Morgunblaðið - 12.06.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014
SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA
Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á
sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan.
Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur
sínum náttúrulega lit.
GERUM SÓLPALLINN
EINS OG NÝJAN
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
„Ég held að það sé óhætt að segja að
almennt séð standi hjúkrunarheimilin
enn frekar illa,“ segir Júlíus Rafnsson,
forstöðumaður Dvalar- og hjúkrunar-
heimilisins Áss í Hveragerði en Sam-
tök fyrirtækja í velferðarþjónustu
gerðu á þriðjudag samning við fjár-
mála- og efnahagsráðuneytið þar sem
ríkið yfirtók nær allar lífeyrisskuld-
bindingar hjúkrunarheimila vegna
starfsmanna þeirra í B-deild LSR og
LH. Fjárhæð yfirtekinna lífeyris-
skuldbindinga nemur tæplega sex
milljörðum króna og segir Júlíus mik-
inn kost fólginn í því að samningur hafi
náðst milli ríkis og hjúkrunarheimil-
anna. „Það er ekki hægt að neita því að
samningurinn léttir örlítið undir í okk-
ar rekstri og fjármálaráðherra á þakk-
ir skildar fyrir að hafa fallist á að af-
greiða hlutina með þessum hætti.
Daggjöld eru hins vegar of lág og það
bitnar mismunandi á hjúkrunarheim-
ilunum. Sjálfseignarstofnanir fara
hvað verst út úr því. Ríkið treystir á að
sveitarfélögin greiði taprekstur elli-
heimila í eigu sveitarfélaga á meðan
sjálfseignarstofnanir þurfa að ganga á
eigið fé með sölu fasteigna eða öðru
slíku,“ segir Júlíus.
Ríkið gerði tímabundinn samning
um að yfirtaka rekstur hjúkrunar-
heimilisins Sunnuhlíðar um seinustu
áramót vegna rekstrarerfiðleika en
samningurinn er tímabundinn og gild-
ir til næstu áramóta.
Engin niðurstaða
Að sögn Þóru Þórarinsdóttur, for-
manns stjórnar Sunnuhlíðar, eru mál
Sunnuhlíðar í vinnslu en ekki er komin
nein niðurstaða varðandi framhald
rekstrarins. „Það er verið að vinna í
bæði gömlum málum og nýjum svo
þetta er stór pakki sem við erum að
vinna með. Það er því lítið hægt að
segja til um framhaldið á þessu stigi
málsins. Ég finn hins vegar ekki annað
en að það sé fullur vilji ríkisins og
Kópavogsbæjar að halda áfram að
styðja við þetta,“ segir Þóra.
Daggjöld of lág og rekstur
hjúkrunarheimila erfiður
Samningur við ríkið léttir undir Mál Sunnuhlíðar í vinnslu
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Hérna er að koma saman fjöl-
breytilegur hópur fólks og ég held
að það endurspegli borgina líka.
Þessi framboð voru með stuðning
2/3 borgarbúa á bak við sig þannig
að við erum að fara að stýra breið-
um meirihluta,“ segir Dagur B.
Eggertsson, oddviti Samfylkingar
og verðandi borgarstjóri í Reykja-
vík.
Samstarfssáttmáli við myndun
meirihluta borgarstjórnar Reykja-
víkur var kynntur í Elliðaárdalnum í
gær. Eru það fjórir flokkar, Sam-
fylking, Björt framtíð, Vinstri græn
og Píratar sem koma til með að
mynda nýja borgarstjórn. Mun S.
Björn Blöndal, oddviti Bjartrar
framtíðar, verða formaður borgar-
ráðs, Sóley Tómasdóttir, oddviti
Vinstri grænna, verður forseti borg-
arstjórnar og Halldór Auðar Svans-
son, oddviti Pírata, mun taka að sér
að leiða nýtt lýðræðisverkefni í
borginni sem formaður stjórnkerfis-
og lýðræðisnefndar.
Verðandi borgarstjóri segir nýjan
meirihluta koma til með að leggja
áherslu á íbúalýðræði, samráð, þjón-
ustu við fjölskyldur og húsnæðismál.
Ábyrg fjármálastjórn á oddinn
Í nýkynntum samstarfssáttmála
kemur m.a. fram að borgin mun
koma til með að beita sér fyrir því
að 2.500 til 3.000 leigu- og
búseturéttaríbúðir fari í uppbygg-
ingu í Reykjavík á næstu þremur til
fimm árum. Í viðtali sem birtist á
mbl.is í gær þvertekur Dagur fyrir
að útgjöld tengd húsnæðismálum
eða auknum framlögum til skóla- og
frístundamála muni leiða til hækk-
ana á álögum.
„Við byggjum þetta á traustum
rekstri og ábyrgri fjármálastjórn.
Við stefnum að því að húsnæðismál-
in verði unnin í samvinnu við mjög
marga,“ segir Dagur og bætir við að
meginmarkmiðið sé heilbrigður hús-
næðismarkaður í höfuðborginni.
S. Björn Blöndal, verðandi for-
maður borgarráðs, segir flokkana
fjóra vera sammála um hvert stefna
skal í breiðu línunum. „Við erum öll
sammála um að þróa þessa borg í
ákveðna átt en síðan eru mismun-
andi skoðanir um ákveðin útfærslu-
atriði,“ segir S. Björn. Aðspurður
segir hann meirihlutaviðræður
flokkanna hafa gengið vel. „Við vor-
um mjög samstiga og sammála um
að finna lausnir á þeim ágreinings-
efnum sem komu upp, vorum ófeim-
in við að setja hugsanleg ágreinings-
efni á borðið og leysa þau strax.“
Til stendur að auka fjármagn til
skóla- og frístundasviðs um 100
m.kr. á næsta ári auk þess sem 200
m.kr. til viðbótar verða settar til
lækkunar á námsgjöldum í leikskól-
um árið 2016. Aðspurður segir S.
Björn borgina hafa rými til þessara
skrefa. „Svo sjáum við til síðari
hluta kjörtímabilsins hvernig fjár-
hagsstaðan verður og þá hvort tekin
verði frekari skref.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Borgarstjórn Reykjavíkur Boðað var til blaðamannafundar í Elliðaárdal síðdegis í gær þar sem samstarfssáttmáli nýs meirihluta í borginni var kynntur.
Álögur munu ekki hækka
Borgin mun beita sér fyrir því að 2.500 til 3.000 leigu- og búseturéttaríbúðir fari
í uppbyggingu á næstunni Nýr meirihluti sagður endurspegla fjölbreytta borg
„Ég þakka þessa niðurstöðu því að ég
er búinn að vera virkur í samninga-
viðræðum um hafréttarmál á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna undan-
farna tvo áratugi. Svo skiptir máli að
Ísland hefur mjög gott orðspor á
þessu sviði. Þetta er viðurkenning
fyrir mig persónulega en ekki síður
fyrir Ísland,“ sagði Tómas H. Heiðar
þjóðréttarfræðingur í samtali við
Morgunblaðið. Hann var í gær kjör-
inn dómari við Alþjóðlega hafréttar-
dóminn í Hamborg.
Kosningin fór fram á fundi aðildar-
ríkja hafréttarsamnings Sameinuðu
þjóðanna í New York. Tómas hlaut
afgerandi kosningu í sæti sem til-
heyrir Vesturlöndum, fékk 124 at-
kvæði, en mótframbjóðandi hans frá
Austurríki hlaut 30 atkvæði. Hafrétt-
ardómurinn er skipaður 21 dómara,
þar af þremur frá Vesturlöndum. Sex
aðrir dómarar voru kjörnir að þessu
sinni. Tómas var í framboði af hálfu
Íslands og annarra norrænna ríkja.
Keppinautur hans um sætið var Hel-
mut Türk frá Austurríki sem hefur
gegnt stöðu dómara við Hafréttar-
dómstólinn undanfarin níu ár. Hann
sóttist eftir endurkjöri og var að
þessu sinni tilnefndur af Möltu.
Kosinn til níu ára
Tómas mun taka við dómaraemb-
ættinu 1. október en hann var kjörinn
til níu ára. Hann hefur gegnt starfi
þjóðréttarfræðings í utanríkisráðu-
neytinu frá árinu 1996 en lætur nú af
því starfi. Hann verður áfram for-
stöðumaður Hafréttarstofnunar Ís-
lands. „Það starf er akademískt og
fer mjög vel saman við dómaraemb-
ættið,“ sagði Tómas.
„Þetta er
mikil viður-
kenning“
Íslenskur dómari
við hafréttardóminn
Dómari Tómas með Grétu Gunnars-
dóttur (t.h.) og Maríu Mjöll Jónsdótt-
ur sem stjórnaði kosningabaráttunni.
„Ég er ágætlega spenntur og ég
held að við höfum náð fínni lend-
ingu í sáttmálanum okkar,“ segir
Halldór Auðar Svansson, oddviti
Pírata og verðandi formaður
stjórnkerfis- og lýðræðisnefndar.
Aðspurður segir hann mörg
áherslumál Pírata hafa komist á
blað en helst vill hann nú sjá að
aukið aðgengi að upplýsingum
verði sett í forgang.
„Það er einnig lykilatriði í lýð-
ræðislegri þátttöku að almenn-
ingur sé sáttari
við ákvarðana-
tökuna og geti
haft meira um
hana að segja.
En eitt af því
sem fólk kvartar
undan er að það
fær að vita af
hlutunum of
seint til þess að
geta haft eitthvað um þá að
segja.“
Auka flæði upplýsinga til fólks
STEFNUMÁL PÍRATA FÁ HLJÓMGRUNN Í BORGINNI
Halldór Auðar
Svansson