Morgunblaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014 ✝ Trausti HelgiÁrnason fædd- ist á Atlastöðum í Svarfaðardal 21. maí 1929. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Lögmannshlíð á Akureyri 20. júní 2014. Foreldrar Trausta Helga voru: Árni Árnason, f. 19. júní 1892, d. 4. desember 1962, og Rannveig Rögnvaldsdóttir, f. 8. október 1894, d. 14. júlí 1989, ábúendur á Atlastöðum í Svarfaðardal. Systkini Trausta Helga voru: Sigríður, f. 22. maí 1917, d. 4. maí 2003, Anna, f. 26. janúar 1919, d. 12. október 1980, Rögn- valdur, f. 16. mars 1920, d. 11. janúar 2010, Sigurlína, f. 26. apr- íl 1922, d. 30. október 2011, Ragnhildur, f. 5. nóvember 1923, f. 22. maí 1957. Börn þeirra: Margrét, f. 23. ágúst 1989, og Sólveig, f. 20. júlí 1996. c) Hólm- fríður, hjúkrunarfræðingur, f. 7. mars 1959. Trausti Helgi fluttist frá Atla- stöðum með foreldrum sínum og öðru heimilisfólki að Syðri- Hofdölum í Viðvíkurhreppi í Skagafirði árið 1936 og ólst þar upp til fullorðinsára. Trausti Helgi lauk stúdentsprófi frá MA 1950, BA-prófi í dönsku, sögu og uppeldisfræðum frá HÍ 1953. Hann hlaut meistararéttindi í múraraiðn 1966. Námsdvöl í Danmörku 1967-1968. Trausti Helgi var kennari á Finnbogastöðum í Árneshreppi 1950-1951, kennari við Alþýðu- skólann á Eiðum 1953-1955, kennari við Gagnfræðaskóla Siglufjarðar 1955-1967 og kenn- ari við Menntaskólann á Ak- ureyri til 1976. Hann kenndi nemendum í múraraiðn frá 1968. Trausti Helgi starfaði sem múr- arameistari fram til ársins 2012. Útför Trausta Helga verður gerð frá Glerárkirkju í dag, 30. júní, og hefst athöfnin klukkan 13.30. d. 3. maí 2014, og Ísak Árni, f. 23 maí 1925, d. 15. apríl 2004. Trausti Helgi giftist 27. desember 1953 Margréti Jóns- dóttur frá Ytri- Hofdölum í Viðvík- urhreppi, fædd í Langhúsum í Við- víkursveit 25. jan- úar 1927. Börn þeirra: a) Sigurður, lyfjafræðingur, f. 11. maí 1954, maki Jónína Lár- usdóttir, f. 30. júlí 1959. Börn þeirra: 1) Helgi Alexander, f. 6. apríl 1981, maki Sigrún Sif Kristjánsdóttir, f. 28. febrúar 1982. Börn þeirra: Lukka, f. 12. ágúst 2010, og Máni, f. 27. des- ember 2012. 2) Margrét Lára, f. 7. nóvember 1984. b) Rannveig, sérkennari, f. 3. nóvember 1956, maki Einar Birgir Steinþórsson, Það eru liðin rúm 40 ár frá því að við hittumst í fyrsta sinn en þó man ég daginn þann vel. Ég var 16 ára óharðnaður unglingur að austan að sækja dóttur þína heim og þú fullur efasemda um þennan strákling og fyrirætlanir hans. Ég vissi áður en við hittumst að þú hefðir áhuga á ætterni mínu og uppruna, ekki síst vegna þess að þú þekktir vel til á Fljótsdalshéraði eftir að hafa kennt tvo vetur á Eiðum. Ekki hafði mig þó dreymt um að það tæki mig meira en tvo tíma að komast inn úr holinu í Espilundi í þessari fyrstu heimsókn. Það kom reyndar fljótt í ljós í samtalinu að þú þekktir vel til minna ættmenna, hverra manna ég væri og varst vel sáttur við það. Þá var hins vegar farið að spyrja frétta af mönnum og málefnum fyrir austan og sem betur fer var ég vel heima í flestu sem spurt var um. Stóðst prófið vel sagðir þú seinna þegar við skemmtum okkur við að rifja upp þessi fyrstu kynni. Þarna tókst strax með okkur vinátta og traust sem hélst óslitið síðan. Vinnan er leikur og leikur er vinna var þitt lífsviðhorf. Þú varst alltaf reiðubúinn til verka jafnt á nóttu sem degi alla daga ársins. Með þér er genginn einstakur fag- maður í múrverki og flísalögnum með verkþekkingu sem sennilega fáir af komandi kynslóðum búa yfir enda hafa verk þín ávallt staðist vel tímans tönn. Ég var svo heppinn að fá að vera þér til aðstoðar í nokkrum verkum innan fjölskyldunnar þar sem við vorum að leggja flísar. Við áttum alla tíð gott með að vinna saman og þú hafðir einstakt lag á að leiðbeina til verka og fá mann til að trúa að aðstoðin væri til einhvers gagns. Þessar samverustundir í vinnu með þér voru mér dýrmætar, ekki síst því þar áttum við mörg skemmtileg samtöl. Þú varst víð- lesinn, áttir auðvelt með að setja saman tækifærisvísur, söngmaður góður og einstaklega minnugur fram til síðasta dags. Það var því mörgu að miðla. Þér var alltaf mjög umhugað um velferð fjölskyldunnar og hjálp- semi þín og greiðvikni við sam- ferðamenn átti sér fá takmörk. Þú varst sannur vinur vina þinna. Þeg- ar Margrét tengdamóðir mín fór að glíma við sín veikindi þurftir þú að taka yfir öll almenn heimilis- störf sem þú sannarlega hafði lítið snert á áður. Það var aðdáunarvert að fylgjast með hvernig þú leystir það verk af hendi og lagðir þig fram um að annast Margréti af umhyggjusemi og nærgætni þar til hún flutti á hjúkrunarheimili fyrir ári. Veikindi þín tóku sinn toll, sér- staklega þessa síðustu mánuði, en þú vissir vel í hvað stefndi og skipu- lagðir þín mál vel eins og þinn var háttur. Það var ógleymanleg stund sem við áttum saman á 85 ára af- mælinu þínu fyrir rúmum mánuði þegar við Rannveig og dætur okkar heimsóttum þig og áttum einstak- lega góða stund þar sem þær sungu fyrir ykkur Margréti nokkur af þínum uppáhaldslögum. Þegar ég heimsótti þig árla þann dag vissum við báðir að það væri sennilega okk- ar síðasta samtal. Þá lokuðum við því sem hófst fyrir rúmum 40 árum. Trausti, minn kæri tengdafaðir, ég kveð þig með söknuði og votta Margréti og öðrum aðstandendum samúð mína. Einar Birgir Steinþórsson. Elsku besti afi, ég mun seint ef nokkurn tímann gleyma okkar dýr- mætu stundum saman; að heyra af- mælissönginn sunginn af þér í síma hvert einasta ár, hlusta á munn- hörpuspil og reyna sjálf en mistak- ast hrapallega, leggja saman flísar á teppinu inni í stóru stofu, en mikið þótti mér samt óþægilegt að kyssa þig á kinnina fyrir öllu skegginu. Eins sárt og það er að þurfa að skiljast að í þessu lífi, þá er hægt að hugga sig við þá yndislegu stund sem við áttum á afmælisdaginn þinn fyrir stuttu, ein af mörgum sem ég mun varðveita í hjarta mínu svo lengi sem ég lifi. Ég kveð þig með ljóðinu sem við sömdum saman við laufa- brauðsbakstur síðustu jóla: Laufabrauð í Lindarsíðu, lífleg tónlist og gaman. Flettandi undir tónum blíðum, fjölskyldan fögur saman. Takk fyrir allan stuðninginn og umhyggjuna sem þú og amma haf- ið veitt mér gegnum árin, ég sam- hryggist þér innilega, elsku amma. Margrét Einarsdóttir. Þótt Trausti Helgi Árnason segðist stundum kankvís vera barn kreppunnar, sem reið yfir á haust- dögum árið sem hann fæddist, var það ekki svo. Sá heimur, sem hann fæddist inn í, var hlýr og fágaður og á sinn hátt öruggur. Hann stóð nærri sjálfsbjörginni. Gólfið á Atl- astöðum var hreint og snyrtilegt. Skánin fægð. Múrarinn trausti, sem átti eftir að leggja betri gólf en aðrir að öllum ólöstuðum, steig sín fyrstu skref á mjúku moldargólfi, yngstur sjö systkina. Ég er nokk- urn veginn viss um að drengurinn hefur litið þennan viðsjárverða heim opnum augum, jákvæðum en alvarlegum. Trausti var vorbarn, fæddur 21. maí 1929. Atlastaðir, fremsti bær að vest- anverðu í Svarfaðardal, var síðasti bær, sem farið var hjá áður en haldið var á Heljardalsheiði yfir í Kolbeinsdal. Fjölskyldan flutti bú- ferlum frá Svarfaðardal og leiðin lá til Skagafjarðar. Faðir hans var ekki heilsuhraustur, en dugnaðar- maður og kjarkmikill. Hann keypti Syðri-Hofdali í Viðvíkursveit. Þar ólst Trausti upp frá sjö ára aldri. Trausti minntist foreldra sinna og æskuheimilis með mikilli virð- ingu og hlýju. Hann hefur eflaust sótt til þeirra margt af því sem var mest áberandi í fari hans. Vand- virkni, vinnusemi og kjark hefur hann líklega sótt til föður síns, en frá móður sinni finnst mér senni- legt að hann hafi haft hlýju, um- burðarlyndi og virðingu fyrir þekk- ingu og lærdómi. Þrátt fyrir lítil efni og erfiða tíma braust Trausti til mennta. Síð- ustu tvo veturna í MA var hann ut- anskóla af fjárhagsástæðum. Hann hafði veikst af botnlangabólgu á leið heim úr skóla og legið í þrjár vikur á Silfrastöðum. Trausti lauk prófi frá Háskóla Íslands í dönsku, sagnfræði, sálar- og uppeldisfræði. Hann dvaldi síð- ar í Danmörku, lagði stund á dönsku og kynnti sér kennslu- hætti. Alla ævi sína bætti Trausti við sig þekkingu. Það var ekki síst á sviði sígildrar evrópskrar menn- ingar og sögu, sem Trausti var vel að sér og öðrum mönnum fróðari. Trausti Árnason sótti sér lífs- förunaut sinn, Margréti Jónsdótt- ur, yfir lækinn til Ytri-Hofdala. Þau Margrét bjuggu í 12 ár á Siglufirði, þar sem Trausti kenndi við Gagnfræðaskóla og Iðnskóla. Það var á þeim árum, sem Trausti lærði múraraiðn hjá mági sínum Kára Hermannssyni. Við Trausti kynntumst á kenn- arastofu Menntaskólans á Akur- eyri. Hann hvarf hins vegar frá kennslustörfum 1976 og stofnaði byggingafyrirtæki. Síðar, þegar harðnaði á dalnum, fór Trausti að flytja inn flísar og fylgiefni. Fyr- irtækið bar nafn með rentu, hét Traustverk og er enn við lýði. Með okkur Trausta mynduðust sterk vinabönd. Hann var afbragðs kennari, en í múrverkinu var hann listamaður. Það var unun að horfa á hann vinna og læra af honum. Til hans leitaði ég alltaf, en þó einkum þegar ég lét reisa mér hús á Festarkletti. Þar var Trausti um- sjónarmaður með byggingafram- kvæmdum og vakti af alúð yfir öll- um málum. Rúmlega áttræður leysti hann öll vandmeðfarin flísa- mál og sagði mér til um þau auð- leystari. Múrarameistari hússins var Jón Illugason, einn af fjórum lærlingum sem Trausti valdi af varfærni og ól upp af alúð. Allir urðu þeir afburða múrarar. Trausti átti marga vini, naut þess að umgangast þá og reyndist þeim vel. Þegar smámunum var gaukað að honum var sem hann hefði himin höndum tekið. Á hinn bóginn var hann ekki smátækur í örlæti sínu. Þótt Trausti væri dag- farsprúður, kurteis og yfirvegaður gat hann einnig verið mjög fastur fyrir. Harður var hann þó einkum við sjálfan sig. Þegar hann veiktist alvarlega og gekkst undir erfiða hjartaaðgerð beitti hann sig ein- stakri hörku til að ná fyrri líkams- burðum. Handtakið var þétt til hinstu stundar. Múrarinn Trausti var heil- steyptur maður og einn sá besti sem ég hef kynnst. Hann var jarð- bundinn í þess orðs dýpstu merk- ingu og ræturnar sterkar. Þegar hann er borinn til moldar er þetta vorbarn komið heim, hvílir að dagsverki loknu í þeirri fósturjörð, sem hann unni og auðgaði. Eiginkonu hans og fjölskyldu sendum við hjónin okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Tómas Ingi Olrich. Trausti Helgi Árnason  Fleiri minningargreinar um Trausta Helga Árna- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ RagnhildurHelgadóttir fæddist 11. desem- ber 1937. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Grund 14. júní 2014. Foreldrar hennar voru Björn Jónsson, f. 20.3. 1910, d. 6.7. 1983, og Ingibjörg Páls- dóttir, f. 28.12. 1916, d. 10.10. 2008. Kjörforeldrar Ragnhildar voru sr. Helgi Konráðsson prest- ur á Sauðárkróki, f. 24.11. 1902, d. 30.6. 1959, og kona hans, Jó- hanna (Petrea) Þorsteinsdóttir, f. 14.4. 1911, d. 8.9. 1973. Ragn- hildur átti eldri bróður, Pál, f. 3.6. 1936, d. 1941. Hálfsystkini sammæðra eru Rannveig Lár- usdóttir, f. 27.2. 1949, og Þránd- ur Andersen, f. 11.7. 1954. Hálf- systkini samfeðra eru Hulda, f. 1.4. 1931, d. 12.1. 2008, Pála vörður á Borgarbókasafni 1959- 69, skólasafnskennari við Laug- arnesskóla 1970-75 og starfaði þá jafnframt við Borg- arbókasafnið. Ragnhildur var skólasafnskennari við Valhúsa- skóla á fyrstu árum skólans, síð- an starfaði hún við Æfingadeild Kennaraháskólans til ársins 2001. Hún gegndi ýmsum trún- aðarstörfum fyrir skólasafns- verði og kennara og var einn af fjórum stofnendum bókaútgáf- unnar Bjöllunnar. Eiginmaður Ragnhildar var Bolli Thoroddsen hagræðing- arráðunautur hjá ASÍ, f. 13.3. 1933, d. 18.7. 2013. Þau voru gefin saman 27. mars 1960. Son- ur þeirra er Helgi (Konráð) arkitekt, f. 10.2. 1961. Kona hans er Sigrún B. Bergmunds- dóttir sjúkraþjálfari, f. 25.4. 1963. Þau eiga tvo syni, Berg- mund Bolla, f. 31.10. 1997, og Jó- hannes, f. 2.12. 2000. Áður átti Bolli Emil, félags- og rekstr- arhagfræðing, f. 26.12. 1956. Heimili þeirra Bolla var löngum við Sæbraut á Seltjarnarnesi. Ragnhildur verður jarð- sungin frá Neskirkju við Haga- torg í dag, 30. júní, kl. 15. Jóna, f. 17.7. 1941, Guðmundur, f. 4.12. 1944, Jón Trausti, f. 23.9. 1947, Kristín, 14.9. 1948, Sig- urður Björgvin, f. 15.3. 1951, Hörður Geir, f. 27.12. 1954, og Björg, f. 4.1. 1959. Ragnhildur ólst upp á Sauðárkróki og lauk þar barna- skóla og síðar landsprófi. Kenn- araprófi lauk hún frá Kenn- araskóla Íslands 1958. Hún stundaði framhaldsnám um skólasöfn í Danmarks Lærerhøj- skole 1969-70 og meistaranámi lauk hún frá KHÍ 1999. Hún sótti fjölda námskeiða, einkum um skólasöfn og safnakennslu og stýrði slíkum námskeiðum ásamt Kristínu Unnsteinsdóttur. Hún var stundakennari við Vest- urbæjarskóla 1958-59, bóka- Hér sit ég og hlusta á Billie Holiday og minnist Ragnhildar tengdamömmu. Ég er sannfærð um að hún hefur hlustað á Billie á einhverjum tíma lífs síns. Ég var 18 ára þegar ég hitti Ragnhildi fyrst á heimili þeirra tengdapabba Bolla á Sæbraut. Hún vildi alltaf að ég kallaði sig tengdamömmu. Við áttum ágæt- lega saman og gátum hlegið að sömu hlutunum og grúskað í ætt- fræði í og með. Vikulega vorum við Emil boðin í mat til þeirra þeg- ar við vorum í skóla. Við höfðum báðar gaman af fallegum fötum og Ragnhildur var með sinn sértaka stíl í klæðnaði sem mér féll alltaf mjög vel. Ég man þegar við bjuggum á Skerjabrautinni og vinkona mín sá hana tilsýndar og gat ekki orða bundist um það hve hún væri flott klædd. Einu sinni fórum við Dúna tengdamamma og Ragnhildur á Hótel Sögu til að skemmta okkur og það var skemmtun í lagi sem ég mun seint gleyma. Við hlógum, spjölluðum og skemmtum okkur vel það kvöld, þótt Dúna hafi dregið mesta athygli að sér af karlkyninu, okkur Ragnhildi til nokkurs ama því við vorum yngri. Þegar við Emil eignuðumst okkar fyrsta barn Gunnar Atla þá komu þau Ragnhildur og Bolli til mín á fæðingardeildina með eld- rauðar gladíólur, ég gleymi þeim blómvendi aldrei. Tveimur vikum eftir fæðinguna þurfti Emil til út- landa og þá var Ragnhildur boðin og búin að hjálpa mér, kom dag- lega og gáði að okkur. Henni var umhugað um að mér og barninu liði vel. Amma Lagga var amma hans Gunnars Atla sonar míns svo sannarlega. Hann kallaði hana alltaf ömmu Löggu og olli það stundum misskilningi hjá vinum hans. Þeir héldu nefnilega að hún væri í lögreglunni. Á sunnudögum vorum við boðin í kaffi og með því og þá var amma búin að kaupa sér alls kyns þroskaleikföng til að kenna barninu. Svo vorum við boðin á jólaböll í skólann sem hún vann í okkur til mikillar ánægju. Ragnhildur lagði mikla áherslu á að synir mínir Gunnar og Oddur lærðu stærðfræði áður en þeir færu í skóla frekar en lestur og tel ég það hafa verið gott ráð því báð- um hefur gengið vel á þeirri braut. Ragnhildur átti sterkan vinkonuhóp sem ég fékk að kynn- ast. Hún hélt mjög upp á vinkonur sínar sem voru bæði æskuvinkon- ur og vinkonur í gegnum líf henn- ar og starf sem kennara. Sú vin- átta var dýrmæt allt til loka. Nýlega skemmtilega minningu á ég um Ragnhildi eftir að hún veiktist af Alzheimer. Þá fórum við saman í búðir. Ragnhildur vissi nákvæmlega í hvaða búðir hún vildi fara og keypti sér svo fal- legan rauðan jakka sem hún not- aði mikið. Smekkur hennar á föt- um var ekki frá henni tekinn. Á eftir fórum við á kaffihús og feng- um okkur sérrítár. Þegar við fór- um í bæinn saman enduðum við gjarnan á kaffihúsi okkur til ánægju. Ragnhildur háði harða baráttu við erfiðan sjúkdóm. Aðdáunar- vert var hve hún hélt sínu góða skapi, geðprýði og reisn alla tíð. Okkur hér á Hagamel 44 er efst í huga þakklæti fyrir samferðina. Ragnhildur fór allt of fljótt. Guð blessi minningu Ragnhildar Helgadóttur. Katla Gunnarsdóttir. Ragnhildur tengdamóðir mín er nú látin eftir langvinn og erfið veikindi. Hún var einstök kona, ljúf og góð í viðmóti og mikill mannvinur. Ragnhildur var mikil bókakona, víðlesin og vann innan um bækur alla sína starfsævi. Ragnhildur skar sig úr hvar sem hún kom, hún hafði sérstakan fatastíl, bar gjarnan stórar og lit- ríkar hálsfestar, yfirbragðið var elegant og fágað og viðmótið hlýtt. Ragnhildur hafði góða nærveru. Hún var mikil sögukona, kunni ógrynni af sögum af fólki og at- burðum. Það var oft setið yfir kaffi með dísætum kökum sem voru í miklu uppáhaldi og spjallað vítt og breitt um atburði líðandi stundar, bækur, ættfræði og og ekki síst um sonarsynina, viðfangsefni þeirra og velferð. Þessar samverustundir skilja eftir sig góðar minningar. Ragnhildur var sífellt með hug- ann við að færa sonarsonum sín- um, þeim Bergmundi Bolla og Jó- hannesi, bækur og lesefni sem hæfði aldri þeirra og þroska hverju sinni. Sonarsynir hennar áttu hug hennar allan og veittu henni og Bolla afa þeirra mikla ánægju. Þeir eiga margar góðar minningar um ömmu sína. Ömmu að lesa upp- hátt fyrir þá með leikrænum til- burðum, ömmu sem fræddi þá um jurtir og blómaheiti, ömmu sem kom stundum óvænt í heimsókn á hjólinu sínu með góðgæti í poka úr bakaríinu, ömmu sem var svo gott að eiga stund með. Ragnhildur var áhugasöm um myndlist og hélt mikið upp á hina dönsku Skagen-málara. Það var eftirminnilegt þegar hún fór með Herdísi vinkonu sinni í hálfgerða pílagrímsferð til Skagen á Jótlandi í þeim tilgangi að skoða söfn með verkum Skagen-málaranna og ekki síst til að skoða umhverfið á Skagen og upplifa hina sérstöku birtu sem þar ríkir. Í gegnum tíðina lágu leiðir Ragnhildar oft til Kaupmanna- hafnar, ýmist í tengslum við störf hennar eða til að heimsækja Rann- veigu hálfsystur sem þar er búsett og síðast en ekki síst til að upplifa danska menningu. Safnið um skáldkonuna Karen Blixen í Rungsted fyrir utan Kaupmanna- höfn var einn af uppáhaldsstöðum Ragnhildar til að heimsækja í þessum ferðum og heillaði hún okkur með frásögnum sínum af því sem hún hafði orðið vísari um líf og störf skáldkonunnar. Ragnhildur veiktist af Alzheim- er-sjúkdómnum sem leiddi til þess að hún þurfti að fara á hjúkrunar- heimilið Grund fyrir rúmum 2 ár- um vegna versnandi sjálfsbjarg- argetu. Þar naut hún einstakrar hlýju og umönnunar og er starfs- fólkinu á Grund þakkað fyrir það. Það er aðeins tæpt ár á milli andláts Ragnhildar og Bolla, tengdaforeldra minna. Bolli lagð- ist inn á Grund vegna heilsubrests um svipað leyti og Ragnhildur fyr- ir tveimur árum síðan og lést þar í júlí í fyrra. Ragnhildur og Bolli bjuggu á Sæbraut á Seltjarnar- nesi í tæp fjörutíu ár. Um tíma var Ragnhildur virk í bæjarpólitíkinni á Seltjarnarnesi og bauð sig fram til bæjarstjórnar, fyrst á lista Al- þýðubandalagsins og síðar á lista Neslistans. Vinkonur Ragnhildar veittu henni einstakan stuðning í veik- indum hennar og sýndu henni mikla tryggð og alúð. Það er með djúpri sorg sem við fjölskyldan kveðjum Ragnhildi í dag. Við þökkum henni samfylgd- ina og huggum okkur við að nú er hún laus úr fjötrum þessa erfiða sjúkdóms og þökkum um leið fyrir góðar minningar sem eftir standa. Blessuð sé minning Ragnhildar Helgadóttur. Sigrún B. Bergmundsdóttir. Ragnhildur Helgadóttir  Fleiri minningargreinar um Ragnhildi Helgadótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.