Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.07.2014, Síða 19
inn að kaupa eitthvað af þeim,
svona búninga.“
Er meira úrval af þeim þeim hér
en heima? – Nei, það er meira
heima,“ segir hann og dregur seim-
inn.
En eru þeir þá ódýrari hér?
„Nei, ekkert svo, það munar
kannski bara svona 2.000 krónum.
En ég fór í H&M keypti mest þar,
fyrir 120 evrur, sem ég var búinn
að safna mér,“ segir þessi mikli
verslunarmaður. Tinna fór líka í
H&M en segist ekki hafa verslað
eins mikið. Ég er búin að kaupa
mér einn kjól, skyrtu og buxur.
Það er alveg nóg fyrir mig. Þau
segja að fjölskyldur þeirra beggja
hafi ákveðið með skömmum fyr-
irvara að fara til Mallorca. „Við
héldum að það yrði rigning heima í
sumar eins og í fyrrasumar,“ en
bæði búa þau í Reykjavík. „Reynd-
ar var ég í Danmörku í fyrrasumar
og þar var veðrið fínt,“ segir Tinna
og brosir. Þeim finnst æðislegt að
geta vaknað á morgnana og farið
beint út í sundlaug í góða veðrinu.
En mynduð þið vilja búa á Mal-
lorca allan ársins hring? „Þetta er
erfið spurning,“ segja þau bæði og
hugsa sig um. „Hitinn er stundum
of mikill og það er geggjað að vera
á hóteli en að búa hérna, það er
dálítið annað mál,“ segja frænd-
systkinin og sættast á að allt sé
gott í hófi.
Ætla aftur til Mallorca þegar
þær eru orðnar stórar
Þær eru veraldarvanar tvíburasyst-
urnar Birna Rut og Auður Bergr-
ún Snorradætur því þær hafa að
eigin sögn farið fjórum sinnum í
sumarfrí til Mallorca og einu sinni
til Tenerife. Það er öðruvísi að
vera í sumarfríi á Mallorca en á
Akureyri þar sem við búum,“ segja
þær. Það er engin sundlaug í garð-
inum heima.“
En hvernig er það með sólina,
er hún jafnmikil á Akureyri?
„Nei,“ svara þær í kór en finnst
sólin á Mallorca samt ekkert of
heit. „Ef það er of heitt úti þá för-
um við bara inn eða á trampól-
ínið.“
Eruð þið búnar að versla svolít-
ið? Já, við erum búnar að kaupa
fullt af ís, blævængi, veski, kjóla,
leggings og boli,“ og að sjálfsögðu
fóru þær í H&M. „Við keyptum
golfbuxur þar. Á ég að segja þér
hvað við æfum?“ spyr Birna Rut
og þær systurnar halda áfram eins
og samhæfður kór: Við æfum
sund, skíði, golf, handbolta og fót-
bolta.“
Vá, og hvort æfið þið með KA
eða Þór? „Þór og í handboltanum
KA/Þór.
Og eruð þið búnar að fara í
minigolf? „Minigolf? hvá þær.
„Nei, við erum ekkert búnar að
fara í golf hér, við tókum ekki
golfsettið með,“ segja þær og
horfa undrandi á þennan skilnings-
sljóa blaðamann.
Viljið þið fara aftur til Íslands?
„Nei.“ Svarið er stutt og laggott.
„En þegar við erum orðnar stórar
ætlum við að koma hingað aftur,“
og þar með voru þær roknar út í
sundlaug.
Krökkunum fannst æðislegt að vakna á morgnana og hoppa beint út í sundlaug.
20.7. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Ferðalög og flakk
Hringinn í kringum eyjuna
Valldemossa er einn af þessum litlu, yndislegu bæjum á Mallorca sem eru svo
allt öðruvísi en við eigum að venjast. Þröngar götur, kaffihús og markaðir.
Jafnvel þótt börnum þyki flestum ekkert of skemmtilegt að sitja í bíl í
sumarfríinu sínu þá er það kostur góður að taka bílaleigubíl á Mallorca og
ferðast sjálfstætt í eins og þrjá daga. Það er mjög auðvelt að keyra bíl á
Mallorca. Bílaleigubíll er ódýr farkostur (ólíkt því sem hann er hér á landi)
en þriggja daga leiga hjá viðurkenndri bílaleigu kostar frá 18-25 þúsund
miðað við ódýrari flokka. En kosturinn við það að vera á bíl er að geta
ferðast sjálfstætt og það er bæði miklu þægilegra og skemmtilegra en að
vera upp á ferðaskrifstofu kominn þótt þær geti verið ágætar. Á eigin bíl
er hægt að fara með krakkana í alla skemmti- og vatnsrennibrautargarða
hvenær sem er og hvar sem er og áreiðanlega fyrir minna fé en ferða-
skrifstofurnar taka fyrir umsjónina. Auk þess er hægt að skoða eyjuna
betur en það er nokkuð fljótgert, enda er hún lítil. Það er hins vegar
ágætt að panta bíl hjá þeirri bílaleigu sem ferðaskrifstofan eða hótelið
mælir með eða hjá alþjóðlegum þekktum bílaleigum, það geta verið
óprúttnir í þessum bransa á netinu.
Ég komst að því í skyndirannsókn að krakkarnir í ferðinni höfðu ekkert
síður gaman af því að versla en hinir fullorðnu og höfðu oftar en ekki
með sér eigin gjaldeyri, sem þeim hafði annaðhvort verið gefinn eða þau
safnað sér fyrir. Ferð í verslunarmiðstöðina Porto Pi í Palma og sér-
staklega í sænska móðurskipið H&M naut sérlegra vinsælda hjá ungu kyn-
slóðinni. Unga kynslóðin hefur einnig gott af því að kynnast annarri
menningu og skoða annað en strendurnar á Mallorca og það sem meira
er, hún hefur gaman af því – enda eru t.d. allt öðruvísi hús og götur á Mal-
lorca en heima.
Valldemossa er lítill og fallegur bæ, í vesturátt frá Palma, og þangað er
ekki nema klukkustundarakstur. Endilega farið fjallveginn þótt hann sé
svolítið bugðóttur en landslagið þar er dálítið öðruvísi og hrjóstugra en
annars staðar á eyjunni. Á heimleiðinni mætti koma við í bænum Sóller. Ef
maður fer í austurátt frá Palma er hægt að koma við í Manacor en þar
eru hinar frægu Mallorca-perlur framleiddar og á efri hæð í stórri búð er
sýnt hvernig framleiðsluferlið fer fram. Ekki langt frá eru Drekahellarnir.
Á leiðinni niður í hellana, sem eru þekktir frá því í lok 19. aldar, birtast
gestum sérkennilegar bergmyndanir sem minna helst á grýlukerti. Falleg
lýsingin gerir þetta að algjörri veislu fyrir augað. Þegar nær dregur vatn-
inu heyrast fallegir sínfónískir tónar. Hægt er að sigla á vatninu með bát
en heimsókn tekur um eina klukkutund af farið er í hellana með leiðsögn.
Ef stefnunni er svo snúið og haldið í norðaustur, til Alcudia, er þar virki
sem er skemmtilegt að skoða, þröngar verslunargötur sem eru dálítið
einkennandi fyrir gamla miðbæi á Mallorca og kaffihús en í bænum er
einnig að finna vatnsrennibrautargarð. Aksturinn frá Palma til Alcudia
tekur um eina og hálfa klukkustund og jafnvel mætti bæta Inca við á baka-
leiðinni en sá bær er frægur fyrir leðurframleiðslu sína. Það er því stutt á
milli staða á Mallorca og hægt að keyra á milli margra bæja á einum degi,
bara að muna að stoppa nógu oft fyrir ungu kynslóðina og leyfa henni að
skoða sig um og finna ævintýrin.
Það er nánast sama á hvaða strönd
er komið, alls staðar er hægt að
finna góða matsölustaði á Mallorca.
Sums staðar eins og í Playa de
Palma og í Palma Nova er fjöl-
breytnin mjög mikil. Þar er t.d.
hægt að finna franska, gríska, ítalska
og kínverska matsölustaði sem allir
eru mjög góðir. Flestir veitinga-
staðir bjóða einnig upp á sérstakan
barnamatseðill, þar sem eru sér-
stakir barnaskammtar og eru því á
lægra verði en fullorðinsskammtar.
Þar má t.d. fá hamborgara, lasagna
og spagettí bolognese en algengt
verð á þeim réttum var um 800-
1.000 kr. Góð aðalmáltíð, eins og
sirloin-steik eða önd kostaði um
2.000-3.000 kr. Gos kostaði á milli
200-300 kr. á veitingastað. Glas af
víni hússins var frá 450-600 kr. og
kaffi var á 250-300 kr. Það sem
börnunum fannst hins vegar oftast
best voru veitingahúsin sem voru
ekki heima, nefnilega þessi heims-
frægu Burger King og McDonalds –
og vissulega varð að láta það eftir
þeim kvöld og kvöld og sleppa hin-
um girnilegu veitingastöðum en
fyrir vikið varð kvöldmáltíðin í það
heila ódýrari! Þá má ekki gleyma
pitsunni sem er alltaf vinsæl hjá
krökkum en á Mallorca eru búnar
til ágætis pitsur. Þá var ekkert mál
að panta einn rétt og fá tvo, jafnvel
þrjá diska til þess að dreifa rétt-
inum á, því stundum er matarlystin
ekki upp á marga fiska hjá börnum í
sólarlöndum og skammtarnir oft
stórir. Þá er um að gera að deila. En
varðandi verðlag þá er það almennt
ólíkt betra á Mallorca en í mörgum
stórborgum heims, stórborgin
okkar, Reykjavík, þar með talin, en
gæðin ekki minni og oftast gat fjöl-
skyldan öll fengið eitthvað við sitt
hæfi. Í heild er dýrt að fara í fjöl-
skyldufrí í 10-14 daga og fyrir fjög-
urra manna fjölskyldu er reikning-
urinn varla undir 600.000 krónum
og er þá varlega áætlað.
SÉRSTAKIR BARNAMATSEÐLAR
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Ert þú búin að prófa nýja
lágkolvetnabrauðið okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.