Morgunblaðið - 12.06.2014, Side 40

Morgunblaðið - 12.06.2014, Side 40
FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 163. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Fannst látin í Fljótshlíð 2. Hefði ekki átt að fara í fjölmiðla 3. Nauðgaði stúlku á víðavangi 4. Álfakirkjan verður færð »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Opnunarhátíð Bæjarbíós í Hafnar- firði fer fram um helgina, en húsið hefur hin síðustu ár verið nær ein- göngu notað til kvikmyndasýninga á vegum Kvikmyndasafns Íslands. Menningar- og listafélag Hafnar- fjarðar tók við lyklunum að húsinu fyrir skömmu og stefnir að því að bjóða upp á fjölbreytta listviðburði, m.a. kvikmyndasýningar og tónleika. Einn frægasti sonur Hafnarfjarðar, Björgvin Halldórsson, hefur hátíðina annað kvöld kl. 20 með tónleikum í Bæjarbíói sem verða jafnframt fyrstu tónleikar hans í Hafnarfirði, eins ótrúlega og það nú hljómar. Björgvin mun flytja úrval laga sinna ásamt hljómsveit og á laugardaginn kl. 21 verður svo boðið upp á hafnfirskt bíógrín. Þá verða sýndar tvær myndir eftir Gunnar Björn Guðmundsson, annars vegar kvikmyndin Astrópía og hins vegar stuttmyndin Karamellu- myndin, en sögusvið beggja er Hafnarfjörður. Milli sýninga munu Radíusbræðurnir Steinn Ármann og Davíð Þór fara með gamanmál. Á sunnudaginn verða svo fjórar kvik- myndir eftir Þráin Bertelsson sýndar: Jón Oddur og Jón Bjarni, Löggulíf, Dalalíf og Nýtt líf. Morgunblaðið/Golli Bíó og Bó í Bæjarbíói  Verslunarmiðstöðin Smáralind mun færa Reykjavíkurborg högg- myndina Hafmeyjuna, eftir Nínu Sæ- mundson, að gjöf í dag og mun Jón Gnarr borgarstjóri taka formlega á móti henni í Hljómskálagarðinum kl. 14. Styttan mun standa í högg- myndagarði sem komið verður upp til minningar um formæður íslenskrar höggmyndalistar. Hafmeyjan afhent Á föstudag Austan og suðaustan 3-10 m/s, hvassast við S- ströndina. Dálítil rigning S- og V-lands, en annars bjartviðri. Á laugardag Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða lítilsháttar rigning eða skúrir. Áfram hlýtt í veðri, einkum NA-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg eða breytileg átt, skýjað að mestu og yfirleitt þurrt, en víða léttskýjað um landið norðanvert. VEÐUR 7. umferð Pepsi-deildarinnar í knattspyrnu lauk í gær- kvöld. FH og Stjarnan eru einu taplausu liðin í deildinni og eru í tveimur efstu sæt- unum. Íslandsmeistarar KR töpuðu sínum þriðja leik og bið Blikanna eftir fyrsta sigr- inum í sumar heldur áfram. »2,7 Þriðji tapleikur Ís- landsmeistaranna Kvennalandslið Íslands er úr leik í Evrópukeppninni þrátt fyrir auðveld- an sigur í Finnlandi í gær, þar sem Slóvakía náði stigi gegn Frökkum á meðan. Eftir leikinn grétu landsliðs- konurnar tap sitt gegn Slóvakíu í október en nú ræður það úrslitum í riðlinum. „Maður áttaði sig kannski ekki á því þarna í október hvað þetta var ótrúlega dýrkeypt tap,“ segir Karen Knútsdóttir fyrirliði. »8 Unnu stórsigur en gráta tapleik í október Nítján ára gamall Skagfirð- ingur, Jóhann Björn Sigur- björnsson, sló í gærkvöld 26 ára gamalt piltamet Jóns Arnars Magnússonar í 100 metra hlaupi. Jóhann sigraði í greininni á Vormóti ÍR á Laugardalsvelli þar sem hann hljóp á 10,71 sek- úndum. »1 Sló 26 ára gamalt met Jóns Arnars ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ingileif Friðriksdóttir if@mbl.is Þeir Gunnar Sigurðsson, Sveinn Kristinsson og Guðmundur Páll Jónsson ákváðu allir að gefa ekki kost á sér til bæjarstjórnarkosninga á Akranesi nýverið, en þeir hafa sam- tals setið í bæjarstjórn Akraness í 60 ár. Nú síðast sem oddvitar sinna hverra flokkanna, Gunnar sem odd- viti Sjálfstæðisflokksins, Sveinn sem oddviti Samfylkingar og Guðmundur Páll sem oddviti Framsóknarflokks- ins. Þremenningarnir hafa starfað mikið saman og hafa að eigin sögn verið lítið í ágreiningsmálum. Frem- ur hafa þeir einbeitt sér að því að vinna sameiginlega að hag bæjarins eftir bestu getu. Gunnar, sem hefur starfað sem formaður bæjarráðs og forseti bæjarstjórnar, auk þess að leiða lista í bæjarstjórninni, telur að hans tími hafi verið kominn og nú sé tímabært að leyfa öðrum að taka við keflinu. „Í fyrsta lagi held ég að minn tími hafi verið liðinn í pólitík og í öðru lagi sá ég fram á að það fengist mjög gott fólk í framboð, svo ég taldi að þetta væri mjög heppilegur tími til að hætta,“ segir hann spurður um ákvörðun sína að gefa ekki kost á sér áfram. „Ég er búinn að vera í 48 ár í félagsmálum og ég held að það sé góður kafli.“ Samstaða einkenndi samstarfið Guðmundur Páll segir tímann í bæjarstjórninni hafa verið viðburða- ríkan og skemmtilegan. „Það sem hefur einkennt okkar veru er mikið og náið samstarf, út á við sem ein heild. Fyrst og fremst störfuðum við í umboði íbúanna að vinna í stórum og smáum málum á þessum vettvangi,“ segir Guðmundur og bætir við að það hafi verið einstaklega gott að vinna með þessum heiðursmönnum. Mikil samstaða einkenndi sam- starfið, þrátt fyrir það að vissulega hafi verið tekist á. „Auðvitað geta menn verið með skiptar skoðanir, en þegar markmiðið er ávallt það sama er þetta allt saman gert í dreng- skap.“ Vissulega eru þetta ákveðin tíma- mót og ætla þeir að taka breyttum tímum fagnandi. Guðmundur Páll hefur starfað sem forstöðumaður Fjöliðjunnar á Akranesi og mun halda því áfram. Gunnar ætlar hins vegar að njóta lífsins og einbeita sér að fjölskyldunni. „Ég get farið að slaka á núna og njóta lífsins. Ég er kominn með fullt af börnum og barnabörnum sem ég get einbeitt mér að,“ segir Gunnar að lokum, sáttur við það að ganga frá borði og veita nýju fólki umboð til að starfa á vettvangnum. ,,Okkar tími var kominn’’  Sátu samtals 60 ár í bæjarstjórn Akraness Ljósmynd/Guðni Hansson Tekist á með drengskap Þeir Sveinn (t.v.), Guðmundur Páll (f.m.) og Gunnar (t.h.) hafa einbeitt sér að því að vinna að hag bæjarins. Þegar ágreiningsmál hafa komið upp hafa þeir tekist á við þau af drengskap. Við brotthvarf Gunnars, Guð- mundar Páls og Sveins úr for- ystusætum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylk- ingar hefur nýtt fólk tekið við þeirra hlutverkum. Nýr oddviti Samfylkingarinnar á Akranesi er Ingibjörg Valdimars- dóttir. Hún hefur starfað sem bæj- arfulltrúi og varaformaður bæjar- ráðs auk þess að vera vara- formaður stjórnar SSV og for- maður atvinnu- og ferðamála- nefndar. Ólafur Adolfsson, lyfsali og eig- andi Apóteks Vesturlands, tekur við sem oddviti Sjálfstæðisflokks- ins. Ingibjörg Pálmadóttir, hjúkr- unarfræðingur, fyrrverandi ráð- herra og alþingismaður, er nýr oddviti Framsóknarflokksins. Fólkið sem tekur við keflinu NÝIR ODDVITAR FLOKKANNA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.