Morgunblaðið - 30.06.2014, Side 23

Morgunblaðið - 30.06.2014, Side 23
Hundaræktunin Ég eignaðist minn fyrsta hund ár- ið 1997. Þá fengum við hjónin okkur íslenskan fjárhund í vinnuskiptum. Við vorum í rauninni pínd í það af ræktanda hans að fara með hann á hundasýningu og urðum við svo heilluð að við erum enn að sýna og gengur það glimrandi vel. Íslenski fjárhundurinn er svo lifandi og skemmtilegur heimilis- og vinnu- hundur. Alltaf til í að gera eitthvað skemmtilegt eða læra eitthvað nyt- samlegt. Íslendingar hafa löngum haft ranga mynd af þessum hundi en útlendingar kunna vel að meta hann. Ég byrjaði sjálf að rækta íslenska hunda árið 2008 undir ræktunar- nafninu „Snætindaræktun“ og hef fengið viðurkenningu frá hinum ýmsu dómurum að utan og hér heima um að ég sé að gera mjög góða hluti og er ég mjög stolt af því. Það liggur mikil vinna og þekking á bak við góða hundarækt og kostnaðurinn er mikill, enda felst mikil ábyrgð í því að rækta þjóðarhundinn eins og til er ætlast því hann er ein sjaldgæfasta og elsta hundategund í heimi. Hægt er að líta inn á heimasíðuna okkar undir snaetinda.com og skoða hvað við erum að gera. Afmælisdeginum ver ég með fjölskyldunni heima í ró- legheitum eins og ég vil hafa það. Fjölskylda Eiginmaður Unnar er Hafþór Snæbjörnsson pípulagningameistari, f. 24. ágúst 1961. Foreldrar hans: Snæbjörn Snæbjörnsson, f. 9. ágúst 1936, d. 18. mars 1995, pípulagninga- meistari í Reykjavík, og Guðrún Mýrdal Björgvinsdóttir, f. 7. sept. 1936, húsmóðir og fv. verkakona. Börn þeirra eru Sunna Líf, f. 4. jan- úar 1990, lífsstílsleiðbeinandi hjá Herbalife, maki Baldvin Þór Sævars- son, f. 19. apríl 1988; sonur þeirra er Nói Þór Baldvinsson, f. 8. apríl 2013; Ágúst Máni, f. 17. nóv. 1992, Íslands- meistari í blaki, og Guðrún Ísold, f. 14. sept. 1999, unglingalandsliðskona í blaki. Systkini Unnar eru Árni, f. 12. feb. 1956, trésmíðameistari og fv. lands- liðsmaður í knattspyrnu, og Halla, f. 10. sept. 1959, húsmóðir í Reykjavík; d. 12. febrúar 2003. Foreldrar Unnar eru Ágústa Aðalheiður Ágústsdóttir söngkona, f. 20. júní 1937, og Sveinn Teitsson, f. 1. mars 1931, málarameistari og fv. landsliðsmaður í knattspyrnu. Seinni eiginmaður Ágústu er sr. Gunnar Björnsson. Úr frændgarði Unnar Sveinsdóttur Unnur Sveinsdóttir Guðrún Margrét Júlía Steinþórsdóttir skreðari og húsfreyja á Brekku Guðmunda Jónsdóttir húsmóðir og verkakona á Þingeyri Ágústa Aðalheiður Ágústsdóttir söngkona og prestfrú Ágúst Aðalsteinn Jónsson sjómaður á Þingeyri Jón Hólmsteinn Guðmundsson skipstjóri á Þingeyri Ólafína Ásmundsdóttir húsmóðir og kjólameistari á Akranesi Sveinn Ingjaldsson bóndi í Nýlendu á Akranesi Unnur Sveinsdóttir húsmóðir og matráður í olíustöðinni í Hvalfirði Teitur Benediktsson sjómaður á Akranesi Sveinn Teitsson fyrrv. landsliðsm. í knattspyrnu, húsasmiður og málari Margrét Teitsdóttir sjúkraliði Ester Teitsdóttir húsfr. á Akranesi Sigursteinn Gíslason knattspyrnum. og þjálfari Þórður Þórðarson framkvstj. á Akranesi Guðný Guðlaugsdóttir húsmóðir á Bjargi á Akranesi Benedikt Teitsson frá Sandabæ, formaður á Bjargi á Akranesi Jón Jóhannsson frá Lækjartungu á Þingeyri, verkamaður á Þingeyri Guðmundur Jóhannes Jóhannss. sjómaður á Þing- eyri, síðar verkam. í Hafnarf. og Rvík Una Huld Guðmundsdóttir húsfr. á Tjörnum undir Eyjafjöllum Þórhallur Sigurðsson (Laddi) leikari og skemmtikraftur Ólína Bjarnadóttir húsfreyja, frá Hamarlandi í Reykhólasveit Hjörtur Bjarnason bóndi á Gerð- hömrum við Dýrafjörð Ólafur Ragnar Hjartar járnsm. á Þingeyri Svanhildur Ólafsdóttir Hjartar húsfreyja á Ísafirði Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands Teitur Þórðarson knatt- spyrnum. og þjálfari Ólafur Þórðarson knatt- spyrnum. og þjálfari Stefán Þórðarson knatt- spyrnum. Þórður Þórðarson knatt- spyrnum. og þjálfari ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014 Dr. Sigurbjörn Einarssonfæddist á Efri-Steinsmýri íMeðallandi 30.6. 1911. For- eldrar hans voru Magnús Kristinn Einar Sigurfinnsson bóndi og Gíslr- ún Sigurbergsdóttir húsfreyja. Eiginkona Sigurbjörns var Magn- ea Þorkelsdóttir biskupsfrú sem lést 2006 og eignuðust þau átta börn. Sigurbjörn lauk stúdentsprófi frá MR 1931; embættisprófi í grísku og prófum í klassískum fornfræðum og sögu frá Uppsalaháskóla; fil. kand.- prófi í almennum trúarbragðafræð- um og sögu frá Stokkhólmsháskóla; embættisprófi í guðfræði frá HÍ; framhaldsnámi í Nýjatestamentis- fræðum við Uppsalaháskóla; í trú- fræði í Cambridge 1945 og stundaði nám í almennri trúarbragðasögu í Sviss, Danmörku og Svíþjóð. Sigurbjörn var sóknarprestur á Breiðabólstað 1938-41; í Hallgríms- prestakalli 1941-44; dósent í guð- fræði við HÍ 1944-49; prófessor 1949-59 og biskup Íslands 1959-81. Hann var lengi forseti Hins íslenska biblíufélags; formaður SVF Ingólfs; sat í stjórn Prestafélags Íslands; var formaður Þjóðvarnarfélags Ís- lands; formaður Skálholtsfélagsins; þýðingarnefndar Nýja testament- isins; handbókanefndar og sálma- bókarnefndar; var forseti kirkjuráðs og kirkjuþings 1959-81 og sat í nefnd á vegum Lútherska heims- sambandsins um trúariðkun og trúarlíf, og var afkastamikill rithöf- undur um guðfræðileg og trúarleg efni. Sigurbjörn var dr. theol. hon. causa við HÍ og Háskólann í Winni- peg; hlaut heiðursverðlaun Ásu Guðmundsdóttur Wright 1987; var félagi í Vísindafélagi Íslendinga; hlaut stórriddarakross hinnar ís- lensku fálkaorðu og verðlaun Jón- asar Hallgrímssonar. Sigurbjörn er án efa virtasti og áhrifamesti málsvari kristinnar trú- ar hér á landi á síðustu öld, flug- greindur, hámenntaður, sanntrúað- ur og flestum ritfimari og mælskari. Árið 1988 kom út bókin Sigur- björn biskup – ævi og starf, skráð af Sigurði A. Magnússyni rithöfundi. Sigurbjörn lést 28.8. 2008. Merkir Íslendingar Sigurbjörn Einarsson 90 ára Þorsteinn Þorvaldsson 85 ára Atli Steinarsson Rósamunda Arnórsdóttir 80 ára Brynhildur B. Líndal Hilmir Guðmundsson Hjalti Sigurðsson Ólöf Bjarnadóttir 75 ára Birgir H. Björgvinsson Guðbjörg Ársælsdóttir Guðjón I. Sigurgeirsson Hannes Sigurðsson Jón Brynjólfsson Jón Pétursson Ólafur Garðar Gunnlaugsson Sigfús Sigfússon 70 ára Ester Valtýsdóttir Guðbjörg Þorbjarnardóttir Gunna Kristjánsdóttir Sigrún Björk Einarsdóttir Stefán Arnar Kárason 60 ára Hallgrímur V. Jónsson Hanna Klimek Hörður Bjartmar Níelsson Jörgen Pétur Lange Guðjónsson Katrín Eygló Hjaltadóttir Kjartan Oddur Jóhannsson Margrét Teitsdóttir Rebekka Svanbjörg Björnsdóttir Svanhildur N. Erlingsdóttir Theódór Gunnarsson Tryggvi Harðarson Wieslaw Bialobrzeski 50 ára Baldur N. Snæland Dagbjört I. Bæringsdóttir Eyþór Unnarsson Guðný Margrét Emilsdóttir Guðrún Helga Jakobsdóttir Hildur Þóra Bragadóttir Hólmar Ólafsson Jóhanna Bjarnadóttir Jón Pétur Karlsson Trampe Karen Lien Thi Nguyen Kristbjörg Hilmarsdóttir Magnús Arason Runólfur Runólfsson Thomas Paul A. Fremeaux 40 ára Claudia Trinidad Gomez Vides Eiríkur Heimir Sigurðsson Guðmundur Helgi Ingimarsson Hildur Birna Gunnarsdóttir Michal Cichy Nicole Krysiak Petrea Ingileif Guðmundsdóttir Sjöfn Anna Halldórsdóttir Sólrún Svandal Suphon Viktor Kaeram Þorsteinn Geir Jónsson 30 ára Arnar Kormákur Friðriksson Ásta Jóna Jónsdóttir Beata Krystyna Wojtowicz Björg Ólafsdóttir Jón Bjarki Magnússon Miroslav Hudek Sveinbjörg M. Dagbjartsdóttir Tomasz Grzybowski Þórey Björk Þórisdóttir Til hamingju með daginn 40 ára Hjálmar býr í Hafnarfirði, er húsa- smíðameistari og einn af eigendum Fjarðarmóta. Maki: Kristrún Gunn- arsd., f. 1975, förðunarfr., er yfir snyrtivörud. Lyfja og heilsu í Kringlunni. Börn: Halla Líf, f. 1996, og Jökull Mar, f. 2001. Foreldrar: Hafsteinn Ragnarsson, f. 1952, sölu- maður hjá VÍS, og Stein- unn Hjálmarsdóttir, f. 1951, vinnur hjá Norvik. Hjálmar Rúnar Hafsteinsson 30 ára Svanhvít býr í Innri-Njarðvík, er fædd þar og uppalin. Hún er nemi í háskólabrú á Keili og vinnur í Verksmiðjunni Sæveri. Börn: Sólveig Rut, f. 2004, og Gunnar Logi, f. 2009. Foreldrar: Gunnar Indr- iðason, f. 1955, rekur Verksmiðjuna Sæver, og Guðrún Guðjónsdóttir, f. 1960, endurskoðandi, bús. í Innri-Njarðvík. Svanhvít Erla Gunnarsdóttir 40 ára Katrín Huld er Reykvíkingur og er fjár- festingarstjóri hjá Íslandssjóðum. Maki: Lee Roy Tipton, f. 1972, tölvunarfræðingur hjá Meniga. Börn: Einar Geir, f. 2001, og María Sjöfn, f. 2006. Foreldrar: Grétar Geir Nikulásson, f. 1933, vann hjá Ríkisendurskoðun, og Sjöfn Björg Kristinsdóttir, f. 1934, vann hjá Trygg- ingastofnun ríkisins. Katrín Huld Grétarsdóttir Innihurðir í öllum stærðum og gerðum! Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki Lei tið tilb oða hjá fag mö nnu m o kka r • Hvítar innihurðir • Spónlagðar innihurðir • Eldvarnarhurðir • Hljóðvistarhurðir • Hótelhurðir • Rennihurðir • Með og án gerefta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.