Morgunblaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2014 Traust á getu fólks til að taka ákvarðanir um eigin framtíð er einn af grundvall- arþáttum lýðræðisins. Núna á sunnudag munu borgarar Úkra- ínu ganga að kjörborð- inu til að kjósa sér nýj- an forseta í kosningum sem án efa eru meðal þeirra mikilvægustu í sögu landsins. Allir Úkraínubúar ættu að taka þátt í því að móta framtíð eigin ríkis. Það gleður mig að kjörstaðir verða opnir í yfir 90 prósent kjördæma landsins, að Krímskaga und- anskildum. Horfur eru á að kosning- arnar geti farið eðlilega fram í yf- irgnæfandi meirihluta hinna 25 héraða Úkraínu. Það er líka gott að heyra að úkraínska þingið hefur efnt til sér- stakra ráðstafana til að gera íbúum á Krím kleift að kjósa. Eftir margra mánaða fréttir af óstöðugleika, sem undirróður Rússa kynti undir, er auðvelt að gleyma því að frið- sælt hefur verið í stórum hlutum Úkra- ínu. Út um allt í þessu víðfeðma landi hefur fólk almennt haldið sínu striki. Jákvæðar niðurstöður út eft- irlitsleiðöngrum sendimanna ÖSE, þar á meðal frá Íslandi, votta að þetta eru marktækar kosningar sem upp- fylla alþjóðlega staðla um undirbún- ing og framkvæmd. Kjósendur hafa úr breiðu úrvali frambjóðenda að velja, sem standa fyrir ólíkar skoð- anir sem miðlað er til kjósenda í sjálf- stæðum fjölmiðlum. Það eru því allar forsendur uppfylltar til að nið- urstöður kosninganna muni end- urspegla raunverulegan vilja úkra- ínsku þjóðarinnar. Þessar kosningar eru þannig til komnar að fyrri forseti flúði af hólmi eftir áralanga gerspillta stjórnartíð. Þjóðþing Úkraínu, kjörið lögmætri kosningu, brást við á réttan hátt með því að boða til þessara kosninga og skipa bráðabirgðaríkisstjórn. Hún bað um og fékk stuðning langstærsta hluta alþjóðasamfélagsins fyrir að- gerðum sínum í þessu millibils- ástandi. Rússneska sambandslýðveld- ið nýtti tækifærið til að innlima Krím með ólögmætum hætti og espa til ófriðar víðar í suður- og austurhluta Úkraínu. Herskáu aðskilnaðarsinnarnir í Do- netsk og Luhansk eru ekki fulltrúar íbúa þessara héraða, hvað þá Úkraínu allrar. Nýleg skoðanakönnun sýndi að 70 prósent íbúa Austur-Úkraínu vildu áfram tilheyra Úkraínu. En þrátt fyr- ir það reyna þessir svokölluðu að- skilnaðarsinnar – sem lúta forystu manna sem hvað búnað, þjálfun og hegðun varðar gefa ástæðu til að ætla að séu liðsmenn rússneskra sérsveita – vísvitandi að grafa undan stöð- ugleika í Úkraínu. Sums staðar hafa þeir efnt til hlægilegra tilrauna til þjóðaratkvæðagreiðslna og sett á fót skrípa-ríkisstjórnir. En vandamálið er að þetta er sannarlega ekkert gam- anmál: Þeir hafa drepið, rænt og mis- þyrmt þeim sem andæft hafa hinum sjálfsyfirlýstu lénsveldum þeirra. Þeir hafa látið fordæmingu Flótta- mannahjálpar SÞ og alþjóða- samfélagsins sem vind um eyru þjóta og ofsótt og tekið í gíslingu blaða- menn, kjörna fulltrúa og starfsmenn kjörstjórna. Þessir misindismenn hafa ekki hikað við að beita glæpum eins og að ræna banka, stela vopnum og haga sér eins og mafíugengi. Fólk hefur af því lögmætar áhyggj- ur í Úkraínu af hvernig tryggja megi að öll þjóðin fái sagt sitt álit, og að framtíðarstjórnskipan landsins tryggi með skilvirkum hætti að allir íbúar og öll héruð landsins eigi sér jafnréttháa fulltrúa á landstjórnarstiginu. Það er mikilvægt að íbúar austur- og suður- hluta landsins, sem höfðu áhyggjur af því hvert landið væri að stefna, eigi sér fulltrúa á landstjórnarstiginu og að á þá sé hlustað. En ríkisstjórn og þjóðþing Úkra- ínu hafa brugðist við; margvísleg lög hafa verið sett sem eiga að tryggja að allir landshlutar eigi sér málsvara í höfuðborginni og við höfum nú þeg- ar séð þjóðarsáttarferli sett af stað, sem fulltrúar frá öllu landinu taka þátt í, þar á meðal talsverður fjöldi frá Austur-Úkraínu. Úkraínumenn eru með réttu að reyna að finna sínar eigin lausnir á vandamálunum sem þeir standa frammi fyrir, og alþjóða- samfélagið verður að gefa þeim svig- rúm til að ljúka því ferli. Þetta er ástæðan fyrir því að við höfum áhyggjur af því að stjórnvöld í Moskvu séu að ala á andrúmslofti ótta, með stuðningi áróðursher- ferðar sem hefur af ásetningi blásið upp meintan stuðning íbúa í héraði við aðgerðir aðskilnaðarsinna og gert lítið úr samhug úkraínsku þjóð- arinnar. Úkraína er fullvalda, sterkt og sameinað ríki. Þegar Úkraínumenn ganga að kjörborðinu á sunnudag munu þeir, sama hverjum þeir veita atkvæði sitt, vera að kjósa með Úkraínu. Fyrr í þessum mánuði lýsti Pútín Rússlandsforseti kosningunum sem „skrefi í rétta átt“. Úkraína þar sem stöðugleiki, velmegun og friður ríkir er keppikefli allra þeirra sem hags- muna eiga að gæta í þessum heims- hluta. Þessar kosningar eru mik- ilvægur áfangi á leiðinni að því marki. Úkraínumenn hafa rétt á að ráða framtíð sinni sjálfir. Nýtt upphaf fyrir Úkraínu Eftir David Lidington »Úkraína þar sem stöðugleiki, velmeg- un og friður ríkir er keppikefli allra þeirra sem hagsmuna eiga að gæta í þessum heims- hluta. David Lidington Höfundur er Evrópumálaráðherra Bretlands. Bréf til blaðsins Það eru að koma kosningar og aft- ur heyrist sami söngur hinna góðu frambjóð- enda, um að þeir ætli að huga að öryrkjum og öldr- uðum, ja svei, ég kannast við þenn- an söng á háum tónum sóprans, en þegar fólkið kemst að verður röddin fölsk og niður fyrir bassann. Á meðan þingmenn bulla út og suður um osta og matarkörfu, þá eru auð- menn að eignast hitt og þetta af auð- lindum landsins. Því er landinu ekki stjórnað? Takið kvótann af Vísi fyrst þeir koma svona fram. Setjið þak á húsaleiguverð, kannski að það séu börn og barnabörn þingmanna og auðmanna sem eru að græða, þannig að ekkert er gert í því. Takið á versl- unareigendum sem sífellt hækka verð. Komið í veg fyrir arðrán á öldr- uðum. Hvert eru auðlindir landsins að fara ? Hættið þessari forræð- ishyggju með fjölskyldur landsins. Þið eruð að ala upp fólk sem enda- laust þarf að sjá um. En það fækkar vinnandi höndum, sem eiga að standa undir kröfum ykkar. Árni Páll sagði að sorglegt væri hvað margir hættu námi til þess að fara í vinnu. „Vinnan göfgar manninn.“ Hver á að vinna grunnstörfin? Þeir bulla margt þingmennirnir. Við eig- um víst öll að læra viðskipta- og lög- fræði og nýta klækina sem þar lær- ast á hina óskólagengnu. Mikill er hrokinn. Nú er fólk tryllt yfir ferða- málum landsins, allir með dollara í augunum. En botninn getur snögg- lega dottið úr þeirri atvinnugrein, það hefur sýnt sig hjá öðrum þjóð- um. Aftur að Alþingi, utanríkismál virðast léttvæg miðað við aðstoð- arfólk ráðherra. Þarf ekki í það ráðu- neyti reynt, eldra og klókt fólk? Eygló Harðardóttir er ósköp við- kunnanleg, en ekkert kemst í fram- kvæmd af því að hún talar bara og talar. Ekki er komin leiðrétting til handa öryrkjum og öldruðum, ekki er búið að aftengja lífeyrisgreiðslur frá bótum. Ríkið tekur skatt af líf- eyrissjóðsgreiðslum og lækkar líka bótagreiðslur, sami eigandi, það er ríkið margtekur af því sem fólk fær. Í raun ætti fólk sem er undir 200.000 krónum á mánuði að vera skattlaust. En er eitthvað gert? Þið hafið það sjálf svo gott og auðvelt er að segja við aðra: „Þetta er nóg handa þér.“ Ég ætla ekki að kjósa og taka þátt í þessum skrípaleik lengur, það er komið nóg. Búin að hlusta á sömu þvæluna í 50 ár, eða frá 17 ára aldri. Hvað varðar ESB, ætlið þið líka að fá undanþágur frá því að Evrópubúar kaupi hér jarðir og komi með sína dýrastofna ? Þið lýðræðisgargandi rithöfundar og háskólafólk skuluð hugsa um að það sem við eigum get- um við misst á sekúndubroti. Of dýrt er að fórna landinu fyrir osta, styrki og hina frægu matarkörfu. STEFANÍA JÓNASDÓTTIR, Sauðárkróki. Ýmislegt Frá Stefaníu Jónasdóttur Stefanía Jónasdóttir HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS …OGÞÚVELURLENGRI LEIÐINAHEIM. HENTAR MJÖG VEL FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR ÞAR SEM „MICRO“ FJAÐRANDI STELLIÐ ÉTUR Í SIG GRÓFA MALBIKIÐ OG GERIR HJÓLAFERÐINA ENN ÞÆGILEGRI ÞÚ NÝTUR ÞESS AÐ MOKA INN KÍLÓMETRUNUM Á CANNONDALE SYNAPSE. 229.900.- TILBOÐ 47,4 fm sumarhús í landi Svartagils með glæsilegu útsýni. Lóðin er 2.500 fm eignarlóð. Hitaveita, ofnakerfi, stór sólpallur og heitur pottur. Óskað er eftir tilboði í húsið og skal því skilað inn á skrifstofu Mikluborgar Lágmúla 4 fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 4. júní. Tilboðum verður svarað þann 5. júní. Seljandi áskilur sér rétt til að taka hæsta tilboði eða hafna öllum. Lágmúla 4 www.miklaborg.is Básar 11 - Borgarbyggð - Tilboð óskast3 1 1Borgarnes OPIÐ HÚS Laugardag 24. maí 14:00 - 16:00 Allar nánari upplýsingar veitir Heimir H. Eðvarðsson sölufulltrúi sími: 893-1485 heimir@miklaborg.is Óskar R. Harðarson hdl. og löggiltur fasteignasali Ekið er fram hjá Hreðavatnsskála í Borgarfirði og beygt inn fyrsta afleggjara til hægri. Sumarhúsa- byggð sést á hægri hönd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.