Morgunblaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2014 SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Maðurinn þarf alltaf að kanna ókunnar slóðir og nema lönd. Það býr bókstaflega í eðli okkar. Mér finnst því mjög gaman að gera þess- ari könnun skil með sýningu,“ segir Örlygur Hnefill Örlygsson, stofn- andi og safnstjóri The Exploration Museum sem verður opnað á Húsa- vík í dag, laugardag. Forseti Íslands og ráðherrar verða meðal gesta við opnunina. Í frægðarför frá Íslandi Könnunarsafn gæti verið lausleg þýðing á heiti safnsins, þar sem brugðið er ljósi á sögu geimferða, kapphlaupið á pólana og leiðangra norrænna víkinga fyrir þúsund ár- um eða svo. Upphaf þessa verkefnis er að árið 2011 stóð Örlygur Hnefill að sýningunni Geimfarar í Þingeyj- arsýslu. Þar voru uppi ýmsar mynd- ir og munir sem tengjast æfinga- ferðum geimfaraefna NASA hingað til lands í aðdraganda Appolo- ferðanna til tunglsins frá 1969 og næstu ár þar á eftir. Ferðir geimfaranna hingað til lands voru tvær, sú fyrri 1965 og hin tveimur árum síðar. Meðal þeirra sem komu voru Neil Armstrong og Buzz Aldrin og með þekkingu frá Ís- landi héldu þeir í sína frægðarför til tunglsins í júlí 1969. „Geimferðirnir til Íslands eru staðreynd sem hefur alltaf heillað mig – og sjálfsagt er bæði satt og rétt sem hefur verið haldið fram að afrek Armstrongs, sem fyrstur manna sté fæti á mánann hafi líklega meiri sögulega þyngd en landa- fundir Kristófers Kólumbus. Og það er heillandi að rætur þessa ævintýr- is eru íslenskar,“ segir Örlygur. Á safninu nýja verður leitast eftir að skoða hlutverk Íslands í könn- unarsögu heimsins. Fyrstur manna sem til Íslands kom segir Örlygur Hnefill að hafi sennilega verið hinn sænski Garðar Svavarsson sem sigldi á Skjálfanda þar sem nú er Húsavík. Leysingi hans Náttfari varð eftir á Íslandi og tók sér ból- festu hér – talsvert á undan Ingólfi Arnarsyni. Samt hefur Náttfari allt- af verið fótnóta í sögunni en verða nú á sýningunni gerð verðug skil. Á báða pólana Þá hafa pólferðirnar einnig ís- lenska skírskotun; Íslendingar hafa farið á þá báða og meðal muna sem því tengjast og verða á Húsavíkur- safninu er úlpa Vilborgar Örnu Giss- urardóttur sem hún klæddist í hinni frækilegu suðurpólsför sinni fyrir tveimur árum. Kanna nýjar lendur verald- arinnar í safninu á Húsavík Morgunblaðið/Sigurður Bogi Geimfari Örlygur Hnefill Örlygsson á safninu The Exploration Museum Húsavík sem verður opnað í dag.  Appolo-áætlunin og úlpa frá Vilborgu Önnu  Atburðir með sögulega þyngd Hjá NASA, geimvísindastofnun Bandaríkjanna, var talið að jarð- myndunum á tunglinu og íslenskum eldfjallaslóðum gæti svipað saman. Sú var rót æfingaferða tunglf- araefna stofnunarinnar, manna sem síðar héldu hátt upp í geim. Þegar til tunglsins var komið kom í ljós að náttúrufar þar og á Íslandi var ólíkt. Öðru er þó haldið fram í daglegu tali, enda þarf góð saga ekki alltaf að gjalda sannleikans. Náttúran á tungli ólík Íslandi GEIMFERÐAÁÆTLUNIN NÁÐI HINGAÐ TIL LANDS Landkönnun Geimfarar við Herðubreið. Aðalfram- kvæmdastjóri UNESCO, Irina Bokova, kemur til landsins um helgina. Hún mun m.a. hitta ráðhera að máli og sitja kvöld- verðarboð for- seta Íslands. Á mánudaginn mun Bokova tala á opnum fyrirlestri í Hátíðarsal Há- skóla Íslands. Fyrirlesturinn er öll- um opinn og hefst kl. 16. Stjórnandi UNESCO heimsækir Ísland Irina Bokova Stjórn verkefnisins Hæg breytileg átt býður til opinnar samræðu um íbúðir og íbúðahverfi framtíð- arinnar á tveimur fundum í dag, kl. 10 í Iðnó og kl. 13 í Gasstöðinni við Hlemm. Kynntar verða hugmyndir og tillögur að íbúðum og hverfum sem eru á vinnslustigi. Í kjölfarið verða pallborðsumræður. Fundir um íbúða- hverfi framtíðar Metal kertahús 32cm Vegghorn Púði 50 x 50 cm Viðarbakkar Rugguhestur 38cm Veggmynd 93 cm Kertaglös m. texta Buddha höfuð 20 x 30 cm www.danco.is Heildsöludreifing Viðarklukka „Home“ 120 x 59 x 4 cm Fyrirtæki og verslanir Við eigum mikið úrval af fallegri gjafavöru Viðarlugt 31 x 37 cm TIL SÖLU: Gott tækifæri fyrir duglega menn. Áhugasamir hafi samband við Jens Ingólfsson, jens@kontakt.is, símar 414 1200 og 820 8658. ÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI Í BYGGINGARIÐNAÐI Til sölu er rótgróið þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði sem annast m.a. steinslípun í nýbyggingum og háþrýstiþvott. Góð verkefnastaða og ágætur hagnaður. 2-3 starfsmenn auk eiganda. Tilvalið tækifæri fyrir duglegan mann með verkstjórnarhæfileika og áhuga á að fara með eigin rekstur. Auðveld kaup. H a u ku r 0 5 .1 4 Fundur forsætisráðherra Norður- landanna verður haldinn við Mý- vatn mánudaginn 26. maí í boði Sig- mundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra. Á fundinum verða norræn mál- efni til umfjöllunar en einnig efna- hagsmál og stjórnmálaþróun í Evr- ópu. Á þriðjudag eiga forsætis- ráðherrarnir fund í Hofi á Akureyri með formönnum landsstjórna Fær- eyja, Grænlands og Álandseyja, framkvæmdastjóra Norrænu ráð- herranefndarinnar og forseta Norðurlandaráðs. Mývatn Forsætisráðherrar Norðurlanda hittast í Mývatnssveit á mánudag. Forsætisráðherrar hittast við Mývatn Aukablað alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.