Morgunblaðið - 15.10.2014, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.10.2014, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014 Viss vítamín draga úr augnbotnahrörnun Í viðtali sem birtist við Einar Stef- ánsson augnlækni á mánudaginn síðasta féll niður setning er varðar bætiefni og augnsjúkdóma. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum um leið og réttur texti er birtur: „Viss vítamín og sink dregur úr augnbotnahrörnun hjá þeim sem eru með þann sjúkdóm á byrjunar- stigi.“ LEIÐRÉTT • Fullkomin forgreiningarstöð. Forgreining segir okkur flest allt um ástand bílsins og gæði. • Sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur VW og Skoda. • Hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi. • Starfsleyfi til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. REGLULEGT VIÐHALD HÆKKAR ENDURSÖLUVERÐ forðastu verðrýrnun bílsins og pantaðu tíma í forgreiningu Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - VAKANDI!VERTU blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR 55% þeirra sem beita stúlkur kynferðislegu ofbeldi eru karlar tengdir fjölskyldu þeirra. Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Vertu vinur okkar á Facebook Buxnadagar 20% afsláttur af öllum buxum St.36-52 þegar þú vilt kvarts stein á borðið Blettaábyrgð Viðhaldsfrítt yfirborð Slitsterkt Bakteríuvörn Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is By Cosentino Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Rafbíll sem bændurnir í Belgsholti í Melasveit nota er knúinn með orku sem að hluta til er framleidd með vindmyllu á bænum. „Það hefur lengi blundað í undir- meðvitundinni að fá sér rafbíl. Við eigum annan bíl, nokkurra ára gamlan jeppa, og ætlum að minnka notkun á honum. Sparnaður í olíu- notkun hjálpar til við að borga nýja bílinn,“ segir Haraldur Magnússon bóndi. Hann kom sér upp vindrafstöð og notar aðallega til að framleiða raf- magn fyrir búið. Þegar meira blæs selur hann rafmagn inn á landsnetið. Í september kom um helmingur af heildarraforkunotkun Belgsholts frá vindmyllunni. Bíllinn, Nissan Leaf, er hlaðinn á bæjarhlaðinu með þess- ari orku, þegar hún dugar, en ann- ars með aðkeyptri raforku. „Við notum hann í allar styttri ferðir og snatt og einnig í Reykja- víkurferðir þegar ekki þarf stærri bíl. Hægt er að stinga honum í sam- band á hraðhleðslustöð svo ekki er vandamál að komast heim aftur,“ segir Haraldur. Vindorka á bíl  Snattbíllinn í Belgsholti gengur fyrir raforku frá vindmyllu bæjarins Ljósmynd/Sigrún Sólmundardóttir Sjálfbærni Vindmyllan framleiðir hluta af rafmagninu sem notað er á raf- bílinn. Þegar myllan snýst ekki er hlaðið með rafmagni frá samveitu. Ekta vambir til sláturgerðar fást nú í tveimur verslunum, Nóatúni í Austurveri og Krónunni á Selfossi. Allt leit út fyrir að ekki yrði hægt að fá fullunnar vambir til slátur- gerðar nú í haust þegar Sláturfélag Suðurlands ákvað að frá og með þessu hausti myndi fyrirtækið ekki selja fullunnar vambir í verslanir, heldur aðeins gervivambir eða svo- kallaða prótínkeppi. Frá og með gærdeginum var hægt að fá vambir í fyrrnefndum verslunum eftir að Kaupás gerði samning við SAH afurðir á Blöndu- ósi um sölu á vömbum. Ólafur Júl- íusson, innkaupastjóri Kaupáss, sagði í samtali við mbl.is að við- skiptavinir væru gífurlega ánægðir með framtakið. „Við erum land sem framleiðir lamb og það að geta ekki haldið í gamlar hefðir og fengið vambir hefur vakið mikla óánægju,“ sagði Ólafur. Vambir til sláturgerðar fást nú í tveimur verslunum viðskiptavinum til ánægju Morgunblaðið/Kristinn Sláturgerð Sláturblöndunni troðið í kepp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.