Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.07.2014, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.07.2014, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.7. 2014 Á rni Einarsson var í mörg ár einn áhrifa- mesti maður í ís- lenskri bókaútgáfu, hann var meðal ann- ars verslunarstjóri Máls og menn- ingar, varð framkvæmdastjóri árið 1984 og við tóku miklir uppgangs- tímar félagsins. Hann varð forstjóri bókaforlagsins Eddu árið 2007, sem varð að Forlaginu, en flutti síðan til Berlínar þar sem hann bjó í nokkur ár. Hann rekur nú bóka- og blóma- búð í tónlistarhúsinu Hörpu ásamt eiginmanni sínum og tveimur vin- um, en kemur enn nálægt bókaút- gáfu því hann er stjórnarformaður Forlagsins. Árni vill ekki gera mikið úr áhrif- um sínum í bókaútgáfu. „Mitt hlut- verk var að halda um tékkheftið,“ segir hann. „Ég byrjaði sem sextán ára stráklingur í jólaafgreiðslunni í bókabúð Máls og menningar og var tvítugur að klára stúdentspróf þeg- ar mér var falin umsjón með er- lendu deildinni, og þá fannst ýms- um að það hefði átt að leita víðar. Ég varð síðan verslunarstjóri á tíma þegar Mál og menning var með stóra arfleifð en um leið fyr- irtæki sem skorti sjálfstraust og stefnu. Mér var boðið að verða framkvæmdastjóri ásamt því að vera áfram verslunarstjóri, Halldór Guðmundsson, sem ég þekkti ekki áður, varð útgáfustjóri og það var gæfa mín að vinna með honum og Silju Aðalsteinsdóttur og fleira góðu fólki. Þarna skapaðist liðsandi þar sem markmiðið var að end- urvekja Mál og menningu, og það tókst. Íslensk bókaútgáfa er merkilegt fyrirbæri sem margir koma að. Ís- lendingar vilja trúa því að vel- gengni fyrirtækja sé fyrst og fremst sterkum stjórnendum að þakka en það er ekki þannig. Það er bjargföst trú mín að góð liðs- heild skapi velgengni. Slík heild verður að einhverju leyti til fyrir tilviljanir, en líka vegna þess að til er fólk sem er með loftnet upp úr höfðinu sem fangar hugmyndir. Mér finnst mjög gaman að hitta fólk sem hefur loftnet upp úr höfð- inu og skynjar aðstæður, les í þær og framkvæmir. Samferðafólk mitt hefur margt haft gríðarleg áhrif á mig, þar má kannski segja að ég hafi verið eins konar svampur, og í stjórnunarstörfum mínum reyndi ég að skynja það sem fólk hafði fram að færa og hef vonandi kunn- að að nota það. Mín skoðun er sú að engin hug- mynd á Íslandi sé betri en fram- kvæmdin. Það er bjargföst trú mín að í þessu litla dýnamíska samfélagi getum við ekki treyst því að ein- hver annar fái góða hugmynd og hrindi henni í framkvæmd, við verðum að gera það sjálf. Ég ber djúpa virðingu fyrir fólki sem fær góða hugmynd og hefur þolinmæði og úthald til að fylgja henni eftir. Það reynir svo sannarlega oft á út- haldið, menn mæta þögn og af- skiptaleysi, en þeir sem hafa úthald láta það ekki á sig fá og fram- kvæma. Eitthvað af þessum hug- myndum mistekst vitanlega en æði margt hjá okkur Íslendingum finnst mér við eiga úthaldi að þakka. Bygging Hörpu er gott dæmi um þetta, þar var ekki gefist upp þrátt fyrir mótbyr heldur lokið við húsið sem 5.000 manns að meðaltali heimsækja á dag.“ Hvikull bókamarkaður Þú kynntist bókaútgáfu sextán ára gamall og varst þar lengi í hópi stjórnenda og ert núna stjórn- arformaður Forlagsins. Hvaða þró- un í bókaútgáfu finnst þér hafa ver- ið mest áberandi á þessum áratugum? „Meðal stærstu forréttinda í lífi mínu eru að hafa tengst því góða fólki sem rekur íslenska bókaútgáfu og kynnst viðskiptavinum sem eru sannarlega sérstakir. Hinn sauð- tryggi, fróðleiksfúsi almenningur sem íslenskir bókaútgefendur hafa getað reitt sig á er orðinn miklu sjálfstæðari en áður, betur mennt- aður, óvæginn, kannski dálítið grimmur. Ég held að rithöfundi sé fyrirgefið eitt feilspor en ekki mikið meira en það, því kröfurnar um að innihaldið standi undir væntingum eru miklar. Þetta er síkvikur og skapandi markaður en hlutskipti rithöfundanna er erfitt því þeir geta ekki gengið að lifibrauði sínu vísu eins og sumir þeirra gátu áður. Þegar ég byrjaði að afgreiða í Máli og menningu var Laxness enn að gefa út bækur og það voru áskrif- endur að þeim, eins og reyndar einnig að bókum Alistair MacLean, en þannig er það ekki í dag. Ég held að rithöfundarnir skynji hversu hvikull markaðurinn er og átti sig á að þeir eiga ekki lengur örugga áskrifendur og ég dáist að því hvernig þeir takast á við það. Höfundar hafa leitað ýmissa leiða til að auka tengsl sín við almenning og eru orðnir sýnilegri við að skrifa leikgerðir, sinna greinaskrifum og vera álitsgjafar. Það er ekki hægt að tala um þró- un bókaútgáfu án þess að nefna rafbækur. Sannarlega öfunda ég framtíðina af rafbókum sem ég tel ekki vera óvin prentaðra bóka held- ur einungis annað form. Áður var það þannig að ef bók seldist upp og hafði ekki verið endurprentuð þá kostaði mikið erfiði og fyrirhöfn að finna eintak af henni. Í framtíðinni höfum við þægilegan aðgang að því sem hefur verið skrifað. Við erum á þröskuldi geysilegra merkilegrar byltingar sem mun gagnast les- endum, rithöfundum og bóka- forlögum á hátt sem við höfum ekki áður kynnst. Rafbókaútgáfa í dag er bara bernskubrek miðað við það sem koma skal.“ Loftkastalahugmyndir og ærandi smámunasemi Þetta er sennilega erfið spurning en finnst þér hafa orðið mikil breyting í hugsunarhætti þjóð- arinnar og áherslum frá því þú varst unglingur? „Mér finnst orðið æ meira áber- andi að fólk þorir að fylgja sann- færingu sinni. Þegar ég var að alast upp var viðmótið: Hvað ert þú að vilja upp á dekk, drengur? Þetta segir enginn lengur við ungt fólk og er til marks um það hversu miklar samfélagsframfarirnar hafa verið síðustu áratugi. Ég held að þetta sé að einhverju leyti því að þakka hversu margir Íslendingar fara í listnám. Í stærri samfélögum finnst fólki ekki að það eigi erindi við listirnar en í litlu samfélagi eins og okkar er listamaður í hverri fjöl- skyldu, einstaklingur sem lét ekki segja sér að hann gæti ekki lifað af listinni einni saman heldur varð listamaður eða fann sér starfsvett- vang í skapandi greinum. Við vitum sannarlega að mörgu af þessu fólki hefur gengið það vel að það er orð- ið að fyrirmynd yngra fólks. Á bak við listir og listnám býr ákveðið hugarfar sem hefur áhrif langt út fyrir listgreinarnar sjálfar. Fjöl- margt ungt fólk nýtir listamenntun þegar það fer út á vinnumarkaðinn, hvort sem það eru læknar sem kunna að bródera vel eða heim- spekingar sem verða góðir við- skiptamenn. Annað sem hefur breyst er þátt- taka kvenna í atvinnu- og þjóðlífi. Þegar ég var ungur stjórnandi árið 1984 voru konur farnar að láta til sín taka og tíðarandinn fór smám saman að breytast. Þar sem ég var liðstjórnandi þurfti ég að sitja ótal fundi og þar lærði ég dýrmæta lexíu. Ég tók eftir því að leiðinleg- ustu fundirnir voru þeir þar sem voru bara karlmenn, þar var hræði- legur karlahúmor áberandi og fund- irnir fullkomlega árangurslausir. Svo sat ég fundi með konum þar sem ég var eini karlmaðurinn og Engin hug- mynd er betri en fram- kvæmdin ÁRNI EINARSSON TELST EINN ÁHRIFAMESTI MAÐUR Í ÍS- LENSKRI BÓKAÚTGÁFU SÍÐUSTU ÁRATUGA. Í VIÐTALI RÆÐIR HANN MEÐAL ANNARS UM BÓKAÚTGÁFU OG HLUTSKIPTI RITHÖFUNDA, SAMFÉLAGSFRAMFARIR OG MIK- ILVÆGI ÞESS AÐ VERA MEÐ LOFTNET UPP ÚR HÖFÐINU OG KUNNA AÐ FANGA HUGMYNDIR. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is * Þegar ég var að alast upp var við-mótið: Hvað ert þú að vilja upp ádekk, drengur? Þetta segir enginn lengur við ungt fólk og er til marks um það hversu miklar samfélagsframfarirnar hafa verið síðustu áratugi. Svipmynd

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.