Morgunblaðið - 15.10.2014, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 5. O K T Ó B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 241. tölublað 102. árgangur
BÓKMENNTA-
VERÐLAUN OG
TILNEFNINGAR
Í BÚÐUM HJÁ SIXERS RAUÐI KROSSINN
KYNNIR NEMENDUM
SKYNDIHJÁLP
GRINDVÍKINGAR 16 ENDURLÍFGUNARDAGURINN 10NORÐURLANDARÁÐ 38
Gæludýramarkaður í Bandaríkj-
unum veltir svimandi upphæðum
og meðal annars eru á boðstólum
megrunarlyf fyrir hunda og ketti.
Þar kemur rækjuskel frá Siglufirði
við sögu, en Primex vinnur kítósan
úr skelinni. Það hefur verið notað í
megrunarlyf fyrir gæludýr, sem
hefur verið til sölu hjá Wallmart í
rúmlega hálft ár. Sigríður Vigdís
Vigfúsdóttir, markaðsstjóri Primex
á Siglufirði, segir að offita meðal
hunda og katta sé mikið vandamál í
Bandaríkjunum.
Afurðir sem eiga uppruna í
rækjuskelinni selur Primex víða um
heim, mest til að nota í lyf og fæðu-
bótarefni. Áætlað útflutningsverð-
mæti í ár er um 700 milljónir. »6
Vinna efni í megr-
unarlyf fyrir gæludýr
Myndarlegur Offita getur verið vandamál.
Lengjan tapaði
» Íslenskir tipparar hafa aukið
trú sína á íslenska landsliðinu.
» „Við gleðjumst yfir árangri
liðsins þó að við höfum borgað
tvöfalt meira út en við fengum
inn,“ segir Pétur Hrafn Sig-
urðsson hjá Ísl. getspá.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Komist íslenska karlalandsliðið alla
leið á EM í knattspyrnu í Frakk-
landi sumarið 2016 fær KSÍ í sinn
hlut um einn milljarð króna frá
Knattspyrnusambandi Evrópu,
UEFA.
„Það hefur mikla þýðingu fyrir
okkur fjárhagslega ef við komumst
alla leið. Á meðan erum við að keyra
á þeim tekjum sem við höfum,“ seg-
ir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ,
spurður um áhrif góðs gengis á fjár-
hag KSÍ. Sambandið er með bund-
inn samning um sjónvarpsrétt út
undankeppnina og fær þaðan
samanlagt um 1,4 milljarða króna,
eða um 350 milljónir á ári. Miðasala
á fullum Laugardalsvelli, sem tekur
nærri 10 þúsund manns í sæti, gefur
um 20 milljóna króna tekjur en að
sögn Geirs standa yfir viðræður við
Reykjavíkurborg og stjórnvöld um
stækkun vallarins. Forsenda þess er
að hlaupabrautin víki.
Góður árangur Íslands í undan-
keppninni vekur mikla athygli og
eykur áhuga á landsliðinu bæði hér
á landi og erlendis. Strax er farið að
auglýsa ferð á útileikinn gegn Hol-
lendingum í Amsterdam í septem-
ber á næsta ári.
MLandsliðið »4 og Íþróttir
Milljarðar króna eru í boði
Sigurinn gegn Hollandi eykur enn áhuga á íslenska landsliðinu Hefur mikla
þýðingu fyrir KSÍ ef liðið kemst á EM 2016 Rætt um stækkun Laugardalsvallar
Morgunblaðið/Arnaldur
Visthönnun Breytingarnar munu
hafa áhrif á sturtur á Íslandi.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sturtuhausar sem spara vatn og
kraftminni ryksugur eru meðal þess
sem fyrirhuguð innleiðing nýrra til-
skipana Evrópusambandsins um
visthönnun mun leiða til á Íslandi.
Í frumvarpi um breytingar á lög-
um um visthönnun segir að mark-
miðið sé að „innleiða með tilhlýðileg-
um hætti tilskipun Evrópuþingsins
og ráðsins […] um ramma til að setja
fram kröfur varðandi visthönnun að
því er varðar orkutengdar vörur“.
Söluaðili á pípulagningavörum
segir í samtali við Morgunblaðið að
hertar kröfur um blöndunartæki
muni senn koma enn skýrar fram.
Frosti Sigurjónsson, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar, segir
tilskipunina ekki gagnast Íslandi.
„Við erum að gera stórkostleg
mistök með því að undanskilja okkur
ekki frá þessum kafla EES-samn-
ingsins. Þau mistök verða dýrkeypt-
ari eftir því sem frá líður […] Mér
finnst ástæða til að staldra við og að
þingmenn íhugi þessi mál betur,“
segir Frosti. »15
Sturtur verða vatnsminni
Tilskipun frá ESB mun hafa margvísleg áhrif á Íslandi
Ungir hettumáfar spígsporuðu varlega á ný-
mynduðu skæni á Tjörninni í Reykjavík.
Hettumáfar eru að mestu farfuglar og ef til
vill fara þessir fuglar að tygja sig til brottfarar á
hlýrri slóðir og snúa aftur að vori í nýjum bún-
ingi. Aðrir hafa hér vetursetu.
Hettumáfar fóru að verpa hér í upphafi 20.
aldar. Þeir eru útbreiddir um allt land og áber-
andi á vorin með svartar hettur sínar.
Spígsporað á fyrsta skæni haustsins
Morgunblaðið/Ómar
Ungir hettumáfar hímdu á Tjörninni í Reykjavík og létu haustsólina verma sig
Náðst hefur
samkomulag, eft-
ir tveggja ára
deilur, um inn-
leiðingu sameig-
inlegra reglna
um evrópskar
eftirlitsstofnanir
á fjármálamark-
aði, sem byggist
á svokallaðri
tveggja stoða
lausn. Þetta þýðir að ekki verður
þörf á að breyta íslensku stjórnar-
skránni, eins og talið var í fyrstu.
Að sögn Bjarna Benediktssonar,
fjármála- og efnahagsráðherra,
hefði stefnt í óefni um framtíð EES-
samstarfsins hefði samkomulagið
ekki náðst. »18
Ekki þörf á stjórnar-
skrárbreytingu
Bjarni
Benediktsson
Framleiðsla heilsusalts er í undir-
búningi hjá nýsköpunarfyrirtæk-
inu Arctic Sea Minerals í Reykja-
nesbæ.
Fyrirtækið hefur unnið að því
undanfarin tvö ár að þróa nýja
lausn til að draga úr natríum-
notkun en venjulegt borðsalt er
um 40% natríum.
Nýja lausnin hjá Arctic Sea
Minerals felst í því að kristalla öll
söltin í nýju blöndunni saman í eitt
saltkorn. Þegar það er gert þá er
hægt að búa til ný saltkorn sem
hafa allt að 58% minna natríum en
venjulegt borðsalt, en svipað salt-
bragð og neytendur eru vanir að
upplifa. »16
Heilsusalt með
minna natríum