Morgunblaðið - 15.10.2014, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.10.2014, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014 KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR FYRIR HANN OG HANA Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert ekki í miðju eldsins en þú skynjar hitann mjög vel. Minntu þig á það svona um það bil hundrað sinnum í dag, því þú verður umkringdur frábæru fólki sem gerir þig dálítið óöruggan. 20. apríl - 20. maí  Naut Hafðu ekki áhyggjur af dagdraumum. Ekki keppa við meðaljóna. Slakaðu frekar á og leyfðu sérkennum þínum að setja mark sitt á allt sem þú gerir. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft tvímælalaust að stunda meiri líkamsrækt. Háleitar vonir eru einn af fegurstu eiginleikum þínum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þótt heppnin eigi sinn þátt í ástalífi þínu er ekki hægt að styðjast við hana ein- vörðungu eins og er. Heimurinn vill frá þér það sem aðeins þú getur gefið honum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Vanalega hefurðu markmið. En geng- urðu fyrir adrenalíni í stað náttúrulegrar orku? Athugaðu ástand þitt. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þótt þú sinnir nú mikilvægu ábyrgðar- starfi er óþarfi að taka sjálfan sig of hátíð- lega. Láttu ekki traðka á nafni þínu né gera lítið úr starfi þínu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú virðist lag til þess að hrinda í fram- kvæmd þeim hugmyndum sem þú hefur verið að tala fyrir. Sólin er hátt á lofti og þú getur auðveldlega náð fram markmiðum þín- um. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú eyðir meira að segja tíma og fyrirhöfn í að skipuleggja frítíma þinn. En eins og alltaf borgar það sig til lengri tíma litið að fjárfesta í sjálfum sér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Vinir og vandamenn vilja ná at- hygli þinni en það er ekki auðvelt. Kannski hlusta ekki allir í heiminum, en í það minnsta þrjár mikilvægar manneskjur. Vertu sam- þykkur sjálfum þér – og skálaðu! 22. des. - 19. janúar Steingeit Viljirðu búa við áframhaldandi vel- gengni máttu í engu slaka á. Tunglið er í merkinu þínu en hinn þrjóski Satúrnus hefur þó enn meiri áhrif á þig. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú finnur löngun til að gera eitt- hvað nýtt og gætir fengið tækifæri til þess fyrr en síðar. Vertu vandur að virðingu þinni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Leikgleði er mikilvægur þáttur snilli- gáfunnar. Hún kýs erfiðan valkost, þótt ekki sé augljóst hvort það krefjist meiri tilfinn- ingalegs styrks að sleppa eða halda fast. Íbréfi að norðan segir: „Enn held-ur vísnagerð áfram um ferð Guðna Ágústssonar í Austurdal. Jói í Stapa, sá síungi hagyrðingur sem er nú níræður að aldri, orti af þessu tilefni. Guðni marga háði hildi himnaríki frá var snúið. Í Kakalaskála koma vildi kvað þar betur að sér búið. Kakalaskáli sem hann nefnir í vís- unni er skálinn sem skáldið Sig- urður Hansen reisti til dýrðar Þórði kakala í miðju ríki Ásbirninga í Skagafirði og gott er að sækja heim, eins og þeir vita sem þangað hafa komið. Allt sprettur þetta af því að Guðni líkti ferð fram í Aust- urdal við himnaríkisdvöl.“ Jón Arnljótsson yrkir um haustið: Fellur mjöll í móinn, maldar yfir tún, hvítnar ferginflóinn, fennir klettabrún. Koma vondu veðrin, vindur blæs og hvín, herpast höfuðleðrin, herðir frostsins pín. Árnar binda ísar, allur gróður vær. Haustið veginn vísar í vetrar skörpu klær. Það maldar eða það maldrar merkir að það snjói í logni og verð- ur maldar yfir tún þá auðskilið og fellur inn í myndina. Pétur Stefánsson yrkir haust- vísu: Gulnar sérhvert gróðurstrá, gisna blóm í högum. Hrímga laufblöð hríslum á haustsins köldu dögum. Ármann Þorgrímsson sér lengra fram, – „kemur skin eftir skúrir,“ segir hann: Þó löngum hafi ljóðin mín lítils verið metin alltaf sólin aftur skín eftir kulda hretin. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Bréf að norðan, haustvísur og sæbjúgu Í klípu „ÞETTA ER DRAUMASTARFIÐ MITT. ÉG ELSKA ÞAÐ – NEMA ÞEGAR ÉG ÁTTA MIG Á ÞVÍ AÐ ÉG ER ALLSBER.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „BÚIST UNDIR AÐ HLAÐA BYSSUNA.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... regnboginn eftir óveðrið. FÓLK MEÐ GÆLUDÝR Á AÐ LIFA LENGUR ÞAÐ ER ERFITT AÐ TRÚA ÞVÍ VÁ, FIKTAÐU VIÐ BREMSURNAR EINU SINNI OG ÞÚ FÆRÐ ALDREI AÐ GLEYMA ÞVÍ! ÉG ER FARINN TIL ÞESS AÐ BERJAST VIÐ HINN GRIMMA ATLA HÚNAKONUNG OG HANS VAFASÖMU VÍGAMENN!! EKKI GLEYMA AÐ TAKA TANNBURSTANN ÞINN OG AUKA- NÆRFÖT MEÐ Víkverji hefur enn ekki náð aðjafna sig eftir sigur íslenska landsliðsins á Hollendingum á Laugardalsvelli á mánudagskvöld. Íslenska landsliðið hefur leikið af slíkri yfirvegun og útsjónarsemi í fyrstu þremur leikjunum í riðla- keppni að það er aðdáunarvert. x x x Arjen Robben, ein af stjörnumhollenska liðsins, kom vel fyrir í viðtali á mbl.is. Hann hrósaði ís- lenska liðinu fyrir leik sinn, ekkert væri að athuga við það að leggjast í vörn og liðið hefði gert það vel. Hann sagði að hollenska liðið hefði gefið tvö mörk, en vildi ekki skrifa tapið á einstaka leikmenn heldur liðið allt. Hann kvað fastar að orði í hollenska blaðinu de Volkskrant. „Ég sýð að innan,“ sagði hann þar og sagði að þessi spilamennska væri fyrir neðan virðingu liðsins, sem er aðeins með þrjú stig í riðlinum eftir þrjá leiki og vermir þriðja sætið. „Við þurfum allir að horfa í speg- il … klukkuna vantar tvær mínútur í tólf.“ x x x De Volkskrant skóf ekki utan afþví í fyrirsögn í gær: „Ísland – Holland, köllum þetta smán.“ Blaðið segir að eftir dýrðlegan miðkafla í Brasilíu virðist árið ætla að fá dökk- an endi. Blaðamaður blaðsins segir að tína megi ýmislegt til: „Köllum þetta smán. Köllum þetta mesta skell hollenska landsliðsins í ára- tugi, eða köllum þetta hinn nýja veruleika í heimi, sem er að breyt- ast. … Bréfberafótbolti tapaði fyrir norðurevrópsku útgáfunni af nú- tímafótbolta með glefsum af tiki- taka. Í sjálfu sér er ekki skömm að tapa fyrir Íslandi, en hvernig það gerðist gefur tilefni til rækilegrar yfirlegu.“ x x x Í fréttinni segir að Íslendingar ávellinum hafi faðmast að leik loknum yfir einum af hápunktum ís- lenskrar íþróttasögu. Fyrst hafi stúkan baulað þegar hollenska liðið spilaði boltanum aftur, en síðan hlegið að þessari birtingarmynd „vanmáttar, undarlegrar leiðar til að ná stjórn á leik þegar ekkert var til að ná stjórn á“. víkverji@mbl.is Víkverji Kenn mér að gera vilja þinn því að þú ert Guð minn, þinn góði andi leiði mig um slétta braut. (Sálmarnir 143:10)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.