Morgunblaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014
16
12
★ ★ ★ ★ ★
„Besta íslenska kvikmynd sögunnar!”
Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Fréttablaðið
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
22 JUMP STREET Sýnd kl. 5:40 - 8 - 10:20
MILLION WAYS TO DIE Sýnd kl. 5:30 - 8- 10:30
VONARSTRÆTI Sýnd kl. 5:20 - 8 - 10:40 14
„Ég hló svo mikið að
ég skammaðist mín!”
- Guardian
"Þú sérð ekki fyndnari
mynd í sumar!"
-T.V., Biovefurinn.is
var úr klettunum við Dover á Eng-
landi, steypt úr marmarasalla og
gipsi. Meðal verka sem unnin voru
með staðsetningu sýningarinnar í
huga er textaverkið „Rules for Ice-
land“ eða Reglur fyrir Ísland,
sautján reglur sem Liversidge
skráði niður og byggja á reglum og
leiðbeiningum sem hann hefur safn-
að á ferðalögum sínum. Verkið verð-
ur sýnt sem veggspjald í yfirstærð í
galleríinu, verður einnig dreift í
formi veggspjalda um landið auk
þess sem það mun birtast í nokkrum
dagblöðum og hverfa- og héraðs-
blöðum á Íslandi.
Gestir móta sýninguna að hluta
Liversidge segir fyrirmæla-
aðferðina henta sér vel þar sem
hann vilji vinna verk sín í ólíka
miðla, allt frá teikningum til gjörn-
inga. Að vélrita fyrirmæli á gamla
ritvél sé nálægt því að vera teikning,
listaverk í sjálfu sér og fyrirmælin
ákveðið kerfi sem henti honum vel
að vinna út frá. Fyrir sýninguna í i8
hafi hann vélritað 24 fyrirmæli en þó
hafi ekki verið búin til verk út frá öll-
um þeirra, aðeins helmingnum. Fyr-
irmælin megi finna í bók á sýning-
unni sem gestir geti lesið og því
verði hluti verkanna til í höfðum
þeirra, ef svo mætti að orði komast.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sýning á verkum enska myndlist-
armannsins Peter Liversidge, sem
býr og starfar í Lundúnum, verður
opnuð í i8 galleríi í dag kl. 17 og er
hún fyrsta einkasýning hans í gall-
eríinu. Sýningin ber yfirskriftina
C-O-N-T-I-N-U-A-T-I-O-N, eða
Framhald, og segir í tilkynningu um
verk Liversidge að þau séu til-
raunakennd í eðli sínu og endur-
spegli kraft skapandi hugsunar.
Liversidge hefur sl. 16 ár hafið öll
verk sín með því að vélrita fyrirmæli
fyrir einstök verk eða safn verka á
gamla ritvél og er útkoman, þ.e.
verkin unnin út frá fyrirmælunum,
af ýmsum toga og unnin í ýmsa
miðla, m.a. skúlptúr, málverk, ljós-
myndir, innsetningar og gjörninga.
Má þar finna bæði framkvæm-
anlegar hugmyndir og aðrar hug-
lægari og jafnvel ógerlegar. Liver-
sidge gefur sig fyrir hverja sýningu
að tilteknu rými, staðsetningu eða
samfélagi. Fyrir sýninguna í i8 vél-
ritaði hann fyrirmæli að 24 verkum
og gjörningum og meðal verka á
sýningunni eru m.a. litlir bátar unnir
úr rekaviði o.fl. úr fjörum Reykja-
víkur og nágrennis og gríma sem er
afsteypa af kalksteinum sem safnað
Því sé hugmyndaflug gesta hluti af
sýningunni, þeir bindi hana í raun
saman.
– Reglur fyrir Ísland, eru það
reglur sem Íslendingar eiga að
fylgja?
„Einhverjar þeirra eru reglur frá
Íslandi en í verkinu eru einnig regl-
ur frá öðrum stöðum og þá reglur
sem geta átt við á ólíkum stöðum.
Reglurnar eru settar í nýtt sam-
hengi með breyttri staðsetningu,“
segir Liversidge. Fyrsta reglan sé
íslensk og eigi við íslenska sund-
staði, þ.e. að gestir eigi að þvo sér
áður en þeir fara ofan í laugina. Af
öðrum nefnir Liversidge reglu um
það hvernig eigi að fara yfir Pan-
amaskurðinn. Það sé í valdi þess
sem les regluna hvort henni sé fylgt
eftir. „Það er ekki á mína ábyrgð,“
segir Liversidge kíminn.
Hluti af sýningunni er flutningur
á verki fyrir 30 manna kór sem fer
fram við sólarlag í kvöld kl. 23:56 í
Reykjavíkurhöfn, gegngt i8. Þess
má svo að lokum geta að Crymogea
gefur út bókina Proposals for
Reykjavík í tengslum við sýninguna.
Frekari upplýsingar má finna á i8.is.
Sautján reglur fyrir Ísland
Fyrsta einkasýning Peters Liver-
sidge í i8 galleríi verður opnuð í dag
Morgunblaðið/Þórður
Reglufastur Enski myndlistarmaðurinn Peter Liversidge í galleríinu i8. Hann mun opna einkasýningu þar í dag.
Hljómsveitin Different Turns held-
ur tónleika á Nýja sviðinu í Borgar-
leikhúsinu í kvöld kl. 20, í tilefni af
útgáfu breiðskífunnar If you think
this is about you ... you’re right sem
kom út 4. apríl sl. Different Turns
hófst sem sólóverkefni tónlistar-
mannsins Garðars Borgþórssonar
en er í dag sjö manna hljómsveit.
Tónlistinni lýsir Garðar sem „al-
ternative/electro“ rokki undir
áhrifum frá leikhúsi en hann hefur
starfað við leikhús í mörg ár.
Hljómsveitin æfir auk þess í Borg-
arleikhúsinu og leikhúsanda má
finna í lagatextum hennar. Á morg-
un mun hljómsveitin hita upp fyrir
Dimmu á Græna hattinum.
Útgáfutónleikar í Borgarleikhúsinu
Leikrænt Different Turns fagnar fyrstu breiðskífunni með tónleikum í kvöld.