Morgunblaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014 Þessi hrossagauksungi kom úr eggi í fyrrinótt í landi Haga í Aðaldal og horfir þarna inn í óræða framtíðina, þar sem hann hvílir í traustri hendi ungrar blómarósar, 8 ára gamallar, sem var í heimsókn hjá afa og ömmu í sveitinni. Hrossagauksungarnir fæðast dökkir, alsettir hvítum dröfnum og verða fleygir 19-20 daga gamlir. Ljósmynd/Sigurður Ægisson Splunkunýr hrossagauksungi í landi Haga í Aðaldal Horfir inn í óræða framtíðina Hvað leynist í laufinu? er heiti göngu sem prófessorarnir Hrefna Sigurjónsdóttir og Gísli Már Gísla- son leiða í Elliðaárdal í Reykjavík í dag 12. júní þar sem skyggnst verð- ur inn í heim skordýranna. Lagt verður af stað frá gömlu rafstöð- inni við Elliðaár kl. 19. Gert er ráð fyrir að gönguferðin taki um það bil tvær klukkustundir. Gangan er ókeypis og öllum opin og göngu- menn eru hvattir til að taka með sér stækkunargler. „Skordýr eru án efa fjölbreytt- asti flokkur dýra á jörðinni og á Ís- landi hefur skordýrum fjölgað und- anfarin ár af ýmsum ástæðum,“ segir m.a. í tilkynningu. Gangan er liður í samstarfi HÍ og Ferðafélags Íslands undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti.“ Morgunblaðið/Eggert Skoða heim skor- dýra í Elliðaárdal Ökufærni er lykilatriðið þegar ungmenni hefja akstur. Hvar fær ungmennið þitt kennslu? Hluti námsins fer fram í fullkomnum ökuhermi Áhersla lögð á færni nemenda og öryggi þeirra í umferðinni Allt kennsluefni innifalið Ökukennsla www.bilprof.is Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 • Opið 10-17 alla daga. Hringdu núna og bóka ðu ökuskól ann ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD – yfir 40 ár í fagmennsku. Þekking og reynsla í fyrrirúmi Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Skipulags- og byggingarfulltrúi Helgafellssveitar hefur auglýst eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipulagsbreytingu vatnsafls- virkjunar í Svelgsá í landi Hrísa í Helgafellssveit. Svæðið sem tillag- an tekur til afmarkast af spildu frá inntakslóni að sunnanverðu og nið- ur að þjóðvegi í norðri, en spildan liggur að mestu austanmegin við bakka Svelgsár. „Ástæðan fyrir þessum breyt- ingum á deiliskipulaginu er sú að landeigandi óskaði eftir því. Það er oft þannig að þegar menn gera deiliskipulag þá passa hlutirnir ekki inn í rammana þegar kemur að því að framkvæma þá. Þá þarf stundum að breyta skipulaginu,“ segir Jökull Helgason, skipulags- og byggingarfulltrúi Helgafells- sveitar. Orkuvinnsla eykst Breytingar á fyrirhugaðri vatns- aflsvirkjun í Svelgsá felast annars vegar í færslu stöðvarhúss um 180 metra til norðausturs og hins veg- ar í færslu stíflu ofar í hlíðina. Horfið er frá því að byggja jarð- vegsstíflu og þess í stað byggðar þrjár minni steinsteyptar stíflur í kvíslum Svelgsár um 450 metrum ofar í hlíðinni. Afl virkjunarinnar verður aukið úr 665 kW í 800 kW en með þessum breytingum eykst orkuvinnsla án þess að notað verði meira vatn þar sem virkjað fall er aukið úr 105 metrum í allt að 160 metra. „Það er ekkert stórmál að fara í þessar breytingar. Þetta er sama vatnið sem við erum að virkja og sama magn af vatni sem verður notað. Þetta snýst um það að við erum að hækka fallhæðina svo við fáum meira úr vatninu,“ segir Jök- ull en rafmagnið sem fæst með virkjuninni mun þjóna öllum landsmönnum. Umhverfisáhrif minnka Mannvirkjagerð virkjunarinnar felst m.a. í gerð stíflna, inntaks og stöðvarhúss, aðveiturörs og raf- veitu. Gert er ráð fyrir aðkomu- vegi að stöðvarhúsi og vegslóða að stíflu en Jökull telur breytinguna vera að sumu leyti mun skárri með tilliti til náttúrunnar „Það var gert ráð fyrir gríð- armiklum mannvirkjum eins og jarðvegsstíflum og miðlunarlóni en með þessari breytingu erum við að hætta við það. Í stað þess er vatn- ið tekið á hverjum stað í lækjar- sprænum þar sem þær eru stað- settar í stað þess að safna þeim saman. Það er því klárt að um- hverfisáhrifin minnka með þessu skipulagi,“ segir Jökull. Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson Virkjun Rafmagnsframleiðslan mun þjóna öllum hornum landsins. Skipulagi breytt í Helgafellssveit  Stærð virkjunar verður aukin Spámúsin HemMi spáir Japan sigri á heimsmeistaramóti karla í knatt- spyrnu. Um er að ræða leik, sem starfsmenn Keldu, tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræðum, stóð fyrir. Músin HemMi var fengin til að spá fyrir um sigurvegara heimsmeist- aramótsins í knattspyrnu. Nafn mús- arinnar er tilvísun í skammstöfun á heiti mótsins, HM, sem stendur fyrir heimsmeistaramót. Miðar merktir öllum þjóðum sem taka þátt í mótinu voru settir í box ásamt músinni forsjálu. HemMi valdi japanska miðann og verður áhugavert að sjá hvort spá hans rætist. Besti ár- angur Japans hingað til á heimsmeist- aramótinu í knattspyrnu er að komast í 16 liða úrslit og eru þeir með gott lið, en fáir spá þeim sigri á mótinu. Fordæmi fyrir spágetu dýra „Í íþróttakeppnum hafa dýr oft spáð fyrir um úrslit leikja og því feng- um við þessa hugmynd,“ segir Ívar Örn Árnason, starfsmaður á Keldum. Þar sem fáir hafa trú á möguleikum Japans á sigri er mögulegt að græða háar fjárhæðir ef veðjað er á að þeir sigri. „Mér finnst spáin ansi djörf. Skemmtilegt væri að sannfæra fram- kvæmdastjórann um að setja pening á Japan til að reyna að styrkja Keldur,“ segir Ívar og hlær. Spágáfa dýra í íþróttum á sér langa forsögu en frægasta dæmið er án efa þýski kolkrabbinn Páll, sem spáði rétt fyrir um alla leiki Þýskalands á heimsmeistaramóti karla í knatt- spyrnu árið 2010 og hlaut heimsfrægð fyrir. Auk þess að hafa spáð fyrir um alla leiki Þýskalands rétt spáði Páll rétt fyrir um úrslitaleik mótsins, en Spánn hlaut vinninginn. Á sama móti reis singapúrski páfagaukurinn Mani til metorða, en hann, líkt og Páll, spáði rétt fyrir um alla leiki Þýskalands. isb@mbl.is Spámúsin frá Keldum spáir japönskum sigri  Dýr hafa oft spáð rétt fyrir um knattspyrnuleiki Forspá HemMi fetar í fótspor kolkrabbans Páls og spáir sigurvegara á HM. Skannaðu kóðann til að sjá mynd- skeið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.