Morgunblaðið - 15.05.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.05.2014, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Óvenjumikilólga er ávinnumark- aði þessa dagana og lítill sáttatónn. Á þessu ári hefur verið boðað til að- gerða í 17 vinnu- deilum eins og kom fram í frétt Hólmfríðar Gísladóttur í Morg- unblaðinu í gær. Samningar hafa ekki náðst í sex þeirra og hafa flugmenn hjá Flugleiðum þegar hafið aðgerðir. Halldór Grönvold, aðstoðar- framkvæmdastjóri Alþýðu- sambands Íslands, segir í frétt- inni að sambærileg staða hafi ekki komið upp á vinnumarkaði í tæpan aldarfjórðung, eða síð- an þjóðarsáttarsamningarnir voru gerðir árið 1990. Mikið er til í því. Halldór færir rök að því að ólguna nú megi að hluta til rekja til bankahrunsins 2008, launakröfur nú séu rökstuddar með vísun til kjaraskerðinga af völdum þess. Ekki er heldur útilokað að máli skipti hvaða flokkar eru við völd; þolinmæði stéttar- félaganna sé meiri gagnvart vinstri stjórn en hægri stjórn, sama hversu illa vinstri stjórn- in standi sig í að gæta hags- muna eða verja lífskjör skjól- stæðinga þeirra. Verkfallsvopninu er líka mis- jafnlega beitt eftir því hver á í hlut. Þegar framhaldsskóla- kennarar fara í verkfall ypptir efnahagslífið öxlum, jafnvel þótt það standi í nokkrar vikur. Nokkrir flugmenn leggja niður vinnu í hálfan sól- arhring og efna- hagslífið leikur á reiðiskjálfi. Þeirra aðgerðir skaða af- komu fólks, sem engin áhrif getur haft á deiluna. Íslenskt hagkerfi er lítið og má ekki mikið út af bera á einu sviði til að það hafi áhrif um allt þjóðfélagið. Staðan er enn viðkvæmari vegna þess hvað hjól efnahagslífsins snúast hægt í helstu viðskiptalöndum okkar í Evrópu. Þar er hag- vöxtur með minnsta móti og vaxandi áhyggjur af sam- drætti, ekki síst vegna Úkra- ínu og deilna við Rússa. Oddgeir Á. Ottesen, aðal- hagfræðingur IFS Greiningar, segir í viðtali við Baldur Arn- arson í Morgunblaðinu í gær að beinn og óbeinn kostnaður af verkfalli flugmanna muni leiða til þess að dragi úr hag- vexti hér á landi, jafnvel um 0,15%. Seðlabankinn spáir því að hagvöxtur á þessu ári verði 2,5%. Jafnvægið í efnahagslífinu er viðkvæmt um þessar mund- ir. Vegna minni útflutnings og lækkaðs verðs á sjávarfangi er viðskiptajöfnuðurinn ekki næstum því jafn hagstæður og fyrir ári. Ferðamannastraum- urinn ber gjaldeyristekjurnar uppi. Kjarabarátta er mikil- væg, en í henni má ekki greiða svo þung högg að tjónið verði varanlegt. Það er óráðlegt að saga af greinina, sem maður situr á. Kjarabarátta er mikilvæg, en í henni má ekki greiða svo þung högg að tjónið verði varanlegt} Beitt vopn Tíðindi urðu ítaílenskum stjórnmálum í síð- ustu viku þegar stjórnarskrárdóm- stóll landsins krafðist þess að forsætisráð- herrann Yingluck Shinawatra viki úr embætti ásamt níu öðr- um ráðherrum vegna þess að hún hefði skipað frænda sinn í stöðu yfirmanns þjóðarör- yggis. Áður hafði dómstóllinn ógilt niðurstöður kosninga sem Shinawatra sigraði en stjórnarandstaðan hafði snið- gengið. Ásakanir fljúga nú á víxl, og hafa báðir aðilar nokkuð til síns máls. Stuðningsmenn Shinawatra segja að dómstóll- inn sé á bandi stjórnarand- stæðinga í landinu, sem hafa fjölmennt á mótmælafundi þar sem þeir krefjast þess að vera afhent öll völd í landinu, án þess að hafa unnið til þeirra í kosningum. Stuðningsmenn stjórnarandstöð- unnar segja að Shinawatra sé ein- ungis leppur fyrir bróður sinn, Thaksin Shina- watra, sem nú er í útlegð í Dúbaí, og að stjórn þeirra systkina hafi hlaðið undir vild- arvini. Taílenskt samfélag er klofið niður í rót vegna þessara átaka og hættan er sú að stuðnings- menn Shinawatra fari nú að fjölmenna á götum úti, þar sem stjórnarandstæðingar eru fyr- ir á fleti. Niðurstaðan gæti orðið skelfileg nema eitthvað sé gert til þess að sætta stríð- andi fylkingar, en blóði hefur þegar verið úthellt á þessu ári. Báðir hópar munu þurfa að brjóta odd af oflæti sínu ef ekki á illa að fara. Gallinn er þó sá að enginn sáttavilji er til staðar, og enginn aðili er í aug- sýn, sem getur stigið fram og brúað bilið. Taíland færist nær átökum og brátt gæti soðið upp úr} Bræðrabylta í nánd? H vers vegna eru engir hópar öskrandi á Austurvelli þessa dagana? Hvað varð um Ómar Ragnarsson og hans „umhverf- issinna“ sem hlekkjuðu sig við vinnuvélar í Gálgahrauni, út af „helgum steini“ eða tveimur? Hefur yfir höfuð heyrst í þessu liði síðan þau sluppu með skrekkinn, í Gálgahraunsruglinu? Ég held ekki. Þarf ekki að spyrja þessa svokölluðu um- hverfisverfisverndarsinna, Ómar, vin minn, Ragnarsson og co., hvers vegna ekki hefur heyrst múkk frá þeim, frá því að lýðnum varð ljóst, hvers konar „monster“ er verið að byggja við Skúlagötu og Frakkastíg? (Bý þar á horn- inu, svo ég er alls ekki hlutlaus). Monster, sem mun rústa þeirri fögru sýn til sjávar, Esjunnar okkar Reykvíkinga, þegar gengið er niður Frakkastíg frá Skólavörðuholti. Ekki orð, ekki einn kveinstafur. Hvað veldur? En þetta er sennilega helst til langur inngangur að því sem mig langaði til að segja. Ég var á á leiðinni frá okkar frábæra Fróni á föstudag í liðinni viku, en hafði vit á því að breyta ferðaplönum. Kom á daginn í aðdraganda fyrsta verkfalls, af þremur boðuðum, hjá flugstjórum Icelandair, að aumingja, vesa- lings flugstjórarnir vilja bara 30% launahækkun, vesalings strákarnir/stelpurnar sem eru bara með 1,5 milljónir til 2 milljónir króna á mánuði. Vá, hvað þau eiga bágt! Er ekki alveg kjörið fyrir þessa sérstöku forréttindastétt, að öðlast samúð þjóðarinnar og stuðning við verkfallsrétt hennar, með því að leggjast í skæruhernað, einmitt á þeim tímapunkti, þegar ferðamennskan og gróskan með vorinu eru að vakna úr dróma? Er ekki einmitt þessi árstími nú, þegar við landsmenn, sjáum, að með aukinni þjónustu, vandaðaðri móttöku og höfðinglegum gest- gjöfum, getum bætt okkar efnahag, okkur, börnum okkar og barnabörnum til hagsbóta? Eiga flugstjórar Icelandair engin börn? Ég bara spyr. Við hin, sömdum um 2,8% launa- hækkun, munið þið það? Ef flugstjórarnir eiga börn, þá finnst mér rétt að benda þeim, og reyndar svo fjölmörg- um öðrum, á að horfa á sjónvarpsþátt hjá Ríkisútvarpinu, sem ég veit ekki hvaða kvöld er birtur, en hef skoðað hann á VOD-inu, samkvæmt ábendingum og heitir „Skóla- hreysti“. Þarna eru krakkar í grunnskólum landsins að sýna okk- ur hvað þrotlaus æfing, ástundun og tiltrú á verkefnið, getur gefið þeim mikið og um leið þroskað þau, þannig að þau eru betur í stakk búin til að takast á við flóknari og erfiðari verkefni sem bíða þeirra í framtíðinni. Frábærir og hrikalega flottir krakkar. Flugstjórar komast ekki með tærnar þar sem þeir hafa hælana. agnes@mbl.is Agnes Bragadóttir Pistill „Æ, æ, ó, ó, aumingja ég!“ STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sjávarútvegsráðherra hefurákveðið að leggja til auknaraflaheimildir á næsta fisk-veiðiári vegna verkefnisins „efling sjávarbyggða“. Þegar hafa 1.800 tonn verið lögð til þessa verk- efnis, en þær verða nú auknar um 1.100 tonn. Nú þegar taka sex byggðalög þátt í verkefninu, en þau eru skilgreind sem sjávarbyggðir í bráðum vanda. Byggðastofnun hefur skilgreint fjórar sjávarbyggðir til við- bótar í bráðum vanda: Djúpavog, Þingeyri, Hrísey og Breiðdalsvík, segir í frétt frá ráðuneytinu. Ákvörðun ráðherra byggist á minnisblaði frá Byggðastofnun sem unnið var að hans beiðni í fyrra mán- uði. Minnisblaðið var unnið vegna fyrirhugaðra lokana á fiskvinnslum á Húsavík, Djúpavogi og Þingeyri. Sú aðgerð mun hafa neikvæð atvinnu- áhrif á viðkomandi stöðum, sér- staklega Djúpavogi og Þingeyri, seg- ir í fréttinni. Markmiðið með heimildunum sem Byggðastofnun fær til ráðstöfunar er að treysta áframhaldandi fiskvinnslu á svæð- unum. Fjölbreytni útilokar Húsavík Í minnisblaðinu er að finna eftirfarandi um stöðuna á Húsavík: „Staðan er flóknari hvað varðar efl- ingu sjávarútvegs á Húsavík, en út- gerðaraðilar þar hafa m.a. tekið þátt í uppbyggingu sjávarútvegs á Rauf- arhöfn í samstarfi við Byggða- stofnun. Stærð byggðakjarnans og fjölbreytni atvinnulífs útilokar þátt- töku Húsavíkur í verkefni Byggða- stofnunar um eflingu lítilla sjávar- þorpa í bráðum og alvarlegum vanda. Á sama tíma eru skilyrði öflugr- ar útgerðar að mörgu leyti góð á Húsavík og ýmis sóknarfæri sem minni stöðum standa ekki til boða. Byggðastofnun er tilbúin til sam- starfs við Norðurþing, Atvinnuþró- unarfélag Þingeyinga og aðra aðila um aðrar leiðir til að efla fiskvinnslu og aðra atvinnustarfsemi á Húsavík.“ Í minnisblaðinu leggja forstjóri og stjórnarformaður Byggðastofn- unar til að aflamark Byggðastofn- unar verði aukið um 1.100 þorskígild- istonn á fiskveiðiárinu 2014/15 sem skiptist á eftirfarandi hátt:  400 tonn til að leitast við að tryggja a.m.k. 2.000 tonna bolfisk- vinnslu sem viðhaldi 30-50 störfum á Djúpavogi.  400 tonn til að leitast við að tryggja a.m.k. 2.000 tonna bolfisk- vinnslu sem viðhaldi 30-50 störfum á Þingeyri.  150 tonn til að leitast við að tryggja a.m.k. 500 tonna vinnslu sem viðhaldi 10-20 störfum í Hrísey.  150 tonn til að leitast við að byggja upp a.m.k. 500 tonna vinnslu sem skapi 10-20 störf á Breiðdalsvík. Lögð er áhersla á samstarf við útgerðarfyrirtæki sem geta lagt fram heimildir á móti þeim sem koma frá Byggðastofnun. Almennt leggur stofnunin fram um fjórðung hráefnis til vinnslu á móti 3⁄4 hráefnis frá einka- aðilum. Samningar á sex stöðum Sautján sjávarbyggðir eru tald- ar uppfylla lágmarksskilyrði reglu- gerðar um ráðstöfun aflamarks Byggðastofnunar. Auglýst hefur ver- ið eftir samstarfi við fyrirtæki í veið- um, vinnslu og afleiddum greinum á sjö stöðum og hafa samningar verið gerðir vegna Drangsness, Flateyrar, Raufarhafnar, Suðureyrar og Tálknafjarðar, auk þess sem samn- ingar vegna Bakkafjarðar standa yfir og eru viðræður í gangi. Þar sem fiskvinnsla á Djúpavogi og Þingeyri var talin eiga sér sterkan bakhjarl í fyrirtækinu Vísi hf. var ekki auglýst eftir samstarfs- aðilum á þeim tveimur stöðum síðastliðið haust, segir í minn- isblaði Byggðastofnunar. Sjávarbyggðum í bráðum vanda fjölgar Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Aðgerðir Með 150 tonnum Byggðastofnunar verður leitast við að tryggja að minnsta kosti 500 tonna vinnslu sem viðhaldi 10-20 störfum í Hrísey. „Það háttar víða þannig til á landsbyggðinni að afkoma fólks byggist að miklu leyti á því sem úr sjó er dregið og án útgerðar og vinnslu minnkar byggða- festa. Byggðastofnunarverk- efnið er ný nálgun sem mér finnst spennandi að þróa áfram, aflaheimildum er ekki úthlutað til einstakra skipa eins og al- menna reglan er, heldur sér- stakra uppbyggingaverkefna,“ er m.a. haft eftir Sigurði Inga Jóhannssyni sjávar- útvegsráðherra í frétt ráðuneyt- isins. Í minnisblaði Byggða- stofnunar segir m.a. að hagræð- ing í sjávarútvegi hafi aukið á þann vanda sem almennt steðji að fámennum byggðarlögum vegna hækkandi mennt- unarstigs og sérhæf- ingar á vinnu- markaði og aukinnar kröfu um þjónustu og fjöl- breyttari mögu- leika á ýmsum svið- um. Ný nálgun ÚTHLUTAÐ Í UPPBYGGINGU Sigurður Ingi Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.