Morgunblaðið - 15.05.2014, Síða 34

Morgunblaðið - 15.05.2014, Síða 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2014 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Góðir guðspjallamenn eru eftir- sóttir út um allan heim, enda eru ekki margir söngvarar sem sérhæfa sig í þessu,“ segir Benedikt Krist- jánsson tenór um guðspjallamenn- ina í passíum J.S. Bach. Benedikt er nýkominn sérstaklega til landsins til að syngja hlutverk guðspjalla- mannsins í Mattheusarpassíunni sem Kór Langholtskirkju og kamm- ersveit ásamt Gradualekór Lang- holtskirkju flytja í Langholtskirkju laugardaginn 17. maí kl. 16 undir stjórn Jóns Stefánssonar, en tónleik- arnir eru haldnir í tilefni af 50 ára starfsafmæli Jóns. Aðrir einsöngv- arar eru Bergþór Pálsson baritón og Davíð Ólafsson bassi ásamt kór- félögum. „Það er alltaf mjög gaman að koma heim og sérstaklega til að syngja,“ segir Benedikt, en stutt er síðan hann var síðast á Íslandi, þá til að syngja hlutverk guðspjalla- mannsins í Jóhannesarpassíunni og í Berlín hefur hann gert talsvert af því að syngja guðspjallamenn Bach bæði í Dómkirkjunni og Fílharm- óníunni þar í borg. Spurður hvað góður guðspjallamaður þurfi að hafa til að bera segir Benedikt það kost ef röddin hljómi ekki of „óperulega“. „Textinn og frásögnin þarf að vera í forgrunni og þá þarf þýskan að vera óaðfinnanleg, bæði framburður og skilningur,“ segir Benedikt og tekur fram að tónlistin sé krefjandi þar sem hún liggi hátt en krafturinn þurfi að vera lítill. „Slík samsetning hentar mér mjög vel, en þau sex ár sem ég var í Hamrahlíðarkórnum fékk ég góða æfingu í því að syngja hátt og veikt. Svo hjálpar aldurinn líka til, því ég er aðeins 26 ára. Eftir kannski tíu ár verð ég farinn að syngja eins og öskurapi,“ segir Benedikt kíminn. Reynslan ekki síður mikilvæg Aðspurður segist Benedikt snemma hafa vitað að hann vildi verða söngvari. „Ég heillaðist ungur af klassískri tónlist og kannski má segja að ég hafi drukkið hana í mig með móðurmjólkinni,“ segir Bene- dikt sem er sonur Margrétar Bóas- dóttur söngkonu og Kristjáns Vals Ingólfssonar biskups í Skálholti. Benedikt stundar nú nám við Hanns Eisler tónlistarháskólann í Berlín þaðan sem hann mun útskrif- ast í febrúar 2015, en Benedikt fór utan til náms korteri fyrir hrun, þ.e. í september 2008. „Ég var svo hepp- inn að komast inn í „gamla kerfið“ áður en BA- og MA-próf voru tekin upp í Berlín 2009,“ segir Benedikt og útskýrir að nám hans taki sex ár og ljúki með diplómu, en hann er í sein- asta árganginum í skólanum sem lýkur diplómu með gamla laginu. „Kosturinn við diplómunámið er að ég er ótrúlega frjáls ferða minna og má taka að mér söngverkefni á skólatíma til að koma mér áfram í söngbransanum, sem er mjög skyn- samlegt. Því reynslan er ekki síður mikilvæg en einhver próf.“ Margverðlaunaður söngvari Auk þess að syngja í passíum Bach bæði hérlendis og í Þýskalandi hefur Benedikt verið duglegur að taka þátt í keppnum, en árið 2011 bar hann sigur úr býtum í alþjóðlegu Bach-keppninni í Greifswald og hreppti auk þess áheyrendaverð- launin. Hann hreppti einnig áhorf- endaverðlaunin í alþjóðlegu Bach- keppninni í Leipzig. „Heilt yfir gef ég ekki mikið fyrir keppnir, enda er hálf-asnalegt að keppa í listum. En þetta var alveg gaman og verðlaunin geta hjálpað manni að koma sér á framfæri,“ segir Benedikt. Spurður hvað sé framundan hjá honum segist Benedikt munu í sum- ar taka þátt í fimm vikna námskeiði í Vínarborg hjá ýmsum sérfræðingum í ljóðasöng. „Um jólin mun ég syngja í hálfleikrænni uppfærslu á Jóla- óratoríu Bach í Dómkirkjunni í Berl- ín á einum tuttugu tónleikum. Síðan verð ég mögulega aftur skraddarinn hugprúði í uppfærslu Staatsoper í Berlín á nýlegri barnaóperu, Das tapfere Schneiderlein eftir austur- ríska tónskáldið Wolfgang Mitte- rer,“ segir Benedikt sem fór með sama hlutverk í uppfærslu Staatso- per árið 2012. „Þetta er spennandi verk skrifað fyrir fjóra söngvara, einn leikara, kontrabassa og tölvu. „Þetta er krefjandi hlutverk þar sem ég er á sviðinu allan tímann,“ segir Benedikt og tekur fram að það taki á að halda athygli áhorfenda sem séu á bilinu frá 4-12 ára, en að sama skapi veiti verkefnið góða reynslu. Að- spurður hvað taki við að útskrift lok- inni segist Benedikt reikna með að búa áfram í Berlín og vera sjálfstætt starfandi listamaður. Morgunblaðið/Eggert Eftirsóttur „Það er alltaf mjög gaman að koma heim og sérstaklega til að syngja,“ segir Benedikt Kristjánsson ten- ór sem er eftirsóttur í hlutverk guðspjallamanna í passíum Bach. Benedikt lýkur diplómunámi í Berlín nk. febrúar. Ekki of „óperulega“  Benedikt Kristjánsson tenór syngur einsöng í Mattheus- arpassíu Bach í Langholtskirkju laugardaginn 17. maí kl. 16 Kúbanski píanó- leikarinn Jorge Luis Prats kem- ur fram á tón- leikum Sinfóníu- hljómsveitar Íslands í kvöld og leikur Píanó- konsert nr. 1 eft- ir Tsjajkovskíj. Prats er afar eft- irsóttur einleikari, eftir að hafa verið fjarri hinu alþjóðlega tón- leikasviði í þrjá áratugi. Tónlistar- tímarit BBC segir að hann sé „besti píanistinn sem hlustendur hafa ekki heyrt af“. Árið 1977 vann Prats fyrstu verð- laun í Marguerite Long-Jacques Thibaud-píanókeppninni. Í kjölfar- ið hóf Prats alþjóðlegan feril en vegna vandamála með vega- bréfsáritanir á Kúbu hvarf hann af sjónarsviðinu. Hann er nú snúinn aftur og kemur fram víða um lönd við mikla hrifningu tónleikagesta og gagnrýnenda. Markus Poschner stjórnar tón- leikunum en hann er tónlistarstjóri Fílharmóníusveitar Bremen og Bremen Theatre. Hann er tónleika- gestum á Íslandi að góðu kunnur því hann hefur áður stjórnað Sin- fóníuhljómsveitinni við góðar und- irtektir. Síðara verkið sem flutt verður á tónleikunum er 5. sinfónía Proko- fíev en hann taldi hana vera sitt besta verk. Sinfóníunni var mjög vel tekið strax við frumflutning 1945 en þá stóð Prokofíev á hátindi ferlis síns. Fyrir tónleika sendur Vinfélag hljómsveitarinnar fyrir kynningu í Hörpuhorninu kl. 18 og er Posch- ner sérstakur gestur. Prats leikur Tsjajkovskíj Jorge Luis Prats Kvennakór Reykjavíkur kemur fram á tvennum vortón- leikum í Digra- neskirkju, í kvöld, fimmtu- dag kl. 20 og á laugardag, 17. maí, kl. 17. Á tónleikunum verður andrúmsloftið vorlegt, enda flutt léttleikandi tónlist við allra hæfi. Allskyns verk eru á efnis- skránni, frá lögum eftir ABBA og Megas til framandi en skemmti- legra laga frá Japan, Serbíu og Noregi. Þá eru falleg lög hins ung- verska Bárdos Lajos og „Seal Lul- laby“ eftir Eric Whitacre í sérstöku uppáhaldi kórsins. Tónleikar Kvennakórs Hluti kórfélaga. VINNINGASKRÁ 1. útdráttur 14. maí 2014 103 7844 17822 27535 38680 47729 61386 70769 152 7920 18116 27621 39178 47911 61583 71014 811 8187 18522 27852 39377 47923 61670 71324 969 8290 18644 27901 39474 48363 61718 72237 1124 8479 19704 28294 39794 48758 61761 72809 1229 8625 20488 29081 39898 49031 62198 73523 1255 8978 22214 29343 40336 50288 63055 73648 1749 9204 22231 29364 41273 50340 63136 74119 1971 9254 22306 30010 41473 51252 63545 74140 1983 9374 22398 30358 41579 51320 63574 74304 2479 9494 22435 30611 41893 51853 64269 74338 2487 10442 22442 30731 42030 52761 64542 74413 2567 11128 22799 31545 42386 52773 64625 75192 2815 11165 22966 32341 42387 53161 64773 75337 2837 11256 23297 32381 42388 55875 65008 75396 2958 11597 23789 32725 42532 55905 65023 75531 3190 11841 23878 33008 42538 55951 65321 75739 3205 12120 23996 33009 42562 55988 65638 75949 3261 12237 24111 33308 42810 56107 65720 77705 5231 12946 24233 33892 42893 56765 66121 77851 5505 13090 25194 34466 43022 57407 66246 78219 5873 13249 25493 35060 43672 57461 66500 78700 5952 13935 25641 35127 44010 57710 67377 78910 6196 14394 25710 36274 44682 58060 67397 79576 6358 15086 25912 36499 45106 58212 67607 79719 6545 15441 26138 36608 46028 58236 68795 79977 6649 16105 26180 36953 46619 58371 69135 7148 16125 26302 37014 47052 58596 69673 7381 16465 26774 37401 47222 58904 69952 7427 16651 26873 37413 47257 59931 70143 7443 16680 26894 37906 47300 60423 70320 7733 17819 27332 37992 47410 60627 70695 38 10932 17708 30309 38146 47102 57025 71366 3487 11433 17893 30986 38490 47122 59587 71988 3847 11932 18054 31770 38614 47273 60758 72079 4219 11987 18445 33311 39138 48416 61522 73086 4444 12910 19492 34300 40896 49589 61879 75508 4477 13254 20673 35034 42182 49940 62906 75712 5236 13549 22524 35552 44117 50824 67476 75913 5415 13753 24140 36052 45159 53167 68227 76770 7000 15436 24359 36834 45259 54167 68326 78818 8291 15792 24986 37747 45484 54582 68879 8635 15887 26657 37772 45539 55266 69447 10427 16580 29400 38060 45962 55556 69519 10836 16912 29616 38075 46910 55661 69895 Næstu útdrættir fara fram 15. maí, 22. maí & 30. maí 2014 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 9045 23571 45381 77292 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 1916 23098 35028 49388 66445 74457 14421 24076 35542 52886 69857 75350 17774 24799 47180 53166 69946 77113 20195 26281 47823 64056 70202 77453 A ð a l v i n n i n g u r Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 3 3 9 5 0

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.