Morgunblaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014
Fundurinn verður haldinn í Fákafeni 9,
108 Reykjavík
Dagskrá fundarins
Venjuleg aðalfundarstörf
Aðalfundur Blátt áfram
verður haldinn þriðjudaginn
27. maí kl: 16:00
HÁDEGISMATUR
Í FYRIRTÆKI OG
STOFNANIR
VINSÆLT - HEILSUBAKKAR
Heilsubakkar eru réttir sem samanstanda af léttu fæði
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Við sendum
hádegismat í bökkum
og kantínum til fyrirtækja
og stofnana alla daga ársins!
Boðið er upp á sjö valrétti á virkum dögum:
Tvo aðalrétti, þrjá aukarétti, heilsurétt og ávaxtabakka.
Aðalréttirnir eru breytilegir frá degi til dags.
Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is
Fjölbreyttur matseðill
og valréttir alla daga
SKÚTAN
ÚTSALAN hefst á morgun, þriðjudag
v/Laugalæk • sími 553 3755
Bonito ehf. • Friendtex • Praxis
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is •www.praxis.is
Opið mánudag - föstudag 11:00-17:00, lokað laugardaga
Friendtex á Íslandi
ÚTSALA
40-50%
Þriðja flíkin frí úr haustlista
á sama stað og
Friendtex
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Sigurður Ægisson
sae@sae.is
Stolt fálkamóðir, nýbúin að bera mat í hreiður á
ónefndum stað á Norðurlandi, býr sig hér undir að
leggja upp í aðra veiðiferð, enda fjóra sísvanga unga
að metta. Fyrstu 30 dagana eða svo verða foreldrin
að hluta bráðina niður fyrir þá. Þeir eru í hreiðrinu í
6-7 vikur, uns þeir verða fleygir. Næstu daga og vik-
ur þar á eftir halda þeir sig í námunda við hreiðrið og
sjá foreldrin þeim fyrir mat. Þegar ungarnir eru
orðnir færir um að bjarga sér, um mánuði eftir að
þeir eru orðnir fleygir, yfirgefa þeir varpstöðvarnar
og leggjast í flakk. Gjarnan er þá leitað til strandar.
Fyrsti veturinn er þeim býsna erfiður og afföll geta
orðið mikil. Eftir það aukast lífslíkurnar. Ungfugl-
arnir eru dekkri á lit en hinir fullorðnu og með blá-
leitar klær og nef. Tveggja ára gamlir eru þeir orðnir
kynþroska, að talið er, og hafa klæðst endanlegum
búningi.
Þessi kraftmikli og ófélagslyndi fugl er hánorrænn.
Á Íslandi verpir hann um allt land, er hvergi algeng-
ur en einna mest er af honum í Þingeyjarsýslum og á
Vestfjörðum. Fálkinn hefur verið friðaður síðan 1940
og sérstakt leyfi Umhverfisstofnunar þarf til að fá að
nálgast hreiður fálka.
Fálkamóðir með fjóra sísvanga unga
Fyrirtækinu HB Granda var veittur
Fjörusteinninn, umhverfisviður-
kenning Faxaflóahafna sf., fyrir árið
2014 á aðalfundi Faxaflóahafna sem
fór fram á föstudaginn.
HB Grandi rekur fiskvinnslu og út-
gerð á nokkrum stöðum á landinu og
eru höfuðstöðvar fyrirtækisins á
Norðurgarði í Gömlu höfninni í
Reykjavík. Á undanförnum árum
hefur fyrirtækið staðið að uppbygg-
ingu á Norðurgarði og gert það af
miklum myndarskap, segir í tilkynn-
ingu frá Faxaflóahöfnum. Jafnframt
því að standa í uppbyggingu hefur
fyrirtækið farið í niðurrif á eldri og úr
sér gengnum byggingum og tiltekt á
sínu athafnasvæði ásamt ýmsum um-
hverfisbótum.
Fyrirtækið starfar skv. ákvæðum
um ábyrgar fiskveiðar. Enn fremur
er fyrirtækið aðili að félaginu Festu,
miðstöð um samfélagsábyrgð fyrir-
tækja, þar sem lögð er áhersla á að
fyrirtæki axli ábyrgð á þeim áhrifum
sem þau hafa á fólk og umhverfið.
Á árinu 2012 var hafinn undirbún-
ingur að byggingu frystigeymslu og
flokkunaraðstöðu fyrir frosinn fisk
yst á Norðurgarði. Í tengslum við
skipulagningu var ákveðið í samráði
við Faxaflóahafnir að halda sam-
keppni um listaverk yst á garðinum.
Niðurstaða samkeppninnar var verk
Ólafar Norðdal, Þúfan, og má segja
að þegar verkið var tilbúið hafi það
orðið eitt af sterkari kennileitum í
Gömlu höfninni.
Fyrirtækið HB Grandi er því vel
að því komið að hljóta umhverfisverð-
laun Faxaflóahafna sf. fyrir árið 2014,
segir í tilkynningu. Þetta er í 10.
skipti sem Fjörusteinninn er veittur.
HB Grandi hlaut
Fjörusteininn
Umhverfisverð-
laun Faxaflóa-
hafna sf. árið 2014
Steinn Hjálmar Sveinsson, formað-
ur Faxaflóahafna sf., og Vilhjálmur
Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda.