Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.07.2014, Qupperneq 34
Tíska
AFP
*Choupette, hvíti síamsköttur tískukóngsins Karls Lagerfelds, hefurlandað samningi við snyrtivöruframleiðandann Shu Urema. Shupetteby Karl Lagerfeld fyrir Shu Uemura verður lína af förðunarvörum yfirhátíðirnar sem er byggð á kisunni, loðin augnhár og annar kisulegurvarningur er brot af því sem við má búast. Karl hefur áður hannaðlínu byggða á Choupette litlu sem var fylgihlutalína fyrir Karl Lagerfeld tískuhúsið. Choupette er heldur betur góðu vön
enda ferðast hún með eiganda sínum í einkaþotu, er með tvo
einkaþjóna og er, samkvæmt Karli, dugleg á I-padinn sinn.
Hvar kaupir þú helst föt?
Helstu búðirnar eru Cos, & Other Stories, H&M, Zara og All
Saints. Svo finnst mér alltaf gaman að komast í góðar „vintage“
búðir þar sem ég get fundið eitthvað sniðugt og sem enginn annar á.
Hver er flottasta búð sem þú hefur komið í?
Excelsior er mjög flott búð í Mílanó með öllum helstu og flottustu
fatahönnuðunum.
Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst þátt í?
Já, hvíta kápan úr Sautján sem ég keypti fyrir fermingu, það leit út
eins og ég væri í læknaslopp.
Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt?
Að efnið og sniðið á flíkinni sé gott, einnig að hún passi við það sem
er nú þegar í klæðaskápnum.
Hvaða þekkta persóna finnst þér vera með flottan stíl?
Þær sem koma helst upp í hugann eru Rosie Huntington-Whiteley,
Kate Moss, Miranda Kerr og Olivia Palermo. Það eru einnig margar
sem eru með flottan stíl hérna á Íslandi.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð eða -merki?
Isabel Marant, Philip Lim, Kenzo, Alexander Wang og Balmain.
Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verðmiðann, hvaða flík eða fylgi-
hlut myndirðu kaupa?
Ég mundi kaupa mér Proenza Schouler PS11 Mini Classic tösku,
annars eru Chanel-töskurnar alltaf klassískar.
Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl?
Hann er mjög misjafn og fer stundum eftir skapi, en ætli hann sé
ekki kvenlegur með smá rokk og ról-ívafi.
Hverju er mest af í fataskápnum?
Bolir, ég mætti örugglega fara að henda einhverjum.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þegar kemur að
fatakaupum?
Persónulega finnst mér gott að sofa á hugmyndinni og ef ég er
ennþá að hugsa um flíkina þá fer ég og kaupi hana.
KVENLEGT MEÐ ROKK OG RÓL-ÍVAFI
Guðrún Hlín Hjaltested
hefur gaman af tísku og
öllu öllu sem henni teng-
ist.
Morgunblaðið/Þórður
Fatastíllinn
fer eftir skapi
GUÐRÚN HLÍN HJALTESTED KVEÐST KLÆÐA SIG EFT-
IR SKAPI OG LÝSIR FATASTÍL SÍNUM SEM
FJÖLBREYTTUM OG KVENLEGUM. GUÐRÚN HLÍN
HEFUR BRENNANDI ÁHUGA Á TÍSKU EN HÚN
LÆRÐI TÍSKUMARKAÐSSETNINGU Í ISTITUTO
EUROPEO DI DESIGN Í MÍLANÓ.
Guðný Hrönn gudnyhronn@mbl.is
Hönnun Isabel
Marant er
í uppáhaldi
hjá Guðrúnu.
Á unglings-
árunum
keypti
Guðrún
hvíta kápu
sem minnti
helst á
læknaslopp.
Þessir skór koma úr smiðju
& Other Stories, Guðrún
er hrifin af því merki.
Proenza
Schouler PS11
Mini Classic-
taskan er ein-
staklega falleg.
Kate
Moss
þykir
smart.
Tískukisi með samning