Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.07.2014, Síða 15
20.7. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Hvar og hvenær? Frá föstudegi fram á sunnudag, þétt dagskrá á laugardag frá kl. 13-17.
Nánar: Þétt og skemmtileg dagskrá verður í Galtalæk um helgina. Andlitsmálning, blöðru-
menn, hoppukastali, Jón Arnar töframaður, Ávaxtakarfan og Ævar vísindamaður og fleiri
verða á svæðinu auk þess mun Pollapönk og Ingó halda uppi gleðinni um kvöldið.
Fjölskylduhátíð í Galtalæk
Friðrika Hjördís Geirsdóttir hefur í
nógu að snúast þessa dagana en hún
vinnur nú að annarri þáttaröð Léttra
spretta á Stöð 2. Þar gefur hún góðar
hugmyndir að afþreyingu utandyra en
sjálf er hún mikið fyrir útivist. Hún á
tvo drengi, 6 og 7 ára, og þykir fátt
skemmtilegra en að fræða þá um eitt-
hvað nýtt.
Þátturinn sem allir geta horft á?
Gamlir Fóstbræðraþættir. Við náum
öll að hlæja að þeim.
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá
öllum?
Ætli það sé nú ekki bara heimagerð
pitsa. Þá fá allir að velja sér sitt
álegg og allir glaðir.
Skemmtilegast að gera saman?
Mér finnst virkilega skemmtilegt
að fræða strákana mína um eitt-
hvað nýtt. Það er svo gaman að sjá hvað börn á þess-
um aldri (6 og 7 ára) eru að hugsa og hvað þau eru
fróðleiksfús. Bestu stundirnar okkar eigum við
saman í útivistinni, hvort sem að það sé í formi
fjöruferðar eða við að læra eitthvað nýtt eins og að
fara á kajak.
Borðið þið morgunmat saman?
Við náum því því miður allt of sjaldan á virkum
dögum en erum dugleg að búa til bröns uppi í
sumarbústað um helgar.
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar?
Við erum dugleg að drífa okkur út í fótbolta eða hjólatúr eftir skóla og vinnu.
Það er svo endurnærandi að fara aðeins út og hreyfa sig eftir langan vinnudag.
Hvað er á dagskrá í sumar hjá fjölskyldunni?
Við erum mjög dugleg að fara upp í sumarbústað bæði á virkum dögum og um
helgar. Það er okkar frí en hver veit nema við kíkjum út fyrir landsteinana áð-
ur en skólinn byrjar í haust.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Friðrika Hjördís Geirsdóttir
Morgunblaðið/Eva Björk
Endurnærandi að hreyfa
sig eftir langan vinnudag
Uppskriftin er fyrir nokkra liti.
1 ½ tsk. maíssterkja
¼ tsk. fínt hveiti
2 tsk. hunang
½ tsk. vatn
Matarlitur
Ílát fyrir málninguna
Hrærið saman maíssterkjuna og
hveitið í litla skál og bætið síðan
við vatni og hunangi. Skiptið
blöndunni í eins marga hluta og
þið viljið, fer eftir því hversu
marga liti á að búa til. Snjallt er
að nota eggjabakka. Bætið við
nokkrum dropum af matarlit út í
hvern skammt þar til liturinn verð-
ur sá sem á verður kosið. Þá er lít-
ið annað að gera en að mála lítil og
snotur andlit!
Ath. Andlitsmálningin er gerð
úr hráefnum sem má borða, svo
málningin er fremur eins og
varasalvi en t.d. vatns-
litir. Gott er að dýfa
pensli í hveiti og
bursta því aðeins
yfir andlitið svo
málningin festi
sig betur.
ANDLITSMÁLNING SEM INNIHELDUR ENGIN AUKAEFNI
Heimatilbúin
andlitsmálning
Það er vinsælt hjá smá-
fólkinu að fá andlits-
málningu og bregða sér
í ýmis hlutverk.
Morgunblaðið/Eggert
LÍKT OG MEÐ SNYRTIVÖRUR GETA VERIÐ ÝMIS AUKAEFNI Í ANDLITSMÁLNINGU FYRIR
BÖRN SEM EKKI ER ÚTLISTAÐ Á INNIHALDSLÝSINGUM. ÞAÐ ER LÍTIÐ MÁL AÐ BÚA TIL
EIGIN ANDLITSMÁLNINGU ÚR NÁTTÚRULEGU HRÁEFNI SEM ÓHÆTT ER AÐ BORÐA. ÞÓ
MÁ MEÐ SANNI SEGJA AÐ BRAGÐIÐ SÉ EKKERT SÉRSTAKLEGA LJÚFFENGT.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Það er sniðugt
að nota
eggjabakka
sem ílát fyrir
málninguna.
Hverjum finnst and-
litsmálning ekki
skemmtileg?
Gott er að setja
örlítið hveiti yfir
andlitið þegar
búið er að mála
svo málningin
haldist betur.
Tímón og Púmba.
Hakuna Matata!
Þessi orð eru sönn.*
Hlý
r og
not
aleg
ur
Laugavegi 25, 101 Reykjavík. Sími 552-7499
Hafnarstræti 99-101, 600 Akureyri. Sími 461-3006 www.ullarkistan.is
Gæða ullarfatnaður
á alla fjölskylduna
frábært verð