Morgunblaðið - 30.06.2014, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014
Ingileif Friðriksdóttir
Vilhjálmur Kjartansson
Lára Halla Sigurðardóttir
Björn Már Ólafsson
Umfangsmikilli leit sem staðið hefur
yfir í Fljótshlíð síðustu vikur og ekki
borið árangur hefur nú formlega verið
hætt. Leitað hefur verið að Ástu Stef-
ánsdóttur, 35 ára lögfræðingi, sem
saknað hefur verið í tæplega þrjár vik-
ur. Unnusta hennar, Pino De Los
Angeles Becerra Bolanos, fannst látin
í Bleiksárgljúfri þriðjudagskvöldið 10.
júní, sama dag og leit hófst. Konurnar
tvær höfðu dvalið í sumarbústað á
svæðinu yfir hvítasunnuhelgina, en
þegar ekkert hafði spurst til þeirra á
þriðjudeginum var leit hafin. Pino
fannst látin um kvöldið í gljúfrinu og í
ljós kom að hún hafði látist af völdum
áverka eftir hátt fall fram af um 30
metra háum fossi í gljúfrinu. Ekkert
hefur hins vegar spurst til Ástu, og er
hún nú talin af.
Umfangsmiklar aðgerðir
Um helgina var vatni dælt frá 30
metra háum fossinum svo kafarar
gætu komist betur að svæðinu, en til
þess þurfti að nota stórar dælur og
þrjár stórar rafstöðvar. Ekkert fannst
við leitina annað en stór hellir sem
hættulegt þótti að kanna frekar.
Björgunarsveitarmaður sem komst
næst hellinum taldi hann vera að
minnsta kosti 10 m langan og að allt
vatnið í hylnum færi í gegnum hann.
Þetta er ein umfangsmesta aðgerð
sem liðsmenn Landsbjargar hafa tek-
ið þátt í. Auk björgunarsveitarmanna
hafa verk- og tæknifræðingar komið
að undirbúningi og kynnt sér að-
stæður í gilinu. Um helgina voru einn-
ig gerðar svokallaðar flýtileitir á svæð-
inu, en þá óðu nokkrir björgunar-
sveitarmenn upp Bleiksá í gljúfrinu og
könnuðu hvort lík Ástu hefði skilað sér
niður með ánni. Þessar leitir báru ekki
árangur. Um 100 meðlimir björgunar-
sveita voru við störf á laugardag, en
um þúsund björgunarsveitarmenn
hafa komið að leitinni að Ástu síðustu
þrjár vikur. Umferð að Bleiksárgljúfri
er stjórnað við afleggjarann að gljúfr-
inu og er engum hleypt inn á leit-
arsvæðið, sem er nokkuð rúmt. Ljóst
er að vel hefur verið staðið að und-
irbúningi björgunaraðgerða og
áhersla lögð á að tryggja öryggi þeirra
sem komu að leitinni.
Aðstæður taldar of hættulegar
Að sögn Svans Sævars Lárussonar,
stjórnanda leitaraðgerðarinnar, eru
aðstæður of hættulegar til að leit geti
haldið áfram. „Eftir að við uppgötv-
uðum þessi göng á bak við fossinn á
laugardaginn þá erum við einfaldlega í
það hættulegum aðstæðum að það er
ekki öruggt fyrir okkur að starfa
þarna áfram. Við erum búin að gera
allt sem við getum gert.“
Svanur segir að reynt hafi verið að
kanna göngin á bak við fossinn með
myndavélum, en það hafi ekki borið
árangur. „Við reyndum að senda
myndavélar ofan í þessi göng en við
töpuðum þremur GoPro-myndavélum
við það. Það er einfaldlega þannig að
það eru gríðarlegir kraftar þarna að
verkum sem eru ofar okkar getu.“
Krafturinn í vatninu er um 1.000 lítrar
á sekúndu, og segir Svanur það nán-
ast ógerlegt að nálgast það sem í
göngin fer. „Þó svo við sæjum hana
einhvers staðar ofan í göngunum þá
hefðum við enga getu til að ná henni
þar út. Þetta eru bara um eins metra
breið göng og krafturinn er gríðar-
legur svo aðgengið er mjög takmark-
að,“ segir hann.
Svanur segir fossinn vera þess eðlis
að það sem í hann fer endar í þessum
göngum. „Við bjuggum til stíflu þarna
með sandpokum og misstum tvo poka
þarna niður við stíflugerðina og þeir
hafa ekkert komið fram. Það er í raun-
inni þannig að það sem fer þarna nið-
ur er glatað.“ Áframhaldandi leit er
því tilgangslaus að mati Svans. „Það
er því miður þannig að við urðum að
játa okkur sigruð.“
Leit formlega lokið í Fljótshlíð
Aðstæður taldar of hættulegar til að leit geti haldið áfram „Við erum búin að gera allt sem við
getum gert,“ segir stjórnandi leitaraðgerðarinnar Hin 35 ára gamla Ásta Stefánsdóttir talin af
Að sögn Svans Sævars Lár-
ussonar, stjórnanda leitar-
aðgerðarinnar, hafa margir aðilar
komið að leitinni á einn eða ann-
an hátt. „Við stöndum í mikilli
þakkarskuld við mörg fyrirtæki
fyrir að styðja okkur í þessu; lána
okkur búnað svo sem dælur, rað-
stöðvar og rör til dæmis. Það er
ómetanlegt að eiga þetta bak-
land. Við hefðum einfaldlega ekki
getað gert neitt meira ef við hefð-
um ekki notið þessa stuðnings.
Þau eiga heiður skilið þessi fyr-
irtæki.“
Þar sem miklum búnaði var
komið fyrir á svæðinu segir Svan-
ur töluvert sjá á hluta af landinu
þar sem aðgerðir stóðu yfir og
mun vera unnið í því í sumar að
koma landinu í fyrra horf.
Ómetanlegur
stuðningur
LEITARAÐGERÐIR
Umfangsmiklar aðgerðir Vatni var dælt frá 30 metra háum fossinum um
helgina svo kafarar gætu komist betur að svæðinu.
Morgunblaðið/Eggert
Stór hópur Um 100 meðlimir björgunarsveita voru við störf á laugardag, en um þúsund björgunarsveitamenn hafa
komið að leitinni að Ástu síðustu þrjár vikur. Leitin hefur ekki borið árangur og er henni nú formlega lokið.
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Fræðasetur um forystufé var opnað
á laugardaginn í gamla samkomu-
húsinu á Svalbarði í Þistilfirði eftir
fjögurra ára undirbúning. Margt
góðra gesta var á svæðinu, velunn-
arar og áhugafólk, og veðrið skartaði
sínu fegursta.
Hugmyndina að setrinu fékk
Daníel Pétur Hansen, skólastjóri
Svalbarðsskóla, árið 2010 og er hann
aðalhvatamaður að stofnun þess, en
safnið er það eina sinnar tegundar í
heiminum. Strax var ákveðið að
vanda til verks og hafa allt fyrsta
flokks frá byrjun, enda er íslenskt
forystufé einstakt í heiminum og á
aðeins skilið það besta. Vanir hönn-
uðir voru fengnir í verkið, þeir Þór-
arinn Blöndal og Finnur Arnar
Arnarsson, en þeir komu með frum-
hugmynd að uppbyggingu setursins
og unnu síðan út frá henni í samráði
við Daníel.
Gamla samkomuhúsið var áður
miðstöð menningarlífs íbúa Þistil-
fjarðar og sómir sér því vel sem um-
gjörð um forystufé, en Svalbarðs-
hreppur gaf Fræðasetrinu húsið
undir starfsemina. Á jarðhæð húss-
ins er sýningarsalurinn með ýmsum
fróðleik og uppstoppuðu forystufé
og einnig gallerí með íslensku hand-
verki, sem allt tengist íslensku for-
ystufé á einhvern hátt, hvort sem er
úr ull, beini, hornum eða silfri. Ull-
arvörurnar eru eingöngu úr ull af
forystufé enda er forystukindin
með sérstaklega mjúka og hlýja ull.
Í kjallaranum er lítið kaffihús
sem nefnt var Sillukaffi. Nafnið er
táknrænt fyrir konur fyrri kynslóða
í sveitinni, en það vísar til Sigríðar
heitinnar frá Gunnarsstöðum sem
ávallt var kölluð Silla. Kaffihúsið
verður opið í allt sumar og á boð-
stólum er sérbakað meðlæti og sér-
blandað forystukaffi sem kallað er
Ærblanda.
Ratvísar og greindar
Ætlunin er að safna með tím-
anum ýmsu efni bæði um Þistilfirð-
inga og eftir þá og hafa í kaffihús-
inu, s.s. bækur og slíkt. Sýning á
vatnslitamyndum Ástþórs Jóhanns-
sonar verður í Fræðasetrinu í sum-
ar og búið er að panta sýningar-
pláss næstu tvö árin. Verk Ólafar
Nordal verða til sýnis næsta sumar
og sumarið 2016 mun Þórarinn
Blöndal vera þar með sýningu, allt
verður það tengt forystufé.
Íslenskt forystufé er einstakt
og á ekki sinn líka í heiminum. Í
kynningu Fræðasetursins segir að
fjöldi forystukinda í heiminum sé um
1.400 og allar eigi þær uppruna sinn
í Norður-Þingeyjarsýslu. Eigin-
leikar forystukinda eru einstakir;
þær eru ratvísar, áræðnar og
greindar og leiða fjárhópinn og forða
honum frá hættum. Þær eru veður-
glöggar, en sá eiginleiki var einkum
mikils virði fyrr á öldum þegar
vetrarbeit var nauðsynleg og beitt út
á Guð og gaddinn en engar voru
veðurspárnar. Áhugi bænda á að
fjölga hreinræktuðu forystufé hefur
aukist á síðustu árum, en í byggðar-
laginu er að finna forystufé á flest-
um bæjum.
Mikil vinna hefur verið að koma
safninu upp, sagði Daníel Hansen,
en margir hafa lagt verkefninu lið
bæði með styrkjum og vinnu-
framlagi. Afraksturinn er vandað og
afar sérstakt safn sem eflaust á eftir
að draga til sín marga gesti. Fram-
tíðardraumurinn er að safna öllu
efni og fróðleik sem finnst um ís-
lenskt forystufé, sagði forstöðu-
maðurinn Daníel Hansen í lok vel
heppnaðs dags á Fræðasetrinu.
Safn um íslenskt forystufé
er eitt sinnar tegundar
Fræðasetur um forystufé á Svalbarði í Þistilfirði
Forystufé Á jarðhæð hússins er sýningarsalurinn. Annar sauðurinn er frá
Ytra-Álandi í Þistilfirði en hinn er gjöf frá Hrútavinafélaginu á Suðurlandi.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Opnun safns Daníel Pétur Hansen ásamt Aldísi Gunnarsdóttur, sum-
arstarfsmanni setursins og Brynhildi Óladóttur sóknarpresti.