Morgunblaðið - 30.06.2014, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 30.06.2014, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014 ✝ María Jóns-dóttir fæddist í Reykjavík 23. nóv- ember 1925. Hún lést á Vífilsstöðum 23.júní 2014. For- eldrar hennar voru Guðbjörg Sigríður Jónsdóttir og Jón Kristjánsson. María fór aðeins nokkurra vikna gömul í fóstur ásamt tvíburasystur sinni, Guð- rúnu Steins, til hjónanna Guð- bjargar Illugadóttur og Sig- urðar Magnússonar sem bjuggu í Akurhúsum í Garði. Systkini Maríu voru Jóna, Sigurður, Margrét, Ingigerður, Jóhannes 16.12. 1999. Sonur þeirra er Jó- hann Birgir Jónsson, bifreiða- smiður, f. 17.9. 1947, maki Guð- ríður Bjarnadóttir, f. 1.7. 1946, börn þeirra 1) Bjarni Friðrik, f. 25.1. 1966. 2) Margrét María, f. 10.7. 1967. 3) Jón Þorkell, f. 24.12. 1971. Einnig ólu María og Jón upp frá 11 ára aldri syst- urdóttur Maríu, Guðbjörgu Stellu Guðmundsdóttur, sjúkra- liða, f. 11.9. 1947, maki Gísli Guðmundsson, húsasmiður, f. 6.8. 1943. Börn þeirra: 1) Jón Óskar, f. 6.7. 1965. 2) Guð- mundur Úlfar, f. 3.7. 1970. 3) Sonja, f. 4.10. 1979. 4) Sigurður, f. 26.6. 1983. Langömmubörn Maríu eru 18 talsins og langalangömmubarn eitt. Útför Maríu fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 30. júní 2014, og hefst athöfnin kl. 13. og Guðrún Steins. Fóstursystkini Maríu voru Finn- björg, Páll, Svan- hildur, Magnús, Björnfríður og Ingilaug Val- gerður, sem öll voru börn fóstur- foreldra hennar og svo tóku þau einnig að sér þær Indíönu Leifsdóttur og Svanhildi Pálsdóttur. Systkini Maríu eru öll látin nema Guð- rún Steins, tvíburasystir henn- ar. Hinn 22. febrúar 1948 giftist María Jóni Þorkeli Kristjáns- syni, f. 22. febrúar 1925, d. Elskuleg fóstra mín, María, er látin eftir stutt og erfið veik- indi, áttatíu og átta ára að aldri. Margs er að minnast frá liðnum árum. Ber hæst ástúð hennar, góðvild og væntumþykju frá fyrsta degi. Ég var aðeins ellefu ára er ég fluttist á heimili henn- ar vegna veikinda móður minn- ar. Guðrún móðir mín sagði stundum: Við Mæja eigum þig saman, Guðbjörg mín, en þær tvíburasystur voru mjög nánar og er missir hennar mikill. María var létt í lund og gladd- ist á góðum stundum með ætt- ingjum og vinum. Þær eru margar minningarnar sem koma upp í hugann frá liðinni tíð í Langagerðinu og má nefna þegar þær vinkonurnar í göt- unni hittust. Þá var nú glatt á hjalla. Kaffisopinn góði, bolla hvolft, spáð og spekúlerað, spjallað og hlegið dátt og jafnvel tekin ein „sígó“. En nú er þetta horfinn heimur. Einnig minnist ég þess hvað hún var boðin og búin að hjálpa öðrum. Passa börnin mín, hjálpa mér að sauma, hjálpa til við slátur- gerð og margt og margt fleira. María hafði græna fingur eins og sagt er stundum. Bar garð- urinn hennar þess vitni sem þau hjón af alúð unnu saman að frá fyrstu tíð. Hún hafði yndi af góðri tónlist og naut þess að fara í leikhús. En síðast og ekki síst var María flink, dugleg og vandvirk handavinnukona. Hún var saumandi frá því ég man eftir og vann um árabil á saumastofu Hagkaups. En hæst ber að mínu mati allt það smáa sem hún gerði í höndum og nostraði við. Litlu hlutirnir, jólaskrautið, útsaumurinn og allt það sem hún gerði og gaf okkur sem í kringum hana vor- um. Ég sagði stundum: Þú ættir nú að setja upp sýningu á öllu því sem þú hefur gert. En hún var svo hógvær og sagði að þetta væri nú ekki svo merki- legt að það tæki því að sýna. En María tók nú samt þátt í sam- sýningu ásamt Guðrúnu systur sinni og nokkrum öðrum fjöl- skyldumeðlimum í Hafnarfirði. Þar var þó aðeins lítið brot af því sem eftir hana liggur. María starfaði í kvenfélagi Bústaðasóknar í mörg ár. Eftir að hún hætti að vinna tók hún þátt í starfi eldri borgara og hafði mjög gaman af að spila fé- lagsvist. Það var mikill missir þegar Jón Kristjánsson, eigin- maður hennar, lést árið 1999. En hún bjó ein áfram í Langa- gerðinu í mörg ár með hundinn sinn Bangsa. Hún sagði gjarn- an: „Hann dregur mig út að ganga,“ sem hún var mjög dug- leg við. Síðustu árin bjó María í þjónustuíbúð í Furugerði hér í borg en vegna erfiðra veikinda á þessu ári var hún komin á Vífils- staði. Ber að þakka góða umönnun sem hún hefur fengið. Að leiðarlokum vil ég þakka fyrir allt, sem elskuleg fóstra mín var okkur Gísla og börn- unum okkar, sem kölluðu hana ömmu í Langó. Alla hennar ást- María Jónsdóttir HINSTA KVEÐJA Við þökkum samfylgd á lífsins leið, þar lýsandi stjörnur skína og birtan himneska björt og heið, hún boðar náðina sína en Alfaðir blessar hvert ævinnar skeið og að eilífu minningu þína. (Vigdís Einarsdóttir) Elsku mamma og tengdamamma, takk fyrir allt. Jóhann og Guðríður. ✝ Arnrún Sigríð-ur Sigfúsdóttir fæddist í Steinholti á Húsavík 8.2. 1945. Hún andaðist á Kvennadeild Landspítalans 19. júní 2014. Foreldrar henn- ar voru Sigríður Matthildur Arnórs- dóttir, f. 19.5. 1926, d. 15.6. 2013, og Sigfús Pétursson, f. 7.7. 1924, d. 27.5. 1992. Stjúpfaðir Arnrúnar var Sigurjón Par- messon, f. 28.6. 1929, d. 10.11. 2002. Hálfsystkini Arnrúnar eru: Pétur Sigfússon, búsettur í Denver í Bandaríkjunum, Birna Sigfúsdóttir, látin, Sig- þór Sigfússon, látinn, og Sig- ríður Sigfúsdóttir. Hinn 2. júní 1963 giftist Arn- rún Eiði Guðjohnsen, f. 22.10. 1941. Foreldrar hans voru Þórður Guðjohnsen, f. 3.8. 1901, d. 1.8. 1961, og Ragn- heiður Guðbrandsdóttir Guð- johnsen, f. 5.12. 1912, d. 1.8. 2007. Stjúpdætur Ragnheiðar eru: Erla Lilja Aðalsteinsdóttir, Kristína María Aðalsteinsdóttir og Anna Mist Aðalsteinsdóttir. 3) Sigríður Matthildur Guð- johnsen, f. 19.6. 1965, gift Björgvini I. Ormarssyni, dætur þeirra eru: Sandra Dögg Björgvinsdóttir, f. 1992, Þur- íður Björg Björgvinsdóttir, f. 1997, og Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir, f. 2000. Sonur Sigríðar frá fyrra sambandi er Ásgeir Arnór Stefánsson, f. 1986, kvæntur Lenu Ósk Guðjónsdóttur, börn þeirra eru: Samúel Kári, Henrietta og Salka. Stjúpsynir Sigríðar eru: Ágúst Sigurður Björgvinsson, f. 1979, kvæntur Loretu Kaz- lauskaite, synir þeirra eru: Gabriel og Dominik. Sigþór Björgvinsson, f. 1981, í sambúð með Brynju Dís Guðmunds- dóttur, dóttir þeirra er Júlía Snót. 4) Þóra Kristín Guðjohnsen, f. 3.8. 1967, gift Andrew T. Mitchell, börn þeirra eru: Georg Ethan Guðjohnsen- Mitchell, f. 2003, Arnrún Eve Guðjohnsen-Mitchell, f. 2005, og Eiður Ewan Guðjohnsen- Mitchell, f. 2008. Útför Arnrúnar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 30. júní 2014, og hefst athöfnin kl. 13. Börn Arnrúnar og Eiðs eru: 1) Arnór Guð- johnsen, f. 30.7. 1961, kvæntur Önnu Borg, synir þeirra eru Kjartan Borg Guðjohnsen, f. 1993 og Arnór Borg Guðjohnsen, f. 2000. Sonur Arn- órs frá fyrra hjónabandi er Eið- ur Smári Guðjohnsen, f. 1978, kvæntur Ragnhildi Sveins- dóttur, synir þeirra eru; Sveinn Aron, Andri Lucas og Daníel Tristan. 2) Ragnheiður Guð- johnsen, f. 20.1. 1963, gift Að- alsteini Sigurðssyni. Börn Ragnheiðar frá fyrra hjóna- bandi eru Sigurjón Magnús Ke- vinsson, f. 1984, sambýliskona hans er Sandra Jónsdóttir, son- ur þeirra er Kristófer Leví. Arnrún Sveina Kevinsdóttir, f. 1986, gift Jakob Hafþóri Björnssyni, dætur þeirra eru: Ragnheiður Birna, Emilía Björg og Helena Sara. Aron Ingi Kevinsson, f. 1997. Elsku Arnrún mín, nokkur orð til þín. Takk fyrir allar góðu stund- irnar okkar sem lifa í minning- unni og þinn stóra hlut í afkom- endahópnum okkar, sem við erum mjög stolt af. Guð veri með okkur. Þinn Eiður. Elsku mamma mín farin úr þessum heimi. Erfitt er að sjá á eftir mömmu. Þetta var lækning- in sem Guð gaf henni, en við sem eftir lifum söknum hennar sárt. Ég hélt sterkt í þá trú að mamma ætti eftir smá tíma með okkur, jafnvel þrjú ár, hún átti svo mikið inni hjá okkur. Mamma var alltaf til staðar, traustur vinur og með yfirflæði af endalausum kær- leika. Ég var hreykin af mömmu, svo falleg og fannst hún smekk- kona, gott var að leita til hennar þegar þurfti ráð varðandi fataval og fleira. Hún var mjög listræn. Þó að ég hafi lært og unnið við hárgreiðslu til fjölda ára var það mamma sem kenndi mér að greiða uppgreiðslur, því þar var hún snillingur. Mamma lifði fyrir okkur börnin, lifði sig inn í allt sem við tókum okkur fyrir hend- ur. Hún var fórnfús og ósérhlífin. Hún elskaði okkur án skilyrða, hún gaf mikið af sér og krafðist einskis til baka. Mamma lét sig ekki vanta þegar einhver uppá- koma var varðandi íþróttir okkar krakkanna. Var ég mikið hreykin þegar hún gerðist eitt sinn far- arstjóri hjá okkur Vals-stelpun- um í handboltanum. Þar heyrði mamma mig syngja forsöng í rút- unni en ég beygði mig niður í sætinu og vonaði að mamma heyrði ekki í mér, ég vildi ekki að hún yrði fyrir vonbrigðum. Gleymi aldrei hvað mamma var ánægð með stelpuna sína og voru það mikil meðmæli þar sem mamma gerði alltaf miklar kröf- ur hvað varðar söng enda söng- elsk og með gott tóneyra. Mamma var alltaf upprétt og bein í baki, snögg í snúningum og alveg fram á síðasta dag. Hafði starfsfólk á Landspítalanum orð á því hvað hún væri liðug og kröftug þrátt fyrir veikindin. Það voru forréttindi að eiga móður eins og hana, við börnin gátum treyst henni fyrir öllu, alltaf mætti manni skilningur og um- burðarlyndi. Alveg sama hvernig við vorum, aldrei dæmdi mamma okkur, lét kannski í ljós skoðun sína og gaf okkur góð ráð en lét okkur sjálf um að taka ákvörðun. Börnin, barnabörnin og barna- barnabörnin voru henni allt. Mamma elskaði frið og ró og henni var það mikið í mun að okkur börnunum liði vel. Var hún ofurgóð við barnabörnin sín og átti það til að stjana aðeins of mikið við karlkynið, æ, henni fannst þeir kannski meira ósjálf- bjarga. Eins og dóttir mín sagði eitt sinn: „Amma elskar bara strákana, ekki okkur stelpurn- ar.“ Okkur fannst þetta bara sætt hvað hún var viðkvæm fyrir strákunum, ekki það að hún elsk- aði þá meira. Veraldlegir hlutir voru henni ekki mikilvægir og jafnrétti var henni hjartansmál. Fór mjög illa í hana þegar ein- hver taldi sig meiri en annar. Mér fannst hún stundum of góð fyrir þennan heim. Hún var með viðkvæma og næma sál, lifði sig mikið inn í sársauka annarra, hvort sem var um veikindi að ræða eða aðra erfiðleika. Elsku hjartans mamma mín! Skil ekki í dag hvernig hægt verður að lifa án hennar, en lífið heldur áfram og einn góðan veðurdag hittumst við aftur. Við munum hugsa vel um pabba og munum njóta góðs af því veganesti sem mamma gaf okkur. Elsku pabbi, Guð gefi þér styrk, veri með þér og varðveiti þig. Ragnheiður Guðjohnsen. Elsku fallega besta mamma mín, traustasta og besta vinkona mín, nú hefur þú kvatt þennan heim okkar hér. Þetta er svo óraunverulegt fyrir mér og mér finnst sem heimurinn sé nú í mol- um. Þvílík forréttindi að eiga þig sem mömmu. Eins og tengda- móðir mín sagði að þú værir svo rík í foreldrahlutverkinu að hún hefði viljað koma í meistaranám til þín. Minningarnar eru óend- anlegar og samverustundirnar af hæstu gæðum, yndislegar og áhugaverðar, innihaldsríkar og skemmtilegar. Þær ná frá Húsa- vík til Reykjavikur, Belgíu, London, Barcelona og alls staðar þar á milli, af alls kyns hugsan- legum efnum, eins og list, sögu, tónlist, sálfræði og landafræði. Ég elska þinn djúpa viskubrunn og kímnigáfu. Guð veit hvað ég gat hlegið með þér. Það er sama hver það var sem komst í kynni við þig, þú náðir alltaf til fólksins. Þú áttir þá stór- kostlegu gjöf þar sem öllum fannst þeir sérstakir í návist þinni. Kannski felst leyndardóm- urinn í því að setja aðra framar sér, sem þér var tamt. Þú skilur svo sannarlega mikið eftir þig og megum við til með að vitna í þig og læra af. Mér er þetta svo erfitt sem og tímarnir framundan án þín. Þú hefur kvatt en ert samt ekki far- in. Minningin lifir með miklum söknuði. Ég þakka þér fyrir alla ómetanlega umhyggju þína og samveru. Ég elska þig óendanlega. Hvíl í friði í faðmi Drottins. Þín dóttir, Þóra Kristín. Elsku móðir mín er látin. Sum- arið er komið og ég farin að bíða eftir góðu veðri til að eyða með mömmu eftir erfið veikindi henn- ar í vetur en Guð ákvað að lina þjáningar hennar fyrr en við átt- um von á. Ég er óendanlega þakklát fyrir það að hafa haft tækifæri til að fylgja mömmu og pabba í gegnum veturinn þó ekki hafi verið bjart á köflum. Mamma var yndisleg manneskja, viðkvæm en glettin. Hún var eig- inkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma með hjarta úr gulli, falleg jafnt að innan sem utan. Allir afkomendur mömmu, sem eru yfir þrjátíu talsins, elsk- uðu hana og dáðu enda fengu all- ir sérstakan stað í hennar hjarta eins og þar hafi verið endalaust pláss. Mamma hafði sterka rétt- lætiskennd og leit á alla sem jafn- ingja og því mjög auðvelt að virða hana og dá. Ég þakka mömmu, eins og ömmu í fyrra, fyrir þá umhyggju og virðingu sem hún veitti mér frá því að ég fæddist og fram á daginn í dag. Sökn- uðurinn brennur sárt en ég veit að með tíð og tíma lærum við að lifa án hennar. Andi mömmu verður ávallt með mér og minn- ingarnar um yndislega mömmu eiga eftir að ylja mér um ókomna framtíð. Elsku pabbi, megi góður Guð lina sársauka þinn og söknuð og okkar allra. Þín dóttir, Sigríður Matthildur (Sigga Matta). Í gegnum lífsins ferðalag velj- um við okkur leiðir og áfanga- staði. Fólk kemur inn í líf okkar, suma veljum við, aðrir fylgja með. Við upplifum margskonar tilfinningar og tökumst á við margskonar verkefni. Sumu ráð- um við, öðru ekki. Þegar klettur eins og tengda- móðir mín, Arnrún Sigfúsdóttir, hverfur frá breytist veröldin hjá mörgum. Lífstaktur, tími og rúm verður ekki eins og áður. Hún var miðpunktur og staðfesta, hún var 69 ára og átti 26 afkomendur sem allir elskuðu hana óendan- lega. Yndislega, fallega og góða Arnrún var stórbrotin kona. Hún gerði líf þeirra sem henni kynnt- ust ríkara og fallegra. Þessi smá- gerða litla kona sem var svo stór, hnarreist og glæsileg skilur eftir sig margar fagrar minningar. Mig skortir orð til að lýsa því hvernig hún snerti hjarta mitt. Það fegursta fannst mér þó sam- band hennar við börnin sín, barnabörn og barnabarnabörn. Hvert og eitt þeirra elskaði hún og dáði og allir áttu sinn stað í hjarta hennar. Alltaf leið henni best með þau sem flest í kringum sig og helst með eitt eða tvö þeirra yngstu á handleggnum. Þegar hún talaði við þau og um þau geislaði andlit hennar og um- hverfið sem hún var í þá stund- ina. Hún lifði sig svo sterkt inn í líf allra sinna að þegar hún sagði frá einhverju þeirra og lýsti þeim þá hreinlega breyttist hún í kar- akterana og já, hún náði þeim eiginlega betur. Arnrún var víðlesin og fylgdist svo vel með. Alltaf leið mér eins og ég væri konungborin þegar ég kom til hennar, hún sýndi mér og öllu mínu svo mikinn áhuga og þannig held ég að öllum hafi liðið í návist hennar. Hún hafði alltaf tíma fyrir börnin. Aldrei heyrði ég ömmu Arnrúnu segja „bíddu“ eða „á eftir“ þegar þau báðu hana um eitthvað. Allt annað gat beðið þar til seinna. Það sem hún gaf drengjunum mínum er gleði, ást Arnrún S. Sigfúsdóttir Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra KARLS S. SIGURÐSSONAR vélvirkja, Hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð, áður Hjalteyri. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Lögmannshlíðar. Börn og tengdabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FREYDÍS BERNHARÐSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Hornbrekku, Ólafsfirði, 25. júní sl. Útför hennar verður frá Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn 4. júlí nk. Þórður Guðmundsson, Hólmfríður Arngrímsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Konráð Þór Sigurðsson, Arnar Guðmundsson, Þórgunnur R. Vigfúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÚLÍUS ÓSKAR HALLDÓRSSON, Brúnavegi 9, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi 27. júní síðastliðinn. Jarðsett verður frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 3. júlí kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Á. Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.