Morgunblaðið - 30.06.2014, Side 12

Morgunblaðið - 30.06.2014, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014 Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur kveðið upp úrskurð í kæru Ingunnar Björnsdóttur, lyfjafræð- ings og dósents við Óslóarháskóla, gegn Embætti landlæknis um það á hvaða formi landlæknir hygðist fara að úrskurði nefndarinnar um af- hendingu gagna um gæðaúttekt á lyfjagagnagrunni embættisins. Ing- unn kærði Embætti landlæknis fyrir að neita að afhenda henni gögnin gjaldfrjálst á rafrænu formi en emb- ættið hefur aðeins viljað afhenda gögnin á pdf-formi. Embættið vísar í gjaldskrá forsætisráðuneytisins fyr- ir ljósrit eða afrit sem veitt eru á grundvelli upplýsingalaga og vill fá 143.615 krónur fyrir ómakið. Málinu vísað frá Í úrskurði nefndarinnar segir að við meðferð málsins hafi komið í ljós að bæði kærandi og Embætti land- læknis voru því samþykk að umrædd gögn yrðu brennd á óendurskrifan- legan geisladisk og afhent þannig. Nefndin taldi því ekki vera efni til frekari umfjöllunar um málið og vís- aði því frá nefndinni. Ingunn segir úrskurðinn vera at- hyglisverðan þar sem nefndin telji ekki liggja fyrir að stjórnvald hafi neitað því að afhenda gögnin á því formi sem beðið var um. „Líklega hefur nefndinni yfirsést sú fyrirætlan embættisins að af- henda mér gögnin á pdf-formi. Ég vona hins vegar að skýringin sé sú að Embætti landlæknis hafi fallið frá þeirri hugmynd og sé tilbúið til þess að afhenda mér gögnin á uppruna- legu formi,“ segir Ingunn. Ingunn bað fyrst um að fá gögnin afhent á óendurskrifanlegum geisla- diski 7. janúar 2013 en embættið neitaði því og hefur gert ítrekað síð- an. Ingunn kærði það til úrskurðar- nefndar um upplýsingamál sem úr- skurðaði henni í hag 16. ágúst 2013. Þrátt fyrir það hefur hún ekki enn fengið gögnin. „Mér finnst með ólík- indum hversu langan tíma málið hef- ur tekið. Ég þurfti að vekja athygli embættisins á því að þarna væri ókl- árað mál. Eftir að fyrri úrskurðurinn kom gerðist ekkert embættisins megin og ég þurfti í tvígang að vekja athygli á úrskurði nefndarinnar og að þeim bæri að bregðast við hon- um,“ segir Ingunn. Rannsóknir vel þegnar Í tilkynningu sem birtist á vef Embættis landlæknis kemur fram að fram til þessa hafi ekki verið sótt um aðgang að gögnum úr lyfjagagna- grunni til rannsókna sem snúa bein- línis að gæðum gagna í grunninum. Einnig kemur fram að slíkar rann- sóknir séu bæði eftirsóknarverðar og vel þegnar. Í ljósi atburða segist Ingunn ekkert botna í þeirri yfirlýs- ingu. „Það er akkúrat það sem ég er að gera. Ég er að biðja um gögn sem urðu til fyrir tilstilli vinnu minnar og annarra og ég hef gert það nokkrum sinnum síðan í janúar 2013,“ segir Ingunn en velferðarráðuneytið er með málið til meðferðar hjá sér og mun úrskurða um heimild Embættis landlæknis til gjaldtöku í þessu til- viki. Sammála um af- hendingarformið  Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki vera efni til frekari umfjöllunar um mál lyfjafræðings gegn landlækni Morgunblaðið/Kristinn Landlæknir Segir slíkar rannsóknir bæði eftirsóknarverðar og vel þegnar. Takmörkunum háð » Ingunn telur að Embætti landlæknis óttist að láta hana fá gögnin til rannsókna og reyni því að tefja málið. » Í tilkynningu frá embættinu kemur fram að ekki sé unnt að útiloka að réttur viðkomandi til aðgangs að umræddum gögn- um kunni að vera takmörk- unum háður. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra eru báð- ir skyldir yfirmanni lífvarðasveitar Jörundar hundadagakonungs, sem tók stjórn yfir Íslandi í byltingunni sumarið 1809 og lýsti Ísland „laust og liðugt frá Danmerkur Ríkis- ráðum“. Yfirmaður lífvarðasveitarinnar hét Jón Guðmundsson og var sonur Guðmundar Jónssonar, bónda og lögréttumanns í Skildinganesi í Reykjavík, og Guðríðar Ottadóttur. Bæði Sigmundur og Bjarni eru komnir af ætt Guðmundar. Sig- mundur er kominn af Margréti Guðmundsdóttur og Bjarni af Pétri Guðmundssyni, en Engeyjarættin er rakin til Péturs. Margir íslenskir stjórnmálamenn eru af Engeyjarættinni. Þar má meðal annarra nefna Benedikt Sveinsson, föður Bjarna Benedikts- sonar, fyrrv. forsætisráðherra, og Péturs Benediktssonar alþingis- manns. Afabörn Benedikts eru Björn Bjarnason, fyrrv. dóms- málaráðherra, og Halldór Blöndal, fyrrv. samgönguráðherra. Flúði land og fór til Færeyja Jón Guðmundsson flúði Ísland og fór til Færeyja eftir að Bretar hand- tóku Jörund hundadagakonung og bundu þar með enda á valdatíð hans. Jón gerðist kennari og síðar bókbindari í konungsversluninni í Þórshöfn. „Við höfum fundið 80 af- komendur Jóns Guðmundssonar á Norðurlöndunum,“ segir Oddur Helgason, æviskrárritari og fram- kvæmdastjóri ættifræðiþjónust- unnar ÓRG, en hann vill meina að Engeyjarættin byrji með Guðmundi Jónssyni og væri því réttara að kalla hana Skildinganessættina. Bjarni Ben og Sig- mundur Davíð skyldir  Tengdir lífverði Jörundar hunda- dagakonungs Konungur Jörundur stjórnaði Ís- landi í tvo mánuði sumarið 1809 Ingileif Friðriksdóttir if@mbl.is Tíðarfar hefur verið hagstætt til ræktunar grænmetis þetta árið og uppskera tveimur til þremur vikum fyrr en síðustu ár. Vorið var gott og sést hafa fín þrif á mörgum gróðri. Guðríður Helgadóttir, garðyrkju- fræðingur hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, segir vaxtarskilyrði hafa verið betri en síðustu ár. „Á síðasta ári var uppskerubrestur á ýmsu grænmeti vegna þess að það var svo blautt og árið þar áður var kalt í maí. Í ár hefur hins vegar ekki verið jafnblautt og næturfrost var lítið sem ekkert í maí svo það mun- ar alveg rosalega miklu,“ segir hún. Þar sem maímánuður var hlýr þetta árið var hægt að setja niður fyrr, sem lengir vaxtartímann hjá plönt- unum mikið og afurðirnar koma upp fyrr en ella. Að sögn Guðríðar mun þroskinn á plöntunum aukast enn frekar fari sólin að láta sjá sig. Hins vegar segir hún óheppilegt ef áfram verður votviðrasamt. „Rótargrænmetið fer illa ef það er blautt í veðri, það er að segja rófur, gulrætur og kartöflur til dæmis. Salat getur einnig farið illa í mikilli vætu og á það til að mygla,“ segir Guðríður: „Ef við verðum ótrúlega óheppin og fáum aftur rigningasumar myndi ég ráðleggja fólki að huga að því að hafa ein- hvers konar yfirbreiðslur yfir við- kvæmari tegundir eins og salat.“ Hjörtur Benediktsson garðyrkju- bóndi segir sprettuna hafa verið sérlega góða. Hann opnaði í gær sinn árlega grænmetismarkað í Hveragerði, fyrr en nokkru sinni. Markaðurinn hefur verið opnaður um miðjan júlí seinustu ár en þar sem uppskeran kom fyrr þetta árið ákvað Hjörtur að bíða ekki með það að opna hann. „Það er komið upp salat, græn- kál, steinselja, kínakál og hnúðkál til dæmis, en tegundirnar sem þurfa lengri tíma eins og brokkólí, blómkál og rauðrófur koma inn á markaðinn um leið og þær spretta upp.“ Hjörtur segir skilyrðin mun betri en á síðasta ári. „Í fyrra fór maður varla úr úlpunni því það var svo kalt, en núna liggur við að ég sé bara hérna á bikiníinu,“ segir hann hlæjandi að lokum. Morgunblaðið / Sigmundur Sigurgeirsson Uppskera Hjörtur Benediktsson hugar að kálinu í byrjun júní. Hann hefur opnað sinn árlega grænmetismarkað í Hveragerði, fyrr en nokkru sinni. Grænmetisuppskera fyrr á ferð en síðustu ár  Garðyrkjufræðingur segir skilyrðin góð  Vaxtartíminn lengri en áður Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380 EFNALAUG ÞVOTTAHÚS DÚKALEIGA GÆÐI – ÞEKKING ÞJÓNUSTA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.