Morgunblaðið - 30.06.2014, Side 11

Morgunblaðið - 30.06.2014, Side 11
Morgunblaðið/Malín Brand Efnileg Þau Katrín Mist Haraldsdóttir, Gísli Björgvin Gíslason, Birgitta Björg Bergsdóttir, Aron Már Ólafsson, María Dögg Nelson og Hjalti Rúnar Jónsson í hlutverkum sínum. Á myndina vantar Jóhann Axel Ingólfsson. tíma í verkinu á mismunandi hátt. „Það getur verið með einlægni, feg- urð, fyndni, bröndurum eða með of- beldi. Þannig kemur í ljós hver hinn innri maður er.“ Gróska í menningarlífinu Norðurbandalagið hefur sínar vinnureglur sem eru byggðar á breskum aðferðum, að sögn leik- stjórans. „Við karaktergreinum verkið á einni viku, svo vinnum við og æfum í þrjár vikur og frum- sýnum. Þetta gerist hratt og það er mjög skemmtilegt. Það er gaman að vinna undir tímapressu því það er eitthvað sem gerist í tímapressu. Allir eru á tánum allan tímann. Við verðum að gera þetta og það mun skila sér í orkunni á frumsýning- unni eins og á æfingunum,“ segir Jón Gunnar. Það er ýmislegt um að vera í menningarlífinu á Akureyri um þessar mundir og varla hægt að ganga um miðbæinn án þess að verða vitni að einhvers konar list- sköpun. „Menningarlífið á Ak- ureyri blómstrar á sumrin og það er virkilega gaman að því. Það er sérstaklega út af grasrótinni í myndlist og leiklist. Akureyrarbær er iðinn og duglegur við að styrkja ýmis verkefni og síðan gerir at- vinnuátak bæjarins okkur þetta kleift því að bærinn greiðir leik- urum Norðurbandalagsins laun og þannig hefur það verið síðustu þrjú árin. Norðurbandalagið er einn af mörgum hópum sem starfandi eru yfir sumarið og þetta er frábært framtak, bæði til þess að lífga upp á sumarið og sem atvinnuátak til að gefa fjölda fólks tækifæri til að vinna við það sem það hefur áhuga á, sanna sig, koma sér á framfæri og gera eitthvað virkilega gott yfir sumarið. Það mun skila sér yfir veturinn,“ segir Jón Gunnar. Hugmyndin að Norður- bandalaginu byggir að hans sögn á þeim mikla krafti sem fólkið á Norðurlandi býr yfir. Sjálfur hefur Jón Gunnar leikstýrt víða á svæð- inu, til dæmis í Freyvangsleikhús- inu, leikfélagi Hörgdæla og Leik- félagi Akureyrar, auk þess að hafa sett upp sjálfstæðar sýningar og stýrt Akureyrarvöku. „Þar hafa þessir kraftar verið sameinaðir. Hvort sem það eru tæknimenn, grafískir hönnuðir eða annað er mjög gaman á sumrin að sameina kraftana úr áhugafélögunum og þeim áhugamönnum sem eru að verða atvinnumenn og þeir verða að Norðurbandalaginu. Þetta eru leikarar framtíðarinnar,“ segir leikstjórinn Jón Gunnar Þórð- arson. Miða á sýningar Norður- bandalagsins má kaupa í verslun Eymundsson á Akureyri og við inn- gang Rýmisins að Hafnarstræti 73. Leikur Hér er Hjalti Rúnar Jónsson í tilþrifamiklum leik á sviði Rýmisins. Ýmislegt gengur á í þessu leikverki og reynir mjög á leikarana ungu. Norðurbandalagið er einn margra hópa sem starfandi eru yfir sum- arið og lífga upp á bæjarlífið. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014 Líkaminn er yndislegur eins og hann kemur frá náttúrunnar hendi – honum er jafnvægi eiginlegt og eðlilegt. Hann býr yfir ýmiskonar stillikerfum til að leiðrétta eða bregðast við ójafnvægi og áföllum. Líkaminn fer í „survival mode“, ef hann upplifir skort. Þróun- arsögulega séð er mikilvægt fyrir lífveruna að verjast hungri. Hvað gerir móðir með mörg börn að fæða, sem upplifir ótraust ástand; stundum er hægt að fá mat en stundum er ekkert til? Fer hún ekki að nýta betur það sem hún hefur úr að spila og hamstra þegar hún getur? Á sama hátt bregst lík- aminn við stífu aðhaldi eða átaki. Hann hægir á brennslu, lækkar hitastig o.s.frv. Viðkomandi er einn- ig hættara við að missa sig í átköst, háma í sig hitaeiningaríkan mat, þ.e. hamstra. Móðirin hættir hvorki að nýta vel allt sem hún hefur né safna forða þegar hún hefur færi á, fyrr en hún er orðin öruggari og getur farið að treysta því að það muni alltaf verða til nóg. Fólk léttist fyrst á hitaein- ingalágu fæði en svo bregst lík- aminn við með því m.a. að hægja á brennslu. Að stífu aðhaldi loknu fitnar viðkomandi á þeim fjölda hitaeininga sem áður viðhélt óbreyttu ástandi. Manneskjan situr uppi með vanlíðan, niðurlægingu, uppgjöf og sjálfsásakanir (og e.t.v einnig annarra) um skort á vilja- styrk; rís svo upp aftur og ætlar að reyna enn betur, nýtt átak, vera strangari, „engan aumingjaskap“. En sjálfsásakanir eru fyllilega óréttmætar. Þessi viðbrögð eru inn- byggð í líkamann og koma einnig fram hjá rottum í tilraunaað- stæðum, sem vart verða sakaðar um skort á viljastyrk. Það er að- ferðin sem beitt er sem er söku- dólgurinn. Það er freistandi og mannlegt að vilja sjá árangur strax, þótt hann sé eingöngu til skamms tíma. Leiðin út hlýtur að fela í sér virð- ingu fyrir jafnvægi líkamans, í takt við þarfir hans og eðli. Líklegt er að honum henti fjölbreyttur matur í hæfilegu magni og með reglulegu millibili. Líkaminn býr yfir innri visku og er fullfær um að segja okkur til – við þurfum þó oft að læra upp á nýtt að hlusta á hann. Færa okkur nær því að borða eftir innri merkjum um svengd og seddu og fjær ytri boðum og bönnum og ýmsum ytri áreitum. Stundum þarf maður líka að spyrja sig „Er ég kannske frekar reiður, hræddur, eða leiður en svangur?“ Getum við endurheimt traust og náð tengslum með „átaki“ – getum við „kýlt á það“? Mikilvægt er að leyfa ferlinu að taka þann tíma sem þarf. Jafnframt að leyfa sjálfum sér að njóta þess að „vera á leiðinni“, fremur en að slá lífinu á frest „þar til allt er komið í lag“. Það er ánægjulegt að fara að upplifa jafn- vægið, borða þegar maður er svangur, það sem mann langar í og verður gott af og hætta þegar mað- ur er saddur. Finna langanir í át- köst fjarlægjast. Borða eðlilega án þess að sveiflast í þyngd og eiga hugann frjálsan að því að hugsa um eitthvað allt annað en næstu máltíð, hitaeiningar og þyngd. Morgunblaðið/Árni Að vega salt Okkur er jafnvægið eiginlegt og eðlilegt. Heilsupistill Heiðdís Sigurðardóttir sálfræðingur Gengur það upp ef ég hætti að hamast?  Heilsustöðin sálfræði- og ráðgjafarþjón- usta, Skeifunni 11a, Rvk. www.heilsustodin.is Ræflavík Það er snúið að vera fastur og van- sæll í einhverju krummaskuði. Ármú la 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn. is | www.gahusgogn. is 1975-2014 GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á íslenskum markaði um árabil. Við leggjum áherslu á stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu. Við tökum málin þín í okkar hendur Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.