Morgunblaðið - 30.06.2014, Síða 2

Morgunblaðið - 30.06.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Varast þarf að draga of víðtækar ályktanir um stöðu skólanna út frá niðurstöðum PISA-kannana, þar sem þær taka einungis til nokkurra þátta af mörgum sem einkenna skólastarf og hvern skóla. „Þetta er bara einn mælikvarði af mörgum,“ segir Ingi- björg Jósefsdóttir, skólastjóri Haga- skóla, um niðurstöður PISA-- könnunarinnar sem gerð var árið 2012, en niðurstöður hennar voru gerðar opinberar fyrir helgi. Ingi- björg segir að í skólastarfi sé ýmis- legt mælt og enginn einn mælikvarði nái yfir allt sem gerist í skólastarfi. En er hægt að stilla niðurstöðum könnunarinnar þannig upp að sumir skólar séu betri eða verri en aðrir? „Í mínum huga er þetta ekki svo einfalt. Bæði er bakland allra skóla í Reykja- vík ólíkt og nemendahópar geta verið ólíkir milli ára,“ segir Ingibjörg. Þá þurfi einnig að hafa í huga að ýmislegt geti breyst á tveimur árum í skólastarfi. „Auðvitað eru svona niðurstöður alltaf umhugsunarefni í hverjum einasta skóla, og spurt er: „Get ég gert betur?“ eða þá í þeim skólum þar sem könnunin kemur vel út: „Hvernig get ég haldið þeim ár- angri sem hefur náðst?“ Það er í höndum hvers og eins að skoða það, og ég efast ekki um að skólastjórar muni gera það fyrir sína skóla,“ segir Ingibjörg. Spurð hvort það sé gagnlegt að birta upplýsingar af þessu tagi opinberlega segir Ingibjörg að upp- lýsingar sem þessar verði alltaf að skoðast í samhengi við annað skóla- starf. „Við getum ekki tekið niður- stöður úr einhverju einu verkefni og sagt annaðhvort að skólinn sé frábær eða fellt hann út frá því eina verkefni. Það sem skiptir svo miklu máli er að skoða skólann í heild sinni,“ segir Ingibjörg. Getur haft neikvæð áhrif Kolbrún Baldursdóttir skólasál- fræðingur segir að umræða á borð við þá sem skapist í kringum kannanir geti vissulega haft áhrif á nemendur þeirra skóla sem fjallað sé um. „Krakkar hafa auðvitað metnað fyrir hönd síns skóla,“ segir Kolbrún og bætir við að börn hlusti að sjálfsögðu á umfjöllun um þá skóla sem þau gangi í og geti jafnvel tekið gagnrýn- ina til sín. „Ég segi ekki að áhrifin verði nei- kvæð til lengri tíma en það gætu hæg- lega skapast aðstæður þar sem nem- endur í neðstu skólunum eru spurðir hvert þeir fari í skóla, og þeir upplifi skömm hafi nýlega verið neikvæð um- ræða um þeirra skóla í fjölmiðlum,“ segir Kolbrún. Kolbrún segir gott að kannanir af þessu tagi séu gerðar og nauðsynlegt að hafa upplýsingar en að þeir sem sjái um fréttaflutning af þessum mál- um þurfi að íhuga hagsmuni barnanna. „Mér finnst ábyrgð þeirra sem skrifa fréttir sem tengjast börn- um vera mikil. Ef fréttir varða börn á ávallt að hafa hagsmuni þeirra í fyrir- rúmi,“ segir Kolbrún. Það skipti máli þegar samanburður sé gerður á milli hópa að grunnforsendur séu eins, og nefnir Kolbrún sem dæmi að í Fella- skóla, sem hafi komið lakast út í les- skilningi, séu margir nemendur sem hafi íslensku ekki að móðurmáli. „Það er því spurning hvort ekki hefði átt að taka það inn í myndina strax frá byrj- un.“ Aðeins einn þáttur af mörgum  PISA-kannanir segja ekki alla sög- una um stöðu skóla, segir skólastjóri Morgunblaðið/ÞÖK Lestrarkennsla PISA-kannanir eru bara einn mælikvarði á skólastarf. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Veðurstofa Íslands varar við því að gert sé ráð fyrir óvenju öflugri lægð miðað við árstíma á morgun, og á lægðin að fara yfir landið á miðvikudag. Í fréttatilkynningu frá Veður- stofunni segir að á þriðjudag verði lægðin vestur af landinu og vindáttin því suðaustlæg. Má bú- ast við að vindstyrkurinn verði á bilinu 10-18 m/s, einna hvassast um landið suðvestanvert, og hvið- ur við fjöll allt að 35 m/s. Þessu fylgi mikil rigning, mest sunnan- lands síðdegis og um kvöldið. Segir jafnframt að á miðviku- daginn líti út fyrir að lægðin fari til norðausturs og verði skammt norður af landinu. Óvíst sé hvar versta veðrið verði en vísbend- ingar séu um að mesti vindurinn verði úr norðvestri um landið suð- vestanvert um kvöldið á meðan mesta úrkoman verði líklega norðvestanlands og á Vest- fjörðum. Síðan er gert ráð fyrir að lægðin fari til austurs og ákveðin norðanátt taki yfir með rigningu fyrir norðan en þurrt verði að kalla syðra. „Að gefnu tilefni viljum við minna þá ferðalanga sem eru með aftanívagna á að huga sér- staklega að veðurathugunum og veðurspá næstu daga og þá sem eru að fara að heiman að huga að lausamunum,“ segir að lokum í tilkynningu Veðurstofunnar. Morgunblaðið/Kristinn Veður Gert er ráð fyrir óvenju- djúpri lægð á morgun og hinn. Óvenju öflug lægð á leiðinni  Ferðalangar með vagna athugi spár Brákarhátíðin í Borgarnesi var haldin í sjötta skipti nú um helgina. Á hátíðinni, sem er í víkingastíl og nefnd eftir Þorgerði brák, var meðal annars boðið upp á báta- siglingu, skrúðgöngu og loks Sálarball. Morgunblaðið/Ómar Víkingar börðust hraustlega í Borgarnesi Ingileif Friðriksdóttir if@mbl.is Sæði úr kynbótanautinu Bamba 08049, fæddu 4. nóvember 2008, sem er nýtt til notkunar þetta árið, er svo vinsælt að nú hefur verið settur kvóti á skammta af því. Til að nýta erfða- efni Bamba sem best og jafna fram- boð nautkálfa undan honum ákvað fagráð að dreifing sæðisins yrði ekki frjáls og óháð. Þannig mun það ein- göngu standa bændum í skýrsluhaldi til boða auk þess sem fjöldi skammta sem hver og einn fær til nota verður miðaður við fjölda árskúa í maí síðast- liðnum. Bambi, sem féll frá fyrir fjórum ár- um, er það naut sem hefur hæstu heildareinkunn reyndra nauta í notk- un, eða 118. Bambi gefur kýr með góða afurðagetu og há efnahlutföll og eru dætur hans í flokki mjög vinsælla kúa með úrvalsgóða júgur- og spena- gerð. Einnig gefur hann frábærar mjaltir og skap. Þegar Bambi var ársgamall var farið að taka úr honum sæði, sem allt var fryst. Um þúsund skammtar af sæði úr honum voru notaðir strax, og voru þeir sendir til frjótækna sem notuðu þá hjá bændum. Úr því urðu til þó nokkuð margar kvígur sem komu inn á skýrsluhald og gáfu upp- lýsingar um það hvert kynbótagildi nautsins væri. Nú eru komnar nógu margar dætur undan Bamba til að óhætt sé að telja að þarna sé yfir- burðagripur á ferðinni. Þegar teknir höfðu verið 6.600 skammtar úr Bamba var hann sendur í sláturhús. Þetta var gert til þess að koma í veg fyrir úrkynjun vegna skyldleika- ræktar. Þar sem stofninn er lítill er þetta hámarksnotkun á yfirburða- gripum. Stofninn þolir hreinlega ekki að fleiri skammtar séu notaðir úr hverju nauti, þar sem of margar kýr undan sama nauti myndu leiða til of mikils skyldleika og úrkynjunar. Mikill áhugi á sæðinu Sveinbjörn Eyjólfsson hjá Nauta- stöðinni á Hesti segir mikinn áhuga vera fyrir sæði Bamba. „Við teljum okkur nokkuð viss um að þarna séum við með yfirburðanaut og eigum þess vegna um 5.500 skammta núna sem margir bændur eru áhugasamir um að nýta við að kynbæta sína stofna.“ Sveinbjörn segir það afar sjald- gæft að settur sé kvóti á sæði. „Það hefur gerst einu sinni áður að við sáum fyrir fram að áhugi á ákveðnu nauti ætti eftir að verða meiri en við gætum sinnt og þá þurftum við að skipta þessu á milli bænda,“ segir hann að lokum. Kvóti settur á sæði úr Bamba  Sæði úr kynbótanautinu Bamba er vinsælt  Mun eingöngu standa bændum í skýrsluhaldi til boða  Fjöldi skammta á bú verður miðaður við fjölda árskúa Ljósmynd/Nautaskrá Kynbætur Bambi var yfirburðagripur. Bændur vilja láta sæða kýrnar með Bamba í von um að fá enn betri grip, hvort sem verður kvíga eða tuddi. Karlmaður slas- aðist við fallhlífar- stökk laust eftir klukkan 14 á laugardag. Var maðurinn fluttur með þyrlu Landhelgisgæsl- unnar á Landspít- alann. Þar er hon- um haldið sofandi í öndunarvél. Að sögn læknis munu áverkar mannsins vera alvarlegir. Maðurinn, sem er vanur fallhlífar- stökkvari, hafði stokkið ásamt fjór- um öðrum úr flugvél við Hellu- flugvöll þegar slysið átti sér stað. Að sögn Hjartar Blöndal, kennara hjá Skydive.is, voru aðstæður góðar til stökks. Ljósmyndari Morgunblaðs- ins var viðstaddur og náði myndum af stökkvurunum. Slasaðist við fallhíf- arstökk  Karlmanni haldið sofandi í öndunarvél Svifið Vel viðraði til fallhlífarstökks.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.