Morgunblaðið - 15.10.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.10.2014, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014 Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma Bandarískt fyrir- tæki í Louisiana segist ekki ætla að taka að sér að eyða búnaði sem notaður var til að hlynna að Thom- as Eric Duncan sem lést úr ebólu í Texas fyrir skömmu. Ástæð- an sé óvissa um hættuna af ösku frá eyðingunni. Vitað er að ebóla smitast þegar fólk kemst í snertingu við úrgang, blóð eða aðra vessa úr sjúklingi. Ekki er alveg ljóst hvort hugsanlegt er að smitast af vökva sem myndast þegar hnerrað er eða hóstað. Veiran er ekki harðgerð og getur aðeins lif- að í fáeinar klukkustundir á hörðum fleti. En þessi óvissa um ástæður fyrir smiti hefur ýtt undir ótta al- mennings. Í gær lést Senegalmaður úr ebólu í Þýskalandi. kjon@mbl.is Neita að eyða úrgangi Sjúkrahússúrgangi eytt í ofni.  Óttast að askan geti verið hættuleg Hart er nú deilt á einn af ráðherr- um nýju stjórnarinnar í Svíþjóð, Mehmet Kaplan, en hann er músl- ími. Er hann sak- aður um að vera íslamisti en þeir boða margir heil- agt stríð, jihad, og jafnvel hryðjuverk. Fram kemur í Dagens Nyheter að fyrrverandi þingmaður, Nal- in Pekgul, hefur rifjað upp ýmis undarleg ummæli sem Kaplan hefur látið frá sér fara, en enginn gagnrýni hann af ótta við að fá á sig stimpilinn íslamshatari, segir Pekgul. Hún hefur eftir Kaplan að það sé hatur Vesturlandaþjóða á íslam sem fái unga, vestræna múslíma til að berjast með Íslamska ríkinu, IS. En Pekgul segir að raunverulega ástæðan sé hatursræður róttækra ímama sem oft sé boðið að tala í moskum Vesturlanda. Þannig hafi Riyadh ul Haq, sem styðji vopnað ji- had og fyrirlíti kristna, gyðinga og hindúa, verið boðið að tala í mosku í Stokkhólmi. kjon@mbl.is Er einn af nýju ráð- herrunum úr röðum íslamista? Mehmet Kaplan SVÍÞJÓÐ Margir tóku þátt andatrúarathöfn sem fram fór í fjall- lendi í Sorte-fjöllum í Yaracuy, vestur af höfuðborginni Caracas í Venesúela, um helgina. Gyðja náttúrunnar, ástar, friðar og reglu, Maria Lionza, var hyllt á hefð- bundinn hátt með því að dansa á glóandi kolum. Svo- nefnd santeria og andatrú, þar sem blandað er saman kristni og fornum, afrískum trúarbrögðum, eru vinsæl í landinu þótt langflestir séu kaþólskir. Dansað á glóandi kolum í Venesúela AFP herjum IS í borginni Kobane sem er í Sýrlandi en rétt við landamærin að Tyrklandi. Flestir borgarbúar, sem eru aðallega sýrlenskir Kúrdar, hafa þegar flúið yfir landamærin til Tyrk- lands. Enn halda vopnasveitir Kúrda stórum hluta borgarinnar og náðu í gær aftur valdi á Tall Shair, hernaðarlega mikilvægri hæð vestan við hana. Bandaríkjamenn hafa haldið uppi loftárásum á IS-menn við Kobane síðustu vikur og hafa þær aðgerðir borið nokkurn árang- ur, að sögn Kúrda, en ekki dugað. Tyrknesk stjórnvöld harðneita að veita Kúrdum í Kobane hernaðar- hjálp og banna einnig mönnum úr röðum flóttafólksins að fara aftur til Kobane og aðstoða þar landa sína í baráttunni. Allt að 20% íbúa Tyrk- lands eru Kúrdar og hefur þessi stefna valdið mikilli reiði meðal þeirra í garð stjórnar Receps Tayy- ips Erdogans, forseta í Ankara. Tortryggni í Ankara Tengslin við PKK hafa dugað Er- dogan til að hafa varann á en Tyrkir vilja ekki að Kúrdar í landinu eða annars staðar eflist um of. Eitt af því sem ýtir undir tortryggni Erdogans er að sýrlenskir Kúrdar hafa margir stutt Bashar al-Assad forseta í borg- arastríðinu mannskæða í Sýrlandi. Það hafa margir kristnir Sýrlend- ingar einnig gert. Ástæðan er ein- faldlega sú að þessir minnihluta- hópar hafa talið forsetann illskárri en ofstækisliðið í öflugasta hluta andstæðingafylkingar hans en þar eru langflestir súnní-múslímar. Um hálf önnur milljón manna hef- ur flúið frá Sýrlandi til Tyrklands síðustu árin vegna átakanna. Vand- inn er því mikill og Tyrkjum finnst Vesturveldin ekki hafa veitt mikinn stuðning. Erdogan finnst að þau hefðu átt að grípa inn í stríðið gegn Assad í tæka tíð og hjálpa stjórnar- andstæðingum en ekki láta nægja að fordæma illvirki hans. Hann vill núna að NATO komi á flugbanni yfir Sýrlandi til að draga úr árásarmætti herja Assads sem njóta margvíslegs stuðnings Írana og Rússa. Þótt Erdogan sé ekki talinn rót- tækur íslamisti fer hann fyrir flokki ákafra múslíma, þar er baklandið. Má telja víst að sumir flokksmenn hans líti á IS sem nauðsynlega fram- verði í baráttunni gegn ofríki sjía- múslíma í Írak, Íran og að sjálfsögðu Assads í Sýrlandi. Ef til vill lítur Erdogan á PKK sem mun verri samtök en IS. En bent hefur verið á að eflist IS um of geti samtökin í reynd orðið ráðandi á stóru svæði í Miðausturlöndum. Þá geti farið volgna undir Erdogan og fleiri ráðamönnum sem eru van- trúarhundar í augum IS, allt of vest- rænir í hugsun. Jafnvægislist Tyrkja gæti á endanum mistekist illilega. Jafnvægislist Tyrkja í flóknum átökum Miðausturlanda gæti mistekist  Erdogan er meira í mun að stöðva Kúrdasamtökin PKK en morðingja og þrælahaldara IS AFP Stríð Reykur stígur upp frá víg- stöðvunum í Kobane. Trú og þjóðerni » Sjálfur er Assad Sýrlands- forseti alavíti sem er sér- trúarhópur er tengist sjía- múslímum. Langflestir Sýr- lendingar eru á hinn bóginn súnní-múslímar, eins og Erdog- an og flestir Tyrkir. » Um 30.000 manns hafa fall- ið síðustu þrjá áratugina í átökum tyrkneska hersins og PKK. Erdogan hefur kappkost- að að friðmælast við kúrdíska þjóðarbrotið og m.a. leyft notkun kúrdísku opinberlega. FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is Vesturveldin eru í miklum vanda vegna framrásar grimmdarseggj- anna sem nefna sig íslamska ríkið, IS, og pólitísku flækjurnar sem upp eru komnar eru yfirþyrmandi. Tví- bent afstaða Tyrkja til átakanna í Sýrlandi og Írak er farin að valda al- varlegum áhyggjum í Atlantshafs- bandalaginu, NATO, sem þeir eiga aðild að. En Tyrkir hafa í áratugi átt í höggi við vopnaða liðsmenn PKK, samtök róttækra Kúrda í Tyrklandi sem vilja sjálfstæði eða a.m.k. aukið forræði í eigin málum. Tyrkir, NATO og vestræn ríki skilgreina PKK sem hryðjuverkasamtök. Sam- ið var um vopnahlé í fyrra en í gær vörpuðu tyrkneskar herþotur sprengjum á bækistöðvar PKK, að sögn eftir árásir PKK á nálægar herstöðvar Tyrkja. En á sama tíma heyja liðsmenn annarra en tengdra Kúrdasamtaka, YPG, örvæntingarfulla baráttu gegn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.