Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.07.2014, Blaðsíða 56
SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2014
Það kannast eflaust margir við draugasöguna um Djáknann á Myrká en
myndlistarkonan Sandra Rós Björnsdóttir hefur sett söguna í nýjan bún-
ing og stefnir á að gefa hana út í teiknimyndasögubók. Sandra stendur nú
fyrir söfnun fyrir útgáfu bókarinnar en slík útgáfa getur verið kostn-
aðarsöm.
„Söfnunin hefur gengið frekar vel miðað við að ég er ekki þekkt. Við er-
um komin upp í tæplega 70% og það eru 10 dagar eftir í dag, sunnudag.
Stærsta áskorunin er að ná takmarkinu, þá getum við sent myndasöguna í
prentun,“ segir Sandra.
Sandra hefur unnið að teiknimyndasögunni undanfarna mánuði og
verður bókin fyrir alla sem hafa áhuga á teiknimyndasögum, ævintýrum
og íslenskum þjóðsögum.
Áhugasamir geta nálgast upplýsingar um hvernig hægt er að styrkja
verkefnið á heimasíðu Söndru, www.krumla.com.
Teikning af Guðrúnu, einni aðalpersónu sögunnar um Djáknann á Myrká, eftir Söndru Rós.
DJÁKNINN Á MYRKÁ Í NÝJAN BÚNING
Draugaleg teiknimyndasaga
Sandra Rós Björnsdóttir.
Jeremiah Heaton, íbúi í Abingdon
í Virginíuríki í Bandaríkjunum,
heldur því fram að hann sé kon-
ungur Norður-Súdan, lands sem
er uppspuni frá rótum. Hinn 16.
júní síðastliðinn uppgötvaði hann
landspildu milli Egyptalands og
Súdan sem hvorugt ríkið gerir til-
kall til, og setti þar niður fána-
stöng. Þetta lagði hann á sig vegna
þess að dóttur hans langaði að
verða prinsessa. Nú gerir hann til-
kall til konungsríkisins Norður-
Súdan og gerir kröfu um að al-
þjóðasamfélagið viðurkenni kon-
ungsveldi hans. Um þetta er
fjallað á vefritinu vox.com.
Þessi undarlegheit eiga við rök
og lög að styðjast. Alvörulönd hafa
gert nákvæmlega hið sama, ekki
síst á nýlendutímanum í Afríku og
Suður-Ameríku. Í alþjóðalögum er
að finna terra nullius-reglu sem
varðar óbyggð landsvæði sem ekk-
ert ríki á. Mörg fordæmi eru til
fyrir beitingu reglunnar. Deila
Kínverja og Japana um Senkaku-
eyjar grundvallast á terra nullius.
Á 20. öld töpuðu bæði Norðmenn
og Marokkómenn dómsmálum fyr-
ir Alþjóðadómstólum þar sem þeir
vísuðu til terra nullius.
Heaton hefur því rétt fyrir sér
að því leyti að Norður-Súdan er
frjálst að eigna sér landsvæði sem
enginn annar gerir tilkall til.
Vandamálið er að Norður-Súdan
er ekki alvöruríki og Heaton getur
ekki haldið því fram að hann sé
þjóðflokkur á svæðinu. Því er ólík-
legt að hann fái kröfu sína stað-
festa, þótt lögfræðin að baki henni
sé traust, og dóttir hans verður að
lifa áfram án prinsessutitils.
BANDARÍKJAMAÐUR VILL VERÐA KONUNGUR NORÐUR-SÚDAN
Dóttir
verði
prinsessa
Konungur Norður-Súdan vill öðlast viðurkenningu Sameinuðu þjóðanna.
AFP
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Ken,
ástmaður Barbie.
Gunnsteinn Helgi Maríusson,
eigandi Sushi Samba.
Bastian Schweinsteiger,
landliðsmaður Þýskalands.
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 09.07.14 - 16.07.14
1 2
5 6
7 8
109
43 Iceland Small World - lítilSigurgeir Sigurjónsson
Iceland Small World - stór
Sigurgeir Sigurjónsson
Stúlkan frá Púertó Ríkó
Esmeralda Santiago
Niceland
Kristján Ingi Einarsson
Vegahandbókin 2014
Steindór Steindórsson
Amma biður að heilsa
Fredrik Backman
Bragð af ást
Dorothy Koomson
Frosinn - Þrautir
Walt Disney
Frosinn - Anna og Elsa
eignast vin
Walt Disney
I was here
Kristján Ingi Einarsson