöglega. Vísað er í
ákvæði laga um dýravelferð þar sem
segir að hver sá sem þjálfar dýr, not-
ar þau í keppni og sýningar eða á
annan hátt skuli tryggja að þau séu
ekki markvisst beitt meðferð sem
veldur þeim skaða eða óþarfa ótta.
Í ályktuninni er gagnrýnd sér-
staklega afstaða þeirra hestamanna
og samtaka sem vilji láta refsa þeim
sem skaði hesta með notkun mél-
anna en ekki banna búnaðinn. Í
henni felist að hestar skuli enn þurfa
að meiðast og það sé óverjandi. „Þar
sem sýnt hefur verið fram á skað-
semi mélanna hljóta rök sem hníga
að því að nota þau „varlega“ að falla
um sig sjálf.“
Hallgerður tengir afstöðu Félags
tamningamanna og Félags hrossa-
bænda við peningahagsmuni sem
menn hafi af því að ná góðum ein-
kunnum á sýningum og sigra í
keppni. Aðrir hagsmunir en dýra-
velferðarsjónarmið hafi því yfirhönd-
ina. Í ályktun Dýraverndarsam-
bandsins er vakin athygli á því að
notkun umræddra méla skekki mjög
stöðu þeirra knapa sem vilja keppa í
hestaíþróttum án þess að nota beisl-
isbúnað sem yfirbugar hestinn með
sársaukafullum núningi á bein.
„Dýraverndarsamband Íslands
fordæmir allar aðferðir sem byggja á
harðýðgi við dýr. Sýningar, keppni
og auðvitað einnig útreiðar ættu
ávallt að vera með þeim hætti að vel-
ferð dýranna sé höfð í fyrirrúmi.
Fagmenn ættu öðrum fremur að
sýna gott fordæmi með því að berj-
ast gegn notkun tóla sem meiða
hesta,“ segir í ályktun. helgi@mbl.is
Notkun méla sögð komin
að mörkum dýraníðs
Formaður Hallgerður Hauksdóttir
á góðum degi í útreiðatúr.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Tillögur um að banna lágflug yfir
Hornströndum taka mið af reglum
um bann við lágflugi yfir friðlandi
Þjórsárvera vegna gæsavarps. Lág-
flug yrði þó bannað allt árið á Horn-
ströndum. Tillögurnar komu fram
vegna hugmynda fyrirtækis um að
bjóða þyrluferðir um Hornstrandir
en fyrirtækið hætti við þau áform
þegar það varð vart við andstöðu
heimamanna.
Útsýnisflug með ferðafólk um
landið hefur aukist stórlega á undan-
förnum árum, ekki síst þyrluflug.
Finnst sumum gestum og staðar-
höldurum á fjölförnum ferða-
mannastöðum truflun verða vegna
hávaða. Þannig hefur Þingvallanefnd
vakið máls á málinu og viljað skoða
hvort ástæða væri til þess að setja
skýrari reglur um útsýnisflug yfir
þjóðgörðum og friðlýstum náttúru-
verndarsvæðum.
Vilja eiga kyrrðina
Engar sérreglur virðast gilda um
fjölsótta ferðamannastaði. Reglur
um lágflug beinast fremur að því að
vernda fuglavarp. Þannig er óheimilt
að fljúga flugvélum eða vera með
annan hávaða að óþörfu í grennd við
fuglabjörg. Almennt er heimilt að
fljúga um landið, í yfir 500 feta hæð.
Eina skýra reglan um bann við lág-
flugi er í auglýsingu um friðlýsingu
Þjórsárvera. Þar er flug neðan 3000
feta yfir friðlandinu, utan jökla,
bannað frá 10. maí til 10. ágúst ár
hvert. Tilgangurinn er að vernda
heiðagæsina í hennar mikilvægustu
varplöndum.
Í tillögu um Hornstrandir sem
bæjarráð Ísafjarðar samþykkti er
notað orðalag úr auglýsingunni um
Þjórsárver auk þess sem bannað
verður að lenda flugvélum utan
merktra lendingarstaða. Tilgangur-
inn er ekki síður sá að viðhalda
sjarma ferða um svæðið en að vernda
fuglana.
„Við fögnum fjölbreytni í ferða-
þjónustu en þetta passar ekki á frið-
lýstum svæðum sem eru talin einstök
vegna kyrrðarinnar sem þar ríkir og
fólk sækir í. Það er ekkert sér-
staklega gaman að hafa lagt á sig að
fara á Hornstrandir og standa þar á
fjalli til að upplifa kyrrðina og lognið
þegar allt í einu kemur þyrla með til-
heyrandi vélarhljóði,“ segir Albert-
ína F. Elíasdóttir, formaður um-
hverfisnefndar Ísafjarðarbæjar,
annar flutningsmaður tillögunnar.
Hún vísar til áforma Norðurflugs um
að bjóða þyrluflug um Hornstrandir
sem lið í stærri hring með ströndum
Vestfjarða. Hún tekur fram að regl-
urnar eigi ekki að vera einstreng-
ingslegar. Ekki sé verið að banna
flugvélum í neyð að finna lending-
arstað eða trufla Landhelgisgæsluna.
Í tillögum bæjarráðsins sem send-
ar verða Umhverfisstofnun og um-
hverfisráðuneyti er einnig ítrekað
bann við allri umferð vélknúinna öku-
tækja um Hornstrandafriðland, þar á
meðal snjósleða.
Skömmuð á ættarmóti
Norðurflug fékk neikvæð viðbrögð
að vestan þegar fyrirtækið kynnti
áform sín og ákvað strax að sleppa
Hornströndum úr ferðinni. „Við ætl-
um ekki að trufla friðsæld á þessu
svæði. Við erum flest ættuð þaðan og
hefðum verið skömmuð á næsta ætt-
armóti,“ segir Birgir Ómar Haralds-
son, framkvæmdastjóri. Hann tekur
fram að fyrirtækið hafi eigin um-
hverfisstefnu og vilji lifa í sátt við
samfélagið. Birgir nefnir að ekki sé
flogið yfir fuglabjörg á varptíma og
nú sé flogið hærra og fjær vinsælustu
ferðamannastöðum en áður til að
trufla gestina sem minnst. „En við
verðum líka að lifa.“
Flugbann til að
vernda sjarma
Hornstranda
Norðurflug hætti strax við þyrlu-
ferðir þegar andstaða kom fram
Morgunblaðið/RAX
Friðland Flogið yfir Hornbjarg.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fulltrúar Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna (FÍA) og Icelandair fá
frest til 15. júlí til að ná niðurstöðu í
kjaradeilu flugmanna hjá Icelandair,
ella fer málið til gerðardóms sem
skal ákveða kjör fyrir 15. september.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra lagði fram frum-
varp þessa efnis í gærkvöldi og er
búist við því að það verði samþykkt í
dag. Flugmenn hjá Icelandair fóru í
verkfall hinn 9. maí og var næst
áformað að leggja niður störf í tólf
tíma á morgun, föstudag. Voru frek-
ari aðgerðir svo boðaðar í lotum.
Hundrað þúsund farþegar
Hanna Birna segir aðgerðirnar
„þungt skref“. Sagði hún verkfallið
ná til hundrað þúsund farþega Ice-
landair þá níu daga sem tímabundin
og áformuð vinnustöðvun náði til.
Verkfallið næði til þrjú hundruð
flugmanna Icelandair og hefði áhrif
á um 600 flug, til og frá landinu.
Þingið setti líka lög á verkfall
starfsmanna Herjólfs en þar fengu
deiluaðilar frest til 15. september til
að semja. Þar var hins vegar ekki
kveðið á um gerðardóm.
Í gerðardómnum skulu eiga sæti
þrír dómendur og skal einn tilnefnd-
ur af Hæstarétti Íslands, einn af Fé-
lagi íslenskra atvinnuflugmanna og
einn af Samtökum atvinnulífsins.
Magnús Pétursson ríkissáttasemjari
segir gerðardóm endanlegan úr-
skurð og ákvörðun hans bindandi.
„Það er sjaldgæft að sett sé lögbann
á verkföll á Íslandi,“ segir Magnús.
Félag íslenskra atvinnuflugmanna
lagði í fyrradag fram stuðningsbréf
Alþjóða flutningaverkamannasam-
bandsins (ITF) annars vegar og frá
Alþjóðasambandi flugmannafélaga
(IFALPA). Þá voru tvö önnur sam-
tök sem FÍA á aðild að sögð styðja
aðgerðirnar, Norræna flutninga-
verkamannasambandið (NTF) og
Evrópusamband flugmannafélaga
(ECA).
Ekki náðist í Hafstein Pálsson,
formann FÍA, eða Örnólf Jónsson,
talsmann FÍA, þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir.
Lögbann ekki rætt hjá IFALPA
Morgunblaðið ræddi við fulltrúa
IFALPA í Montreal, Kanada, í síma-
viðtali í gærkvöldi. Vildi yfirmaður
hjá IFALPA ekki tjá sig um málið,
enda hefði hann ekki náð að ræða
síðustu tíðindi í deilunni við aðra
stjórnarmenn hjá samtökunum.
Fram kemur í bréfi IFALPA að
stuðningsaðgerðir til handa flug-
mönnum Icelandair geti annars veg-
ar falist í banni við aukaflugferðum,
utan áætlunar, eða leigu stærri flug-
véla til að vega upp röskun á áætlun,
og hins vegar banni við leigu á far-
þegaflugvél og áhöfn til Icelandair.
Samkvæmt heimildum blaðsins
þarf IFALPA að berast beiðni frá
FÍA um slíkar aðgerðir. Ekki fékkst
staðfest hjá IFALPA hvort þær
væru úr myndinni vegna lögbanns-
ins. Hins vegar fékkst upplýst að
beiðni FÍA um samstöðuaðgerðir
yrði tekin til greina af hálfu
IFALPA, þrátt fyrir lögbann.
FÍA setti sig í samband við
IFALPA í maíbyrjun og bíða al-
þjóðasamtökin nú næstu skrefa FÍA.
Jónas Garðarsson, starfsmaður
ITF á Íslandi, segir fulltrúa FÍA
þurfa að óska formlega eftir sam-
stöðuaðgerðum ITF á erlendum
flugvöllum. Hafði slík beiðni ekki
borist í gærkvöldi. „Fulltrúar FÍA
hafa kynnt þetta hjá sambandinu.
Stjórnvöld hafa fengið áminningu
frá ITF um að þetta geti gerst.“
Ekki hægt að útiloka aðgerðir
Að sögn Jónasar yrðu aðgerðirnar
með því sniði að starfsmenn ITF í
einhverju landi myndu sýna sam-
stöðu með FÍA. Ef framhald yrði á
aðgerðunum yrðu þær í ólíku landi í
hvert sinn. Tíminn sem það taki að
koma slíkum aðgerðum í kring fari
eftir því um hvaða land er að ræða.
Jónas telur hugsanlegt að slíkar
aðgerðir geti hafist á morgun, ef
beiðni þar um er lögð fram í dag.
Hann segir lögbann ekki útiloka
slíkar aðgerðir.
Fá frest til 15. júlí til
þess að ná samningi
Innanríkisráðherra mælir fyrir lögbanni á verkfall flug-
manna hjá Icelandair Ráðherra segir það „þungt skref“
Morgunblaðið/Eggert
Flugvél Icelandair Boeing-farþegaþota lendir á Keflavíkurflugvelli. Verkfall flugmanna hefði haft víðtæk áhrif.