Morgunblaðið - 15.05.2014, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 15.05.2014, Blaðsíða 40
FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 135. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Gjaldþrot Óla Geirs 72 milljónir 2. Sagði Vigdísi að þegja 3. Börn stökkva fram af Gullinbrú 4. Leikstjórinn Bendjelloul látinn »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Ævintýraóperan Baldursbrá eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guð- mundsson verður frumflutt á Þjóð- lagahátíðinni á Siglufirði 5. júlí nk. og í Langholtskirkju 10. júlí. Óperan verður flutt í tónleikauppfærslu og segir frá Baldursbrá sem kynnist sposkum Spóa. Þau ákveða að fara saman upp á fjallstind til þess að njóta útsýnisins sem reynist ekki ein- falt mál og fá þau Rebba til að grafa blómið upp og flytja það á efstu eggjar en þar vofir mikil hætta yfir og þá m.a. frá illilegum hrúti, eins og segir í tilkynningu. Tónlistin byggist að hluta á íslenskum þjóðlögum, bæði rímnalögum og þulum, en þar bregður einnig fyrir rappi og fjör- legum dönsum. Söngvarar eru Fjóla Nikulásdóttir sópran í hlutverki Bald- ursbrár, Eyjólfur Eyjólfsson tenór sem syngur Spóa, Ágúst Ólafsson baritón er Rebbi, Davíð Ólafsson bassi syngur Hrútinn og níu börn fara með hlutverk yrðlinga. 16 manna kammersveit leikur undir en stjórn- andi er Gunnsteinn Ólafsson. Á myndinni má sjá yrðlingana ásamt Rebba, hrútnum illilega og Gunn- steini Ólafssyni. Íslensk ævintýra- ópera frumflutt  Heiðursgestur heimildamyndahá- tíðarinnar Skjaldborg, sem fram fer 6.-9. júní, verður rússneski heimilda- myndagerðarmaðurinn Victor Kossa- kovsky. Myndir Kossakovsky hverfast oftar en ekki um eina sterka hug- mynd og einkennast þær af ljóðrænni og heimspekilegri sýn á hversdaginn í bland við kitl- andi húmor, að því er fram kemur á vef hátíðar- innar. Kossakovsky gestur Á föstudag Suðvestan 3-8 m/s og smáskúrir um landið vestanvert, annars bjartviðri. Hiti 5 til 12 stig að deginum. Á laugardag Austlæg átt 8-13 m/s. Rigning um landið sunn- anvert en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti breytist lítið. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 3-8, dálitlar skúrir um landið vestanvert, lengst af bjart fyrir austan. Hiti 4 til 11 stig. VEÐUR Guðjón Árni Antoníusson, fyrirliði FH, er í hvíld frá knattspyrnunni eftir að hafa fengið höfuðhögg á æfingu en hann missti af stórum hluta síðasta tíma- bils af sömu ástæðu. Nú fylgir hann settum reglum lækna. „Ég fór ekki eftir þessum reglum í fyrra og það vissi í raun enginn um þær. Það borgar sig að setja hausinn og heilsuna í for- gang,“ segir Guðjón. »4 Setur hausinn og heilsuna í forgang Gríðarleg spenna er fyrir úrslitaleik Hauka og ÍBV en liðin mætast í hrein- um úrslitaleik um Íslandsmeistaratit- ilinn í Olís-deild karla í handknattleik að Ásvöllum í kvöld. Eyjamenn ætla að fjölmenna á leikinn og það má reikna með miklum spennutrylli í Firðinum. »2 Bikarinn á loft á Ás- völlum í kvöld Líkt og hjá körlunum ráðast úrslitin í Olís-deild kvenna í handknattleik í hreinum úrslitaleik eftir að Valur hafði betur á móti Stjörnunni í fram- lengdum leik í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda í gærkvöld, 23:19. Staðan í einvíginu er því orðin 2:2 og úrslita- leikurinn fer fram í Mýrinni á laugar- daginn og eftir hann fer bikarinn á loft. »1-2 Líka hreinn úrslitaleikur hjá konunum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Síðasti vinnudagur Reynis Bjarna- sonar, verkstjóra hjá Flugfélagi Ís- lands, var í gær. Vinnufélagarnir kvöddu hann með kræsingum og að því loknu hélt hann út í fríið. „Það verður nóg að gera hjá mér,“ segir Reynir, sem hefur starfað í hlað- deildinni hjá FÍ í rúm 53 ár, fyrst sem almennur starfsmaður, síðan flokkstjóri og lengst af sem verk- stjóri. Eins og flestir menn á hans aldri byrjaði Reynir snemma að vinna fyr- ir sér, bar ungur út blöð, var sendill í Nýbúð í Skerjafirði, vann við að skipa upp fiski hjá Togaraútgerð- inni, sumarmaður hjá smjörlíkis- gerðinni Ljóma og svo má lengi telja. „Ég er Þróttari, átti heima á Þjórsárgötunni í Litla Skerjafirð- inum, við túnfótinn á flugvellinum, og því lá beinast við að sækja þar um sumarvinnu,“ segir Reynir um ákvörðunina sem hann tók 1961. „Hér hef ég verið síðan, tíminn hefur verið fljótur að líða og nú kveð ég með blendnar tilfinningar.“ Með fraktina á bakinu Reynir segir að starfsumhverfið hafi breyst furðulítið frá því hann byrjaði. „Helsta breytingin er að vél- arnar eru alltaf að minnka. Þegar ut- anlandsflugið var hérna voru vél- arnar stærri og af ýmsum gerðum. Hér voru þristar, fjarkar, sexur og Viscount-vélar og miklu meira um- fangs enda flogið á mun fleiri staði en nú.“ Hann segir að með árunum hafi fraktin líka minnkað. „Hérna áður fyrr vorum við að flytja sófa- settin og ísskápana, en nú eru hólfin í vélunum minni og við flytjum því ekki lengur stóra frakt. Áður var þetta miklu meira líkamlegt erfiði. Maður þurfti að bera þetta á bakinu fram eftir vélunum yfir sætin til að komast fremst í vélina. En vinnan styrkti menn og menn hafa orðið manna elstir í hlaðdeildinni. Ég er sá fimmti sem hættir vegna aldurs. Það er svo gott loft hérna.“ Oft hefur mikið gengið á vegna veðurs en Reynir segir að hann hafi blessunarlega sloppið við alvarleg áföll. „Ég hef lent í því að þurfa að draga vélarnar í 40 til 50 hnútum og í mikilli hálku, hnýta þær niður eða reyna að koma þeim inn. Ég hef oft séð vélarnar dansa en við höfum sloppið með skrekkinn.“ Reynir áréttar að vinnan hafi allt- af verið skemmtileg. „Hérna er góð- ur félagsskapur, mikil nýbreytni og alltaf eitthvað að gerast. Maður hitt- ir reglulega nýtt fólk og þó að mikil rútína sé í vinnunni er hún skemmti- leg. En nú tekur annað við, ég á hús- bíl og fer í sveitina, veiði og leggst í ferðalög.“ Hefur oft séð vélarnar dansa  Starfsmaður hjá Flugfélagi Ís- lands í rúm 53 ár Morgunblaðið/Þórður Síðasti vinnudagurinn Flugfélag Íslands bauð Reyni Bjarnasyni og samstarfsmönnum hans upp á kræsingar í gær. Umræðan um framtíð Reykjavík- urflugvallar hefur vart farið framhjá nokkrum manni og Reynir Bjarnason er í hópi flug- vallarvina. „Það er engin spurn- ing um það að flugvöllurinn á að vera þar sem hann er og allt annað tal er tóm vitleysa,“ segir hann. Lengst af vann Reynir á vökt- um. Þá hófst vinnan klukkan hálf sjö á morgnana og kvöldvaktinni lauk gjarnan um klukkan tvö til þrjú á nóttunni. „Nú erum við búnir fyrr á kvöldin,“ segir hann og bendir á að á árum áður hafi menn gengið í öll störf. „Við vor- um á svokallaðri skýlisvakt þriðju hverja viku og þá hreins- uðum við vélarnar og bónuðum, en nú erum við bara hlaðmenn.“ Reynir áréttar að vinnan hafi alltaf verið skemmtileg. „Hérna er góður félagsskapur, mikil ný- breytni og alltaf eitthvað að ger- ast. Maður hittir reglulega nýtt fólk og þó að mikil rútína sé í vinnunni er hún skemmtileg.“ Flugvöllurinn mikilvægur REYNIR BJARNASON HLAÐMAÐUR HJÁ FÍ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.