Morgunblaðið - 15.05.2014, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2014
PIPA
R\TBW
A
•SÍA
•141418
www.jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Útskriftar-
stjarnan
Okkar hönnun og smíði
Ógleymanleg útskriftargjöf
Úr gulli kr.16.900
Úr silfri kr. 7.900
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Dagurinn í dag verður ekki svo slæm-
ur. Ekki af því að þig langi að hjálpa – þú ert
bara að pæla í hlutunum. Hver er sinnar gæfu
smiður.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er mikill hraði á þér í dag og því er
þér óvenjuhætt við óhöppum. Heima fyrir má
koma í veg fyrir rugling með skýrum skila-
boðum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sköpun og dagdraumar eiga vel við
í dag. Réttlætiskennd þín er gott veganesti
og þér farnast illa ef þú reynir að svæfa hana.
Einhver fylgist með þér úr fjarlægð.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert að ganga í gegnum undarlegt
tímabil. Eitthvert orkuleysi hrjáir þig þessa
dagana, það líður hjá.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Mundu að góðverk á ekki að gera með
það í huga að fá þau endurgoldin. Sýndu um-
burðarlyndi í umgengni við aðra. Þú gætir
þurft að taka á honum stóra þínum í dag.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er eins og þú sért að missa af ein-
hverju, en það er hinn mesti misskilningur.
Dagurinn hentar illa til að taka mikilvægar
ákvarðanir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Taktu ekki öllu sem sjálfsögðum hlut og
sýndu fólki að þú kunnir að meta það sem
gert er fyrir þig. Prófaðu að brosa framan í
heiminn. Það er svo miklu auðveldara en að
vera með fýlusvip.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Óvænt upphlaup samstarfsfólks
eða ættingja ganga fram af þér. Nú er tæki-
færi til að láta dýrmætustu draumana ræt-
ast.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú finnur til bjartsýni vegna áætl-
ana um ferðalög eða framhaldsnám. Reyndu
að taka á málunum af stillingu. Einhver kem-
ur óvænt í heimsókn í kvöld.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hópleikir, sérstaklega keppn-
isíþróttir, gætu létt lund þína í dag. Klappaðu
sjálfum þér á bakið fyrir að þora að færa út
kvíarnar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gættu sérstaklega að þér við
akstur í dag. Gefðu þér tíma til að skipuleggja
verkefni upp á nýtt og hefstu svo handa.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft á ástúð og viðurkenningu að
halda. Þér finnst veröldin hafa eitthvað á
móti þér þessar vikurnar. Reyndu að draga
andann djúpt og horfa fram á veginn, hið
liðna er horfið.
Ljóðabók Þórarins Eldjárns,„Tautar og raular“ er bráð-
skemmtileg og margt listavel ort.
Henni er skipað upp í fjóra kafla
með þessum yfirskriftum: Renn-
ingar, Skeytlur, Barnaafmæli og
Þýtt. Og eins og gefur að skilja er
það annar kaflinn, „Skeytlur“ sem
einkum á heima í Vísnahorni. Þetta
er „Ljóðsljóð“ og kemur í ljós að
ekki er allt sem sýnist:
Ljóður leyndist
ljóð beið hnekki.
Rétt hugsað reyndist
rétthugsað ekki.
Þórarinn er allra manna slyng-
astur í orðaleikjum; – „Unna og
kunna“ kallast þetta vers:
Flestir falla í tvo
flokka svo:
Unnendur
ellegar kunnendur.
Mættu nú
unnendur kunna
og kunnendur unna.
Og „Net“:
Vildi leggja
en var lagður –
Hugðist draga
en var dreginn.
Í vísunni „Afvöxtun“ gefur hann
sparifjáreigendum holl ráð – eða
a.m.k. ráð:
Ef þú saman endum nærð,
átt afgangsstærð,
fúslega tekur fénu við
fjármálaþjónustan Mölur og ryð.
„Vorvon“ er skemmtileg barna-
afmælisgjöf:
„Manúar gekk okkur úr greipum en
deprúar bar minnst ferna fjórtán. Þegar
eitrið nægði ekki til að drepa tímann
mynduðum við hernaðarbandalag með
Mars og saman hlupum við apríl fram í
maí uns vorþeyrinn lét til sín taka með
afmælum nýrra barna upp á hvern dag,
blöðrum og leikjum.“
„Tautar og raular“ er falleg bók
og fer vel í hendi. Aftan á kápunni
standa þessi orð, sem eru upphafs-
línur kvæðisins „Þetta og hitt ljóð“:
Gatan ljóð
sem ég geng
í báðar áttir
á báðum áttum.
Kíkirinnn ljóð sem ég munda
og bregð öfugum
fyrir blinda augað …
Það mun fara fyrir fleirum sem
mér, að una því illa að fá ekki að sjá
niðurlag þessa ljóðs – en úr því er
létt að bæta einfaldlega með því að
verða sér úti um bókina! Og það
verður enginn svikinn af lestri
hennar.
Halldór Blöndal
Vísnahorn
Þórarinn Eldjárn eins
og hann er bestur
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... ekki bara minningar.
LEYNI-
ÞJÓNUSTAN
BANKIÐ:
BANK-BANK
BANK
BANK-BANK-BANK
ÁÐUR EN GENGIÐ
ER INN
SÉRRÉTTURINN OKKAR Í DAG
ER RISASTÓR PITSA MEÐ
AUKABÚNAÐI.
HVAÐ
MEINARÐU MEÐ
AUKABÚNAÐI?
ÞAÐ FYLGIR
STÆRRA
BORÐ.
ÉG ER FULLUR AF
ORKU Í DAG!
EÐA, EINS OG
ÉG KALLA ÞAÐ ...
OF LATUR TIL AÐ
NENNA AÐ VERA
LATUR!
NÁTTÚRU-
VERNDAR-
SVÆÐI
VIÐBÆTT
BRAGÐ- OG
LITAREFNI
Ensku deildinni lauk um helgina,og fór svona eins og flestir
spáðu, að Manchester City skrikaði
ekki fótur gegn síðustu þremur lið-
unum, og innbyrti því Englands-
meistaratitilinn nokkuð auðveldlega,
eftir að Liverpool hafði bókstaflega
dottið úr leik. Víkverji játar að hann
fagnaði þessum úrslitum ekki, því að
af tvennu illu vildi hann frekar að
„lítilmagninn“ ynni, ef hægt er að
kalla eitt sigursælasta félag Eng-
lands lítilmagna, þó að illa hafi geng-
ið síðustu 25 árin eða svo.
x x x
Hitt var síðan furðulegt að matiVíkverja, að síðast þegar Man-
chester City vann, komst hann að
því að hann átti fullt af vinum sem
héldu með því ágæta félagi, og sem
réðu sér ekki fyrir kæti vegna þess
að City hefði nú loksins unnið eitt-
hvað, í fyrsta sinn síðan Kristján
Eldjárn sat á Bessastöðum. Víkverji
grunaði raunar nokkra þeirra um
græsku, því að áður höfðu flestir
þessara gallhörðu City-manna yfir-
leitt látið einhver gullkorn eins og
„You’ll Never Walk Alone“ eða
„Gerrard er fremsti miðjumaður
heims“ frá sér fara þegar rætt var
við þá um knattspyrnu. Einhverra
hluta vegna varð Víkverji alls ekki
var við að þessir City-vinir hans
fögnuðu mikið þessum titli, en hann
óskar þeim engu að síður til ham-
ingju með hann. Þeir eru vel að hon-
um komnir.
x x x
En nóg um það, einu knattspyrnu-tímabili lýkur og það næsta tek-
ur við, enda tekur fótboltinn aldrei
nokkurn enda. Víkverji sá raunar
um daginn nokkuð fína grein um það
hvernig það væri fyrir þá sem engan
áhuga hafa á íþróttinni að þurfa að
þola svona menn eins og Víkverja,
sem aldrei geta hugsað um annað, og
sem lesa aldrei bækur. Þar var búið
að setja orðið fornleifafræði í staðinn
fyrir fótbolta, og hugtök úr þeirri
merku fræðigrein inn fyrir allt það
sem sparkunnendur öskra á sjón-
varpið sitt þegar horft er á leiki. „Af
hverju notarðu ekki burstann, fíflið
þitt!“ varð einum af þeim fornleifa-
spekingum að orði. Segja má að
greinin hafi hitt óþægilega vel í
markið. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Varir hins réttláta vita,
hvað geðfellt er, en munnur óguðlegra
er eintóm flærð. (Ok. 10, 32)