Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.07.2014, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.07.2014, Blaðsíða 34
Tíska AFP *Choupette, hvíti síamsköttur tískukóngsins Karls Lagerfelds, hefurlandað samningi við snyrtivöruframleiðandann Shu Urema. Shupetteby Karl Lagerfeld fyrir Shu Uemura verður lína af förðunarvörum yfirhátíðirnar sem er byggð á kisunni, loðin augnhár og annar kisulegurvarningur er brot af því sem við má búast. Karl hefur áður hannaðlínu byggða á Choupette litlu sem var fylgihlutalína fyrir Karl Lagerfeld tískuhúsið. Choupette er heldur betur góðu vön enda ferðast hún með eiganda sínum í einkaþotu, er með tvo einkaþjóna og er, samkvæmt Karli, dugleg á I-padinn sinn. Hvar kaupir þú helst föt? Helstu búðirnar eru Cos, & Other Stories, H&M, Zara og All Saints. Svo finnst mér alltaf gaman að komast í góðar „vintage“ búðir þar sem ég get fundið eitthvað sniðugt og sem enginn annar á. Hver er flottasta búð sem þú hefur komið í? Excelsior er mjög flott búð í Mílanó með öllum helstu og flottustu fatahönnuðunum. Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst þátt í? Já, hvíta kápan úr Sautján sem ég keypti fyrir fermingu, það leit út eins og ég væri í læknaslopp. Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt? Að efnið og sniðið á flíkinni sé gott, einnig að hún passi við það sem er nú þegar í klæðaskápnum. Hvaða þekkta persóna finnst þér vera með flottan stíl? Þær sem koma helst upp í hugann eru Rosie Huntington-Whiteley, Kate Moss, Miranda Kerr og Olivia Palermo. Það eru einnig margar sem eru með flottan stíl hérna á Íslandi. Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð eða -merki? Isabel Marant, Philip Lim, Kenzo, Alexander Wang og Balmain. Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verðmiðann, hvaða flík eða fylgi- hlut myndirðu kaupa? Ég mundi kaupa mér Proenza Schouler PS11 Mini Classic tösku, annars eru Chanel-töskurnar alltaf klassískar. Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Hann er mjög misjafn og fer stundum eftir skapi, en ætli hann sé ekki kvenlegur með smá rokk og ról-ívafi. Hverju er mest af í fataskápnum? Bolir, ég mætti örugglega fara að henda einhverjum. Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þegar kemur að fatakaupum? Persónulega finnst mér gott að sofa á hugmyndinni og ef ég er ennþá að hugsa um flíkina þá fer ég og kaupi hana. KVENLEGT MEÐ ROKK OG RÓL-ÍVAFI Guðrún Hlín Hjaltested hefur gaman af tísku og öllu öllu sem henni teng- ist. Morgunblaðið/Þórður Fatastíllinn fer eftir skapi GUÐRÚN HLÍN HJALTESTED KVEÐST KLÆÐA SIG EFT- IR SKAPI OG LÝSIR FATASTÍL SÍNUM SEM FJÖLBREYTTUM OG KVENLEGUM. GUÐRÚN HLÍN HEFUR BRENNANDI ÁHUGA Á TÍSKU EN HÚN LÆRÐI TÍSKUMARKAÐSSETNINGU Í ISTITUTO EUROPEO DI DESIGN Í MÍLANÓ. Guðný Hrönn gudnyhronn@mbl.is Hönnun Isabel Marant er í uppáhaldi hjá Guðrúnu. Á unglings- árunum keypti Guðrún hvíta kápu sem minnti helst á læknaslopp. Þessir skór koma úr smiðju & Other Stories, Guðrún er hrifin af því merki. Proenza Schouler PS11 Mini Classic- taskan er ein- staklega falleg. Kate Moss þykir smart. Tískukisi með samning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.