Morgunblaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 47
47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2014
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er þverfaglegt sviðslistaverk
þar sem frumsaminni tónlist og
myndrænu leikhúsi er fléttað sam-
an. Hljóðfæraleikarar, söngvarar og
aðrir sviðslistamenn miðla sögu-
heiminum í ólínulegri frásögn,“ seg-
ir Sigríður Sunna
Reynisdóttir um
tónleikhúsverkið
Wide Slumber
sem VaVaVoom
og Bedroom
Community
frumsýna á
Listahátíð í
Reykjavík í kvöld
kl. 20 í Tjarn-
arbíói.
„Kveikjuna að
verkinu má rekja til þess að fyrir
mörgum árum gaf kanadíska ljóð-
skáldið angela rawlings Valgeiri Sig-
urðssyni, eiginmanni mínum, ljóða-
bók sína sem nefnist Wide Slumber
for Lepidopterists. Þegar Valgeir
fór að lesa bókina fór hann strax að
heyra tónlist og lét mig lesa bókina,“
segir Sigríður Sunna og tekur fram
að hún hafi strax farið að sjá marg-
víslegar myndir fyrir sér. „Við erum
því búin að vera með hugmyndina að
verkinu í maganum í nokkur ár,“
segir Sigríður Sunna sem vann leik-
gerð verksins í samvinnu við Söru
Martí sem jafnframt leikstýrir sýn-
ingunni.
Spurð hvað sé svona heillandi við
texta a. rawlings bendir Sigríður
Sunna á að bókin sameini fiðrilda-
fræði og svefnrannsóknir. „angela
vann bókina með æskuvini sínum,
Matt Ceolin, en hann var mjög heill-
aður af skordýrum og hún af svefni
og draumum,“ segir Sigríður Sunna
og bendir á að í ljóðum a. rawlings
birtist draumkennt landslag fiðrilda,
lirfa og púpa þar sem prósi hins vak-
andi manns umbreytist í ljóð þess
sem sefur.
Sífelld hamskipti á sviðinu
„Flakkað er á milli mismunandi
stiga svefns og þeim líkt við lífsferil
fiðrilda og mölflugna. Þannig er
andvakan látin speglast í fæðingu
eggs og svefnsýkin birtist okkur í
lirfu sem brýst út úr eggi. Þegar
lirfan hefur síðustu stig myndbreyt-
ingar þá byrja draumarnir að spinna
vef sinn þétt umleikis okkur, líkt og
púpa, þar til við erum orðin svefn-
genglar og tilbúin að birtast í end-
anlegri mynd sem fiðrildi.“
Að sögn Sigríðar Sunnu er ætl-
unin að skapa þennan draumkennda
heim sífelldra hamskipta á sviðinu
með aðferðum myndræns leikhúss.
„Fyrir miðju sviðinu verður eins-
konar vefstóll sem vefur silkiþræði
sem hlykkjast um rýmið og spinna
púpu,“ segir Sigríður Sunna sem
sjálf mun bregða sér í hlutverk vef-
arans. Með önnur hlutverk fara
söngvararnir Alexi Murdoch sem
svefngengill, Sasha Siem sem svefn-
rannsóknarmaður og Ásgerður
Júníusdóttir sem fiðrildafræðingur.
Um hljóðfæraleik sjá James
McVinnie á hljómborð, Liam Byrne
á víólu da gamba og Ólafur Björn
Ólafsson á slagverk. Aðrir listamenn
sem að sýningunni koma eru Val-
gerður Rúnarsdóttir danshöfundur,
Eva Signý Berger leikmyndahönn-
uður, Harpa Einarsdóttir bún-
ingahönnuður, Marie Tanya Keller
sem hannar leikmuni í samvinnu við
Sigríði Sunnu, Ingi Bekk ljósa- og
vídeóhönnuður, Pierre-Alain Giraud
höfundur myndbandsverka og Dan
Bora sem annast hljóð.
Við undirbúning sýningarinnar
leituðu listrænir stjórnendur til
svefnvísindamanna við University
College í London og fiðrildafræð-
inga við Harvard Museum of Com-
parative Zoology. „Frá þessum
fræðimönnum fengum við m.a. upp-
tökur af skordýrahljóðum og ljós-
myndir bæði af fiðrildum og heila-
bylgjum úr svefnrannsóknum, sem
við notum í sýningunni,“ segir Sig-
ríður Sunna.
Skordýr magnaðir vefarar
Spurð hvort brúðum bregði fyrir í
verkinu svarar Sigríður Sunna því
neitandi. „Það eru engar eiginlegar
brúður í sýningunni, en vissulega
brúðuleikhúselement. Þannig lifna
hlutir við og taka á sig nýjar og
óvæntar myndir. Og búningarnir
eru eins og lifandi skúlptúrar og vísa
í hamskiptaferlið, því þeir taka allir
einhverjum breytingum í verkinu.
Sama gildir með leikmyndina,“ segir
Sigríður Sunna og bætir við: „Mér
fannst mjög gaman að komast að því
ensku orðin yfir púpu og brúðu, þ.e.
pupa og puppet, eru dregin af sama
latneska stofninum. Það er eitthvað
við þessi hamskipti hjá fiðrildinu
sem á mjög vel við brúðuleikhús og
myndrænt leikhús. Skordýr eru
mögnuðustu vefarar náttúrunnar,“
segir Sigríður Sunna sem toga mun í
alls kyns strengi og spotta í verkinu.
Innt eftir því hvort til standi að
sýna sýninguna erlendis svarar Sig-
ríður Sunna því játandi. „Við kynnt-
um verkið í tengslum við APAP-
ráðstefnuna í New York í janúar sl.
Þar voru margir bókarar sem sýndu
verkinu áhuga og munu koma til
landsins til að sjá sýninguna hér í
Tjarnarbíói. Við gerum því ráð fyrir
að fara í sýningarferðir með verkið á
listahátíðir og til listamiðstöðva
bæði í Bandaríkjunum og Evrópu á
næsta ári. Við finnum fyrir miklum
áhuga, ekki síst sökum þess hversu
þverfaglegt verkið er.“
Þess má að lokum geta að aðeins
verða þrjár sýningar á verkinu hér-
lendis, þ.e. í kvöld, á morgun og
mánudag kl. 20 öll kvöld. Boðið
verður upp á umræður að lokinni
sýningunni annað kvöld þar sem
Melissa Whitaker, líffræðingur með
sérhæfingu í fiðrildafræðum við
Harvard Museum of Comparative
Zoology, tekur m.a. þátt. Á morgun,
sunnudag, milli kl. 14-15, verður
Whitaker með ókeypis námskeið í
fiðrildainnrömmun í Tjarnarbíói.
Þar sem sætafjöldi er takmarkaður
þurfa áhugasamir að tilkynna þátt-
töku sína með pósti á netfangið:
lucy@bedroomcommunity.net. Á
kaffihúsi Tjarnarbíós sýnir Matt Ce-
olin sýningu sem nefnist Somnop-
tera.
Sameina fiðrildafræði
og svefnrannsóknir
Tónleikhúsverkið Wide Slumber byggt á bók a. rawlings
Ljósmynd/Pierre-Alain Giraud
Fjölhæf Ásgerður Júníusdóttir syngur hlutverk fiðrildafræðingsins.
Sigríður Sunna
Reynisdóttir
Fiðrildi Alexi Murdoch syngur hlutverk svefngengils í tónleikhúsverkinu.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Lau 24/5 kl. 20:00 Sun 1/6 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas
Lau 31/5 kl. 20:00 Fös 6/6 kl. 20:00
Síðustu sýningar
BLAM (Stóra sviðið)
Fim 19/6 kl. 20:00 aukas Lau 21/6 kl. 20:00 aukas
Fös 20/6 kl. 20:00 aukas Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar!
Dagbók Jazzsöngvarans (Nýja sviðið)
Lau 24/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Nýtt verk frá CommonNonsense sem færðu okkur Tengdó, Grímusýningu ársins 2012
Ferjan (Litla sviðið)
Lau 24/5 kl. 20:00 aukas Lau 31/5 kl. 20:00 32.k Lau 7/6 kl. 20:00 37.k
Sun 25/5 kl. 20:00 28.k Sun 1/6 kl. 20:00 33.k Mið 11/6 kl. 20:00 38.k
Þri 27/5 kl. 20:00 29.k Þri 3/6 kl. 20:00 34.k Fim 12/6 kl. 20:00
Mið 28/5 kl. 20:00 30.k Mið 4/6 kl. 20:00 35.k Fös 13/6 kl. 20:00
Fim 29/5 kl. 20:00 31.k Fim 5/6 kl. 20:00 aukas
Fös 30/5 kl. 20:00 aukas Fös 6/6 kl. 20:00 36.k
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
Der Klang der Offenbarung des Göttlichen (Stóra svið)
Mið 28/5 kl. 20:00 1.k Fim 29/5 kl. 20:00 2.k Fös 30/5 kl. 20:00 3.k
Myndlistarverk fyrir svið eftir Ragnar Kjartanson. Tónlist Kjartan Sveinsson
BLAM! - síðasti séns að næla sér í miða
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Wide Slumber (Aðalsalur)
Lau 24/5 kl. 20:00 Sun 25/5 kl. 20:00 Mán 26/5 kl. 20:00
Miða má nálgast hjá Listahátíð í Reykjavík
Danssýningin Death (Aðalsalur)
Fim 29/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Arty Hour (Kaffihús)
Þri 27/5 kl. 20:00