Morgunblaðið - 30.06.2014, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Króatíu
frá kr. 298.800
4.-16. september
Fararstjóri: Ólafur Gíslason
Perlur
fólki faglega aðstoð fyrr í stað þess
að senda starfsmenn heim í helgar-
eða sumarfrí kveður Jóhanna já
við. „Hún hefði mátt koma strax í
kjölfar fundarins á föstudag. Fólk
var í miklu uppnámi, sumir fóru að
gráta en aðrir urðu reiðir enda er
að okkur vegið,“ segir hún.
Skýra lagaheimild þarf til þess
að flytja ríkisstofnanir á milli
landshluta. Árið 1998 dæmdi
Hæstiréttur Íslands ákvörðun þá-
verandi umhverfisráðherra um að
flytja starfsemi Landmælinga Ís-
lands til Akraness ólögmæta vegna
þess að ráðherrann skorti lagastoð
fyrir ákvörðuninni.
Ragnar H. Hall hæstaréttarlög-
maður segir þetta hafa leitt til
breytinga á lögum um stjórnarráð
Íslands. „Þá var heimild bætt inn í
lögin svo ráðherra þyrfti ekki að
fara fyrir Alþingi í hvert skipti sem
hann ætlaði að flytja fólk hreppa-
flutningum milli landshluta,“ segir
Ragnar og bætir við að á síðasta
kjörtímabili hafi svo verið sett ný
lög um stjórnarráðið. Í þeim lögum
má hins vegar hvergi finna fyrr-
greinda heimild. „Tel ég þá að dóm-
urinn frá 1998 um Landmælingar
hafi beint fordæmisgildi um lög-
mæti þess að taka svona ákvörðun
núna.“ Að sögn Ragnars er nú
nauðsynlegt að sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra greini frá því
við hvaða lagaheimild hann styðst
þegar kemur að þeirri ákvörðun að
flytja aðalskrifstofu Fiskistofu
norður í land.
Kolröng aðferðafræði
Árni Stefán Jónsson, formaður
SFR, segir tímasetningu tíðind-
anna „ömurlega“ enda starfsmenn
stofnunarinnar flestir á leið í sum-
arfrí. „Að mörgu leyti er þetta bara
fjöldauppsögn því ég tel ekki
marga sjá fyrir sér að flytja með
stofnuninni,“ segir hann og bætir
við að verði Fiskistofa flutt norður
muni það koma niður á faglegri
starfsemi. „Í reynd þarf að byggja
upp nýjan mannauð á nýjum stað
svo þessi aðferðafræði er að mínu
mati kolröng,“ segir Árni Stefán.
Elín Björg Jónsdóttir, formaður
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, segir mjög illa að tíðindunum
staðið. „Ríkisstjórnin hefur að und-
anförnu boðað samráð en svo koma
þessar fregnir eins og þruma úr
heiðskíru lofti.“ Segir hún fundinn
á föstudag hafa leitt fram fleiri
spurningar en svör. „Forsætisráð-
herra hefur boðað frekari flutning
stofnana. Þá spyr maður: Verður
staðið að því með sama hætti?“
Ekki náðist í Sigurð Inga Jó-
hannsson, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, við vinnslu þess-
arar fréttar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fiskistofa Á föstudag var starfsfólki tilkynnt að aðalskrifstofan yrði færð til Akureyrar. Starfsmenn eru sagðir í áfalli vegna ákvörðunar ráðherra.
Vegið að starfsmönnum
Hæstaréttarlögmaður segir ákvörðun ráðherra ólögmæta Trúnaðarmaður
segir skort á samráði með ólíkindum Starfsemin mun lamast hægt og rólega
Kennsluflugvél frá flugskóla Keilis
nauðlenti við golfvöllinn á Vatns-
leysuströnd síðdegis í gær. Heim-
ildir herma að vélin hafi misst vél-
arafl og flugmaðurinn náð að lenda
henni rétt utan við golfvöllinn, þar
sem flugvélin lenti á hindrun svo
hún steyptist fram yfir sig og endaði
á hvolfi á veginum. Tveir menn voru
um borð, nemandi og kennari, og
slösuðust þeir ekki alvarlega. Voru
þeir fluttir með þyrlu á sjúkrahús til
skoðunar, samkvæmt mbl.is.
Björgunarsveitirnar á Suður-
nesjum voru kallaðar út þegar
fregnir bárust af því að flugvél hefði
farið niður við golfvöllinn á Vatns-
leysuströnd, en aðstoð þeirra var
afturkölluð þegar í ljós kom að ekki
var um alvarlegt slys að ræða.
Vélin er af gerðinni Diamond
DA20 en slíkar vélar eru mjög vin-
sælar til kennslu hér á landi.
Kennslu-
flugvél
nauðlenti
Sluppu með minni-
háttar áverka
Ljósmynd/Víkurfréttir
Nauðlending Flugvélinni hvolfdi.
Á einungis tveim-
ur klukkustund-
um stöðvaði lög-
reglan á
Suðurnesjum alls
26 ökumenn fyrir
of hraðan akstur
á Reykjanes-
braut í gær. Var
það liður í sér-
stöku umferðar-
eftirliti lögreglu
og óku hinir brotlegu á 110 til 139
km/klst., en líkt og ökumenn eiga að
vita þá er hámarkshraði á Reykja-
nesbraut 90 km/klst. Einn ökumann-
anna var auk þess ölvaður við akst-
urinn og hafði hann tvö börn í bíl
sínum.
Einn af 26 ók
ölvaður með
börn í bílnum
Lögreglan verður
með átak í sumar.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Öll hross sem keppa í A-flokki gæðinga, B-flokki gæðinga,
ungmennaflokki, tölti og skeiði á landsmóti hestamanna
2014 undirgangast dýralæknisskoðun þar sem metið er
hvort þau séu hæf til keppni. Sama á við um öll kynbóta-
hross sem koma til sýningar á mótinu.
„Það eru jákvæð teikn á lofti en samt sem áður höfum
við þurft að vísa hrossum frá þáttöku núna,“ segir Sigríður
Björnsdóttir dýralæknir, sem hefur yfirumsjón með Klár í
keppni, sem þessi heilbrigðisskoðun nefnist.
Sigríður segir ávinninginn af slíkum skoðunum mikinn
þar sem verið sé að tryggja velferð keppnishrossa.
Í heilbrigðisskoðuninni er farið heilt yfir hrossið og
skoðað m.a. holdafar, munnholið og fætur og hlaupið með
þá í taumi til að kanna mögulega helti.
Skoðunin fer fram 2–24 tímum fyrir hverja keppnisgrein
í undankeppni/kynbótasýningu. Fyrir milliriðla og úrslit/
yfirlitssýningu og verðlaunafhendingu kynbótahrossa fer
skoðunin fram tveimur tímum fyrir keppni eða sýningu.
Hafa þurft að vísa
hrossum frá keppni
Flest hross fara í gegnum heilbrigðisskoðun á landsmóti
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skoðun Sigríður Björnsdóttir dýralæknir skoðar hross
fyrir keppni á Landsmóti hestamanna 2012.
Þóroddur
Bjarnason, for-
maður stjórnar
Byggðastofn-
unar, segir að ef
markmiðið sé að
dreifa störfum á
vegum ríkisins í
meira mæli en
verið hefur sé
hægt að gera
fleira en flytja stofnanir á milli
landshluta. „Annar möguleiki er
að stofna nýjar stofnanir en þeg-
ar það er gert eru menn yfirleitt
með aðra sambærilega stofnun í
Reykjavík,“ segir hann og bætir
við að einnig sé hægt að stofna
lítil útibú með fáum starfs-
mönnum. „Svo er hægt að flytja
verkefni frá ríki til sveitarfélaga
og landshlutasamtaka en þar
hefur megináherslan einmitt ver-
ið síðustu árin.“
Stjórnvöld hafa fleiri úrræði
AÐFERÐIR VIÐ AÐ DREIFA RÍKISSTÖRFUM
Þóroddur
Bjarnason.
SVIÐSLJÓS
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við munum fljótlega funda með
starfsfólki og stéttarfélögum um
næstu skref og þá einnig hvort
þessi aðgerð sé yfirhöfuð lögleg,“
segir Jóhanna S. Vilhjálmsdóttir,
trúnaðarmaður starfsmanna Fiski-
stofu gagnvart SFR - stéttarfélagi í
almannaþjónustu. Síðastliðinn
föstudag var tilkynnt að aðalskrif-
stofa Fiskistofu yrði færð norður til
Akureyrar fyrir lok næsta árs.
Jóhanna segir það hreint út sagt
með ólíkindum að hægt sé að taka
jafn stóra ákvörðun og þessa án
þess að nokkurt samráð sé haft við
starfsfólk stofnunarinnar. „Þetta
er bara einhver ákvörðun sem tekin
hefur verið og svo er okkur starfs-
fólkinu ekki sagt neitt meira.“
Illa vegið að starfsfólkinu
Aðspurð segir hún nokkra af
starfsmönnum Fiskistofu hafa haft
samband við sig um nýliðna helgi
og lýst yfir þungum áhyggjum
vegna þeirrar stöðu sem nú er uppi.
„Ég held að margir séu farnir að
huga að því að leita sér að vinnu og
þar með mun stofnunin lamast
hægt og rólega,“ segir Jóhanna.
Starfsfólki Fiskistofu mun í dag
standa til boða áfallahjálp. Spurð
hvort ekki hefði verið ráð að bjóða