Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.07.2014, Blaðsíða 9
6.7. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
UMHVE
RFISVÆ
NAR
VÖRUR
FRÁ KE
MI
SEPT O AID eru þurrfrystar örverur tilbúnar til
að brjóta niður allan lífrænan úrgang í rotþróm.
Samsetning 13 mismunandi örvera hjálpar til að vinna á og
minnka fastan úrgang og breyta í fljótandi form ásamt því
að eyða allri ólykt frá rotþrónni. Einfalt í notkun; sett í klósett-
skálina og beðið í 20 mínútur, því næst er efninu skolað niður.
ODORITE er örveruhreinsir sem leysir upp fitu
og eyðir ólykt, jafnvel á erfiðustu stöðum.
Fjölhæft örveruhreinsiefni, öflugt til niðurbrots og hreinsunar á fitu og
eyðir allri ólykt. Odorite er samsett úr örverum og ensímum ásamt PH-
hlutlausum og mjög virkum hreinsandi íblöndunarefnum. Odorite hentar
vel í rotþrær, ferðaklósett, ruslageymslur, skip og matvælaiðnað.
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
KOMDU ROTÞRÓNNI Í LAG
MEÐ SEPT-O-AID OG ODORITE
1990-91 var hann dæmdur í leikbann
í heimalandinu fyrir að hóta að láta
skjóta mótherja sinn, Fabio Poll hjá
Bologna, eftir að sá síðarnefndi
hafði tekið hann föstum tökum. Slíkt
er ekki vel séð, allra síst þegar
menn koma frá Sikiley!
Árið 1992 var Schillaci seldur til
Stingandi augnaráðið, einlægtbrosið og bráðsmitandi leik-gleðin. Ítalía vann ekki HM
1990 en Salvatore Schillaci vann hug
og hjarta heimsbyggðarinnar með
framgöngu sinni og mörkunum sex
sem gerðu hann ekki bara að
markakóngi heldur líka besta leik-
manni mótsins. Hann skaut ekki
minni mönnum en Lothar Matthäus
og Diego Maradona ref fyrir rass.
Um er að ræða eitt mesta ösku-
buskuævintýri sparksögunnar.
Schillaci hafði aldrei skorað fyrir
ítalska landsliðið þegar mótið, sem
haldið var á Ítalíu, var flautað á. Í
nýlegu viðtali við breska ríkis-
útvarpið, BBC, viðurkennir Schillaci
að sér hafi brugðið þegar hann var
valinn í HM-hópinn. Allar dauðar
lýs duttu honum svo úr höfði þegar
þjálfarinn, Azeglio Vicini, skipaði
honum inn á í fyrsta leik. „Ertu
örugglega að tala við mig?“ spurði
hann hvumsa. Schillaci launaði
traustið með því að skora sigur-
markið gegn Austurríkismönnum
aðeins tveimur mínútum síðar. Eftir
það héldu honum engin bönd.
Ofurstjörnur Ítala sem sigra áttu
heiminn þetta sumar, Roberto
Baggio og Gianluca Vialli, urðu að
sætta sig við að spila aðra fiðlu með-
an Schillaci tók hverja einleiksstróf-
una á fætur annarri. Hefðu Ítalir
kosið sér forseta þá um haustið
hefði enginn haft roð við hinum
marksækna miðherja. Hefði hann á
annað borð verið í kjöri. Annar hver
hundur á Ítalíu hlaut nafnið Totó
næstu misserin, en það er gælunafn
Schillacis, og meira að segja frægur
veðhlaupahestur í Ástralíu.
Bætti bara
einu marki við
Schillaci fæddist á Sikiley 1964 og
ólst upp í sárri fátækt.
Knattspyrnuhæfileikarnir tryggðu
honum samning hjá ACR Messina,
þar sem hann lék í nokkur ár við
ágætan orðstír í neðri deildum.
Verulega hljóp svo á snærið þegar
stórlið Juventus festi kaup á kapp-
anum árið 1989.
Eftir gott fyrsta tímabil þar var
Schillaci valinn í landsliðið.
En fallið var hátt. Okkar maður
fann sig ekki með Juventus veturinn
eftir HM og datt skömmu síðar út
úr landsliðinu líka. Bætti aðeins
einu marki við, gegn Norðmönnum
1991. Samtals lék hann ekki nema
sextán landsleiki.
Mótlætið fór í skapið á keppnis-
manninum Schillaci og veturinn
Inter en fann sig heldur ekki þar.
Endaði hjá Júbilo Iwata í Japan, þar
sem hann stóð sig svo sem ágæt-
lega. Á miklu smærra sviði.
Eftir að hann lagði skóna á
hilluna, árið 1997, flutti Schillaci
heim til Palermo þar sem hann
rekur nú knattspyrnuskóla
fyrir yngri iðkendur og miðlar
þannig af reynslu sinni.
Enda þótt tæpur ald-
arfjórðungur sé liðinn baðar
Schillaci sig ennþá í ljóma HM
1990. „Ég þurfti að hafa mikið
fyrir minni velgengni og það er
gaman að fólk skuli ennþá
muna eftir mér. Fyrir kemur að
fólk tárist þegar það hittir mig. Það
er erfiðast þegar enginn kann að
meta mann lengur, þannig að at-
hyglin truflar mig ekki,“ sagði hann
við BBC.
Og hvað biður fólk um? „Það vill
gjarnan að ég stari á það. Setji upp
„gölnu augun“, eins og þegar ég
fagnaði mörkum mínum á HM. Það
voru ósjálfráð viðbrögð hjá mér á
sínum tíma en fólk virðist muna vel
eftir þessu,“ segir hann skelli-
hlæjandi.
Schillaci hugsar ennþá reglulega
til HM 1990 – með gleði í hjarta.
Einu fær hann þó aldrei breytt. „Við
hefðum átt að vinna mótið!“
HVAÐ VARÐ UM … SALVATORE SCHILLACI?
„Við hefðum átt að
vinna mótið“
Schillaci ásamt aðdáanda sínum.
Hann lifir enn á afrekum sínum
sumarið 1990.
Salvatore Schillaci
fagnar einu marka
sinna á HM 1990.
Augun standa á
stilkum.