Morgunblaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.06.2014, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014 Við verðum öll fjölskyldan, kona, börn, barnabörn og makar, áStað í Aðalvík á afmælisdaginn. Við ætlum bara að hafa góðasamveru og hafa það huggulegt, fara í göngutúra og skoða okkur um,“ segir Magni Örvar Guðmundsson, netagerðarmaður frá Ísafirði, sem fagnar sjötugsafmæli sínu í dag. Þó að hann sé kominn á áttræðisaldur vinnur Magni Örvar enn sem netagerðarmaður hjá Fjarðarneti en er raunar í góðu sumarfríi um þessar mundir. Hann hefur unnið við netagerð frá árinu 1958, árið sem hann fermdist, og var meðal annars framkvæmdastjóri Netagerðar Vestfjarða til ársins 2005. „Ég kann vel við mig í vinnu og mér finnst gaman að vinna þó að ég hafi mörg önnur áhugamál. Þetta er gríðarlega fjölbreytt. Það er svo mikið að gerast í kringum þetta og maður hittir svo marga, sér- staklega hér á árum áður þegar flotinn var miklu stærri,“ segir Magni Örvar. Fyrir utan vinnuna hefur hann í nógu að snúast. Hann á meðal annars trillu, sem hann segist reyndar enn eiga eftir að setja á flot, og hann heldur landnámshænur ásamt frænda sínum. Þá er Magni Örvar stjórnarmaður í Sögufélagi Ísafjarðar, sem gefur m.a. út ársrit með sögulegum fróðleik, aðallega úr Ísafjarðar- sýslum. „Ég hef mjög mikinn áhuga á sögu, sögulegum heimildum og fornminjum,“ segir hann. kjartan@mbl.is Magni Örvar Guðmundsson er sjötugur Hjónakorn Magni Örvar ásamt konu sinni, Svanhildi Þórðardóttur. Þau eiga þrjár dætur sem hafa gefið þeim níu barnabörn. Heldur upp á afmælið í Aðalvík Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Hilmir Guð- mundsson, Hafnarfirði, er áttræður í dag. Hann fagnar af- mælinu með fjölskyldu sinni á Almería á Spáni. Árnað heilla 80 ára Reykjavík Gabríela fæddist 4. sept- ember kl. 3.52. Hún vó 3.155 g og var 48 cm löng. Foreldrar hennar eru Elísa Finnsdóttir og Andri Þór Guðlaugs- son. Nýir borgarar É g sleit barnsskónum á Akranesi og átti þar heima fyrstu 16 ævi- árin. Þar átti ég yndis- lega æsku með vinkon- um sem enn halda hópinn. Lífið snerist allt um fótbolta þá, enda pabbi minn gamalreyndur landsliðsmaður og bróðir minn þá keppandi með landsliðinu. Ég spilaði fótbolta öllum stundum, var í ævintýraleikjum í Skógræktinni eða í götubardögum á Uppskaganum þar sem ég bjó. Við keyrðum vestur á Þingeyri á hverju sumri þar sem mikið af mínu móðurfólki bjó og vorum við þar hjá langafa og ömmu í Gamla spítalanum eins og húsið var kallað, en þar bjuggu þau eftir að þau brugðu búi á Brekku í Brekkudal. Þarna var enn meira frjálsræði en heima á Skag- anum og lék maður sér úti fram yfir miðnætti jafnvel, enda fallegt í Dýra- firði í lognstillum sumarnátta. Mér leiddist í skóla en hafði gaman af öllu félagslífi og íþróttum enda í stórum vinahópi og samheldnum ár- gangi. Eitthvað reyndi ég fyrir mér á fiðlu í tónlistarskólanum og var ég í stúlknakór í nokkur ár en íþróttir tóku strax við eftir fermingu. Við fjöl- skyldan fluttum til Reykjavíkur þeg- ar ég var 16 ára en foreldrar mínir skilja ári seinna. Það var alltaf einhver ævintýraþrá í mér og endaði ég í London sem au pair hjá góðu fólki og lærði ég mikið af því að vera ein úti í hinum stóra heimi eins og manni fannst hann vera þá. Ég kynnist eiginmanni mínum þegar ég er 19 ára og þá var bara strax byrjað að búa, en börnin komu ekki fyrr en sjö árum seinna. Ég hef lengst af unnið við sölustörf en síðastliðin níu ár hef ég unnið hjá fiskútflutningsfyrirtæki. Ég hef áhuga á blaki, sem ég æfi með HK í Kópavogi. Blakið er ein skemmtileg- asta íþrótt sem hægt er að iðka. Ég kynntist blakinu allt of seint og var með fordóma gagnvart því til að byrja með eins og svo margir hér á landi en sem betur fer er hægt að stunda það fram eftir öllum aldri. Það er alltaf jafn gaman að fara í ferðir og keppa eins og gert var á æskuár- unum, verja heilu dögunum í íþrótta- húsinu, og ekki skemmir fé- lagsskapurinn, sem skiptir svo miklu máli. Unnur Sveinsdóttir, skrifstofukona og hundaræktandi – 50 ára Fjölskyldan Unnur og Hafþór ásamt dætrunum á Tossa de Mar á Spáni núna í júní. Sonurinn var fjarri góðu gamni. Hundakona í Elliðaárdal Drífa Sýningarmeistari og aðal- ræktunartík Snætindaræktunar. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón – með morgunkaffinu Bílaverkstæði Jóa býður upp á alla almenna þjónustu fyrir flestar gerðir bifreiða. með allt fyrir bílinn Dalvegi 16a - 201 Kópavogi | Sími: 564 5520 | bilajoa@bilajoa.is | www.bilajoa.is Opið mánudaga til fimmtudaga 8-17 föstudögum 8-15 Þarf bíllinn þinn á þjónustu að halda?564 5520 bilajoa.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.