Morgunblaðið - 15.05.2014, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2014
✝ Bjarni Ágústs-son mjólkur-
fræðingur fæddist
í Reykjavík 22.
október 1956.
Hann lést á Land-
spítala Hringbraut
6. maí 2014.
Foreldrar
Bjarna voru Ágúst
Guðmundsson, bif-
reiðastjóri og öku-
kennari, f. 9. des-
ember 1922, d. 24. júlí 2009, og
Bjargey Fjóla Stefánsdóttir
húsmóðir, f. 30. apríl 1925, d. 5.
mars 2009. Systkini Bjarna eru,
í aldursröð: Anna, f. 1943, d.
2004; Margrét, f. 1946; Krist-
ján, f. 1948, og Ágúst Björn, f.
1954. Bjarni kvæntist 6. októ-
ber 1979 Þórdísi Láru Inga-
ið þar. Eftir það vann hann ým-
is störf, var meðal annars
messagutti á varðskipi þegar
landhelgin var færð í 200 míl-
ur. Hann reyndi fyrir sér í hús-
gagnasmíði í Iðnskólanum í
Reykjavík en það átti ekki við
hann. Hóf síðan störf í Mjólkur-
samsölunni. Árið 1978 fór hann
á samning hjá MS í mjólkur-
fræði og útskrifaðist í Dan-
mörku 1982. Hann starfaði síð-
an áfram sem mjólkurfræð-
ingur hjá MS til 2006, og var
þá búin að starfa þar í rúm 30
ár. Þá hóf hann störf hjá Acta-
vis og starfaði þar fram að
veikindum sínum. Meðfram
öðrum störfum vann Bjarni
sem leigubifreiðastjóri í 10 ár.
Bjarni var mikill golfunnandi
og eyddi ófáum tímanum í þá
íþrótt.
Útför Bjarna fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 15. maí
2014, kl. 13.
dóttur, tækniteikn-
ara, f. 29. sept-
ember 1958. Hún
er dóttir Skúla Nil-
sen og Álfheiðar
Óladóttur. Byrjuðu
þau búskap sinn í
Reykjavík en 1994
fluttu þau til Hafn-
arfjarðar og hafa
búið þar síðan. Þau
eignuðust tvö börn:
1) Heiðu Dís, f. 29.
nóvember 1980, gifta Sturlu
Hrafni Einarssyni, börn þeirra
eru Anika Rut, 11 ára, og
Bjarki Hrafn, 4 ára, og 2) Elm-
ar Inga Bjarnason, f. 19. febr-
úar 1987, sambýliskona Ólafía
Ingvarsdóttir.
Bjarni ólst upp í Bústaða-
hverfinu og kláraði skyldunám-
Komið er að kveðjustund.
Elskulegur tengdasonur okkar
er látinn, 11 ára baráttu við ill-
vígan sjúkdóm er lokið.
Kynni okkar Bjarna hófust við
heimkomu okkar hjóna frá Spáni
1976. Glæsilegur amerískur
kaggi stóð við húsdyrnar, hver
leyfir sér að leggja hér, sögðum
við, en er inn var komið, kynnti
Þórdís okkur fyrir þessum líka
bráðmyndarlega gæja (með
mottu).
38 ára kynni voru hafin. Eftir
svo mörg ár er margs að minnast
og margt kemur upp í huga.
Bjarni var einstaklega þægilegur
í allri umgengi og hafði góða
nærveru, greiðvikni hans við
okkur hjónin og aðra í fjölskyld-
unni var einstök. Hjálp til við að
flytja ef einhver stóð í því, mála
og hjálpa til við að stilla betur
sjónvarpið var ekkert mál, Bjarni
var tilbúinn að skreppa í málið.
Nærfjölskylda Bjarni var honum
þó mikilvægust, víst er að honum
leið alltaf best þegar Þórdís,
börn, tengda- og barnabörn voru
saman. Að bregða á leik við
barnabörnin Aniku Rut og
Bjarka Hrafn nokkrum dögum
fyrir andlát sitt var aðdáunar-
vert.
Af áhugamálum Bjarna teljum
við að golfið hafi staðið í fyrsta
sæti. Hann var góður golfari,
með forgjöf sem allir gætu verið
stoltir af.
Hann smitaði okkur hjónin af
þessu sporti með því að senda
okkur til kennara að okkur for-
spurðum, það virkaði. Fleiri í
fjölskyldunni fóru smátt og smátt
að stunda þessa íþrótt, svo að
golfmót innan fjölskyldunnar
hafa verið haldin öllum til
ánægju. Allt Bjarna að þakka.
Við munum eftir Bjarna sem
góðum skíðamanni á fyrstu árum
okkar kynna en hann lagði það
sport til hliðar fljótlega. Bjarni
hafði ákaflega gaman af matseld
og hefði eflaust getað orðið lista-
kokkur eins og mjólkurfræðing-
ur, Steikhús Bjarna hefði eflaust
gengið vel.
Ótalmargt fleira væri hægt að
rifja upp í samskiptum okkar við
ljúfmennið Bjarna og góðan vin.
Hann tók örlögum sínum af
æðruleysi og með reisn allt til
loka.
Hvíl í friði kæri vinur og hafðu
þakkir fyrir allt.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(H. Pétursson)
Álfheiður og Skúli.
Elsku besti afi minn. Þakka
þér fyrir allt. Þú varst alltaf lang-
fallegastur í mínum augum og ég
mun sakna þín svo undurmikið.
Þú varst alltaf svo góður við mig,
þú gafst mér alltaf nammi þegar
ég kom til þín og ömmu að gista.
Ég hlakkaði alltaf til að koma til
ykkar og langaði ekki til að fara
aftur heim. Þú varst alltaf búinn
að ákveða hvað var í matinn,
meira að segja langt fram í vik-
una. Við eigum líka bestu minn-
ingarnar. Til dæmis þegar ég
kom frá Danmörku heim til Ís-
lands, til ykkar ömmu og þegar
þið komuð til mín í Danmörku og
þú dansaðir við mig inni í her-
bergi. Það var gaman.
Ég gæti aldrei hugsað mér
betri afa en þig. Elska þig til
tunglsins og til baka. Þú verður
alltaf hjá mér í hjartanu og munt
fylgja mér til æviloka.
Þín afastelpa,
Anika Rut.
Bjarni mágur er dáinn, langt
fyrir aldur fram, eftir yfir 10 ára
hetjulega baráttu við erfiðan
sjúkdóm. Bjarni varð hluti af fjöl-
skyldunni þegar hann og Þórdís
systir fóru að stinga saman nefj-
um í kringum tvítugsaldurinn og
ég þá á unglingsárum. Strax þá
fannst mér spennandi að vera ná-
lægt Bjarna og gaman að kynn-
ast hans persónu og áhugamál-
um. Bjarni hafði t.d. áhuga á
bílum og það leyndi sér ekki í
bílavali þegar þau voru að hefja
sitt samband. Það drundi í
Köldukinn þegar Bjarni renndi í
hlað á Cougarnum sínum en hann
sýndi öllum skilning með því að
láta hann renna niður götuna, án
þess að setja í gang, snemma á
morgnana þegar hann var á leið
til vinnu í Mjólkursamsöluna.
Bjarni mágur var duglegur
maður og vílaði ekki fyrir sér að
vinna aðra vinnu samhliða vinnu í
Mjólkursamsölunni. Hann kom
því til leiðar að við skiptumst á
útkeyrslu fyrir Morgunblaðið um
helgar í samstarfi við Rúnar Ant-
onsson, vin Bjarna. Það voru æv-
intýratímar fyrir 18 ára ungling
að vinna með honum þarna og
finna traustið sem til manns var
borið. Bjarni mágur vildi að hlut-
ir væru vel gerðir og staðið við
sitt, þannig stóð hann alltaf við
sitt.
Bjarni mágur var einn af þess-
um mönnum sem alltaf kom eins
fram við alla, alltaf tilbúinn að að-
stoða alla og alltaf stutt í gleðina
þótt hann hafði vissulega sínar
skoðanir. En aldrei man ég eftir
honum reiðum eða æstum.
Ég og Guðrún viljum með
þessum fátæklegu orðum kveðja
góðan vin og biðja þann sem stýr-
ir ferð að styrkja Þórdísi systur,
Heiðu Dís og Elmar Inga og
þeirra fjölskyldur því þeirra
missir er mestur.
Takk fyrir góða samfylgd,
Bjarni, sjáumst seinna.
Ingi mágur, Guðrún og börn.
Elsku Bjarni frændi,
Þetta eru búnir að vera
skrýtnir dagar síðan þú kvaddir
þennan heim og það er ljóst að
það mun taka tíma að gera sér
grein fyrir því að þú sért ekki
lengur hérna með okkur. Þú og
ég höfum verið vinir frá því ég
man eftir mér. Fyrstu minning-
arnar mínar eru af þér brosandi í
stiganum í Ásgarðinum, ávallt í
góðu skapi og til í tuskið. Þú
varst alltaf svo lífsglaður og
hrókur alls fagnaðar. Þegar ég
kom aftur heim til Íslands árið
1986 og árin þar á eftir flutti ég
all nokkrum sinnum. Þá varst þú
ávallt boðinn og búinn að hjálpa
frænku við flutningana. Ég man
það eins og í gær þegar sófinn
festist í stiganum á milli 3. og 4.
hæðar í Ljósheimunum en við
vorum að fara með hann upp á 5.
hæð og hvað við hlógum. Ég
þakka þér líka fyrir alla golf-
hringina, matarboðin, ferðina til
Mallorka og skemmtilegu minn-
ingarnar sem þessum uppákom-
um fylgdu. Það er ljóst að fjöl-
skyldugolfmótið Gal-Open
verður ekki eins án þín. Það var
ávallt líf í kringum þig og þú
stóðst vaktina. T.d. á golfvellin-
um þurfti enginn að telja í hollinu
þegar þú varst með og þú fannst
oftar en ekki þá bolta sem voru
týndir. Síðustu 10 árin hefur þú
barist eins og hetja við krabba-
mein. Það hefur verið hreint
ótrúlegt að fylgjast með þér í
þeirri baráttu, þú varst ávallt
bjartsýnn og hafðir trú og gafst
aldrei upp þó svo að þetta mein
blossaði upp aftur og aftur. Ég
veit að það var þér erfitt að missa
ömmu og afa fyrir fimm árum
sem þú varst svo náinn en alltaf
hélstu í vonina og reyndir en gast
ekki meira í lokin. Ég er svo
þakklát að hafa átt allar þessu
góðu stundir með þér og þá sér-
staklega síðustu dagana með þér
upp á spítala sem ég geymi í
hjartanu. Elsku Bjarni minn, það
er svo sárt að sjá eftir þér svona
ungum og í blóma lífsins, en ör-
lögin gripu í taumana og hafa
greinilega ætlað þér annað hlut-
verk á öðrum stað. Ég mun sakna
þín elsku frændi.
Elsku Þórdís vinkona, Heiða
Dís og Elmar Ingi og aðrir að-
standendur, ykkur sendi ég mín-
ar innilegustu samúðarkveðjur á
þessum erfiðum tímum. Megi
ljósið, kærleikur og vinátta um-
vefja ykkur og styrkja ykkur á
þessum erfiðu tímum og inn í
framtíðina. Þín frænka,
Bjargey Aðalsteinsdóttir.
Jæja Bjarni, þá er komið að
leiðarlokum og þú horfinn til
annarra og ókunnugra verkefna.
Við hin sitjum eftir með góðar
minningar um þig og þær stundir
sem við höfum átt saman á tæp-
um 40 árum, eða allt frá því að þú
komst sem næturgestur á Köldu-
kinnina á Cougarnum þínum.
Stuttu síðar byrjuðuð þú og Þór-
dís systir að búa saman, lengi vel
í Breiðholtinu en seinna meir í
Hafnarfirði, fjölskyldunni til
mikillar gleði. Það var alltaf gott
að leita til þín, alltaf varstu tilbú-
inn að rétta fram hjálparhönd
ekki síst þegar einhver í fjöl-
skyldunni var að flytja, þá varst
þú mættur fyrstur á staðinn og
fórst síðastur. Það sem kemur
einnig upp í hugann eru þær
veiðiferðir sem við fórum í saman
í gamla daga, en á síðari árum
eru stundirnar á golfvellinum
þær sem standa upp úr. Þú varst
alltaf tilbúinn til að kenna okkur
og leiðbeina í golfinu, enda var
mín fyrsta golfsveifla tekinn und-
ir þinni leiðsögn á æfingasvæðinu
á Keili og daginn eftir vorum við
mættir saman á golfmót og átt-
um dýrðlega stund saman. Þú
kenndir Helenu einnig margt í
golfinu og það var skrítið hvað
hún var alltaf tilbúin til að hlusta
á þín ráð frekar heldur en mín.
„Horfðu á boltann áður en þú
slærð hann, ég skal sjá um að
horfa á eftir honum,“ varstu van-
ur að segja við okkur, en þetta
einfalda ráð er mörgum byrjand-
anum í golfi erfitt. Þá koma að
sjálfsögðu stundirnar í sumarbú-
staðnum Hraunkoti í Borgarfirði
upp í hugann en þær áttum við
ófáar saman og nutum samver-
unnar.
Þú varst frábær sögumaður og
skemmtilegur og því er það ein-
staklega ljúfsár minning þegar
við komum og heimsóttum þig
þann 1. maí sl. og þú sagðir okkur
frá óborganlegu ferðalagi ykkar
fjölskyldunnar hringinn í kring-
um landið á gamla Subaru-inum,
sem bilaði á öllum tjaldstæðum
landsins. Það var mikið hlegið
þennan dag eins og oftast þegar
við hittumst. Minningarnar eru
svo ótalmargar, þú að stjórna
bingói, enda kominn af mikilli
bingófjölskyldu, en síðast en ekki
síst að sjá þig í afahlutverkinu
sem þér fór svo einstaklega vel.
Elsku Bjarni, guð gefi að Þór-
dís og börnin læri að lifa án þín
en minning þín mun ávallt lifa.
Takk fyrir samveruna.
Lárus Karl og Helena.
Góður drengur, Bjarni
Ágústsson, er fallinn frá langt
um aldur fram. Hann var búinn
að heyja stríð við krabbamein í
rúmlega 10 ár. Fyrstu þrjár orr-
usturnar vann Bjarni, en nú kom
að því að hann varð að játa sig
sigraðan eftir hetjulega baráttu.
Við hjónin kynntumst Bjarna
árið 1978 þegar hann og Þórdís
Lára voru í tilhugalífinu. Þau eru
búin að vera eitt í okkar huga svo
lengi að það verður skrýtið að
segja „Þórdís“ án þess að fylgja
því eftir með „og Bjarni“ því Þór-
dís og Bjarni voru svo samrýmd
og yndisleg hjón sem höfðu sam-
an tekist á við öll þau verkefni
sem lífið færði upp í hendurnar á
þeim. Það var alltaf gaman að
hitta Bjarna. Hann var alltaf
glaður og brosandi, og jákvæðnin
og bjartsýnin á sínum stað. Hann
smitaði mann með gleði sinni og
brosi. Ef maður spurði hann
hvernig hann hefði það var svarið
alltaf „bara fínt“. Þá var iðulega
ekki langt í grínið sem hann
fylgdi svo eftir með sínum smit-
andi og innilega hlátri.
Bjarni elskaði að spila golf og
var ástríðufullur golfari. Hann
var mjög góður í þessari íþrótt og
þótti okkur gaman að spila við
hann. Hann hafði gaman af því að
taka áhættu og reyna við flötina
þó um langt högg væri að ræða.
Ef höggið tókst ekki þá var ekki
blótað heldur bara reynt að gera
það besta í næsta höggi með já-
kvæðnina og bjartsýnina að
vopni. Við hjónin vorum mjög
ánægð þegar Þórdís og Bjarni
komu austur í bústað til okkar sl.
sumar og spiluðu golf með okkur
á golfvellinum við Geysi. Veður
var eins og best var á kosið og
golfvöllurinn í fínu standi. Þessi
dagur verður okkur ógleyman-
legur og verður okkur örugglega
alltaf hugsað til Bjarna þegar við
verðum á golfvellinum þar héðan
í frá.
Bjarni unni fjölskyldu sinni,
bæði börnum sínum og barna-
börnunum. Hann var mikill afi
sem vissi fátt betra en að eyða
tíma með afabörnunum, þeim
Aniku Rut og Bjarka Hrafni, og
er því þeirra missir afar mikill.
Við sendum Þórdísi Láru, Heiðu
Dís og Elmari Inga, og fjölskyld-
um þeirra, innilegar samúðar-
kveðjur, sem og öðrum ættingj-
um Bjarna og vinum. Bjarni
skilur eftir sig skarð í lífi okkar
allra sem ekki verður fyllt.
Um leið og við hjónin þökkum
Bjarna fyrir yndisleg kynni ósk-
um við honum góðrar ferðar til
nýrra heimkynna. Við erum þess
fullviss að minningin um góðan
dreng muni lifa með okkur og
fjölskyldu okkar alla tíð.
Margrét og Jóhannes
(Systa og Jói).
Að eiga vin er gleði á góðri
stund. Ég fann fyrir tómi í
hjarta, og söknuði, þegar mér var
tilkynnt andlát æskuvinar míns
og félaga, Bjarna Ágústssonar.
Við Bjarni höfum þekkst lengi-
,við lékum okkur saman frá
tveggja ára aldri, ólumst upp í
Smáíbúðahverfinu í Ásgarði, lék-
um okkur á grænum grundum
Bústaða, nú Fossvogsdals og vor-
um miklir prakkarar. Fórum
saman í útilegur, skátamót í Nor-
egi, í sumarbúðir í Skálholti og
svo í gegnum skólann og lífið og
áttum margar góðar og skemmti-
legar stundir.
Það er í raun ótrúlegt hvað
svona gamalgróin vinátta er
sterk, það fundum við í hvert sinn
sem við töluðum saman nú síð-
ustu árin, þegar veikindi hans
fóru að segja meira til sín. Mér
fannst Bjarni ganga í gegnum
mikla þolraun, en kappinn var
baráttujaxl. Reyndar fór það
mest í taugarnar á honum þegar
þrekleysið truflaði golfið, en
hann var búin að stunda golf
lengi og var góður golfari. Bjarni
talaði opinskátt um krabbamein-
ið. Ég dáðist að æðruleysi hans
og styrk og hvernig hann tók á
málum. Lundafar hans hefur
hjálpað honum, hann var með
léttleikann og hressleikann sem
ég sá einnig í pabba hans, Gústa.
Í hvert sinn sem við töluðum
saman þá var alltaf stutt í gleði
og broslegu hliðar málanna.
Bjarni minn, þú fórst alltof
fljótt frá okkur, við ætluðum loks
að fara að spila meira golf saman,
en þetta kennir manni kannski að
bíða ekki með alla hluti, því lífið
er stutt.
Þórdís mín, þú hefur staðið
sem klettur við hlið manns þíns í
þessari erfiðu baráttu. Elsku
Þórdís, Elmar, Heiða Dís og
tengdabörn. Við Sigrún vottum
ykkur samúð og samhryggjumst
ykkur á þessari erfiðu stundu.
Þeir eru ríkir sem eiga vini.
Ég var ríkur að eiga vin.
Pétur Jónsson.
Bjarni Ágústsson
Enn er einn af
vinahópnum fallinn
frá. Í janúar kvödd-
um við Selmu Júl-
íusdóttur og nú
kveðjum við Gunnar Hámundar-
son, bæði voru þau meðlimir í
stórum vinahópi sem kallar sig
Blandaðar rósir og 2013 dó Ragn-
ar Magnússon sem var líka í
þessum vinahópi. Má segja að
skarð sé fyrir skildi þegar vinir
falla frá, skarð sem erfitt er að
fylla. Gunnar Hámundarson var
sannur vinur vina sinna. Það fór
ekki alltaf mikið fyrir honum en
hann var alltaf tilbúinn að koma
og vera með þegar eitthvað var
Gunnar
Hámundarson
✝ Gunnar Há-mundarson
fæddist 27. maí
1940. Hann lést 16.
mars 2014. Útför
hans fór fram 27.
mars 2014.
um að vera og taka
þátt í öllu sem fyrir
hann var lagt, og
ýmislegt var nú tek-
ið sér fyrir hendur
bæði glens og gam-
an. Gunnar var
söngelskur maður
og hafði mjög gam-
an af að taka lagið
og kunni alla texta
og laglínur. Hann
stóð að samsetningu
Söngbókar Blandaðra rósa sem
er alltaf höfð með og upp úr henni
sungið þegar við komum saman.
Gunnar var húmoristi og gat oft
svarað skemmtilega fyrir sig.
Það er mikil eftirsjá að Gunnari í
vinahópnum og verður hans sárt
saknað.
Við sendum Gunnu og fjöl-
skyldu hennar okkar samúðar-
kveðjur.
Fyrir hönd Blandaðra rósa,
Guðbjörg Ellertsdóttir.
Mig langar að
minnast mágs
míns, Jóns Svavars
(Nonna), með
nokkrum orðum
Ég kynntist honum árið 1968
þegar ég kvæntist systur hans,
Ásthildi Jónasdóttur. Frá því
við hittumst fyrst urðum við
perluvinir. Við brölluðum ýmis-
legt saman og áttum við til að
fara í skemmtilegar ferðir sam-
an. Síðasta ferð okkar var árið
2012, þegar ég, Nonni og Jónas
sonur minn fórum í skemmti-
ferð frá Dýrafirði, yfir í Arna-
fjörð og fram hjá Lokinhömr-
um. Þetta var ógleymanleg ferð,
það var margt að skoða og
skemmtum við okkur konung-
lega. Nonni var alltaf tilbúinn til
að fara allt með manni og alltaf
stutt í brosið. Nonni og Kolla,
eiginkona hans, voru mjög dug-
leg að koma í heimsókn til okk-
Jón Svavar
Jónasson
✝ Jón SvavarJónasson fædd-
ist í Reykjavík 4.
febrúar 1949. Hann
lést á heimili sínu
11. apríl 2014. Út-
för hans fór fram
23. apríl 2014.
ar hjóna í Súðavík
og áttum við góðar
og ógleymanlegar
stundir með þeim.
Þegar ég minnist
Nonna hugsa ég
um glaðværan og
hressan mann sem
hafði alltaf nóg af
skemmtilegum sög-
um að segja. Nonni
var heiðarlegur og
mikill vinnuþjark-
ur, þótti mjög vænt um fjöl-
skyldu sína og var vinur vina
sinna. Allt sem hann tók sér fyr-
ir hendur gerði hann vel.
Elsku Nonni minn, andlát
þitt skilur eftir sig tómarúm hjá
okkur en alltaf er hægt að ylja
sér við góðar minningar um
samverustundir okkar.
Elsku Kolla okkar, börn og
barnabörn, við vottum ykkur
okkar innilegustu samúð. Guð
gefi ykkur styrk í sorg ykkar.
Góðar minningar um góðan eig-
inmann, föður, afa, bróður og
vin muna lifa að eilífu með
kærri kveðju. Kæri vinur, hvíl
þú í friði með kveðju og þakk-
læti.
Þínir vinir,
Ásta og Jónbjörn.