Morgunblaðið - 15.10.2014, Síða 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014
Skútuvogi 8 • 104 Reykjavík • Sími 567 6700 • www.vakahf.is
Dekkjasala
og þjónusta Varahlutir
Bifreiða-
flutningar
Endurvinnsla
bifreiða
Ármúla 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn.is | www.gahusgogn.is
GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á
íslenskum markaði um árabil. Við leggjum áherslu á
stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu.
Við tökum málin þín
í okkar hendur
Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki
Félag eldri borgara í Reykjavík
Fimmtudaginn 9. október var spil-
aður tvímenningur á 10 borðum hjá
bridsdeild Félags eldri borgara í
Reykjavík.
Efstu pör í N/S
Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 277
Bjarni Þórarinss. – Hrólfur Guðmss. 248
Guðlaugur Bessas. – Trausti Friðfinnss. 232
A/V
Albert Þorsteinss. - Bragi Björnsson 255
Björn E. Péturss. – Valdimar Ásmundss. 245
Margr. Gunnarsd. – Vigdís Hallgrímsd. 243
Mánudaginn 6. október var spil-
aður tvímenningur. 24 pör mættu til
leiks. Efstu pör í N/S
Björn Árnason – Auðunn R. Guðmss. 382
Ingibj. Stefánsds – Margrét Margeirsd. 368
Helgi Hallgrss. – Ægir Ferdinandss. 362
A/V
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 406
Friðrik Jónss. - Jóhannes Guðmannss. 391
Oddur Halldórss. – Eggert Þórhallsson 361
Spilað er í Síðumúla 37.
Keppni um Oddfellov-skálina
hafin
Keppni um Oddfellow-skálina
hófst í vikubyrjun. Sextán pör
mættu til leiks og styrktu félagsauð-
inn en þetta er í þriðja skiptið sem
spilað er um skálina.
Hér er lokastaðan, meðalskor 168
stig:
Jóhannes Sverriss. - Óskar Karlsson 198
Þrándur Ólafsson - Gauti K. Gíslas. 198
Sigurður Sigurðsson - Arnar Óskarss. 193
Helgi G. Jónss. - Hans Óskar Isebarn 192
Páll Hjaltason - Hjalti Pálsson 188
Sigurbj. Samúelss. - Helgi Samúelss. 186
Hörkubarátta á toppnum en Jó-
hannes og Óskar höfðu betur í inn-
byrðisviðureign og tóku heim verð-
laun kvöldsins.
Spilaðar verða 6 lotur og telja
fjögur bestu skorin.
Sigurvegarar frá upphafi:
2014 Páll Hjaltason - Hjalti Pálsson
2013 Þorsteinn Þorsteinss. - Rafn Haraldss.
Næst verður spilað 3. nóvember.
Miðvikudagsklúbbur
eldri borgara
Bridssamband Íslands býður upp
á spilamennsku á miðvikudögum.
Spilaður verður barómeter eða Mon-
rad Barómeter tvímenningur.
Miðvikudaginn 1. október var spil-
aður Barómeter tvímenningur.
Efstu pör voru:
Guðlaugur Nielsen - Pétur Antonss. 67,1
Tómas Sigurjs. - Jóhannes Guðmannss. 56,9
Guðm. Sigursteinss. - Unnar Guðmss. 55,6
Óskar Ólafss. - Þorsteinn B. Einarss. 55,1
Spilað er í húsnæði BSÍ að Síðu-
múla 37, 3ju hæð. Spilamennska
byrjar kl. 13 og eru allir spilarar,
vanir sem óvanir, velkomnir.
Sigmundur og Eyþór
efstir í Kópavogi
FRESCO-impamótið hófst sl.
fimmtudag hjá Bridsfélagi Kópa-
vogs. Um er að ræða þriggja kvölda
butlertvímenning og var spilað á 13
borðum. Staða efstu para.
Sigmundur Stefánss. - Eyþór Haukss. 64
Guðbr. Sigurbergss. - Jón Alfreðss. 59
Ómar Jón Jónss. - Björn Halldórss. 50
Ómar Óskarsson - Böðvar Magnúss. 32
Þórir Sigursteinss. - Haraldur Ingason 25
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Í þessum mánuði,
31. október, eru liðin
150 ár frá fæðingu eins
af þjóðarinnar merk-
ustu sonum, Einars
Benediktssonar, sem
fæddist á bænum El-
liðavatni 1864. Faðir
hans var Benedikt
Sveinsson, yfirdómari í
landsyfirréttinum, síð-
ar sýslumaður í Þing-
eyjarsýslu og alþingismaður, ræðu-
skörungur og baráttujaxl um
sjálfstæði Íslands. Móðir Katrín
Einarsdóttir, umboðsmanns Reyni-
staðarklausturjarða, sögð mikilhæf
og stórgáfuð. Sagt var að Einar
hefði erft mælskulistina og orð-
kynngina frá föður sínum en hug-
myndagnóttina og skáldgáfuna frá
móður.
Hann nam við Latínuskólann og
síðar lögfræði í Kaupmannahöfn.
Einar var sýslumaður Rangæinga
um skeið. Hann hafi mikinn áhuga á
þjóðmálum og barðist fyrir sjálf-
stæði landsins. Hann varð þjóðhetja
sem kom fram á tímum þegar þjóðin
var að vakna eftir árhundraða stöðn-
un. Hann barðist fyrir efnahagslegri
upphefð þjóðarinnar og skapaði von-
ir um betri tíma með tækni og frelsi
sem nýta mætti til hagsbóta fyrir
þjóðina.
Hann ritaði greinar um jöfnuð og
afnám hafta fyrir fólkið sem verið
hafði á klafa einokunar og vist-
arbands. Hvatti hann til stofnunar
verkalýðsfélaga sem ekki varð að
veruleika fyrr en löngu síðar og
stofnun háskóla. Kom fram með
hagfræðikenningar sem eftir áratugi
urðu viðurkenndar og benti á slæma
stöðu fátækra og óréttlæti sem
þurftafólk bjó við á þessum tíma.
Einar ferðaðist mikið erlendis og
bjó löngum þar. Hann hafði mörg
járn í eldinum og var hugmynda-
auðgi hans með ólíkindum.
Hann sá fjölmörg tækifræri sem
landið bauð upp á og er við-
skiptasaga hans stórbrotin og á köfl-
um ævintýraleg. Má þar nefna virkj-
unaráætlanir, gullgröft, loftskeyti og
áætlanir um
járnbrautalagningar og
hafnir í Reykjavík og
Þorlákshöfn.
Einar var frum-
kvöðull um margt, gaf
út fyrsta dagblaðið á
Íslandi, Dagskrá, var
fyrsti fasteignasalinn,
kom að togaraútgerð
og svo mætti lengi
telja. Þá studdi hann
við listir og menningu á
ýmsa lund.
Fjölmargar sögur
eru til um Einar og eru margar
þeirra með ólíkindablæ og sjálfsagt
sumar búnar til af óvildarmönnum
eða hreinar Gróusögur, svo sem sag-
an lífseiga um sölu norðurljósanna,
sem reyndar hefur ræst í annarri
mynd.
Í útfararræðu síra Ólafs Magn-
ússonar, prests í Arnarbæli, sem
hann flutti í Dómkirkjunni við útför
Einars sagði hann m.a.:
„Það má með sanni segja um Ein-
ar Benediktsson að hann var maður,
„sem ekki setti ljós sitt undir mæli-
ker“. Hann var hvort tveggja í senn,
á meðan hann var í fullum mann-
dómsblóma, svo mikill maður vexti
og glæsilegur ásýndum, að af bar.
En auk þessa var hann gæddur al-
veg óvenjumiklum gáfum og um leið
andlegum hæfileikum spámannsins
og spekingsins.“
Sjálfur hef ég rætt við fólk sem
kynntist honum á síðustu æviár-
unum. Það bar honum vel söguna og
talaði um hversu mikill persónuleiki
hans var. „Augun geisluðu“ var lýs-
ing eins.
Í tilefni af þessum tímamótum
hvet ég málsmetandi menn og kon-
ur, ekki síst í fjölmiðlum og mennta-
kerfinu, að halda minningu þjóð-
skáldsins á lofti og leyfa þjóðinni og
framtíðar-þegnunum að kynnast
þessum stórbrotna manni og ljóðum
hans.
Styttan með hörpuna
Það er ósk mín sem og margra
annarra aðdáenda og áhugafólks um
skáldið að stytta gerð af Ásmundi
Sveinssyni sem stendur á Klambra-
túni verði flutt að Höfða, sem Einar
nefndi Héðinshöfða. Þar hélt hann
heimili um hríð á sínum velmekt-
arárum. Þar tóku Íslendingar á móti
fyrsta loftskeytinu árið 1905 frá
Englandi en Einar barðist fyrir því
að loftskeytasendingar yrðu al-
mennt teknar upp enda sá hann
framtíðina í þeirri tækni eins og svo
mörgu öðru.
Fer vel á því að styttan njóti sín
þar sem úthafið blasir við, fjármála-
hverfið að baki og Esjan til norðurs.
Hér er niðurlag kvæðisins Esjan:
„Þú dregur oss heim – Engin dásemd
er til
-sem dýrð þín á norðurveggnum.“
(E.B.)
Ljóð Einars eru konfektmolar
sem fólk getur notið meðan íslensk
tunga lifir. Gildir einu hvort hann
lýsti náttúrunni eða mannlífinu.
Hér er eitt dæmi um ljóð Einars
sem oft er vitnað í en margir vita
ekki hvaðan þær tilvitnanir eru
komnar. Úr Einræðum Starkaðar:
„Eitt bros getur dimmu í dagsljós
breytt
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt
aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti sem
brast
við biturt andsvar gefið án sakar.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast
sem aldrei verður tekið til baka.“
(E.B.)
„Sá deyr ei sem heimi gaf lífvænt
ljóð.“
(E.B.)
Heimildir:
Ævisaga Einars Benediktssonar. Höf.:
Guðjón Friðriksson
Væringinn mikli. Höf.: Gils Guðmundsson
Ræða flutt við útför Einars Benedikts-
sonar. Höf.: Síra Ólafur Magnússon
Samtöl við samferðafólk Einars
Einar Benediktsson,
skáld og athafnamaður
Eftir Jóhann
Davíðsson » Fer vel á því að
styttan njóti sín þar
sem úthafið blasir við,
fjármálahverfið að baki
og Esjan til norðurs.
Jóhann Davíðsson
Höfundur er rannsóknarlög-
reglumaður og ökukennari.