Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.07.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.07.2014, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.7. 2014 Athyglisvert er að hugsa til þess að ekkert ákvæði almennra hegningarlaga fjallar sérstaklega um innbrot. Innbrotsþjófnaðir varða við 244. gr. almennra hegningarlaga sem er svohljóð- andi: „Þjófnaður á fjármunum eða orkuforða varðar fangelsi allt að 6 árum.“ Ákvæði 231. gr. fjallar um húsbrot – það er þeg- ar einhver ryðst inn á heimili annars manns í heimildarleysi og neitar að fara þaðan – en ekki er ákært á grundvelli þess þegar innbrotsþjófnaðir eru annars vegar enda er litið svo á að 244. gr. tæmi sök gagnvart 231. gr. Ólík brot, sama ákvæði Því er hægt að ímynda sér tvö afar ólík tilvik, sem fengju sömu meðferð samkvæmt lögum. Brot manns sem stelur sokka- pari úr verslun myndi varða við 244. grein um þjófnað. Innbrots- þjófur sem læðist inn í svefn- herbergi sofandi manns á næt- urþeli og andar ofan í hálsmál hans á meðan hann seilist í arm- bandsúr á náttborði yrði einnig ákærður á grundvelli 244. grein- ar. Ljóst er að verulegur munur er á þessum brotum enda skap- ast mun meiri hætta í síð- arnefnda tilvikinu. Ákvæðið skil- ur hins vegar ekki á milli þessara ímynduðu dæma. Hins vegar myndu refsiþyngingarástæður sem kveðið er á um í lögum leiða til þess að sá síðarnefndi fengi öllu þyngri dóm (auk þess sem sokkaþjófur yrði seint ákærður nema um ítrekuð brot væri að ræða). 252. gr. fjallar svo um rán en þar segir að sá sem hótar eða beitir einhvern of- beldi í þeim tilgangi að hafa af honum fjármuni eða önnur verðmæti skuli sæta fangelsi allt að 10 árum. Alvarleg brot geta varðað 16 ára fangelsi. Því má ímynda sér dæmi þar sem þjófur brýst inn og lendir í átökum við húsráðanda. Brot hans myndi þá breytast á svipstundu úr því að varða við 244. gr. um þjófnað og falla undir 252. gr. um rán. Í júlímánuði hafa birst tvö við- töl á vefsíðu Morgunblaðs- ins, www.mbl.is, við ein- staklinga sem ekki fengu bætur frá tryggingafélagi eftir innbrot jafnvel þótt lögreglu- skýrslur hefðu gefið til kynna að bersýnilega hefði verið um innbrot að ræða. Júlía Hvanndal, sjálfstætt starfandi hönnuður, kom heim til sín og sá að gluggi, sem hafði verið lokaður og læstur, hafði verið spenntur upp, ferðatölvan var horf- in. Þjófurinn skildi jafnframt eftir handskrifaða nótu á bjagaðri ensku til Júlíu þar sem hann bað hana af- sökunar á verknaðinum. Sömuleiðis fyllti hann á kattadall. Sonur Svav- ars Arnar Eysteinssonar kom að tómri íbúð fjölskyldunnar hinn 2. apríl síðastliðinn þegar hann var í hádegishléi frá skóla. Þjófurinn hafði komist yfir lykil að íbúðinni frá fyrri eigendum hennar. Málið var upplýst en hluti þýfisins var ekki endurheimtur. Í báðum tilvikum voru ekki greiddar út bætur frá trygginga- félagi með vísan til þess að um- merki skorti. Óformleg könnun blaðamanns á skilmálum heimilistrygginga hjá nokkrum tryggingafélögum leiddi í ljós að skilyrði þess að tjón vegna innbrots fáist bætt er að „ótvíræð“ og/eða „greinileg“ ummerki séu á vettvangi. Slíkir skilmálar eru að sjálfsögðu til þess fallnir að koma í veg fyrir bótasvik. Hins vegar kalla þeir óneitanlega fram hug- renningatengsl við dæmigert inn- brot í Andrésblaði, þar sem grímu- klæddur maður með dökka skeggrót brýtur upp hurð með kú- beini og skilur eftir sig „ótvíræð“ ummerki í orðsins fyllstu merk- ingu. Þjófnaðir af heimilum geta verið af ýmsum öðrum toga, sam- anber dæmið hér að ofan þar sem þjófurinn hafði komist yfir lykil með ólögmætum hætti. Geirharður Geirharðsson, forstöðumaður tjóna- sviðs Sjóvár, segir að mat á um- merkjum innbrota fari eftir um- fangi máls hverju sinni. „Í flestum tilvikum eru augljós merki og þá er enginn vafi. Það er ekki alltaf sem farið er á staðinn og fyrst og fremst er stuðst við það sem fram kemur í lögregluskýrslum.“ Í til- vikunum hér að ofan var nið- urstaða lögregluskýrslu að um inn- brot hefði verið að ræða en ljóst er að slík niðurstaða felur þó ekki endilega í sér að „ótvíræð“ og/eða „greinileg“ ummerki séu á vett- vangi. Af þeim sökum kemur fyrir að fólk fái ekki bætur þó að lög- regla segi að um innbrot hafi verið að ræða. Spurningin er þá auðvitað hvað „ótvíræð“ ummerki þýða nákvæm- lega. Í tilviki Júlíu Hvanndal þótti ekki nægilegt að lokaður og læstur gluggi hefði verið brotinn upp, miði skrifaður þar sem beðist var afsök- unar á stuldinum og ketti gefið að éta. Tryggingafélagið tjáði Júlíu að hún hefði átt að loka með krækjum jafnvel þó að engir krókar væru á glugganum, sem hún sagði vera „bara venjulegan glugga, þó að hann væri gamall og lúinn“. Heim- ildir Morgunblaðsins herma að mat tryggingafélaga á ummerkjum inn- brota geti virst sérkennilegt. Til dæmis þyki iðulega ekki nægilegt að stormjárn glugga hafi verið brotið ef engin ummerki séu á gluggakarmi. Með öðrum orðum þurfi að sjást á gluggakarminum sjálfum að glugginn hafi verið þvingaður upp. Gífurleg fækkun milli ára Árið 2013 var fjöldi innbrota á Ís- landi 1.092. Meðalfjöldi innbrota á árunum 2010 til 2012 var hins veg- ar 2.047 og því nam fækkun slíkra brota milli ára 46,6%. Þessi gíf- urlega fækkun innbrota á rót sína að rekja til þess að á árunum 2010 til 2011 var innbrotafaraldur þar sem glæpagengi fóru nánast hús úr húsi. Þegar lögreglu tókst að upp- ræta þessi gengi hættu innbrotin eins og slökkt væri á eldspýtu. Einnig voru innbrotahrinur á ár- unum 2011-2012 sem lögreglu tókst að stöðva. Innbrot breytast samhliða þjóð- félaginu. Í kringum aldamót voru innbrot í bíla í kringum 1.000 á ári en nokkrum árum síðar fór að draga verulega úr þessari tölu. Ástæðan er sú að geislaspilarar hættu að vera aðskildar einingar og urðu hluti af innréttingunni í nýjum bílum. Þá tóku þjófar að einbeita sér meira að því að stela GPS-tækjum sem þó voru mun sjaldgæfari en geislaspilarar. Í dag eru það helst smágerð raftæki, ferðatölvur, myndavélar, spjaldtölv- ur og farsímar sem þjófar ásælast. Flatskjáir eru í auknum mæli skildir eftir enda eru þeir oftar en ekki mjög stórir auk þess sem verðmæti þeirra hefur minnkað talsvert á undanförnum árum. Skartgripir njóta þó alltaf mestra vinsælda. Að sögn rannsóknarlög- reglumanns sem Morgunblaðið tal- aði við er ljóst að innbrotsþjófar búa iðulega yfir þekkingu á verð- mæti ólíkra skartgripa. Fyrir kem- ur að ummerki á vettvangi bendi til þess að þjófurinn hafi fengið sér sæti og valið sér sérstaklega til- tekna skartgripi til að hafa á brott með sér, skilji annað eftir. Eitt þeirra glæpagengja sem hér fóru ránshendi fyrir nokkrum árum starfaði jafnframt eftir þeirri vinnureglu að fara alltaf einungis inn í svefnherbergi húsa, láta þar greipar sópa og staldra stutt við. Gengið fór bæði í hús með örygg- iskerfi og óvarin hús en hélt sig við svefnherbergin. Skilmálar heimilistrygginga kalla fram hugrenningatengsl við steríótýpíska innbrotsþjófa sem brjótast inn og skilja eftir sig ótvíræð ummerki á vettvangi. Morgunblaðið/Eggert Hvenær eru ummerki innbrota ótvíræð og greinileg? DÆMI ERU UM AÐ FÓRNARLÖMB INNBROTA FÁI EKKI BÆTUR FRÁ TRYGGINGAFÉLÖGUM ÞÓTT LÖGREGLUSKÝRSLUR STAÐFESTI AÐ UM INNBROT HAFI VERIÐ AÐ RÆÐA. ÁSTÆÐAN ER SÚ AÐ UMMERKI TELJAST EKKI VERA „ÓTVÍRÆГ EINS OG SKILMÁLAR KVEÐA Á UM. EKKERT SÉRSTAKT INNBROTAÁKVÆÐI * Árið 2013 var fjöldi innbrota á Íslandi 1.092. Með-alfjöldi innbrota á árunum 2010 til 2012 var hins vegar2.047 og því nam fækkun slíkra brota milli ára 46,6%. ÞjóðmálHALLDÓR A. ÁSGEIRSSON haa@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.