Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.07.2014, Side 16
Ferðalög
og flakk
Safakúr í sólarlöndum
Morgunblaðið/
Styrmir Kári
*Nú þegar heilsubylgja ríður yfir og hvert stór-stirnið á fætur öðru opinberar hvers konar safa-kúr það aðhyllist til að grennast er ekki seinnavænna að skella sér í heilsusamlegt frí. Fyrir-tækið Explore Raw býður ferðalöngum upp áað skella sér í safa-frí til Algarve í viku. Lifað er áheilnæmum vegan-söfum í þrjá daga og þá er
smáum hráfæðisréttum bætt við mataræðið.
Líkamsrækt er hluti af dagskránni sömuleiðis.
Berlín er frábær borg! Erum búin að fara á Mauer-markaðinn og Tyrkja-
markaðinn, prófuðum Berlínarpylsu og Berlínarbollu, sem þeir kallar reyndar
eitthvað annað. Syntum í sundlaug sem er ofan í kanalnum. Heimsóttum
undirheima Berlínar þar sem fólkið leitaði skjóls í loftárásunum í síðari heims-
styrjöldinni. Það var magnað. Fórum svo á DDR-safnið þar sem maður fær
innsýn í Austur-Berlín eins og hún var. Mjög skemmtilegt gagnvirkt safn.
Prufukeyrðum Trabant og kíktum í eldhússkúffur. Sáum Berlínarmúrinn og
Checkpoint Charlie. Hér er fullt af skemmtilegum kaffihúsum og veitinga-
stöðum, margir víetnamskir góðir. Svo er hér búðin Saturn, þar sem maður
finnur tölvuleiki á mjög góðum prís miðað við heima. Allt er ódýrara en
heima! Hvað með að ganga í ESB?! Er það ekki eitthvað? Hér er frábært að
hjóla, engar brekkur og líka gott bara að ráfa um og njóta mannlífsins. Við
komum pottþétt aftur. Sehr schön! Auf Wiedersehen!
Sjáumst fljótt! Knús frá Berlín! Þórey og Oddur Þórey og Oddur hafa þvælst um Berlín endilanga. Oddur í austurhluta Berlínar.
Á Trabant í Berlín
Berlínarpylsan tekin til athugunar.
PÓSTKORT F
RÁ BERLÍN
Fótbolta nútímans er stundum líkt við hringleikahús og hlið-stæðurnar eru ýmsar ef litið er framhjá þeirri staðreynd aðskylmingaþrælarnir í dag eiga skuldlausa ofursportbíla og felaeignir sínar í skattaskjólum víða um heim. Í Barcelona á Spáni
er að finna stærsta fótboltaleikvang Evrópu, Camp Nou eða Nývang
eins og hann er stundum nefndur á íslensku. Völlurinn er glæsilegt
mannvirki – eins og reyndar á við um margar aðrar byggingar borg-
arinnar – og vilji maður öðlast tilfinningu fyrir anda nútímans og
heimsækja einn af hornsteinum afþreyingariðnaðarins á heimsvísu er
tilvalið að bregða sér í skoðunarferð um leikvanginn.
Bikarar og búningsklefar
Frægir fótboltamenn eru að mörgu leyti eins og karakterar í eftir-
minnilegum skáldverkum sem lifa í hugsunum aðdáenda sinna árið
um kring. Fótboltaáhugamönnum líður oft eins og þeir þekki við-
komandi íþróttahetjur vel, jafnvel betur en nákomna ættingja sína.
Þeir blasa við á skjám, forsíðum dagblaða, í auglýsingum orkudrykkja
og rakvéla. Camp Nou er nokkurs konar leiksvið margra af hæfi-
leikaríkustu fótboltamönnum samtímans. Í skoðunarferð um leik-
vanginn er farið niður að grasinu, inn í búningsklefa leikmanna og
jafnframt er gagnvirkt bikarasafn félagsins heimsótt. Miðar kosta í
kringum 20 evrur. Til þess að upplifa hinu einu sönnu stemningu
verður þó einfaldlega að fara á leik með Barcelona.
Fjölbreytt og falleg borg
Trúarleg lotning skín úr augum gesta Camp Nou þegar þeir ganga
inn í stúkuna, virða fyrir sér bikarasafnið, skima yfir völlinn. Sumir
fara niður að auglýsingaskiltunum, beygja sig yfir þau og þreifa á
grasinu eins og heilögum fleti, slíta kannski upp nokkur strá til að
geyma í öskju í bókahillu á heimili sínu.
Barcelona er paradís ferðamannsins. Þar er að finna frábæra tap-
as-rétti á hverju götuhorni, strönd fyrir sólarþyrsta, menningu og
fallegar byggingar. Einkenni borgarinnar er hinn fljótandi arkitektúr
Gaudis, byggingar sem virðast iða af lífi. Camp Nou er tákn um ann-
ars konar fegurð og áhugamenn um töfra knattspyrnunnar ættu ekki
að láta heimsókn þangað framhjá sér fara.
AFP
BARCELONA BÝÐUR UPP Á FLEIRA EN TAPAS,
SÓLARSTRÖND OG FAGRAR BYGGINGAR
Hof knatt-
listamanna
CAMP NOU ER LEIKSVIÐ MARGRA AF HÆFILEIKARÍKUSTU
FÓTBOLTAMÖNNUM SAMTÍMANS OG ENGINN ÁHUGA-
MAÐUR VERÐUR SVIKINN AF HEIMSÓKN ÞANGAÐ
Halldór A. Ásgeirsson haa@mbl.is