Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.07.2014, Page 22
fótboltaæfingar. Pole fitness er íþróttagrein eins
og bæði fimleikar og fótbolti. Auðvitað skiptir
máli að æfingarnar séu í sam-
ræmi við aldur og
þroska þátttak-
enda en fyrir utan
það er þetta alveg eins
og að senda börnin þín á fimleikaæfingu
eða í samkvæmisdans,“ segir Nanna og þakkar
aukinni umfjöllun í fjölmiðlum og fjölgun þátt-
takenda í pole fitness þann viðsnúning sem hef-
ur verið í viðhorfi til greinarinnar.
Íþrótt sem reynir á alla vöðva
Einhverjum kann að þykja lítið til þess koma að
gera æfingar á súlu en sá hinn sami gerir sér
ekki grein fyrir þeirri gífurlegu tækni, einbeit-
ingu og úthaldi sem þarf til að gera jafnvel ein-
földustu æfingar við og á súlunni. „Í fimleik-
unum kynntist ég ströngum æfingum og pole
fitness er ekki svo ólíkt þeim enda reynir á alla
vöðva líkamans og margir sem hafa ekki grunn
úr öðrum íþróttum munu uppgötva vöðva sem
þeir vissu ekki að væru til. Í raun er þetta ekki
svo frábrugðið öðrum æfingakerfum sem reyna
á eigin líkamsþyngd eins og í t.d. crossfit sem
hefur farið sigurför um landið á undanförnum
árum. Munurinn er kannski sá að hér vinnum
við með og við súluna og skiptir tækni ekki síð-
ur máli en styrkur og þol.“ Byrjendur mega því
búast við erfiðum æfingum sem reyna vel á en
eru að sögn Nönnu skemmtilegar og blanda
saman list og þrekæfingum. „Hreint pole fitness
er ekkert annað en mjög öflugt æfingakerfi til
að æfa og styrkja líkamann. Aðrir sem vilja út-
rás fyrir listræna sköpun sína geta blandað
saman pole fitness og dansi í svo köll-
uðu pole dans en þar er formið
frjálsara en engu að síður
krefjandi.“
N
ýjungagirni Íslendinga sést vel í öllum
þeim fjölda nýrra íþróttagreina sem
njóta vinsælda hér á landi. Pole fit-
ness er ein þeirra vinsælu íþrótta-
greina sem hafa numið hér land undanfarinn ára-
tug en það voru nokkrar framtakssamar stelpur
sem hófu að stunda íþróttina og kenna hana hér
á landi. Þrátt fyrir að njóta ekki sömu vinsælda
og mörg önnur ný æfingakerfi líkt og crossfit eða
bootcamp er engu að síður töluverður fjöldi sem
stundar pole fitness og fer vaxandi samkvæmt
Nönnu Yngvadóttur, pole fitness kennara og
keppanda, en hún hefur kennt og keppt í pole fit-
ness bæð á Íslandi og í Danmörku. „Það heftir
vöxt greinarinnar að strákar sækja í miklu minna
mæli í hana en stelpur. Það er þó alls kostar ekki
þannig að strákar stundi íþróttina ekki yfirhöfuð
og við finnum fyrir auknum áhuga stráka sem
vilja prófa að spreyta sig á stönginni og kynnast
þessu krefjandi æfingakerfi,“ segir Nanna, sem
jafnframt bendir á að í dag megi finna stráka
sem stundi íþróttina reglulega og keppi í henni.
Sjálf byrjaði Nanna að stunda pole fitness árið
2009 þegar vinkonur hennar drógu hana með sér
á æfingu. „Ég hafði verið í fimleikum í mörg ár
og var að leita mér að einhverju nýju þegar vin-
konur mínar fengu mig með sér á eina æfingu. Í
dag eru þær löngu hættar en
ég er enn að og
hef bæði keppt og
kennt pole fitness
síðan.“ Bakgrunnur Nönnu úr
fimleikum hefur hjálpað henni mikið og segir
hún gott að fólk hafi einhvern bakgrunn úr fim-
leikum eða dansi. „Fimleikarnir gerðu mér auð-
veldara fyrir að gera margar krefjandi æfingar á
súlunni en það er alls engin nauðsyn að fólk hafi
bakgrunn úr öðrum íþróttum áður en það kemur
í pole fitness. Það skiptir mestu máli að fara ró-
lega af stað, hlusta á kennarann og læra und-
irstöðuatriðin vel. Skiptir engu hvort fólk komi
sprenglært úr öðrum íþróttagreinum, allir þurfa
að læra sama grunninn áður en farið er í flóknari
og erfiðari æfingar á súlunni.“
Fordómarnir minni en í upphafi
Nýjar íþróttagreinar þurfa oft að vinna gegn for-
dómum en fáar jafn mikið og pole fitness. Sam-
sömun við súludans, sem flestir þekkja sem eró-
tískan dans á súlu, hefur ekki verið
íþróttagreininni til framdráttar en Nanna segir
fólk farið að átta sig á því að þó að súlan sé sam-
nefnari erótíska súludansins og pole fitness sé
fátt annað líkt með þessum tveimur greinum.
„Auðvitað höfum við fundið fyrir fordómum og
finnum enn fyrir þeim. Mér finnst samt sem áður
að fólk líti íþróttina öðrum augum í dag en það
gerði fyrir örfáum árum. Það væri ekki heldur
allur þessi fjöldi að æfa ef viðhorf fólks hefðu
ekki breyst eitthvað.“
Enn heyrast þó gagnrýnisraddir þegar auglýst
eru námskeið fyrir börn og unglinga í pole fitness
og þykir þá eflaust einhverjum ekki viðeigandi að
börn séu að sveifla sér á súlu. „Sama
gagnrýni heyrist ekki þegar auglýst
eru dansnámskeið fyrir börn eða
NÝ ÍÞRÓTTAGREIN Í MIKLUM VEXTI
Pole fitness byggir
upp styrk og þol
NANNA YNGVADÓTTIR HEFUR ÆFT, KENNT OG KEPPT Í POLE FITNESS
Í AÐ VERÐA FIMM ÁR. HÚN SEGIR ÍÞRÓTTAGREININA VERA KREFJANDI
OG ERFIÐA EN VIRKILEGA SKEMMTILEGA OG GEFANDI. GREININ ER
EKKI LAUS VIÐ ALLA FORDÓMA EN VIÐHORF HAFA BREYST MIKIÐ
OG ÞÁTTTAKENDUM FJÖLGAÐ HRATT Á UNDANFÖRNUM ÁRUM.
Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is
Fimleikar og aðrar
krefjandi íþróttir eru
góður undirbúningur
en alls engin nauðsyn
fyrir þá sem vilja æfa
pole fitness.
Morgunblaðið/Eggert
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Iðkendur fá einnig útrás fyrir listræna
sköpun í gegnum æfingakerfið.
Þrátt fyrir að súlan virki sakleysisleg eru
æfingarnar á henni einstaklega krefjandi.
Nanna Yngvadóttir byrjaði að
æfa polefitness fyrir fimm árum
og í dag kennir hún og keppir
í íþróttagreininni.
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.7. 2014
Heilsa og hreyfing
Íslendingar eru ansi margir nokkuð yfir kjörþyngd og þar sem holdafar hefur áhrif á heilsuna ættu
allir að huga vel að þyngdinni og huga að því að vera innan eðlilegra marka. Með því að fylgja ráð-
leggingum sem t.d. landlæknisembættið hefur gefið út er hægt að koma í veg fyrir óæskilega þyngd-
araukningu og koma þyngdinni í eðlilegri mörk með réttu mataræði og hreyfingu.
Holdafar hefur áhrif á heilsu